Tottenham-Cardiff 4-0

0
692

Leikmenn okkar komu greinilega með réttu hugarfari í þennan umspilsleik í þriðju umferð FA bikarsins. Ekki veitti af eftir vonbrigði síðustu tveggja heimaleikja. Jol gerði fjórar breytingar á liðinu. Keane byrjaði frammi fyrir Defoe og Zokora tók sæti Tainio á miðjunni. Þá komu Gardner og Ekotto inn í vörnina fyrir Lee og Davenport sem sögur segja að sé að fara til West Ham. En að leiknum. Cardiff náði að hanga í Tottenham í tæpan hálftíma. Þó var ljóst á þeim tíma að sennilega yrði það Spurs sem færi áfram en ekki Cardiff. Á 27. mínútu opnaði Lennon markareikningin eftir að vörn Cardiff hafði stoppað vegna rangstöðu á Keane sem stóð kyrr og hafði því ekki áhrif, en Lennon stakk sér hinsvegar innfyrir og kláraði málið. Næsta mark kom þrem mínútum seinna og þá var það Keane sem skoraði eftir sendingu frá Berbatov. Segja má að þar með hafi leiknum lokið hvað Cardiff varðaði. En Tottenham menn voru ekki hættir. Ekotto átti sendingu á Steed á 42. mínútu sem frakkinn setti inn út við stöng af 25 metra færi. Besta mark leiksins. Seinni hálfleikurinn var svo einstefna að marki Cardiff og þurfti Robinson varla að hafa fyrir neinu út leikinn. Ghaly kom inn fyrir Steed á 64. mínútu og Defoe skipti við Berbatov á 69. mínútu og síðan kom Tainio inná fyrir Zokora á 75. mínútu. Defoe setti fjárða markið á 81. mínútu og hefur þá skorað 14 mörk í vetur. Allt liðið lék vel þó það verði að segjast að Cardiff var ekki nándar nærri eins sterkt og í fyrri leiknum. Zokora, Gardner, Lennon og Steed voru fínir og Keane stóð sig vel. Þá klikkaði Berbatov ekki. Í fjórðu umferð leikum við gegn Southend á WHL þann 27. jan. verður það í annað skiptið á þessari leiktíð sem við mætum þeim en við unnum þá í deildarbikarnum eftir framlengingu á WHL í desember.
Liðið:
Robinson; Chimbonda, Dawson, Gardner, Ekotto; Lennon, Zokora (Tainio, 75), Huddlestone, Malbranque (Ghaly, 64); Berbatov (Defoe, 69), Keane
Varamenn: Cerny, Lee.