Page 13

Janúar glugginn

0

4. jan.  Tottenham hefur tryggt sér þjónustu Lewis Holtby sem kemur á frjálsri sölu frá Schalke í sumar, Lewis Holtby er 22. ára miðjumaður.  Lewis Holtby er fyrrverandi fyrirliðið U21 liðs Þjóðverja.  Lewis Holtby lék 20 leiki með U21 liði Þjóðverja og skoraði í þeim 12 mörk.  Hann hefur einnig leikið 3 landsleiki fyrir Þýskaland.

 

3. jan. Tottenham hefur fest kaup á Ezekial Fryers frá Standard Liege.  Zeki Fryers, tvítugur að aldri er fyrrum leikmaður Manchester United sem fór til Belgíu síðasta sumar.  Fryers er varnarmaður , sem getur bæði spilað sem vinstri bakvörður sem og miðvörður.  Kaupverðið er talið um 3M punda.  

2. jan.  Þá er það ljóst að Carlo Cudicini hefur yfirgefið Tottenham og samið við LA Galaxy í USA.  Cudicini kom til Spurs í janúar 2009 og spilaði 37 leiki fyrir klúbbinn og óskum við honum alls hins besta í framtíðinni.

 

Öruggur sigur í fyrsta leik 2013

0

Tottenham lék við lið Reading á fyrsta degi 2013,  og byrjaði árið með stæl og sigraði leikinn 3-1.  Dawson , Adebayor og Dempsey skoruðu mörk Tottenham.

Reading fékk óskabyrjun í þessum leik þegar Pogrebnyak skoraði með skalla úr teignum eftir að hafa náð frákasti af aukaspyrnu Ian Harte sem fór í þverslánna hjá Tottenham,  slakur varnarleikur þar á ferð hjá Tottenham.  En Adam var ekki lengi í paradís og aðeins 5 mínútum síðar var staðan orðin 1-1.  Gylfi átti þá hornspyrnu frá vinstri sem fór beint á kollinn á Dawson á nærstönginni sem stangaði boltann í fjærhornið,  flott mark þar á fer.  Tottenham hélt áfram að sækja í fyrri hálfleik og fengu nokkur ágætis færi en markvörður Reading stóð vaktina vel.  Staðan var 1-1 þegar komið var að hálfleik.

Tottenham byrjaði seinni hálfleikinn af sama krafti og uppskáru mark þegar 6 mínútur voru liðnar af hálfleiknum þegar Lennon komst uppað endamörkum hægra megin og sendi boltann á fjærstöng þar sem Adebayor stökka manna hæst og skallaði boltann í netið ,  mjög vel gert hjá Adebayor , enda erfitt færi.  Tottenham hélt áfram að sækja og voru líklegir til að bæta við.  Það var svo í kringum 75. mínútu sem Reading fékk sína fyrstu hornspyrnu eftir að Kebe , leikmaður Reading slapp einn í gegn en Walker gerði vel og hljóp hann uppi og komst í veg fyrir skot hans.  Uppúr horninu og öðru horni sem kom svo í kjölfarði fengu Reading menn tvö færi til að jafna, en heppnin var með Tottenham.  Dempsey tryggði svo sigurinn þegar rúmlega 10 mínútur voru eftir þegar hann átti skot fyrir utan teig sem fór í varnarmann og í fallegum boga yfir markvörð Reading,  heppnisstimpill yfir þessu marki en mark var það.

Tottenham hélt svo fengnum hlut fram að lok leiks og lokatölur 3-1 sem kom Tottenham uppí þriðja sætið í deildinni.

 

Sigur á Sunderland

0

Síðasti leikur Tottenham á árinu 2012 var á útivelli gegn Sunderland og vannst þar mjög góður 2-1 sigur, þrátt fyrir að liðið hafði lent undir gegn gangi leiksins.

Tottenham liðið var skipað þeim Lloris, Walker, Caulker, Dawson, Naughton, Lennon, Bale, Sandro, Dembele, Adebayor og Defoe

Tottenham liðið byrjað leikinn af miklum krafti og ætlaði greinilega að ná að skora mjög fljótt en tókst það ekki þrátt fyrir mörg góð færi, Adebayor fékk tvö frábær færi annarsvegar einn gegn markmanninum og hinsvegar átti hann skot fyrir nánast opnu marki sem fór í þverslánna, en gegn gangi leiksins skoraði Sunderland fyrsta markið eftir mjög klaufalegan varnarleik hjá Kyle Walker sem missti boltann og braut svo af sér í kjölfarið.  Uppúr aukaspyrnunni skorðu svo heimamenn og var þar að verki John O´Shea og var þetta hans fyrsta mark í tæp 3 ár.  Staðan 1-0 í hálfleik.

Strax í upphafi síðari hálfleiks endaði boltinn í marki heimamanna og var þar að verki Carlos Cuellar, einstaklega klaufalegt sjálfsmark þar sem tveir varnarmenn Sunderland voru að kljást um skallabolta og enginn leikmaður Tottenham nálægt.  Stuttu seinn komust svo Tottenham menn yfir og var þar að verki Aaron Lennon eftir frábæran einleik, Lennon reyndi sendingu sem mistókst en fékk boltann aftur og brunaði í átt að teignum setti svo boltann öðru megin við O´Shea og hljóp hinumegin við hann og var fyrstur á boltann og tók skotið í fyrstu snertingu og staðan orðin 2-1 fyrir gestina sem hæglega höfðu getað bætt við mörkum þá sérstaklega Defoe sem fékk frábæra sendingu frá Bale en á einhvern óskiljanlegan hátt létt hann verja frá sér einnig komst Adebayor einn inn fyrir en lét líka verja hjá sér.  Umdeildasta atvik leiksins var svo þegar Gareth Bale fékk gult spjald fyrir dýfu en við endursýningu sást greinilega að varnarmaðurinn fór í hægra hné hans þegar hann stóð í hægrilöppinni og því erfitt fyrir hann að standa þetta af sér, en gula spjaldið þýddi að hann yrði í banni gegn Reading á nýársdag.

 

 

 

Bale sjóðheitur

0

Tottenham lék í gær við Aston Villa á útivelli og fór með sigur af hólmi 0-4 þar sem Gareth Bale fór á kostum og skoraði þrennu ( hat-trick ) og Defoe var með eitt.

Tottenham byrjaði leikinn af miklum krafti þar sem Aston Villa komst varla útúr sínum eigin vítateig fyrstu 10 mínúturnar af leiknum.  Tottenham voru búnir að fá ca. 8 hornspyrnur þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum.

Liðið var að fá ágætis færi sem voru ekki að nýtast og fjölmörg skot á markið sem Guzan í marki Aston Villa varði.   Guzan varði sérstaklega vel frá Bale á 11 mínútu þegar boltinn var á leið efst í hornið þegar Guzan náði að blaka boltanum yfir markið.

Staðan í hálfleik 0-0 þrátt fyrir algera yfirburði Tottenham í fyrri hálfleik.

Tottenham hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og sóttu mikið án þess að fá mörg afgerandi færi.  Aston Villa vöknuðu reyndar aðeins til lífsins í síðari hálfleik og byrjaði hálfleikinn mun betur en þeir voru að spila í fyrri hálfleik.

Það var svo á 57. mínútu sem fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós.  Naughton átti þá hnitmiðaða sendingu í gegnum vörn Aston Villa á Defoe sem tók á móti boltanum og setti hann á milli fóta Guzan sem kom á móti honum.  Staðan 0-1 og það fyllilega skilið.  Aðeins fjórum mínútum síðar kom annað mark Tottenham og fyrsta mark Bale í leiknum.   Defoe fékk þá sendingu innfyrir vörn Aston Villa, en varnarmaður Aston Villa náði að renna sér í boltann og sparka honum til hliðar,  beint á Bale sem lék boltanum innfyrir varnarmann Aston Villa og hljóp svo á eftir boltanum,  komst einn gegn Guzan og kláraði færið af yfirvegum með að leika framhjá Guzan og setja boltann í tómt markið.

Á 73. mínútu kom þriðja mark Tottenham.  Lennon lék þá boltanum frá hægri inn að vítateig Aston Villa,  þar sem varnarmenn voru sofandi og skildu Bale eftir óvaldaðan.  Lennon sendi boltann á Bale sem var nálægt vítapunktinum,  Bale tók á móti boltanum og setti hann hnitmiðað neðst í hægra hornið , óverjandi fyrir Guzan í marki Aston Villa.

Gylfi Sigurðsson kom inná á 79. mínútu , og aðeins 5 mínútum síðar var hann búinn að leggja upp mark.  Walker var þá með boltann á hægri vængnum og tók Gylfi flott hlaup inní teiginn,  fékk sendingu frá Walker.  Gylfi lék að markinu og sendi svo fyrir á Bale sem tók á móti boltanum og hamraði honum í markið af stuttu færi.  Staðan 0-4 og Bale kominn með þrennu,  sína fyrstu þrennu fyrir Tottenham.

Stuttu síðar var flautað til leiksloka og góð þrjú stig í höfn hjá Tottenham.  Spilamennskan í leiknum var mjög góð og sigurinn sannarlega sannfærandi.

Lið Tottenham í leiknum :

Lloris – Walker – Gallas – Vertonghen – Naughton – Lennon – Dembele ( Parker 66 ) – Sandro – Bale ( Townsend 85 ) – Defoe – Adebayor ( Gylfi 79 )

Ónotaðir varamenn :

Friedel – Dawson – Caulker – Livermore

 

Tölfræði úr leiknum ( bbc.co.uk )

Með boltann ( % )

Aston Villa   39 %          Tottenham      61 %

Skot ( á markið )

 

Aston Villa  4 ( 1 )         Tottenham      20 ( 16 )

Hornspyrnur

Aston Villa    2        Tottenham      16

Markalaust gegn Stoke

0

Tottenham lék á laugardaginn var,  22. desember við Stoke á heimavelli og fór svo að Stoke náði þar jafntefli 0-0.  Það var greinilegt að það var ætlunin hjá Stoke frá fyrstu mínutu að sækja stig á White Hart Lane sem þeim tókst.  Sóknarleikur Tottenham var ekki nægilega beyttur,  en það má ekki taka það af Stokemönnum að þeir vörðust alveg ótrúlega vel í þessum leik og gáfu leikmönnum Tottenham lítið pláss og lítinn tíma með boltann þegar sókarlotur Tottenham voru að nálgast vítateig Stokemanna.

Gleðileg Jól

0

TOTTENHAMKLÚBBURINN Á ÍSLANDI ÓSKAR ÖLLUM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI.

Evrópudeildin – dráttur

0

Dregið var í gær í Evrópudeildinni og kemur Tottenham til með að mæta Franska stórliðinu Lyon í 32- liða úrslitum keppninnar.   Fyrri leikurinn verður á White Hart Lane,  heimavelli Tottenham 14. febrúar kl. 21.05 og síðari leikurinn viku síðar eða 21. febrúar kl. 19.00.

Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir svo sigurvegaranum úr viðuregin Inter frá Ítalíu og CFR Cluj frá Rúmeníu.

Sigur á Swansea

0

Tottenham lék í dag við Swansea í Ensku úrvalsdeildinni og fór með sigur 1-0 í erfiðum leik.  Mark Tottenham skoraði Vertonghen á 75. Mínútu.  Swansea lék sterkan varnarleik með marga leikmenn fyrir aftan boltann allan leikinn.

Tottenham var miklu sterkara liðið í leiknum og átti sigurinn fyllilega skilið.  Liðið fékk þónokkuð af góðum færum sem fóru forgörðum og eins voru varnarmenn Swansea duglegir að komast í veg fyrir skot Tottenhamleikmanna sem voru á leið á rammann.

Mark Tottenham kom eins og áður sagði á 75. Mínútu þegar aukaspyrna Walker frá hægri var flikkað af varnarmanni Swansea,  beint á Vertonghen sem skoraði í fyrsta með skoti með hægri fæti,  virkilega vel klárað.

Defoe fékk bestu færi Tottenham í leiknum en honum tókst ekki að skora að þessu sinni.   Gylfi Þór kom inná á 70. Mínútu og stóð sig mjög vel þessar mínútur sem hann spilaði.  Til að mynda átti hann frábæra sendingu á Defoe sem komst einn í gegn en markvörður Swansea sá þar við Defoe og varði skot hans.

Í uppbótartíma sló svo Lloris boltann frá og endaði það þannig að Townsend var kominn einn í gegn og hefði átt að gera útum leikinn þar en honum brást bogalistin og markvörður Swansea varði frá honum.

Scott Parker kom inná undir lok leiksins og spilaði þar sinn fyrsta leik á þessu tímabili með liði Tottenham,  gott að fá hann aftur.  Bale var ekki búinn að ná sér góðum af sínum meiðslum og lék ekki í dag,  verður vonandi orðinn klár um næstu helgi.  Ekotto er einnig að koma tilbaka og ætti að verða klár á næstu 1-2 vikum.  Þannig að það eru góðir menn að koma tilbaka úr meiðslum sem styrkja liðið fyrir komandi átök.

Lið Tottenham í leiknum :
Lloris – Walker – Gallas – Vertonghen – Naughton – Lennon – Dembele ( Parker 90 ) – Sandro – Dempsey ( Gylfi 70 ) – Defoe – Adebayor ( Townsend 72 )

Ónotaðir varamenn :
Friedel – Caulker – Huddlestone – Livermore

Tölfræði úr leiknum ( af vef bbc.co.uk )
Með boltann

Tottenham 61 %    Swansea 39 %

Skot ( á markið )

Tottenham 24 ( 16 )    Swansea 4 ( 0 )

Hornspyrnur

Tottenham 9     Swansea     3

Grátlegt tap gegn Everton

0

Tottenham lék í deildinni við lið Everton á Goodison Park á sunnudaginn var.  Liðið var 0-1 yfir þegar komið var fram á 90. Mínútu en tókst engu að síður að tapa leiknum 2-1 þar sem Everton skoraði tvö mörk í uppbótartíma.

Tottenham spilaði alveg ágætlega í leiknum þó að Everton hafi verið hættulegri fram á við.  Staðan í hálfleik var 0-0.     Það var svo á 76. Mínútu sem Tottenham komst yfir í leiknum þegar Dempsey átti skot fyrir utan teig sem fór í varnarmann og fór yfir Howard í marki Everton.  Staðan 0-1 , aðeins gegn gangi leiksins.  5 mínútum fyrir leikslok munaði svo litlu að Gylfi myndi koma Tottenham í 0-2 þegar skot hans fyrir utan teig fór yfir Howard í markinu en boltinn small í þverslánni.   Það var svo á 90. Mín þegar Everton jafnaði leikinn ,  smá misskilningur milli Lloris og Caulker var í aðdraganda marksins,  þegar Lloris var að fara að grípa boltann en Caulker ákvað að hreinsa frá , ekki nógu langt og beint á Everton mann sem hélt sókninni áfram,  boltinn kom fyrir og Pienaar fyrrum leikmaður Tottenham stangaði boltann í netið.  Gríðarlega svekkjandi að fá þetta mark á sig en vont átti eftir að versna þar sem Everton tókst að skora aftur ca. 3 mín síðar þegar löng sending inn í teiginn var skölluð áfram inn í teig og boltinn fór beint á Jelavic sem potaði í boltann og í hornið fór boltinn .. .lygilegar lokamínútur og 2-1 tap staðreynd.

Lið Tottenham í leiknum :

Lloris – Walker – Caulker – Gallas – Vertonghen – Lennon ( Huddlestone 71 ) – Sandro – Dembele ( Gylfi 77 ) – Dempsey – Defoe ( Falque 85 )  – Adebayor

Ónotaðir varamenn :

Friedel – Naughton – Livermore – Townsend 

Tottenham áfram í Evrópu

0

Tottenham lék síðasta leik sinn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn var.  Leikið var heima gegn Gríska liðinu Panathinkaikos.  Lokatölur í leiknum voru 3-1 sigur Tottenham sem komst þar með í 32-liða úrslit keppninnar.

Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Adebayor , Sjálfsmark og Defoe.

Dregið verður í 32-liða úrslitin 20. Desember.

Tottenham verður í lægri styrkleikaflokk eftir að hafa endað í 2. Sæti riðilsins.
Mögulegir mótherjar Tottenham eru :  FC Victoria Plzen , Fenerbache , Bordeaux , Steaua Bukarest , FC Dnipro , Genk , Rubin Kazan , Lyon , FC Metallist Kharkiv , CFR Cluj , Olympiacos og Benfica.

 

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker – Caulker – Naughton – Vertonghen – Dempsey ( Gylfi 80 ) – Lennon ( Livermore 87 ) – Sandro – Carroll ( Dembele ) – Adebayor – Defoe

Ónotaðir varamenn :

Cudicini – Stewart – Huddlestone  – Townsend

Nýjustu fréttirnar