Tottenham í undanúrslit FA bikarsins

0
602

Tottenham tók á móti Fulham á White Hart Lane á miðvikudagskvöldið í endurspili um sæti í undanúrslitum FA bikarsins. Liðin gerðu markalaust jafntefli þegar þau mættust á Craven Cottage þann 6.mars og því þurfti annan leik til að knýja fram sigurvegara úr þessari viðureign. Leikmenn Fulham byrjuðu leikinn mun betur og náðu forystu í leiknum en leikmenn Tottenham komu sterkir tilbaka í síðari hálfleik og náðu yfirhöndinni í leiknum. Leiknum lauk með sigri Tottenham 3-1 og voru það þeir Bentley, Pavlyuchenko og Eiður Smári Guðjohnsen sem skoruðu mörkin, en þetta var annað mark Eiðs Smára í jafnmörgum leikjum. Tottenham mætir því liði Portsmouth í undanúrslitum FA bikarsins þann 11. apríl nk.

 

Vegna mikilla meiðsla sem og að það að sumir leikmenn mega ekki spila í FA bikarnum þar sem þeir hafa áður leikið með öðrum liðum í keppninni, þá átti Harry Redknapp ekki í miklum vandræðum með að velja byrjunarliðið. Það var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Kranjcar, Palacios, Modric og Bale og sóknin var skipuð þeim Crouch og Eið Smára. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Livermore, Townsend, Rose, Bentley, Huddlestone og Pavlyuchenko en Bentley og Huddlestone voru báðir að koma tilbaka úr meiðslum og hófu því leikinn á bekknum.

 

Andrúmsloftið var magnað á White Hart Lane enda bikarkvöld ávallt sérstök og mikil stemming fyrir þeim meðal stuðningsmanna. Bæði lið komu ákveðin til leiks og sóttu til sigurs. Á fyrstu 10 mínútum leiksins áttu Murphy og Davies skot á markið sem Gomes varði og Etuhu reyndi skot sem hafnaði í Bassong. Á hinum enda vallarins átti Palacios gott skot að marki sem fór framhjá og Modric var líflegur innan vítateigs Fulham manna en kom boltanum ekki í netið. En á 18.mínútu náðu gestirnir forystu með marki frá fyrrum spursaranum, Bobby Zamora. Duff gaf þá góða sendingu á Zamora sem var staðsettur hægra megin í vítateignum og kom boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 0-1 fyrir Fulham og stuðningsmenn Tottenham allt annað en ánægðir. Eiður Smári komst í gott færi en náði ekki að nýta það. Á 27.mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu eftir að boltinn virtist fara í höndina á Kelly innan teigs, en það hefði verið harður dómur. Crouch kom þó boltanum inn í teiginn á Eið Smári sem var vel dekkaður, en hann náði að spyrna að marki með hælnum. Schwarzer náði þó að verja skot hans. Modric fékk svo tækifæri til að jafna leikinn en skot hans fór framhjá. Fulham menn fengu svo tvö færi undir lok fyrri hálfleiks en tókst ekki að nýta þau og staðan því 0-1 í hálfleik Fulham mönnum í vil.

 

Harry tók djarfa ákvörðun í hálfleik og ákvað að gera tvöfalda skiptingu og setja bæði Bentley og Huddlestone inná en þeir Ekotto og Kranjcar fóru af velli í staðinn fyrir þá. Bale færði sig þá í vinstri bakvarðarstöðuna, Modric fór á vinstri kantinn, Huddlestone á miðjuna og Bentley á hægri kantinn. En strax á annarri mínútu síðari hálfleiks tókst Tottenham að jafna leikinn beint úr aukaspyrnu. Kelly braut á Bale á vinstri kantinum og Bentley tók aukaspyrnuna og sendi langan bolta inn í teiginn en boltinn fór framhjá öllum og hafnaði í netinu, en þetta var hans fyrsta snerting í leiknum. Staðan orðin jöfn, 1-1. Stuttu síðar átti Bale skot að marki sem fór rétt yfir. En á 50. mínútu varð Corluka fyrir meiðslum á ökkla og gat ekki haldið áfram og því þurfti Harry að nota þriðju og síðustu skiptinguna í leiknum. Pavlyuchenko kom inná í hans stað en það þýddi að Palacios tók stöðu hægri bakvarðar, Eiður Smári bakkaði á miðjuna og Pavlyuchenko fór í framlínuna. Bentley reyndi svo aftur að hrella Schwarzer í markinu úr aukaspyrnu en í þetta skiptið var hann vel vakandi. Crouch og Pavlyuchenko fengu báðir ágætis færi en náðu ekki að nýta þau. En þegar um klukkustund var liðin af leiknum náðu leikmenn Tottenham forystu í leiknum með marki frá Pavlyuchenko. Bentley tók á sprett upp hægri kantinn og gaf góða fyrirgjöf á fjarstöngina þar sem Pavlyuchenko tók við boltanum og potaði honum í netið. Staðan orðin 2-1 fyrir heimamenn. Markið varð til þess að auka enn á sjálfstraust Tottenham manna og sóknirnar dundu á Fulham mönnum. Pavlyuchenko og Modric átti báðir fín færi sem Schwarzer varði en á 66. mínútu var lítið sem hann gat gert annað en að hirða boltann úr eigin marki. Modric gaf góða sendingu inn í teiginn á Eið Smára sem potaði boltanum framhjá Schwarzer og staðan því orðin 3-1 þegar rúmlega 20 mínútur voru til leiksloka. Fulham menn reyndu að jafna leikinn og áttu þeir Zamora og Dempsey góðar tilraunir sem Gomes náði þó að verja. Ekki urðu mörkin fleiri en Tottenham varð fyrir því áfalli að Bassong meiddist á lokamínútunum og haltraði af velli. Tottenham er því komið áfram í undanúrslit FA bikarsins sem fram fara á Wembley þann 11.apríl þegar liðið mætir Portsmouth.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka(Pavlyuchenko), Dawson, Bassong, Ekotto(Huddlestone), Kranjcar(Bentley), Palacios, Modric, Bale, Crouch, Guðjohnsen. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Townsend, Livermore, Rose.

 

SAJ