Tottenham – Newcastle 2-3

0
741

Ótrúlegt tap hjá Tottenham í dag á heimavelli gegn Newcastle.  Að tapa leiknum 2-3 er með hreint ólíkindum.  Vorum við miklu betri í alla staði í dag og hefðum held ég hæglega getað skorað 7-8 mörk !!  En þetta var ekki að falla með okkur í dag og tap staðreynd,  annað deildartapið í röð á heimavelli.

Leikurinn byrjaði fjörlega í dag. Leikmenn Tottenham voru greinilega í gírnum og ætluðu sér stóra hluti. Leikurinn var bara nokkura mínútna gamall þegar Berbatov fékk fyrsta færi’ en Given sá við honum. Það var svo eftir stórsókn Tottenham 14 mínútu sem fyrsta markið leit dagsins ljós, eftir mikla pressu Tottenham geistist lið Newcastle fram á við, Tainio vann boltann, sendi á Huddlestone sem átti snilldarsendingu á Malbranque úti á vinstri kanti sem geistist fram og átti svo hárnákvæma sendingu fyrir markið þar sem Defoe var einn og óvaldaður og setti boltann í netið. En endursýning sýndi að Defoe var rangstæður, en svona er boltinn. (1-0)

Aðeins 2. mínútum síðar jafnaði Newcastle .. mjög svo gegn gangi leiksins, en fram að marki Newcastle var aðeins eitt lið á vellinum. Aukaspyrna frá hægri kanti lenti á fjærstöng þar sem P. Huntington var óvaldaður og ætlaði að skalla inn í teiginn en boltinn fór í varnarmann og hrökk aftur til hans og var hann ekkert að tvínóna við hlutina heldur hamraði boltanum með jörðinni á nærstöngina, á milli fóta Davenport og á milli fóta Robinson !!! (1-1)

Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks voru Tottenham mun hættulegri og átti Malbranque til að mynda skot utan að velli en rétt framhjá þegar Given var í einhverju skógarferð. Defoe var mjög hættulegur og eins átti Berbatov nokkrar tilraunir. Newcastle beitti skyndisóknum sem voru oft hættulegar en það var Tottenham sem réð ferðinni, en Given var í essinu sínu í fyrri hálfleik og kom í veg fyrir fleiri mörk Tottenham.

Svo voru bara læti og smá slagsmál á leið til búningsherbergja, þar sem Chimbonda var að slá Butt og Butt að hrinda Chimbonda. Butt fékk gult, sem og Chimbonda, held að Chimbonda geti verið ánægður með það, þar sem það er rautt spjald ef þú lyftir hendi og slærð einhvern, svo einfalt er það. Svo sá maður að Butt var alveg stjörnuvitlaus niðri í göngunum, líklega að reyna að ná í skottið á Chimbonda til að launa honum lambið gráa.

STATS EFTIR FYRRI HÁLFLEIK:

Marktilraunir : Spurs 13 Newcastle 4

Á markið : Spurs 7 Newcastle 2

Hornspyrnur : Spurs 0 Newcastle 2

Með bolta : Spurs 56% Newcastle 44%

Gul Spjöld : Tottenham 1 Newcastle 3

Á 53 mínútu kom svo þriðja mark leiksins. Eftir góða sókn hjá Tottenham, átti Malbranque fína sendingu í átt að endamörkum á Chimbonda sem sendi góðan bolta fyrir markið, þar var Tainio aleinn og skaut að marki en á einhvern ótrúlegan hátt náði Solano að bjarga marki .. boltinn kom út og til Berbatov sem skaut í fyrsta hnitmiðuðu skoti sem skoppaði á grasinu og endaði ofarlega í fjærhorninu. Mjög svo glæsilega afgreitt hjá Berbatov. (2-1).

Eftir markið hélt Tottenham áfram að pressa að marki Newcastle og fannst manni að mark númer 3 væri á leiðinni … Newcastle voru ekki ýkja hættulegir fram á við.

Huddlestone komst svo nálægt því að bæta við marki á 65. mínútu þegar skot hans fyrir utan teig fór rétt framhjá, með viðkomu í varnarmanni.

Svo upp úr engu jafnaði Newcastle leikinn á 71. mínútu. Martins fékk boltann fyrir utan teig með bakið í markið, lék með boltann nær teignum og svo þegar hann var rétt fyrir utan teig við D-bogann, með Dawson alveg í sér, snýr hann sér á punktinum og hamrar boltanum upp í þaknetið, alveg við samskeytin nær, alveg óverjandi fyrir Robinson (2-2).

2. mínútum síðar skora svo Newcastle aftur, nú er það N.Butt sem skorar, af öllum mönnum!!. Newcastle er með boltann úti á kanti, senda inn á miðju og þar kemur góð stunga inn á Butt sem er að hlaupa inn í teiginn og fær Butt boltann beint í fæturna og skorar með föstu skoti í fjærhornið niðri úr þröngri stöðu. Hefði viljað sjá Robinson nota fæturna til að verja skotið í stað þess að reyna að verja með hendinni (2-3).

Á 79. mínútu var Tottenham nálægt því að jafna í tvígang, fyrst átti Keane ( sem kom inná sem varamaður) gott skot að marki eftir góðan undirbúning Zokora og Lennon, en Solano náði að blokka skotið, sem var án efa á leið í markið. Tottenham hélt boltanum, sending kemur fyrir á Berbatov sem er einn , en skallar framhjá.

Á 85. mínútu átti Defoe hörkuskot með vinstri fæti fyrir utan teig sem small í stönginni á Newcastle markinu, Given hvorki hreyfði legg né lið í skotinu .. óheppnin þar að elta Tottenham.

Tottenham pressaði á mark það sem eftir lifði leiks en inn vildi boltinn ekki þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir, þá sérstaklega á 90.mín þegar Ghaly átti góðan sprett inn í teiginn, en í stað þess að skjóta, þá gaf hann boltann út og sóknin rann út í sandinn. Ósanngjarnt tap á heimavelli staðreynd í mjög svo skemmtilegum leik. Tottenham liðið spilaði góðan fótbolta í dag. En fjarvera King er að kosta okkur þessa dagana.  Höfum ekki unnið leik síðan King meiddist !!!

Maður leiksins að mínu mati : Defoe, 8 marktilraunir, 4. á markið og eitt mark.

STATS ÚR LEIKNUM :

Marktilraunir : Spurs 24 Newcastle 10

Á markið : Spurs 13 Newcastle 5

Hornspyrnur : Spurs 5 Newcastle 3

Með bolta : Spurs 56% Newcastle 44%

Aukapyrnur : Spurs 9 Newcastle 8

Gul spjöld : Spurs 1 Newcastle 4

Lið Tottenham í leiknum : Robinson , Chimbonda , Davenport ( Ghaly 88 ) , Dawson , Lee , Malbranque ( Keane 75 ) , Tainio ( Zokora 79 ) , Huddlestone , Lennon , Berbatov , Defoe. Ónotaðir varamenn : Cerny , Gardner

Birgir Ó