Á morgun er næsti leikur Tottenham í deildinni. Heimaleikur gegn Newcastle og hefst hann kl. 16.00. Mjög mikilvægt að sigra í þessum leik til að vera áfram í keppninni um Evrópusæti á næstu leiktíð. Árangur Tottenham á heimavelli hefur verið mjög góður á tímabilinu.
Höfum aðeins tapað tveimur leikjum heima á þessu tímabili … og var sá seinni gegn L´pool 30.des mjög ósanngjarnt. Þessi leikur verður einmitt sá fyrsti af 7 leikjum sem við eigum fyrir höndum á næstu 22. dögum .. þannig að það verður stíft prógrammið á næstunni.
Höfum við sigrað Newcastle heima síðustu 3 tímabil.
2005 / 2006 2-0 Tainio & Mido
2004 / 2005 1-0 Defoe
2003 / 2004 1-0 Sjálfsmark.
Spái sigri okkar manna 1-0 …
Birgir Ó






