Page 14

Gylfi situr fyrir svörum

0

Í næsta tölublaði Tottenhamklúbbsins á Íslandi er ætlunin að vera með viðtal við Gylfa Þór Sigurðsson ,  leikmann Tottenham.   Stjórnin hefur ákveðið að gefa stuðningsmönnum hér á Íslandi tækifæri til að kasta spurningum á Gylfa.   Hægt er að gera það á spjallborði félagsins á :  http://www.spurs.is/spjalla/

Stjórnin mun svo lesa yfir spurningarnar sem berast og vonandi notað þær allar,  en það er ekki 100% öruggt að allar spurningar sem berast komist að.

Góður útisigur á Fulham

0

Tottenham lék í dag á útivelli gegn Fulham á Craven Cottage í London.   Tottenham hafði sigur 0-3 þar sem Sandro og Defoe 2 skoruðu mörkin.

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað í fyrri hálfleik og ekki mikið sem var að gerast.   Bale var spjaldaður fyrir dýfu í öðrum leiknum í röð,  leiðinlegur ávani sem Bale virðist vera kominn með.   Staðan í hálfleik var 0-0.

Eftir 10 mínútna leik í síðari hálfleik komst Tottenham yfir með marki Sandro.  Hann átti þá skot af um 35m færi sem Schwarzer í marki Fulham hefði átt að verja en inn fór boltinn.  Það var svo á 5 mínútna kafla í síðari hálfleik þar sem Defoe gerði út um leikinn.   Á 72. mínútu kom Defoe liðinu í 0-2 eftir frábæran undirbúning Gylfa.  Gylfi prjónaði sig í gegnum vörnina hjá Fulham og lagði boltann á Defoe sem setti hann í markið.   Aðeins 5 mínútum síðar skoraði Defoe aftur,  nú eftir góða sendingu Dempsey innfyrir vörn Fulham og Defoe kláraði vel með skoti í fjærhornið.  Frábær vinnusigur á útivelli og gott að liðið náði loks að halda hreinu.

Neikvæðir puntkar við leikinn voru þeir að Dawson og Bale meiddust báðir og hefur það verið staðfest að Bale verði frá í einhverjar vikur með Hamstring meiðsli.

 

Lið Tottenham í leiknum.

Lloris – Naughton – Dawson ( Gallas 17 ) – Caulker – Vertonghen – Lennon – Sandro – Dembele ( Carroll 84 ) – Bale ( Gylfi 62 ) – Dempsey – Defoe

Ónotaðir varamenn :

Friedel – Walker – Falque – Livermore

 

Tölfræði úr leiknum :

Með boltann

Fulham  42 %     Tottenham  58 %

Skot / á markið 

Fulham   8 / 2      Tottenham   10 / 6

Hornspyrnur

Fulham    2         Tottenham 1

Bale sá um Liverpool

0

Tottenham lék við Liverpool á miðvikudaginn var og var leikið á heimavelli Tottenham , White Hart Lane.   Tottenham hafði sigur í þessum leik 2-1 þar sem Lennon og Bale skoruðu mörk Tottenham ásamt því að Bale skoraði einnig í eigið mark og minnkaði muninn seint í leiknum.

Tottenham byrjaði leikinn af miklum látum og voru allsráðandi á vellinum.   Fyrsta markið kom strax á 7. mínútu leiksins þegar Bale átti góðan sprett upp vinstri kantinn ,  lék inní teig og sendi hárnákvæma sendingu á fjærstöng þar sem Lennon var einn og óvaldaður og setti boltann næsta örugglega í netið.  Á 16. mínútu var staðan orðin 2-0 þegar Bale skoraði beint úr aukaspyrnu vel fyrir utan teig.  

Eftir seinna mark Tottenham var sem Liverpool vaknaði til lífsins og fóru að spila betur.  Liverpool voru betri aðilinn það sem eftir var af fyrri hálfleik án þess að koma boltanum í markið.  Seinni hálfleikur hófst eins og sá fyrri kláraðist,   Liverpool betra liðið og voru hættulegir fram á við.  Það var svo á 72. mínútu að Bale varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar Lennon ætlaði að hreinsa frá marklínu en boltinn fór beint í andlitið á Bale og þaðan í netið,  skrautlegt sjálfsmark.

Liverpool sótti mikið það sem eftir var leiks án þess að ná jöfnunarmarkinu,   lokatölur 2-1.

Lið Tottenham í leiknum :

Lloris  – Walker – Gallas – Dawson – Vertonghen – Lennon – Sandro – Dembele ( Huddlestone 88 ) – Bale – Dempsey ( Gylfi 63 ) – Defoe

Ónotaðir varamenn :

Friedel – Naughton – Livermore – Townsend – Carroll

Tölfræði úr leiknum

Með boltann

Tottenham   48%    Liverpool  52 %

Skot / á markið

Tottenham 14 / 7      Liverpool   14 / 9

Hornspyrnur

Tottenham 1     Liverpool 12

Jafntefli nr. 4 í Evrópu- deildinni

0

Tottenham heimsótti lið Lazio í Evrópudeildinni á fimmtudaginn var og fóru leikar 0-0 eins og í fyrri leik þessara liða.  Tottenham hefur þá lokið 5 leikjum af 6 í riðlinum og eru enn taplausir,  með 1 sigur og 4. jafntefli.  Tottenham nægir jafntefli í síðasta leiknum sem er heimaleikur við Panathinaikos frá Grikklandi til að komast áfram.   Leikurinn var ágætlega leikinn af Tottenham ,  Bale skoraði mark eftir ca. 10 mínútur sem var dæmt af vegna rangstöðu en það var rangur dómur.  Lazio var betra liðið í leiknum og átti Lloris mjög góðan leik í markinu og bjargaði jafnteflinu þegar upp var staðið.

Sigur á West Ham

0

Tottenham vann góðan sigur á heimavelli gegn nágrönnum sínum í London West Ham 3-1 með með tveimur mörkum frá Defoe og einu frá Bale.

Lloris var markinu í sínum þriðja leik í röð og virðist sem frakkinn sé orðinn markmaður númer 1. hjá Spurs en liðið var annars skipað þeim, Lloris, Walker, Caulker, Dawson, Vertonghen, Sandro, Huddlestone, Lennon, Bale, Dempsey og Defoe frammi.

Tottenham byrjaði leikinn mun betur og var Gareth Bale mjög ógnandi og lenti O’Brien í því að brjóta á honum strax á 8.mínútu og uppskar gult spjald fyrir vikið, ekki draumastaða varnarmanns sem á að gæta Bale, svo á 12.mínútu átti Bale stórkostlegt skot sem endaði í þverslánni.  Það sem eftir lifði hálfleiks voru leikmann Tottenham mun meira með boltann án þess að skapa sér opin markfæri og sóknartilraunir gestanna voru ómarkvissar og bára lítinn árangur enda lögðu þeir megin áherslu á að verjast það var hinsvegar á 44.mínútu að Defoe fékk boltann á miðjum vellinum útvið endalínu og lék skemmtilega á varnarmann West Ham áður en hann brunaði í átt að markinu, lék á annan varnarmann rétt fyrir utan teig áður en skaut föstu og hnitmiðuðu skoti á nærstöngina algerlega óverjandi fyrir Jaaskelainen í marki West Ham og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn og þannig var staðan í hálfleik.

Seinna hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði heimamenn stjórnuðu leiknum frá A-Ö en án þess að ná að gera algeralega útum leikinn strax í upphafi því það var ekki fyrr en á 58.mínutu sem annað mark Tottenham kom þar sem Dempsey átti flotta sendingu inn fyrir vörn West Ham sem Bale kláraði færið laglega með skoti í stöngina inn, en rétt áður hafði Dempsey átt skot í þverslánna.  Það var svo sex mínútum síðar á 64.mínútu að Tottenham gerðu endanlega út um leikinn en þá vann Sandro boltann á miðjuvallarins sem barst til Dempsey sem var fljótur að hugsa og sendi boltann á Lennon sem slapp einn í gegn og í stað þess að reyna sjálfur að skora renndi hann boltanum til hliðar þar sem Defoe renndi boltanum í autt markið frábærlega gert hjá Lennon.  Eftir þetta jafnaðist leikurinn töluvert og fengu gestirnir færi og nýttu eitt þeirra eftir varnarmistök hjá Caulker sem mistókst að hreinsa bolta almennilega frá markinu eftir Lloris hafði kallað á boltann, barst boltinn þá aftur fyrir markið og Andy Carroll sem hafði átt frekar rólegan dag skallaði boltann í netið og skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir West Ham og höfðu gestirnir með smá heppni getað skorað annað undir blálok leiksins en Lloris kom í veg fyrir það.

Með sigrinum komst Tottenham í sjöunda sæti deildarinnar með 20 stig en næsti leikur liðsins er aftur á heimavelli næstkomandi miðvikudag 28.okt kl 19:45 gegn Liverpool.

Stuðningsmenn West Ham gætu lent í vandræðum vegna framkomu sinnar gagnvart stuðningsmönnum Tottenham en þeir sungu víst níðingssöngva um gyðinga og gerðu grín að alvarlegri áras sem stuðningsmaður Tottenham varð fyrir í Rómarborg fyrr í vikunni.

 

Tölfræði:

Tottenham

  • 25

     Hugo Lloris

  • 28

     Kyle Walker

  • 20

     Michael Dawson

  • 33 

     Steven Caulker

  • 5

    Jan Vertonghen

  • 6

    Tom Huddlestone

  • 30

     Sandro(86Substitution)

  • 7

    Aaron Lennon(79Substitution)

  • 2

    Clint Dempsey

  • 11

    Gareth Bale

  • 18

    Jermain Defoe(94Substitution)

Varamenn

  • 46

    Tom Carroll

  • 22

    Gylfi Sigurdsson(94Substitution)

  • 16

    Kyle Naughton

  • 29

    Jake Livermore(86Substitution)

  • 19

    Mousa Dembele(79Substitution)

  • 24

    Brad Friedel

  • 13

    William Gallas

Með Boltann (%)
65
35
Skot á markið
13
6
skot framhjá
12
4
Hornspyrnur
4
2
brot
9
10
DEMPSEY
Flest Brot
DIAME
4
3
Gul Spjöld
1
2
 

West Ham Utd

  • 22

    Jussi Jaaskelainen

  • 17

    Joey O’Brien

  • 5

    James Tomkins

  • 2

    Winston Reid

  • 3

    George McCartney

  • 11

    (Substitution31)Modibo Maiga

  • 21

    Mohamed Diame

  • 32

    (Substitution55)Gary O’Neil

  • 16

    Mark Noble

  • 4

    (Substitution68)Kevin Nolan

  • 8

    Andy Carroll

Varamenn

  • 30

    Raphael Spiegel

  • 42

    George Moncur

  • 09

    (Substitution68)Carlton Cole

  • 19

    James Collins

  • 20

    Guy Demel

  • 14

    (Substitution55)Matthew Taylor

  • 7

    (Substitution31)Matthew Jarvis

2 tapleikir í röð

0

Tottenham hefur tapað síðustu tveimur leikjum í deildinni og hafa verið að falla hratt niður töfluna eftir að hafa verið í fjórða sæti fyrir nokkrum vikum síðan.  Liðið er núna í 8. sætinu.

Fyrir rúmri viku síðan tapaði liðið fyrir meisturunum í Manchester City á útivelli 2-1 eftir að hafa komist yfir í fyrri hálfleik og leitt í hálfleik 0-1.  Mark Tottenham skoraði Caulker.

Um liðna helgi fór svo Tottenham í stutt ferðalag til nágranna okkar í Arsenal,  sú ferð var ekkert skárri en ferðin til Manchester helgina á undan en Tottenham tapaði fyrir Arsenal 5-2 þar sem Adebayor fékk rautt spjald á 18. mínútu leiksins í stöðunni 0-1 fyrir Tottenham,  og Tottenham liðið var á þeim tímapunkti mikla betra liðið á vellinum.  Mörk Tottenham skoruðu Adebayor og Bale.

Sigur i Evrópudeildinni

0

Tottenham vann í kvöld sinn fyrsta sigur á tímabilinu í riðlakeppni Evrópudeildarinnar 3-1 gegn Maribor frá Slóveníu, þar sem Jermain Defoe var hetja heimamann og sloraði þrennu í leiknum.

André Villas-Boas gerði nokkrar breytingar á liðu sínu frá síðasta leik og breytti einnig um leikkerfi fór yfir í 4-4-2 þar sem Lloris kom í markið vörnin var skipuð Walker, Dawson(c), Vertonghen og Naughton, miðjan var Carroll, Huddlestone, Bale og Lennon og frammi voru Defoe og Adebayor sem byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Tottenham á tímabilinu.

Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru td búnir að fá tvær hornspyrnur þegar ekki voru liðnar nema 4.mínútur af leiknum.  Leikskipulag Tottenham virtist vera einfalt í fyrrihálf leik, koma boltanum á Bale sem fór upp að endamörkum og sendi fyrir og áttu hann nokkrar slíkar í fyrrihálf leik sem sköpuðu hættu fyrir framan mark gestanna.  Það var svo á 21.mínútu að Bale var með boltann út kanti og á hnitmiðaða sendingu inná teiginn þar sem Defoe var einn og óvaldaður og átti ekki í nokkrum vandræðum með að stýra boltanum í fjærhornið staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn og gestirnir ekki líklegir fram að þessu til að gera einhvern usla.  Nokkrum mínútum seinna kom Adebayor boltanum í netið eftir skemmtilegt samspil við Bale en Adebayor var dæmdur rangstæður sem líklega var réttur dómur.  Það var svo á 39. mínútu að gestirnir fengu fyrsta almennilega færið sitt í leiknum þegar Tavares slapp inní teiginn og átti sendingu fyrir sem Lloris náði að slá útí teiginn þar sem Cvijanovic skallaði boltann framhjá í frábæru færi.  Strax í kjölfarið á þessu kom jöfnunarmark gestanna sem var slysalegt í meiralagi, Lloris átti slæma sendingu á Naughton sem lék til baka og átti ennþá verri sendingu aftur á Lloris sem ætlaði að leika boltanum á vinstri fótinn á sér frekar en að sparka út frá markinu með hægri en það tókst ekki betur en að Beric sá við Lloris og setti boltann í tómt markið.  Staðan 1-1 í hálfleik þar sem heimamenn hefðu hæglega getað með smá heppni hafa skorað 2-3 mörk í viðbót.  Eitthvað virðist samt AVB hafa sagt við sína menn í hálfleik því strax á 49.mínútu var Defoe búinn að skora aftur fyrir Tottenham eftir frábæra sendingu frá hinum bráðefnilega Tom Carroll.  Tottenham sótti meira eftir þetta og var Adebayor óheppinn að skora ekki eftir flotta sendingu innfyrir vörnina frá Bale.  Eftir þetta neitaði dómarinn að dæma heimamönnum nokkuð í smá tíma, Bale var hindraður, svo sleginn í andlitið og svo var Defoe klipptur niður rétt fyrir utan teig þegar hann var sloppinn einn inn fyrir, en finnski dómarinn sá ekki ástæðu til að dæma neitt.  Á 72.mínútu slapp Tavares einn inn fyrir vörn Tottenham en á einhven óskiljanlegan hátt náði hann ekki að koma sér í skotstöðu og Naughton náði að hreinsa boltann frá marki heimamanna, og hélt maður að nú færi að koma enn eitt jöfnunarmarkið sem Tottenham hefur fengið á sig í þessari keppni en sem betur fer fór svo ekki því á 76.mínútu skoraði Defoe sitt þriðja mark eftir frábæran undirbúning, Adebayor tók boltann vel niður við miðlínu vallarins og sendi til baka á Huddlestone sem átti frábæra sendingu upp vinstri kantinn þar sem Bale hafði betur gegn varnarmanni Maribor á sprettinum og sendi flotta sendingu inná teiginn þar sem Defoe var mættur staðan 3-1 og leikurinn nánast búinn við þetta.  Fátt gerðist í leiknum eftir þetta þar sem Tottenham hélt boltanum vel og gestirnir náðu ekki að skapa sér nein færi.  AVB gerðir nokkrar breytingar undir lok leiksins Defoe fór útaf fyrir Dempsey, Bale fyrir Ryan Mason og Lennon fyrir Falque.

Með þessum þremur mörkum frá Defoe í kvöld er hann orðinn áttundi markahæðsti leikmaður Tottenham frá upphafi með 126 mörk og fór hann upp fyrir Teddy Sheringham að auki setti hann stórt spurningarmerki við val Roy Hodgson á enska landsliðinu sem var valið í kvöld en Hodgson ákvað að velja Defoe ekki í hópinn að þessu sinni.

Með sigrinum eru Tottenham komnir í annað sætði í riðlinum með 6 stig meðan Maribor er í 3 sæti með 4 stig efstir eru svo Lazio, sem Tottenham mætir á Ítalíu eftir 2 vikur, með 8 stig og neðstir eru Panathinaikos með 2 stig en næstur leikur Tottenham í úrvalsdeildinni er gegn Man City á sunnudaginn kl 13:30

 

Skelfileg frammistaða á WHL

0

Tottenham átti heimaleik gegn liði Wigan á laugardaginn var í Ensku Úrvalsdeildinni.  Lokatölur í leiknum var 0-1 sigur Wigan.  Tottenhamliðið lék svo illa í þessum leik að annað eins hefur ekki sjést í mörg mörg ár.  Wigan átti sigurinn bara skilið enda fékk Tottenham varla færi í leiknum.   AVB virtist engin svör hafa við leik Wigan og voru stuðningsmenn Tottenham lítt hrifnir af AVB eftir leik.
Undirritaður var á White Hart Lane á laugardaginn og var ég að spá að skrifa góða grein um leikinn.  En þar sem þetta var einhver leiðinlegasti knattspyrnuleikur sem ég hef séð með berum augum og ein allra lélegasta frammistaða Tottenham síðan ég byrjaði að horfa á fótbolta ætla ég bara að láta þetta duga um leikinn …     ekkert að dvelja við þennan leik of lengi,  heldur bara fara að huga að næsta leik.

Tottenham úr leik í bikarnum

0

Tottenham lék gegn liði Norwich í 16-liða úrslitum deildarbikarsins á Englandi í síðustu viku.  Leit lengi vel út fyrir að Tottenham myndi sigra leikinn en á síðustu 10 mínútunum tókst liði Norwich að skora tvívegis og fara með sigur af hólmi 2-1.  Tottenham komst yfir í leiknum þegar Gareth Bale skoraði með hnitmiðuðu skoti fyrir utan vítateig.  Tottenham var miklu betra liðið og fengu mörg ágætis færi á að bæta við.  En þegar 10 mín voru eftir varð Vertonghen fyrir því ólani að skora sjálfsmark og jafnaði leikinn 1-1.   Aðeins 5 mínútum síðar skoraði Norwich aftur eftir klafs í teignum og staðan orðin 2-1.  Tottenham fékk svo gullið tækifæri á lokamínútunni að fara með leikinn í framlengingu þegar liðið fékk vítaspyrnu,  en markvörður Norwich varði slaka spyrnu frá Dempsey.

Sigur á Southampton

0

Tottenham Hotspur vann í dag sigur á Southampton 2-1 með mörkum frá Gareth Bale og Clint Dempsey á St Mary´s.

Lið Tottenham var skipað Friedel, Vertonghen, Walker, Gallas, Caulker, Huddlestone, Sandro, Bale, Lennon, Dempsey og Defoe.  Á bekknum voru Lloris, Dawson, Naughton, Gylfi, Falque, Townsend og Livermore, fjórar breytingar frá liðinu sem spilaði við Maribor á fimmtudagskvöldið í Evrópudeildinni.

Tottenham byrjaði leikinn mun betur og voru óheppnir að vera ekki komnir yfir strax eftir 3 mínútur þegar Aaron Lennon komst í færi og stuttu síðar átti Defoe skot rétt framhjá eftir fyrirgjöf frá Walker.  Á 15. mínútu kom svo fyrsta mark leiksins, Huddlestone átti laglega sendingu til vinstri þar sem Gareth Bale kom sér framfyrir varnarmanninn og átti fastan og hnitmiðaðann skall í fjærhornið óverjandi fyrir Boruc í marki Southampton.  Tilfinningarík stund hjá Bale sem fagnaði lítið enda að skora gegn sínu uppeldisliði og eftir að hafa átt sitt fyrsta barn um síðustu helgi.  Eftir þetta átti Tottenham fjölda færa án þess að ná að skora og heimaliðið hélt boltanum illa og átti erfitt með að sækja.  Það var svo á 39. mínútu að Lennon átti góðan sprett upp miðju vallarins, átti svo góð sendingu innfyrir á Defoe sem rendi boltanum framhjá Boruc í markinu en varnarmaður Southampton náði að bjarga boltanum á línu en hinsvegar kom Dempsey á fleygi ferð og náði að koma boltanum í markið staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham og leikurinn eign þeirra.

Allt annað var uppá teningnum í seinni hálfleik, heimamenn komu munu sterkari til leiks og liðin skiptust á að eiga marktækifæri.  Walker hefði getað skorað fyrir Tottenham eftir góðan undirbúning frá Lennon en skot hans fór vel framhjá.  Á 63. mínútu gerði Andre Villas-Boas sína fyrstu skiptingu tók Huddlestone út af og setti Livermore inná, skipting sem átti að þétta miðjuna en þremur mínútum síðar minnkuðu heimamenn muninn með marki frá Rodriguez.  Fonte átti góðan skall að marki Tottenham eftir hornspyrnu sem Friedel gerði vel í að verja en Rodriguez var fyrstur til að átta sig og hirti frákastið og skorað laglegt mark úr þröngu færi, staðan 1-2 og 24 mínútur eftir af leiknum.  Fljótlega eftir þetta áttu heimamenn tvö hættuleg færi þegar Rodriguez átti skot rétt framhjá og Gallas gerði vel í að komst í veg fyrir skot Lambert.  Það var svo eftir skemmtilegan samleik milli Lambert og Lallana að sá síðarnefndi komst einn upp að endalínu við markteig Tottenham og átti sendingu útí teiginn þar sem Gallas náði að bjarga á síðustu stundu.  Heimamenn á þessar stundu mjög líklegir til að jafna leikinn.  Á 78. mínútu gerði AVB sína aðra skiptingu þegar Gylfi kom inná fyrir Defoe og Dempsey fór upp á toppinn.  Það var svo á lokamínútum leiksins að besta „varsla“ leiksins kom en eftir þunga sókn heima manna barst boltinn rétt út fyrir teig Tottenham og þar kom Schneiderlin og átti þrumuskot að marki sem Sandro fórnaði sér í og skallaði frá marki.  Í uppbótartíma kom svo síðasta skipting Tottenham þegar Dawson kom inná fyrir Dempsey.

Tölfræði úr leiknum í dag:

                                   Southampton – Tottenham

Skot á markið:                          2                4

Skot framhjá:                           6                7

Horn:                                      2               3

Sendingar %:                         81,7          87,2

Með boltann:                         52,3%      47,7%                                  

 

Með sigrinum í dag komst Tottenham í 17 stig í 4.sætið aðeins 5 stigum á eftir toppliði Chelsea.  Næsti leikur Tottenham er gegn Norwich á útivelli í deildarbikarnum miðvikudaginn 31.okt kl 19:45 og næsti leikur í deildinni er gegn Wigan á WHL laugardaginn 3.okt kl 15:00

 

 

 

Nýjustu fréttirnar