Meistarar friðarins

0
785

Tottenham var rétt í þessu að vinna Lyon í úrslitaleik "Peace Cup" í Suður-Kóreu. Leiknum lauk 3-1 og gerði Keane tvo mörk bæði eftir fyrirgjöf frá Mido og eitt mark var sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Kelly. 

Fyrri hálfleikur var mjög vel leikinn af okkar hálfu og eftir aðeins 9. mínútnaleik vorum við komnir í 2-0. Fyrst kom sjálfsmarkið og svo átti Reid frábæra sendingu fram vinstri kantinn á Mido sem sendi hann fyrir beint á kollinn á Keane sem hamraði boltan í netið. Þetta sló Lyon menn algerlega út af laginu og áttum við miklu meira í leiknum fram að hálfleik. Í uppbótatíma hálfleiksins kom svo nánast eins mark og annað markið, Reid átti sendingu fram vinstri kantinn á Mido sem gaf viðstöðulaust fyrir á fjarstöngina en þar var Keane mættur til að setja hann. Staðan í hálfleik því 3-0. Í seinni hálfleik gáfum við tölvert eftir og Lyon komst inn í leikinn og átti nokkur góð færi. Þeir fengu svo vafasama vítaspyrnu sem einhver Arfi skoraði úr undir Cerny. Við héldum svo út restina af leiknum og unnum þar með þetta mót með glæsibrag. Af framistöðu leikmanna fannst mér Cerny, Keane og Gardner standa sig einna best. Einnig voru Carrick, Tainio, Routledge og Mido mjög góðir. Enginn stóð sig illa að mínu viti. Þó þetta sé aðeins æfingarmót er þetta mikilvægur skóli fyrir hið unga lið okkar og gott veganesti til að fara með í Úrvalsdeildina.

Liðið: Cerny, Kelly, Edman (Bunjevcevic, 36), King, Gardner, Routledge, Reid, Tainio (Mendes, 45; Marney 88), Carrick, Mido (Kanoute, 67), Keane (Defoe, 65). Varamenn: Fulop, Burch, Yeates, Davenport, Huddlestone, Lennon, El-Hamdaoui.