Page 12

Mistök á Anfield Road

0

Sigurganga Tottenham tók enda á sunnudaginn var þegar liðið lá fyrir Liverpool á Anfield 3-2.  Bæði mörk Tottenham skoraði Vertonghen.

Liverpool komst yfir í fyrri hálfleik þegar Suarez skoraði gott mark en undir lok fyrri hálfleiks jafnaði Vertonghen metin með skalla og staðan í hálfleik 1-1.   Snemma í síðari hálfleik komst Tottenham yfir þegar Vertonghen skoraði aftur, nú með góðu skoti úr teignum.  Tottenham voru betri og líklegri til að bæta við.  En þegar nokkuð var liðið á síðari hálfleik gerði Walker slæm mistök þegar hörmuleg sending hans endaði á Liverpool manni sem var i kapphlaupi við Lloris og hafði betur og kom svo boltanum í netið að lokum.  2-2 og á þessum tímapunkti var Tottenham mun betra liðið.  Svo þegar skammt var eftir fékk Liverpool vítaspyrnu eftir að Defoe hitti boltann alveg skelfilega fyrir utan teig og boltinn fór inn í vítateig Tottenham þar sem Suarez tók á móti honum og Ekotto braut á honum.  Gerrard skoraði úr vítinu og tryggði Liverpool stigin þrjú.

Tvö afdrifarík einstaklingsmistök kostuðu Tottenham þennan leik.  Nú er bara að vona að liðið komi tilbaka á White Hart Lane á sunnudaginn kemur þegar leikið verður gegn Fulham.

Inter engin fyrirstaða

0

Tottenham lék á fimmtudaginn við lið Inter Milan frá Ítalíu og var það fyrri leikurinn í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.  Tottenhamliðð átti stórgóðan leik og unnu öruggan sigur 3-0 sem verður að teljast ansi gott veganesti fyrir seinni leikinn á Ítalíu næsta fimmtudag.  Bale , Gylfi og Vertonghen skoruðu mörkin.

Sigur Tottenham í leiknum var síst of stór en liðið átti fantagóðan leik og fengu fullt af færum.  Gylfi hélt uppteknum hætti og stóð sig mjög vel og skoraði mark ásamt því að eiga stoðsendingu í fyrsta markinu sem Bale skoraði.

AVB gerði nokkrar breytingar enda mikilvægur deildarleikur við L´pool á sunnudaginn kemur.  Gylfi var tekinn af velli þegar um 20 mínútur voru eftir sem gæti gefið til kynna að hann byrji leikinn gegn L´pool.

Sigur í London slagnum

0

Tottenham lék á sunnudaginn var gegn erkifjendunum í Arsenal og fór svo að Tottenham hafði sigur 2-1. Bale og Lennon sáu um mörkin fyrir Tottenham.

Leikurinn var jafn og í járnum þegar komið var fram á 36. mínútu,  þegar Gylfi átti frábæra sendingu á Bale innfyrir vörn Arsenal og Bale kláraði vel.   Aðeins 2 mín og 6 sekúndum síðar var staðan orðin 2-0 og markið keimlíkt því fyrra.  Parker var þá með boltann á miðjum vallarhelming Arsenal og átti góða sendingu á Lennon sem var á hlaupinu innfyrir vörn Arsenal,  Lennon lék framhjá markverði Arsenal og setti boltann í netið.  2-0 var staðan í hálfleik.

Eftir aðeins um 5 mín í síðari hálfleik minnkaði Arsenal muninn með skallamarki eftir aukaspyrnu utan að kanti.    Það var mikill hamagangur það sem eftir lifði leiks og var Tottenham mun liklegra að komast í 3-1 en Arsenal að jafna leikinn.

Tottenham fór aftur í þriðja sætið eftir þennan sigur,  með 7 stiga forystu á Arsenal.  En það er nóg eftir af mótinu svo allt getur gerst.

Bale sá um West Ham

0

Tottenham lék við West Ham á útivelli fyrir rúmlega viku síðan og hafði sigur 2-3 í hörkuleik.  Bale skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Gylfi Sigurðsson komst á blað í Ensku úrvalsdeildinni með Tottenham þegar hann setti 1.

Tottenham byrjaði leikinn vel og komust yfir 0-1 þegar Bale skoraði með góðu skoti fyrir utan teig, neðst í hornið.  Undir lok fyrri hálfleiks fékk svo West Ham víti þegar Parker tók niður Carroll.  Carroll fór á punktinn og skoraði örugglega ,  1-1 og þannig stóð í hálfleik.

West komst svo yfir í síðari hálfleik þegar Joe Cole fékk góða sendingu innfyrir vörn Tottenham og kláraði nokkuð vel.  Nokkrum mínútum síðar jafnaði svo Gylfi metin eftir darraðadans í teignum.  Það var svo á 89. mínútu sem Bale tryggði stigin 3 með stórkostlegu marki langt fyrir utan teig sem fór ofarlega í hornið – óverjandi fyrir Jussi í marki West Ham sem átti annars stórleik og kom í veg fyrir stærri sigur Tottenham.

Dembele hetjan gegn Lyon

0

Tottenham lék í gær við Franska liðið Lyon og var leikið í Frakklandi.  Leikurinn var síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.  Tottenham hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli 2-1.  Svo fór að Tottenham náði jafntefli í gær 1-1 og komst því áfram í 16-liða úrslit keppninnar.

Þetta leit ekki vel út lengi framan af ,  eftir að Lyon komst yfir í fyrri hálfleik var staðan 1-0 þangað til á 90. mínútu þegar Dembele jafnaði leikinn fyrir Tottenham með hörkuskoti fyrir utan teig.  1-0 hefði sent Tottenham útúr keppninni þannig að tæpara hefði það ekki mátt standa.

Tottenham leikur við Inter Milan í 16-liða úrslitum keppninnar og fer fyrri leikurinn fram á WHL þann 7. mars nk.

Spurs fréttir

0

Jæja,  langt síðan skrifað hefur verið á síðuna,  líklega helsta ástæðan að árás var gerð á síðuna um daginn og fór hún í algera steypu ásamt spjallborðinu ,  spjallborðið komst á ról innan örfárra daga en síðan var ennþá slösuð og þurfti t.d. að endurræsa alla notendur og lykilorð – en síðan er alla vega up and running núna og kominn á nýjan server sem á að vera öruggari og hraðvirkari.

HÓPFERÐIN Í VOR
Það seldist upp í hópferðina á einungis fimm dögum og eftir að það seldist upp í ferðina fékk klúbburinn betri kjör á fluginu ásamt því að klúbburinn úti lækkaði verð á membershipgjöldum,  þannig að þegar upp var staðið kostaði þessi þriggja nátta ferð aðeins 79.900.- miðað við tvo í herbergi,  sem er frábært verð.

FÉLAGSSKIPTAGLUGGINN
Tottenham gerðu ekki mikið undir lok félagsskiptagluggans í janúar.  Holtby var keyptur fyrir lítinn pening frá Schalke ( en hann var búinn að semja um að koma frítt í sumar ) og voru það einu viðskiptin undir lok gluggans með leikmenn til liðsins.  Townsend og Jenas fóru út á láni til Harry Houdini hjá QPR.  Falque fór til Almeria á Spáni á láni,  Gomez markvörður fór til Hoffenheim í Þýskalandi á láni.  Svo fóru tveir ungir á láni einnig , þeir Alex Pritchard til Peterborough og Ryan Mason til FC Lorient í Frakklandi.

SÍÐUSTU LEIKIR
Tottenham hefur verið á góðu skriði í deildinni og hafa unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í síðustu þremur deildarleikjum,  eða frá því við gerðum jafntefli heima við Man. Utd.

Bale hefur verið allt í öllu í þessum þremur leikjum sem voru 1-1 jafntefli á útivelli gegn Norwich þar sem Bale jafnaði leikinn undir lokin.  Svo kom sigur á útivelli gegn WBA þar sem Bale skoraði sigurmarkið á glæsilegan hátt.  Og svo um síðustu helgi vannst heimasigur á Newcastle þar sem Bale skoraði bæði mörkin.

Á milli þessara deildarleikja spilaði Tottenham svo í FA bikarnum og tapaðist sá leikur á útivelli gegn hinu fornfræga félagi Leeds Utd ,  2-1.

Í kvöld spilaði svo Tottenham í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og var leikið gegn Franska liðinu Lyon á heimavelli.  Enn og aftur var það Bale sem stal sviðsljósinu í 2-1 sigri Tottenham, en hann skoraði bæði mörk liðsins.  Bæði mörkin voru einkar glæsileg, beint úr aukaspyrnum.  Bale hefur núna skorað síðustu 6 mörk Tottenhamliðsins, sem er auðvitað frábært afrek fyrir Bale, en kannski ekki eins gott fyrir liðið að einn maður skuli vera að sjá um markaskorunina um þessar mundir.

Dempsey bjargaði stigi

0

Tottenham lék á sunnudaginn var við Manchester United á heimavelli og fór svo að liðin skildu jöfn 1-1.  Mark Tottenham skoraði Dempsey á 93 mínútu leiksins.

Tottenham var betra liðið í leiknum og sköpuðu sér fleiri færi,  en það var Man. Utd. sem komst yfir í fyrri hálfleik þegar markamaskínan í liði þeirra , Van Persie skallaði boltann frá markteig í markið.  Staðan 0-1 og Tottenham betra liðið í leiknum ef eitthvað var.

Í síðari hálfleik jókst sóknarþungi Tottenham og á köflum fór lið Man. Utd. varla yfir miðju vallarins.  Tottenham fengu nokkur færi en De Gea í marki Man. Utd. var vel á verði í leiknum og varði nokkrum sinnum mjög vel.  Það var svo í „Fergie“ time að Dempsey jafnaði metin fyrir Tottenham þegar hann fékk sendingu frá Lennon inn í teiginn og setti boltann í hornið.  Jafntefli niðurstaðan sem var verðskuldað fyrir Tottenham hið minnsta því tap hefði verið mjög ósanngjarnt.  

Lið Tottenham í leiknum.

Lloris – Walker – Dawson – Caulker – Naughton ( Ekotto 64 ) – Lennon – Parker ( Huddlestone 80 ) – Dembele – Bale – Dempsey – Defoe

Ónotaðir varamenn:

Friedel , Vertonghen , Gylfi , Livermore , Townsend.

 

Tölfræði úr leiknum.

Með boltann

Tottenham 52 %     Man. Utd.   48 %

Skot / á markið 

Tottenham   23 / 18       Man. Utd.   6 / 4

Hornspyrnur

Tottenham  9     Man Utd  4

Jafntefli við QPR

0

Tottenham lék á laugardaginn var við lið QPR á Loftus Road í London.  Þarna var Tottenham að mæta sínum gamla framkvæmdastjóra,  Harry Redknapp sem tók við QPR fyrir nokkrum vikum síðan.  Lokatölur í leiknum var 0-0 þar sem Tottenham var betra liðið og fékk betri færi.  QPR varðist vel og greinilegt að Redknapp er að hleypa nýju blóði í lið QPR sem hefur verið að standa sig ágætlega síðan hann tók við.

Hópferð **UPPSELT**

0

Hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi
Tottenham – Southampton , 4. Maí 2013 kl. 15.00

UPPSELT ER Í FERÐINA


Ferðatilhögun:
FLUG
Flogið með WOWair
KEF – London , föstudaginn 3. Maí 2013 kl. 09.00
London – KEF , mánudaginn 6. Maí 2013 kl. 14.35
GISTING
Gisting í þrjár nætur á Travelodge London City Road ÁN morgunverðar , hægt er að kaupa sér morgunverðarhlaðborð á staðnum fyrir £6.50
http://www.travelodge.co.uk/hotels/340/London-Central-City-Road-prev-Moorgate-hotel
ANNAÐ
Rúta til og frá flugvelli
Miði á leikinn + skraning í meðlimaklúbbinn í UK ( sem er skylda )
Íslensk fararstjórn

Verð : 87.900.-miðað við 2 saman í herbergi.
aukagjald fyrir einstaklingsherbergi er kr. 15.000.-

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000 á mann við skráningu. Eftirstöðvar ferðar greiðist svo um mánaðarmótin mars/apríl.
Skraning fer fram með að senda póst á spurs@spurs.is . Það sem þarf að koma fram við skráningu er :
• Nafn
• Kennitala
• Heimilisfang
• GSM númer
• Herbergisfélagi / eða einn í herbergi.
• Double rúm eða tvö _single rúm

Í fyrri ferð Tottenhamklúbbsins á þessu tímabili seldist upp í ferðina á einungis þremur dögum. Þannig að það er um að gera að hafa hraðar hendur og skra sig í ferðina.
Tottenhamklúbburinn er að skipuleggja þessa ferð án aðkomu ferðaskrifstofu til að halda kostnaði niðri , og erum nokkuð ánægð hvernig til tókst með verðið á þessari ferð. En á móti kemur að búið er að taka frá flugsæti fyrir ferðina, sem við verðum að staðfesta í lok næstu viku , þannig að það er bara opið fyrir skráningu í þessa ferð í rúma viku.

Þegar búið er að bóka ,  þarf að greiða kr. 25.000.- inn á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi.

0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550
Greiðslukvittun skal senda á spurs@spurs.is

Það skal tekið fram að takmarkað magn sæta er í hópferðina og gildir þá reglan fyrstur kemur fyrstur ef bókanir verða fleiri en við ráðum við.

ATH.  EF EKKI FÆST NÆG ÞÁTTTAKA GEFUR TOTTENHAMKLÚBBURINN SÉR RÉTT TIL AÐ AFLÝSA FERÐINNI OG ENDURGREIÐA ÞÁ ÞEIM SEM HAFA GREITT STAÐFESTINGARGJALDIÐ.

 

Hótelið í London

Öruggur sigur í FA bikarnum

0

Tottenham vann þægilegan sigur á Coventry City í 3.umferð FA bikarsins á laugardaginn 3-0 með tveimur mörkum frá Dempsey og eitt frá Bale.

Í næstu umferð mætir Tottenham annaðhvort Leeds United eða Birmingham á útivelli.

Nýjustu fréttirnar