Tottenham tapaði síðasta leiknum í deildinni á tímabilinu þegar Liverpool kom í heimsókn á White Hart Lane. Dagurinn var sólríkur og leikmenn klæddust nýjum búningi sem notaður verður á næsta tímabili en ekki var sá búningur til lukku þennan daginn. Óhætt er að segja að leikurinn hafi ekki verið merkilegur að fylgjast með og voru lokatölur leiksins 2-0 fyrir gestina og það voru þeir Voronin og Torres sem skoruðu mörk Liverpool en bæði komu þau í seinni hálfleik.
Ramos var ekki á þeim buxunum að leyfa þeim ungu að spreyta sig og mætti hann með svipað lið og hefur spilað síðustu leiki. Cerny var í markinu í síðasta leik sínum fyrir félagið en lánsamningur hans rennur út núna í vor og ekki líklegt að hann verði endurnýjaður, enda hafa borist óstaðfestar fregnir af því að hann gangi til liðs við QPR. Vörnina skipuðu þeir Hutton, Dawson, Woodgate og Gilberto og á miðjunni léku þeir Malbranque, Jenas, Zokora og O´Hara. Frammi spiluðu þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu þeir Robinson, Chimbonda, Tainio, Huddlestone og Bent.
Liverpool virtist mæta ákveðnari til leiks þrátt fyrir að hvorugt liðið hefði að nokkru að keppa í þessum leik. Eftir um tíu mínútna leik átti Voronin skot að marki en Cerny sá við honum og sömu sögu má segja um hörkuskot Babel. Þegar korter var liðið af leiknum fékk Tottenham fyrsta færið sitt sem var ekki mikið meira en hálffæri. Jenas og Berbatov áttu ágætis samspil og endaði það með því að Berbatov reyndi að vippa boltanum á Keane en Reina varð fyrri til að ná boltanum. Næstu tíu mínútur var ekki mikið um marktækifæri og var það ekki fyrr en á 25.mínútu að Tottenham átti sitt besta færi í leiknum. Berbatov skallaði boltann að marki en Reina náði að verja boltann með fingurgómunum. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks náði hvorugt liðið að ná yfirburðum í leiknum og færin létu sig algjörlega vanta. Staðan í hálfleik var því 0-0 og leikmenn Tottenham engan veginn að spila eftir getu og sama má hugsanlega segja um leik Liverpool manna.
Ramos gerði sér strax grein fyrir því þegar fyrri hálfleik var að ljúka að það þyrfti að gera breytingu á liðinu og strax í hálfleik gerði hann tvær skiptingar. Huddlestone og Tainio komu inná og Jenas og O´Hara fóru af velli. En Liverpool var fyrst til að eiga hættulegt markskot í seinni hálfleik og var það nokkur heppni að boltinn fór í fætur Cerny og þaðan aftur út á völlinn. Torres fékk sendingu frá Gerrard og skaut að markinu en eins og fyrr sagði fór skotið beint í fætur Cerny og staðan enn jöfn. Keane fékk svo færi á að koma Tottenham yfir eftir sendingu frá Malbranque en skot hans fór þó ekki inn fyrir marklínuna. Gerard átti gott skot rétt yfir þverslánna og Malbranque skaut í hliðarnetið á hinum helmingi vallarins. En þegar rúmlega hálftími var eftir af leiknum virtust leikmenn Tottenham ekki hafa mikinn áhuga á leiknum og spilamennskan var ekki til fyrirmyndar. Á 69.mínútu náðu svo leikmenn Liverpool að skora. Voronin fékk sendingu frá Torres og þakkaði fyrir sig með því að senda boltann framhjá Cerny í markinu. Einungis fimm mínútum síðar skoraði Torres annað mark Liverpool og setti þar með met í ensku deildinni, þe. sá útlendingur sem hefur skorað flest mörk á fyrsta tímabili sínu í deildinni. Benayoun gaf sendingu á Torres sem lék á Dawson í vörninni og kom boltanum í netið. Dawson fór af velli stuttu síðar og Bent kom inná í síðustu skiptingu Ramos en það dugði ekki til. Cerny var sá leikmaður sem hvað mest hafði að gera síðustu mínúturnar en hann þurfti að taka á honum stóra sínum til að verja skot frá Benayoun og samherja sínum honum Hutton. Torres átti svo skot í þverslánna en síðasta færi leiksins fékk Tainio en skot hans fór lengst upp í stúku. Leiknum lauk því með sigri
Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson (Bent), Woodgate, Gilberto, Malbranque, Jenas (Huddlestone), Zokora, O´Hara (Tainio), Keane og Berbatov. Ónotaðir varamenn: Robinson, Chimbonda.






