O´Hara með nýjan samning

0
554

Jamie O´Hara hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið sem gildir til vorsins 2011. Hinn 21 árs gamli O´Hara fékk stóra tækifærið á þessu tímabili eftir að hafa komið til baka frá láni hjá neðri deildar liðum en hann hefur nú þegar spilað 25 leiki fyrir aðallið Spurs og skorað í þeim 2 mörk. Einnig hefur hann með frammistöðu sinni verið kallaður í U-21 árs landslið Englendinga.

O´Hara var í skýjunum með samninginn og var þakklátur því trausti sem þjálfarinn bar til hans. Ramos tjáði fréttamönnum að O´Hara hefði sýnt miklar framfarir og héldi hann áfram að þróa leik sinn gæti hann orðið mikilvægur hlekkur í leik liðsins. En ungir leikmenn hjá Spurs geta amk litið upp á O´Hara sem vann sig upp úr vara- og unglingaliðinu og er að stimpla sig inn sem aðalliðsleikmann.

Við óskum O´Hara til hamingu með nýja samninginn.

DEILA
Fyrri fréttTímabilinu lauk með tapi
Næsta fréttFerðasaga