Tottenham gerði fjórða jafnteflið í röð þegar Bolton kom í heimsókn á White Hart Lane. Enn á ný voru tvö mörk skoruð, eitt af hvoru liðinu og lauk því leiknum 1-1. Bolton komst yfir í leiknum en Steed Malbranque jafnaði leikinn fyrir Tottenham. Til gamans má geta að nýjasti leikmaður Spurs, Luka Modric, horfði á leikinn úr stúkunni með Levy og Comolli.
Ramos stillti upp sterku liði í leiknum og virðist ekkert ætla að nýta þessa leiki til að prófa ungu leikmennina. Cerny hélt stöðu sinni í markinu og vörnin var skipuð þeim Hutton, Dawson, Woodgate og Gilberto. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu þeir Robinson, Tainio, Huddlestone, O´Hara og Bent.
Leikurinn fór rólega af stað og ekki mikið um marktækifæri á fyrstu mínútum leiksins fyrir utan skot Keane á mörkum vítateigsins en ekki fór boltinn inn. Það var ekki fyrr en að um hálftími var liðinn af leiknum að marktækifærin fóru að koma á fullu. Malbranque átti t.a.m. skot rétt framhjá markinu á 27.mínútu og Gilberto átti skot utan að velli sem Habsi, markvörður Bolton, þurfti að hafa sig allan við að verja. Tottenham náði nokkurri yfirhönd í fyrri hálfleiknum án þess að þó að eiga mörg dauðafæri. Rétt fyrir lok hálfleiksins tók Gilberto þó aukaspyrnu hægra megin fyrir utan teiginn og gaf inn í teig þar sem boltinn fór í Bolton mann og breytti um stefnu og fór rétt framhjá stönginni. Staðan var því jöfn 0-0 í hálfleik.
Áður en seinni hálfleikur hófst þurfti Hutton að fara af velli sökum þess að hann rak fótinn í vegg þegar hann fór af fullum krafti út af vellinum á hraðri ferð og hálfpartinn upp í stúku, eftir hraðasókn Tottenham í fyrri hálfleik. Huddlestone kom inná í hans stað og færði Zokora sig þá aftur í hægri bakvörðinn. Í hálfleik gerðu Bolton menn einnig skiptingar og átti það eftir að borga sig. Á upphafsmínútu seinni hálfleiks kom Stelios, varamaður Bolton, knettinum framhjá Cerny í markinu. Varnarmönnum Tottenham tókst ekki að koma boltanum í burtu eftir lága fyrirgjöf Bolton manna og nýtti Stelios færið og skorað mark Bolton og staðan því orðin 0-1 fyrir gestina. En Boltonmenn höfðu þó ekki yfirhöndina í langan tíma því 6 mínútum síðar jafnaði Malbranque leikinn fyrir Tottenham. Jenas kom boltanum til Keane sem skaut að markinu. Boltinn fór þó í leikmann Bolton og breytti um stefnu en Malbranque náði boltanum og skaut framhjá Habsi í markinu. Strax eftir jöfnunarmarkið tók Ramos Dawson af velli og setti Bent inná í stað hans til að reyna að ná öllum stigunum. Huddlestone bakkaði þá í miðvörðinn og Keane bakkaði aðeins á miðjuna. Keane átti svo möguleika á að koma Tottenham yfir eftir smá dans í teignum en Habsi varði vel. Eftir um klukkustundarleik átti Malbranque skot í stögina og Habsi varði lágt skot Berbatovs sem stefndi í annað hornið. Pressan jókst á Bolton menn og komst Bent einn á móti Habsi eftir góða sendingu frá Huddlestone en Habsi náði að grípa boltann. Þegar um korter var eftir af leiknum fór Malbranque að velli og O´Hara kom inná í síðustu skiptingu liðsins. Á lokamínútunum áttu leikmenn Tottenham 3 hættulega skalla að markinu. Woodgate skallaði rétt yfir, Bent skallaði að markinu en sá bolti var varinn á línu og Berbatov skallaði líkt og Woodgate rétt yfir markið. Leikur Tottenham einkenndist af því að nýta ekki færin enda fékk liðið vel yfir 20 markskot en boltinn fór þó bara einungis einu sinni yfir marklínu Bolton manna og lauk því leiknum með 1-1 jafntefli, fjórða leikinn í röð.
Lið Spurs: Cerny, Hutton (Huddlestone), Dawson (Bent), Woodgate, Gilberto, Lennon, Jenas, Zokora, Malbranque(O´Hara), Keane, Berbatov. Ónotaðir varamenn: Robinson, Tainio.






