Tottenham tók á móti Blackburn á White Hart Lane í leik helgarinnar. Tottenham hélt áfram baráttunni um fjórða sæti deildarinnar og mátti engin stig missa á meðan Blackburn siglir nokkurn veginn um miðja deild en þarf þó nokkur stig í viðbót til að tryggja veru sína í deildinni á næsta ári. Tvö kunnug andlit voru í Blackburn liðinu en þeir Paul Robinson og Pascal Chimbonda, sem áður léku með Tottenham, eru nú liðsmenn Blackburn. Leikurinn var framan af ekki mikið fyrir augað en Tottenham menn uppskáru að lokum sigur, 3-1 með mörkum frá Defoe og Pavlyuchenko(2) en Samba skoraði mark Blackburn manna. Með sigrinum er liðið enn í 4.sæti deildarinnar.
Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá síðasta leik, Defoe kom inn í byrjunarliðið og Crouch fór því á bekkinn. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Kranjcar, Palacios, Modric og Bale en frammi spiluðu þeir Pavlyuchenko og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Kaboul, K.Walker, Livermore, Rose, Gudjohnsen og Crouch.
Strax á upphafsmínútum leiksins fór Bale að valda varnarmönnum Blackburn vandræðum en þeir náðu þó að koma í veg fyrir að fyrirgjöf hans rataði á samherja fyrir marki Blackburn. Á 5.mínútu munaði litlu að Samba næði að skalla boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Pedersen, en boltinn fór yfir höfuðið á Samba. Þegar um korter var liðið af leiknum átti Ekotto góða sendingu inn í teiginn frá endalínunni og boltinn rataði til Pavlyuchenko. Hann þrumaði að marki en skot hans fór rétt framhjá markinu. Svipaða sögu er að segja frá færi sem Tottenham fékk fjórum mínútum síðar en í þetta skipti var það Bale sem lék vel á Salgado og gaf á Pavlyuchenko á færstönginni en skot hans fór framhjá. Eftir um 25 mínútna leik þurfti Paul Robinson, markvörður Blackburn, að fara meiddur af leikvelli og inná í hans stað kom varamarkvörður þeirra, Brown. Þegar hálftími var liðinn af leiknum fékk Bale gott færi eftir langa sendingu frá Dawson en skot hans fór vel framhjá markinu. Á næstu mínútum átti Brown tvær góðar markvörslur, annars vegar varði hann vel þegar skot fór í samherja hans og stefndi í netið en í hitt skiptið átti Defoe gott skot að marki sem Brown náði að pota framhjá. En í uppbótartíma dró til tíðinda. Tottenham fékk hornspyrnu sem Kranjcar tók og gaf fyrir markið. Corluka hoppaði og skallaði boltann í átt að fjarstönginni þar sem Defoe kláraði færið, staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Og þannig var staðan í hálfleik.
Seinni hálfleikur hófst frekar rólega og lítið um dauðafæri. Það var ekki fyrr en á 55. mínútu að Modric náði boltanum eftir ágæta sókn Blackburn manna og tók á sprett upp völlinn. Hann gaf á Defoe og Pavlyuchenko fylgdi honum. Tveir á móti tveimur varnarmönnum Blackburn sýndu þeir gott samspil, Defoe gaf boltann á Pavlyuchenko sem þrumaði boltanum í netið. Staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham. Níu mínútum síðar fékk Modric góða sendingu frá Palacios inni í teiginn en skot hans að marki fór rétt framhjá. Á 67.mínútu töldu allir að Howard Webb, dómari leiksins, hefði dæmt vítaspyrnu á Blackburn menn eftir að Salgado felldi Bale innan vítateigs, en hann var í mesta basli með hann allan leikinn. Það urðu því allir undrandi þegar í ljós kom að Webb dæmdi einungis markspyrnu, en skv. sjónvarpsupptökum hefði klárlega átt að dæma víti. En dómarinn hefur valdið og leikurinn hélt áfram. Fimm mínútum síðar vildu Tottenham aftur fá víti þegar Bale var enn og aftur felldur innan vítateigs en Webb var ekki á þeim buxunum að dæma vítaspyrnu. Á 80.mínútu tóks Blackburn mönnum að minnka muninn með marki eftir hornspyrnu. Pedersen tók hornspyrnuna og gaf inn í teiginn þar sem Samba skallaði boltann í netið. Staðan orðin 2-1 Tottenham í vil. Harry gerði sína fyrstu breytingu á liðinu á 82.mínútu, Crouch kom inná fyrir Defoe. En á 85.mínútu gerðu leikmenn Tottenham úti um leikinn með marki frá Pavlyuchenko, sem er aldeilis á skotskónum þessa dagana. Boltinn barst til Pavlyuchenko inni í teig en hann hitti boltann illa. Blackburn menn náðu ekki að hreinsa almennilega og barst boltinn út á vinstri kantinn til Bale sem kom honum glæsilega fyrir markið og í þetta skiptið gerði Pavlyuchenko engin mistök og skoraði af öryggi framhjá Brown í markinu. Staðan orðin 3-1 heimamönnum í vil. Samba fékk svo ágætt færi til að bæta við marki en leikmenn Tottenham vörðust vel. Guðjohnsen kom svo inná fyrir Modric þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Á lokamínútunum komst Bale í gott færi en Brown varði vel. Fleiri mörk voru ekki skoruð í þessum leik og Tottenham fór því með sigur af hólmi 3-1.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Kranjcar, Palacios, Modric(Guðjohnsen), Bale, Defoe(Crouch), Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Kaboul, K. Walker, Livermore, Rose.
SAJ






