Eiður skoraði í góðum útisigri á Stoke

0
621

Tottenham heimsótti Stoke á Britannia Stadium í leik helgarinnar. Tottenham átti harma að hefna enda hirtu Stoke menn öll stigin í viðureign liðanna á White Hart Lane fyrr á tímabilinu. Stoke menn eru hins vegar afar sterkir á heimavelli og því var búist við baráttuleik. Tottenham fór þó með sigur af hólmi í þessari viðureign en lokatölur leiksins voru 1-2 og var Eiður Smári lykilmaður í leiknum, en hann skoraði fyrra mark Tottenham og átti þátt í síðara markinu. Tottenham heldur því 4. sætinu eins og er en baráttan um það er orðin ansi hörð.

 

Harry gerði 2 breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Blackburn, Crouch kom inn í liðið í stað Defoe sem var meiddur og Kaboul tók sæti á miðjunni í stað Palacios, en sá síðarnefndi er einungis 1 spjaldi frá tveggja leikja leikbanni og því hvíldur. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Kranjcar, Kaboul, Modric og Bale og frammi þeir Crouch og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Dervite, Livermore, Parrett, Palacios, Townsend og Guðjohnsen.

 

Það var ekki mikið um merkileg marktækifæri á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. Bæði lið gerðu tilraunir til að koma sér í góð skotfæri en baráttan var mikil og þurfti Bale m.a. á læknisaðstoð að halda eftir að ítrekað var brotið á honum. Hann komst þó heill frá þessum brotum. Á 18.mínútu fékk Tottenham gott færi þegar Pavlyuchenko lagði boltann upp fyrir Kranjcar sem þrumaði að marki en Sörensen varði. Boltinn barst út í teiginn þar sem Crouch var hársbreidd frá því að ná til boltans en Sörensen sýndi skjót viðbrögð og náði boltanum. Leikmenn Stoke fengu svo 2 góð færi eftir hornspyrnur en tókst ekki að stýra boltanum í netið. Pavlyuchenko reyndi skot á markið en Sörensen var vel vakandi. Þegar 10 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks fengu Stoke menn innkast og tóku það eins og þeim einum er lagið. Langur bolti barst inn í teiginn þar sem Kitson skaut að marki. Gomes var vel vakandi og blakað boltanum til hliðar við markið. Á 36. mínútu þurfti Pavlyuchenko að fara af velli meiddur og inná í hans stað kom Eiður Smári Guðjohnsen. Á lokamínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik komst Bale í gott færi en Faye náði að koma við boltann og breytti boltinn því um stefnu og fór framhjá markinu. Stoke menn áttu svo síðasta færið í leiknum en Fuller náði ekki að koma boltanum í netið. Staðan í hálfleik því 0-0.

 

Það voru aðeins 20 sekúndur liðnar af síðari hálfleik þegar Tottenham náði að komast yfir og var það enginn annar en Eiður Smári Guðjohnsen sem skoraði mark Tottenham. Crouch sendi góða stungusendingu inn fyrir á Eið sem náði að skora framhjá Sörensen þrátt fyrir að Faye fylgdi honum vel eftir. Staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham og Eiður kominn með sitt fyrsta mark fyrir félagið. Þremur mínútum síðar lék gæfan ekki við Stoke menn því Whitehead fékk sitt annað gula spjald fyrir brot á Modric og fékk því reisupassann. Modric, Kranjcar og Ekotto fengu svo allir færi til að bæta við á næstu mínútum en inn vildi boltinn ekki. Á 61. mínútu átti Tottenham stórsókn þar sem Eiður Smári, Kaboul og Bale létu skotin dynja á marki Stoke manna en vörn þeirra hélt vel og Sörensen var vel vakandi í markinu. Mínútu síðar fengu Stoke menn vítaspyrnu fyrir bakhrindingu Ekotto á Kitson. Etherington, fyrrum leikmaður Tottenham, steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Gomes. Staðan því orðin jöfn á ný, 1-1. Á 70.mínútu fengu heimamenn gullið tækifæri eftir mistök Corluka en hann skallaði boltann beint til Delap sem gaf á Fuller fyrir framan markið en skot hans fór framhjá. En á 77. mínútu leiksins dró aftur til tíðinda þegar Tottenham náði að komast yfir á ný. Ekotto gaf góða fyrirgjöf inn í teiginn, Eiður Smári ákvað að hoppa yfir boltann sem barst þar af leiðandi til Kranjcar sem var í mun betra færi og skoraði af öryggi framhjá Sörensen. Staðan orðin 1-2. Bale fékk svo ágætt færi til að bæta við og minnstu munaði að Sidebe næði að jafna eftir mistök í vörn Tottenham en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og því lauk leiknum með sigri Tottenham 1-2.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Kranjcar(Livermore), Kaboul, Modric, Bale, Pavlyuchenko (Guðjohnsen), Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Dervite, Palacios, Parrett, Townsend.

 

SAJ