Aðalfundur Tottenhamklúbbsins 2013 verður haldinn á Ölver í Glæsibæ, fimmtudaginn 30.maí kl. 20.00. Dagskrá fundarins :
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál
Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is eða í síma formanns 698-3791. Nýjir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins og heimasíðunnar eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.
Léttar veitingar verða í boði.
kv
Stjórnin
Aðalfundur 2013
2 töpuð stig gegn Wigan
Tottenham lék í gær við Wigan á útivelli og þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að halda baráttunni um meistaradeildarsæti á komandi leiktíð lifandi. Tottenham byrjaði vel og komst í 0-1 með marki Bale. Wigan svaraði um hæl og staðan í hálfleik 1-1. Wigan komst svo yfir í upphafi síðari hálfleiks, en þegar skammt var eftir skoraði Tottenham og jafnaði leikinn þegar varnarmaður Wigan skoraði sjálfsmark. Tottenham var svo nálægt því að hirða stigin þrjú alveg í lokin, en markvörður Wigan bjargaði því. Dýrkeypt jafntefli niðurstaðan, sem gerir stöðu Tottenham mjög erfiða í baráttunni um 3ja – 4ja sætið í deildinni.
Flottur sigur á Man. City
Tottenham lék um síðustu helgi við meistarana í Manchester City á White Hart Lane. Fór svo að Tottenham hafði sigur 3-1 eftir að hafa lent undir 0-1 eftir 5 mínútur. Tottenham skoraði svo þrjú mörk á ca. 6 mínútum í síðari hálfleik og tryggði sér stigin þrjú. Dempsey , Defoe og Bale skoruðu mörk Tottenham í leiknum.
Stórleikur á sunnudag
Tottenham leikur einn af mörgum „bikarúrslitaleikjum“ sem eftir eru á sunnudaginn kemur þegar leikið verður gegn meisturunum í Man City á White Hart Lane. Leikurinn hefst kl. 12.30 að íslenskum tíma og hvetur klúbburinn sem flesta að leggja leið sína á Ölver að horfa á leikinn og mynda góða stemmningu. Það verða tilboð á barnum fyrir þá sem verða merktir Tottenham , bæði á drykkjum og mat.
Dagsetning : Sunnudagur 21. apríl
Tími : 12.30
Staður : Ölver Glæsibæ
Stjórnin
Úr leik í Evrópu
Tottenham lék á fimmtudaginn var síðari leik sinn við Basel frá Sviss í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Leikurinn endaði 2-2 í venjulegum leiktíma og grípa þurfti til framlengingar þar sem ekkert var skorað. Þá var það bara vítaspyrnukeppni sem þurfti til að útkljá málið og þar fór Basel með sigur af hólmi 4-1. Aðeins Gylfi skoraði fyrir Tottenham í vítakeppninni , en bæði Huddlestone og Adebayor brenndu af. Clint Dempsey skoraði bæði mörkin fyrir Tottenham í venjulegum leiktíma.
Gylfi bjargaði stigi
Tottenham lék á sunnudaginn var gegn liði Everton og fóru leikar 2-2 og var leikið á White Hart Lane. Tottenham komst yfir á 1. mínútu þegar Adebayor skoraði en tvö mörk frá Everton komu þeim bláu í góða stöðu 1-2. Þegar skammt var til leiksloka tókst Gylfa að jafna leikinn eftir að hafa náð frákasti af skoti Adebayor sem hafði farið í stöngina. Gott stig sem Gylfi náði þarna í fyrir Tottenham og vonandi telur þetta stig þegar upp er staðið í vor.
Jafntefli í Evrópudeildinni
Tottenham lék fyrri leik sinn við Basel frá Sviss í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn í síðustu viku. Leikið var á heimavelli Tottenham , White Hart Lane. Leikurinn endaði 2-2 eftir að Svisslendingarnir komust í 0-2. Adebayor og Gylfi Sigurðsson skoruðu mörk Tottenham í leiknum. Mark Gylfa var einkar glæsilegt, skot vel fyrir utan teig sem söng í netinu. Undir lok leiksins meiddist Bale illa og verður frá í einhvern tíma , en nær vonandi leiknum gegn Man. City síðar í mánuðinum.
Tottenham hafði sigur á Swansea
Tottenham lék um páskana við lið Swansea frá Wales og var leikið á útivelli. Tottenham komst aftur á sigurbraut í leiknum sem lauk með sigri Tottenham 1-2. Mörk Tottenham skoruðu Vertonghen og Bale en báðir áttu mjög góðan leik.
Tap á heimavelli gegn Fulham
Tottenham beið lægri hlut fyrir nágrönnunum í Fulham 0-1 þegar leikið var á White Hart Lane 17. mars. Tottenham hefur því tapað tveimur leikjum í röð í deildinni og hafa aðeins verið að missa flugið. Mikil og erfið barátta er framundan að ná meistaradeildarsæti á komandi tímabili.
Það var gamli Tottenhammaðurinn Berbatov sem skoraði eina mark leiksins og sýndi mikla virðingu með að fagna ekki, Leikurinn var annars tíðindarlítill þar sem fátt var um fína drætti og Tottenham fékk ekki mörg færi.
Tottenham fór áfram í Milan
Tottenham slapp með skrekkinn gegn Inter Milan og komast áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Lokatölur 4-1 fyrir Inter Milan og fór Tottenham því áfram á útivallarmarki eftir að hafa unnið fyrri leikinn 3-0. Staðan að lokunum venjulegum leiktíma á Ítalíu var 3-0 og var því gripið til framlenginar þar sem Adebayor skoraði fyrir Tottenham og kom liðinu áfram.
Tottenham mætir síðan Svissneska liðinu Basel í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.















