Enn þurfum við að bíða eftir fyrsta sigrinum á tímiblinu þrátt fyrir að hafa komist yfir í báðum heimaleikjunum höfum við fengið á okkur mark í lok leiks.
Leikurinn í gær var nánast endurtekið efni frá síðasta heimaleik. Byrjunarliðið var Friedel-Walker-Gallas-Vertongen-Ekotto-Livermore-Sandro-Gylfi-Bale-Lennon-Defoe og bekkurinn Cudicini-Caulker-Naughton-Huddlestone-Dembele-Townsend-Adebayor. Tottenham byrjaði leikinn á því að halda boltanum meira án þess að skapa sér neina verulega hættu þar sem leikmennirnir virtust hugmyndasnauðir þegar kom að sóknarleik ólíkt gestunum sem voru fljótir upp völlinn þegar þeir unnu boltann og sköpuðu sér hættuleg færi eftir föst leikatriði, enda leið ekki að löngu áður en gestirnir höfðu sett boltann í tréverkið en þar var að verki Russel Martin sem skallaði góða aukaspyrnu frá Snodgrass og áður en hálfleikurinn endaði þurfti gamli maðurinn í búrinu hjá okkur að sýna hvað hann getur þegar hann varði stórkostlega skalla frá Snodgrass og verður greinilega erfitt val fyrir AVB að velja markmann í næsta leik. Sóknarleikur Tottenham virtist tilviiljanakenndur og óskipulagður greinilegt að liðið saknar Luka Modric mjög mikið. Helstu færi Tottenham í fyrri hálfleik voru skot frá Bale og Gylfa ásamt nokkrum fyrirgjöfum sem rötuðu ekki á þá sóknarmenn sem voru komnir í boxið og svo fær Sandro bjartsýnisverðlaunin fyrir að hafa reynt skot á 35-40 metra færi.
Strax í hálfleik gerðii AVB skiptingu Dembele kom inná í sínum fyrsta leik fyrir Sandro sem átti hræðilegan leik í fyrri hálfleik. Við það breyttist leikur Tottenham til muna og sóknarleikurinn rúllaði mun betur en þrátt fyrir þetta náðu Tottenham ekki að skapa sér nein veruleg marktækifæri en þeim tókst að halda aftur á gestunum sem virtust eiga í erfiðleikum að halda boltanum innan síns lið. Á 56. mínútu gerðu heimamenn aðra skiptingu þegar Adebayor kom inná fyrir Gylfa sem hefur átt betri leik en þetta. Það var svo á 68. mínutu að okkar mönnum tókst loks að brjóta múrinn eftir gott einstaklingsframtak hjá Dembele og kláraði hann sóknina með föstu og hnitmiðuðu skoti neðst í hornið óverjandi fyrir Ruddy í markinu. Eftir þetta jafnaðist leikurinn töluvert og okkar menn færðu sig aftar á völlinn það var svo á 81. mínútu að við sáum aftur varnarsinnaða skiptingu hjá AVB sem greinilega ætlaði að halda 1-0 forystunni en Huddlestone kom inná fyrir Defoe sem reyndar var ekki búinn að sýna neitt í leiknum. Það var svo eftir stífa sókn gestann að þeir jöfnuðu eftir klafs í teignum þar sem boltinn barst til Snodgrass sem brást ekki bogalistinn og jafnaði leikinn á 85. mínútu. Það var svo á 89. mínútu sem Mark „Headline“ Halsey kórónaði leik sinn með að reka Tom Huddlestone útaf fyrir 50-50 tæklingu við Howson, Halsey flautaði ekki strax en eftir að Howson lá eftir og Huddlestone rauk upp á eftir boltanum að flautað var og beint rautt staðreyndin vægast sagt mjög strangur dómur. Stigið var ennþá ekki öruggugt og þurfti Friedel að sýna smá takta í blá lokin til að tryggja stigið klárlega maður leiksins hjá Tottenham.
Eftir þennan leik er Tottenham með 2 stig eftir 3 leiki en til gamans má geta að eftir leikina við þessi lið á síðasta tímabili var liðið líka með 2 stig, en greinilegt að liðið þarfnast einhverskonar leikstjórnanda á miðjuna og það er ekki hægt að hafa Sandro og Livermore saman á miðjunni þegar liðið þarf að sækja. Dembele sýndi það í þessum leik að hann hefur margt til að geta leyst þessa leikstjórnanda stöðu.









