Tel Aviv – Spurs

0
772

Fyrsti Evrópuleikur Juande Ramos verður í dag kl 16:00 að íslenskum tíma. Það má segja að þetta sé fyrsti leikurinn undir stjórn Ramos sem verður að vinnast.

Eins og flestir vita tapaði liðið fyrsta leik sínum í riðlakeppninni, þannig að liðið má í raun ekki við því að tapa fleiri leikjum í riðlinum. Ramos mun án efa stilla upp sínu sterkasta liði en það hefur lengi verið erfitt að leika í Ísrael.

Engin meiðsli hafa gert vart við sig eftir síðasta leik, en enn er Ledley King frá vegna meiðsla. Maður þyrfti að vera skyggn til hafa minnstu hugmynd um hvenær hann muni klæðasta Tottenhambúningi aftur.

Dimitar Berbatov hefur mikið verið í fréttum þessa vikuna. Vangaveltur hafa verið um framtíð hans hjá Spurs, en heimasíða félagsins birti í dag tilkynningu þar sem Berbatov segist alls ekki vilja yfirgefa félagið, sem verða að teljast góðar fréttir.

Hins vegar hefur Berbatov verið langt frá sínu besta það sem af er þessu tímabili. Það hefur án efa lækkað mögulegt söluvirði hans þannig að afar ólíklegt er að Spurs muni reyna að selja hann í janúar.

Líklegt lið gegn Tel Aviv: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Lee, Lennon, Zokora, Jenas, Malbranque, Keane, Berbatov.