Spurs semur við Bostock

0
498

Tottenham hefur gert samning við John Bostock, 16 ára gamlan enskan miðjumann. Bostock var á mála hjá Crystal Palace en hefur nú gert samning við Tottenham. Hann er gríðarlega efnilegur og er yngsti leikmaðurinn sem spilað hefur fyrir Crystal Palace. Hann hefur einnig leikið með U16 og U17 ára landsliðum Englands. Sökum ungs aldurs var hann ekki á atvinnumannasamningi hjá Palace og því frjálst að ræða við önnur lið án þess að samráð væri haft við lið hans. Palace hafa þó lýst því yfir að hann sé enn leikmaður þeirra en líklegt þykir að málið fari fyrir dómstól sem ákveður upphæð sem Tottenham þarf að greiða, svokallaðar uppeldisbætur. Við bjóðum Bostock velkominn til Spurs en líklegt þykir að hann muni fyrst um sinn einungis spila með varaliðinu.