Fréttir af leikmannahópnum

0
636

Þar sem tímabilinu er lokið hafa orðið nokkrar breytingar á leikmannahópnum hvað varðar lánssamninga en einnig hafa samningar verið endurnýjaðir við yngri leikmenn.

Fyrst ber að nefna að Cerny hefur lokið lánssamningi sínu hjá liðinu en hann var á lánssamning frá Slavia Prag sl. þrjú ár. Hann var lengstum varamarkvörður liðsins en á þessari leiktíð fékk hann að spila töluvert meira og byrjaði t.a.m. 20 leiki á tímabilinu á milli stanganna. Tottenham kaus þó að gera ekki lengri samning við hann og hefur hann nú samið við QPR og mun spila með þeim amk næstu 2 árin. Við þökkum Cerny kærlega fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum velfarnaðar hjá nýju liði.

Tveir leikmenn Tottenham, þeir Ghaly og Stalteri, voru á láni hjá öðrum úrvalsdeildarliðum. Ghaly var hjá Derby og Stalteri hjá Fulham og lauk lánssamningum þeirra beggja að loknum tímabilinu og hafa þeir því snúið til baka til Tottenham. Ekki er þó líklegt að þeir muni klæðast Tottenham treyjunni á næsta tímabili, samningur Stalteri er á enda og Ghaly hefur ekki leikið með liðinu eftir að hafa kastað treyju sinni í jörðina í mótmælaskyni fyrir rúmlega ári síðan. Mun það væntanlega skýrast á næstu vikum hvar þeir munu spila á næsta tímabili.

Af leikmönnum varaliðsins er það að frétta að félagið hefur gert nýjan samning við tvo leikmenn, þá Cian Hughton og Leigh Mills. Hins vegar voru samningar Jamie Davis og Chris Riley ekki endurnýjaðir.

DEILA
Fyrri fréttFerðasaga
Næsta fréttSpurs semur við Bostock