Page 15

Evrópu jafntefli

0

Tottenham Hotspur gerði jafntefli við Maribor frá Slóveníu í Evrópudeildinni 1-1 í Slóveníu.

Andre Villas-Boas gerði þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta deildarleik gegn Chelsea, Lloris kom í markið í stað Friedel, Naughton inn fyrir Gallas og Townsend fyrir Dempsey sem þýddi að Vertonghen fór í miðvörðinn og Naughton í vinstri bakvörðinn annars var liðið skipað eftirtöldum leikmönnum, Lloris, Walker, Caulker, Vertonghen, Naughton, Lennon(c), Sandro, Huddlestone, Townsend, Gylfi og Defoe.

Gestirnir frá Lundúnum byrjuðu betur án þess að ógna markinu að neinu ráði, Tottenham voru mun meira með boltann meðan leikmenn Maribor lágu aftarlega á vellinum og reyndu að sækja hratt þegar færi gafst.  Allt virtist stefna í markalausan og bragðdaufan fyrrihálfleik þegar heimamenn skoruðu nokkuð gegn gangi leiksins rétt fyrir hálfleik, staðan 1-0 fyrir Maribor.

Leikmenn Tottenham mættu mun einbeittari til leiks í síðarihálfleik.  Andre Villas-Boas gerði eina skiptingu í hálfleik Townsend fór útaf og inná kom Falque.  Eftir þónokkra pressu í síðari hálfleik uppskáru leikmenn Tottenham loksins árangur erfiðins,  Gylfi átti þá sendingu út til vinstri á Falque sem reyndi sendingu fyrir markið sem markmaður Maribor sló útí teiginn þar sem Defoe tók við boltanum og átti þrumuskot að marki sem varnarmaður Maribor bjargaði á línu en boltinn barst til Gylfa sem kom boltanum inn, staðan orðin 1-1, fyrsta mark Gylfa í Evrópudeildinni fyrir Tottenham staðreynd og 58. mínútur búnar af leiknum.

Eftir markið opnaðist leikurinn töluvert og næsta færi fékk Maribor og höfðu auðveldlega getað komist í 2-1 en skot sóknarmannsins fór í hliðarnetið.  Á 73. mínútu gerðist svo umdeilt atvik, Kyle Naughton prjónaði sig laglega inní teiginn og virtist vera brotið á honum en dómari leiksins, sem annars átti tiltölega góðan leik, sá sér ekki fært að dæmi víti heldur spjaldið Naughton fyrir leikaraskap.

Andre Villas-Boas gerði 2 skiptingar í viðbót í seinnihálfleik, Gylfi fór útáf á 75. mínútu og inná kom Dempsey og Sandro fór útáf á 84. mínútu og inná kom Livermore.  Loka færi leiksins áttu svo Tottenham þegar Vertonghen átti hörkuskot af rúmlega 30 metra færir en boltinn fór rétt framhjá markinu.  Staðan 1-1 og enn eitt jafnteflið hjá Tottenham í Evrópudeildinni staðreynd.  Eftir þennan leik eru Tottenham með 3 stig í þriðja sæti riðilsins en efstir eru Lazio með 5 stig, öðru sæti Maribor með 4 stig og restina reka Panathinaikos með 2 stig.  Næstu leikur Tottenham í Evrópudeildinni er aftur gegn Maribor þá á heimavelli 8. nóvember.

 

 

Tap gegn Chelsea

0

Tottenham – Chelsea    2-4
                         Cahill 17
Gallas 47
Defoe 54
                         Mata 66
                         Mata 69
                         Sturridge 90

Tottenham lék á laugardaginn við lið Chelsea á White Hart Lane.  Lokatölur í leiknum voru 2-4 og fyrsta tap Tottenham á heimavelli á tímabilinu staðreynd.
Tottenham varð fyrir áfalli fyrir leik þegar það kom í ljós að Dembele væri ekki leikfær og svo stuttu fyrir leik varð liðið fyrir öðru áfalli þegar Bale þurfti frá að hverfa upp á sjúkrahús þar sem kærasta hans var við það að fara að eiga barn.  Þarna fóru tveir mikilvægir póstar úr liði Tottenham.
Leikurinn byrjaði rólega og skiptust liðin á að sækja þó að Chelsea hafi verið aðeins sterkara til að byrja með,  fátt um færi í upphafi leiks, reyndar fékk Gallas ágætis færi eftir aukaspyrnu Gylfa en skot hans fór framhjá.
Fyrsta mark leiksins kom svo á 17. Mínútu þegar Chelsea fékk hornspyrnu og boltinn barst á fjær þar sem Gallas ætlaði að skalla boltann frá,  en það gekk ekki betur en svo að boltinn fór tilbaka út í teig þar sem Gary Cahill kom askvaðandi og hamraði boltanum upp í þaknetið á miðju markinu með viðkomu í varnarmanni.  Það sem eftir var af fyrri hálfleik voru Chelsea betri og fengu nokkur færi til að bæta við.
Allt annað Tottenhamlið kom inná í síðari hálfleik og var liðið miklu betra í upphafi síðari hálfleiks.  Síðari hálfleikur var bara tveggja mínútna gamall þegar Tottenham jafnaði og var þar að verki Gallas.  Huddlestone átti þá aukaspyrnu frá hægri sem fór alveg yfir á fjær þar sem Vertonghen náði til boltans og kom honum fyrir markið þar sem Gallas var einn og óvaldaður og skallaði boltann auðveldlega í tómt markið.  Tottenham hélt áfram að sækja og aðeins 7 mínútum síðar var staðan orðin 2-1.  Lennon fékk þá boltann fyrir utan teig hægra megin og lék í átt að teignum,  og þegar að vítateigslínu var komið sendi hann góðan bolta á Defoe sem var að hlaupa í átt að marki sem tók boltann í fyrsta og setti hann á nærstöngina úr miðjum vítateignum.  Flott mark og staðan orðin 2-1 og Tottenham miklu betra liðið.
Eftir markið fór aðeins að draga úr krafti Tottenham og Chelsea var að komast meir og meir inní leikinn.  Það var svo á 66. Mínútu sem Chelsea jafnaði þegar Mata skoraði með hárfínu skoti neðst í hornið frá vítateig eftir að hreinsun Gallas datt beint fyrir Mata.  Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Chelsea aftur , og aftur var Mata á ferðinni þegar hann fékk flotta sendingu frá Hazard innfyrir vörn Tottenham og kláraði af yfirvegun framhjá Friedel í markinu.  Tvö mörk frá Chelsea á ca. Þremur mínútum var sem köld tuska í andlit Tottenham.  Bæði lið fengu ágætis færi og voru markverðir liðanna að standa vaktina vel, þá sérstaklega Cech sem varði nokkrum sinnum mjög vel og kom í veg fyrir að Tottenham næði að jafna leikinn.
Það var svo alveg undir lok leiksins sem Chelsea gulltryggði sigurinn þegar Walker lét ræna af sér boltanum við hliðarlínuna, leikmaður Chelsea lék í átt að markinu og sendi svo fyrir á Sturridge sem var einn og óvaldaður fyrir framan markið og átti ekki í erfiðleikum með að skora. 
Tottenhamliðið í þessum leik lék ágætis bolta en var refsað illilega fyrir öll mistök.  Gylfi og Huddlestone komu inn í liðið í staðinn fyrir Dembele og Bale.

Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – Gallas – Caulker – Vertonghen – Lennon – Sandro – Huddlestone ( Livermore 67 ) – Gylfi – Dempsey ( Adebayor 74 ) – Defoe
Ónotaðir varamenn :
Lloris – Dawson – Naughton – Townsend

 

Tölfræði úr leiknum.

Með boltann
Tottenham  48%      Chelsea  52 %

Skot / á markið
Tottenham 23 / 16     Chelsea  11 / 7

Hornspyrnur
Tottenham  7    Chelsea   4

Sigurvegari í skráningar- leiknum

0

Í hálfleik í leik Tottenham – Chelsea á laugardaginn var drógum við út sigurvegara í skráningarleik Tottenhamklúbbsins á Íslandi.

Sigurvegarinn er Halldór Sveinn Kristinsson  ,  270171 –   og fær hann að launum nýju Tottenhamtreyjuna í boði Jóa Útherja í Ármúla.

Óskum við Halldóri til hamingju og getur hann nálgast treyjuna í verslun Jóa Útherja , Ármúla 36

 

kv
Stjórnin

Tottenham – Chelsea (upphitun)

0

Tottenham – Chelsea ( upphitun )

Tottenham spilar á morgun laugardag við lið Chelsea og er leikurinn á White Hart Lane og hefst kl. 11.45 að íslenskum tíma.  Chelsea eru ósigraðir í deildinni og sitja í efsta sæti deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Man. Utd sem eru í öðru sæti.  Tottenham eru í fimmta sæti deildinnar eftir mjög svo brösuga byrjun,  en liðið hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki.

Tottenham og Chelsea hafa spilað 188 sinnum í gegnum tíðina,  allt frá fyrsta leiknum sem var æfingarleikur á Stamford Bridge árið 1908 sem endaði með jafntefli 2-2.  Af þessum 188 leikjum hefur Tottenham unnið 68 ,  Chelsea hefur unnið 73 og 47 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Í Úrvalsdeildinni er þetta svoldið önnur saga.  Liðin hafa mæst 40 sinnum í Úrvalsdeildinni og hefur Tottenham einungis unnið þrjá leiki af þessum 40,  Chelsea hefur unnið 22 leiki og 17 leikir hafa endað með jafntefli.
Tottenham gekk mjög illa með að vinna Chelsea í úrvalsdeildinni,  og var það ekki fyrr en í nóvember 2006 sem Tottenham vann Chelsea í fyrsta skipti í úrvalsdeildinn með 2-1 sigri þar sem Dawson og Lennon skoruðu mörkin.  Fram að því höfðu liðin mæst 28 sinnum og Tottenham aldrei unnið.  Síðan sigurinn 2006 hefur Tottenham unnið Chelsea tvisvar í viðbót í deildinni.  Mars 2009 ,  1-0 þar sem Modric skoraði sigurmarkið og svo apríl 2010 , 2-1 þar sem Defoe ( víti ) og Bale skoruðu mörkin.  Í síðustu 8 deildarleikjum hafa bæði lið unnið tvo leiki og fjórir leikir hafa endað með jafntefli.

Tottenham síðustu 5 leikir í deild
Norwich ( h )   1-1
Reading ( ú ) 1-3
QPR ( h )  2-1
Man Utd ( ú )  2-3
Aston Villa ( h )  2-0
4 sigrar ,  1 jafntefli og ekkert tap.   Markatalan  11 – 5

Chelsea síðustu 5 leikir í deild
Newcastle ( h )  2-0
QPR ( ú )  0-0
Stoke ( h )  1-0
Arsenal ( ú )   1-2
Norwich ( h )  4-1
4 sigrar ,  1 jafntefli og ekkert tap.  Markatalan  9 – 2

 

Tottenham

Markahæstir
Defoe – 4 mörk
Bale – 2 mörk

Stoðsendingar
Bale – 3 stoðsendingar
Defoe – 2 stoðsendingar
Dembele – 2 stoðsendingar
Lennon – 2 stoðsendingar

 

Chelsea

Markahæstir
Torres – 4 mörk
Lampard – 3 mörk
Ivanovic – 3 mörk

Stoðsendingar
Hazard – 6 stoðsendingar
Mata – 4 stoðsendingar
Torres – 3 stoðsendingar

Líkleg byrjunarlið

Tottenham – Chelsea ….. (á Ölver )

0

Daginn

Tökulið frá fótboltaþættinum Premier League World Show mun verða á Ölver á laugardaginn kemur þegar Tottenham og Chelsea eigast við. Verið er að fjalla um vinsældir Enska boltans á Íslandi og svo eitthvað í kringum Gylfa Sig og Tottenham.

Leikurinn er semsagt á laugardaginn kemur, 20. október og hefst hann kl. 11.45
Gaman væri að sem flestir stuðningsmenn Tottenham myndu mæta á Ölver merktir Tottenham í bak og fyrir, og mynda góða stemningu :drinkers: 
Tilboð verða á barnum fyrir alla merkta Tottenham ,   ískaldur á krana á 650.-


Hér er smá info frá gaurnum sem er að koma :
“it’s from back in March as you can see, „

http://www.footballorgin.com/2012/03/pr … 32012.html

A cut down version of our features can also be seen on the official Premier League website. The available clips have had all live match footage removed from them but largely remain intact. Tony Fernandes went out in our show last week after we travelled to Malaysia with QPR on pre season.

http://www.premierleague.com/en-gb/phot … ideos.html „

kv
Birgir

Landsleikja-fréttir „uppfært“

0

Nokkrir leikmenn Tottenham tóku þátt í landsleikjum með sínum landsliðum á föstudaginn var.  Hér eru nokkrar fréttir af leikmönnum Tottenham sem voru í eldlínunni á föstudaginn.

Gylfi Sigurðsson spilaði allan leikinn með Íslendingum sem sigruðu lið Albana 1-2.  Skoraði Gylfi jafnframt sigurmarkið í leiknum ,  sem hægt er að sjá hér.  http://www.ruv.is/frett/albania-island-morkin

Gareth Bale spilaði allan leikinn með Walesverjum sem sigruðu nágranna sína í Skotlandi 2-1.  Bale skoraði bæði mörkin í leiknum, það síðara var sérstaklega glæsilegt.   Hægt er að sjá markið hér

http://www.101greatgoals.com/gvideos/gareth-bales-fantastic-goal-to-secure-wales-win-v-scotland/

Mousa Dembele og Jan Vertonghen spiluðu báðir allan leikinn með sterku liði Belga sem sigraði Serbíu á útivelli 0-3.

Kyle Walker spilaði allan leikinn og Aaron Lennon í 80 mínútur þegar Englendingar áttu ekki í vandræðum með lið Andorra í 5-0 sigri.   Jermain Defoe kom ekki við sögu í leiknum.

Clint Dempsey spilaði allan leikinn fyrir Bandaríkjamenn sem sigruðu lið Antique and Barbuda á útivelli 1-2.

Hugo Lloris spilaði allan leikinn í marki Frakka sem töpuðu óvænt heima gegn Japönum í æfingarleik 0-1.

Sandro spilaði í 8 mínútur með Brasilíu í leik á fimmtudaginn þar sem Brasilía sigraði lið Írak 6-0

 

Þá eru það leikirnir sem voru spilaðir síðasta þriðjudag / miðvikudag.

Gylfi Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Ísland sem tapaði fyrir Svisslendingum á laugardalsvelli 0-2 ,  átti Gylfi fínan leik.

Gareth Bale spilaði allan leikinn fyrir Wales sem töpuðu fyrir Króötum úti 2-0.

Jan Vertonghen spilaði í 90 mínútur og Dembele í 45 mín þegar Belgar unnu Skota 2-0.

Hugo Lloris spilaði allan leikinn með Frökkum sem náðu jafntefli úti gegn Heims- og Evrópumeisturum Spánverjum.  Lloris varði átti stórgóðan leik og varði m.a. vítaspyrnu frá Fabregas.

Clint Dempsey spilaði allan leikinn og skoraði tvö mörk þegar Bandaríkjamenn unnu lið Guatemala 3-1 á heimavelli.

Sandro spilaði í uppbótartíma þegar Brasilía sigraði lið Japan 4-0.

Defoe spilaði í 67 mínútur þegar England gerði jafntefli við Pólverja á útivelli á miðvikudaginn.  Kyle Walker og Aaron Lennon sátu allan tímann á varamannabekknum í leiknum.

 

Sigur á Aston Villa

0

Tottenham Hotspur var rétt í þessu að landa þægilegum sigri gegn Aston Villa á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni 2-0 þar sem mörkin komu frá Caulker og Lennon.  Andrea Villas Boas gerði eina breytingu frá síðasta deildarleik, Hugo Lloris spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Tottenham Hotspurs annars var liðið skipað, Lloris, Walker, Caulker, Gallas, Vertonghen, Sandro, Dembele, Lennon, Bale, Dempsey og afmælisdrengurinn Defoe sem hélt uppá 30 ára afmælið sitt í dag var fremstur.

Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn af krafti og virtust ætla sigla Aston Villa mennina í kaf, en eftir 15 mínútna leik jafnaðist leikurinn töluvert og liðin skiptust á að sækja þrátt fyrir að skapa sér fá færi.  Hugo Lloris stóð sig vel í markinu og var mjög líflegur í markinu og þurfti nokkrum sinnum að hlaupa af línunni til að grípa vel inní sóknartilraunir Villa manna.  Hinumegin á vellinum sköpuðu sóknarmenn Spurs sér fá tækifæri.

Í seinnihálfleik byrjuðu Tottenham leikinn betur en á 51.mínutu voru þeir stálheppnir að lenda ekki undir, Hugo Lloris átti misheppnað kast frá marki þar sem leikmaður Aston Villa komst inní sendinguna og sendi boltann fyrir þar sem Gallas var einn í vörninni með tvo sóknarmenn Aston Villa, Benteke skallaði boltann framhjá í algeru dauðafæri (líklega í betra færi en Darren Bent var í um árið þegar HR sagði að konan hans hefði skorað úr því færi) staðan enn 0-0.  Það var svo á 58.mínutu að varnamúr Aston Villa gaf sig eftir töluverða pressu frá Tottenham.  Eftir hornspyrnu fékk Defoe tíma í teignum til að taka boltann niður snúa sér í teignum en skot sem var á leið fremhjá lenti í hælnum á Caulker og þaðan í markið staðan 1-0 fyrir Tottenham og fyrsta mark Caulkers í Tottenham búning staðreynd.  Fljótlega eftir markið gerði Lambert breytingar á liði Aston Villa, setti tvo sóknarmenn inná þá Darren Bent og N´Zogbia fyrir Albrighton og Delph við þetta riðlasti leikur Aston Villa sem leikmenn Tottenham nýttu sér til fulls þegar boltinn barst á Lennon sem snyrtilega renndi boltanum í gegnum klof varnarmannsins og í fjærhornið óverjandi fyrir Guzan í markinu staðan 2-0 og 67 mínútur búnar.  Eftir þetta var í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda heldur einungis hversu stór hann yrði.  AVB gerði síðan nokkrar breytingar á liðunu eftir þetta Defoe fór útaf á 68.mínútu og inná kom Adebayor sem sýndi lipra takta og var jafnvel óheppinn að ná ekki að skora eða leggja upp mark.  Gylfi kom inná fyrir Dempsey og Townsend fyrir Lennon.  Aston villa varð svo fyrir áfalli þegar varnarmaðurinn Bennett meiddist eftir að hafa lent illa í baráttu við Bale upp við endalínu vallarins, var eins og Bennett hefði dottið á kant eða stétt fyrir utan völlinn og því miður fyrir Lambert þá var hann búinn með allar sínar skiptingar þannig að Aston Villa þurfti að spila einum færri síðasta korterið.

Við sigurinn færist Tottenham uppí 4 sætið tímabundið með 14 stig þvi sigri Man.Utd Newcastle fara þeir í 15 stig og upp fyrir Tottenham.

Tottenham átti 16 skot að marki þar af 6 á markið meðan Aston Villa átti 6 skot að marki þar af 3 á rammann.  Tottenham átti 3 hornspyrnur en Aston Villa enga.  Tottenham var með boltann 56% af leiknum og var með 87% sendingargetu.

Jafntefli í Evrópu-deildinni

0

Tottenham lék sinn annan leik í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið og var leikið gegn Panthinaikos frá Grikklandi og var spila í Grikklandi.  Leikurinn endaði með jafntefli 1-1 þar sem Tottenham hefði átt að hirða öll þrjú stigin.   Mark Tottenham skoraði fyrirliðinn Dawson með skalla eftir aukaspyrnu frá Huddlestone.

AVB stillti upp nokkuð sterku liði í þessum leik og í fyrri hálfleik var Tottenham miklu betra liðið.  Það reyndi lítið á vörnina og sóknarleikurinn var nokkuð fínn.  Tottenham skoraði eina markið í fyrri hálfleik þegar Michael Dawson skallaði boltann glæsilega í fjærhornið eftir aukaspyrnu frá Tom Huddlestone af kanntinum.

Í síðari hálfleik slakaði Tottenhamliðið fullmikið á og spilaði göngubolta oft á tíðum, í  staðinn fyrir að keyra bara yfir Grikkina sem voru frekar slakir og ekki líklegir að gera mikið.  Frammistaða liðsins í seinni hálfleik kom svo í bakið á liðinu þegar um 10 mínútur voru eftir þegar hárnákvæm sending kom innfyrir vörnina á einn Grikkjan sem setti boltann framhjá Lloris í markinu og í stöngina og inn. 

Jafntefli niðurstaðan og Tottenhamliðið spilaði bara illa í þessum leik heilt yfir.  Liðið spilaði hægan bolta sem Grikkirnir áttu ekki í miklum vandræðum með að verjast.  Tottenham var samt miklu betra liðið í þessum leik, og með 100% frammistöðu hefði liðið unnið þennan leik örugglega.

Lið Tottenham í leiknum :
Lloris –  Walker – Caulker – Dawson – Vertonghen – Lennon ( Townsend 75 ) – Dembele – Dempsey  ( Gylfi 66 ) – Huddlestone ( Sandro 81 ) – Bale – Defoe
Ónotaðir varamenn :  Cudicini – Gallas – Falque – Mason

Tölfræði
Með boltann
Panathinkaikos  47%    Tottenham 53 %

Skot / á mark
Panathinkaikos   7 / 4     Tottenham  11 / 7

Hornspyrnur
Panathinaikos     4     Tottenham    6

Stórbrotinn sigur á Old Trafford

0

23. ára bið eftir sigri á Old Trafford lauk á laugardaginn var.  Tottenham sótti þá Manchester United heim og unnu langþráðan sigur 2-3.  Gary nokkur Lineker skoraði sigurmark Tottenham í 0-1 sigri á Old Trafford árið 1989,  svo það var búin að vera löng bið eftir sigri á Old Trafford.

Tottenham byrjaði leikinn á laugardaginn af miklum krafti og eftir tæplega 2. Mínútna leik var Tottenham komið yfir 0-1.  Vertonghen brunaði þá upp vinstri vænginn,  lék inn í teig þar sem hann átti gott skot með hægri fæti sem fór af hendi varnarmanns og í netið á nærstönginni.  Óskabyrjun hjá Tottenham.

Tottenham hélt áfram að vera betra liðið í fyrri hálfleik og virkuðu leikmenn Man. Utd slegnir útaf laginu með þessu marki hjá Tottenham í byrjun leiks.  Það var svo eftir um hálftíma leik að Tottenham tvöfaldaði forystu sína þegar Bale skoraði frábært mark.  Hann fékk boltann við miðlínu vallarins og keyrði upp,  Defoe átti klassa gott hlaup frammi frá hægri til vinstri og dró með sér varnarmann sem opnaði glufu í vörn Man. Utd sem Bale nýtti sér.  Geystist Bale inn í teig með Rio Ferdinand á eftir sér og skoraði Bale með góðu hægri fótar skoti í fjærhornið.  Staðan orðin 0-2 og Tottenham að spila glimrandi flottan fótbolta og var forystan verðskulduð.  

Man. Utd gerði skiptingu í hálfleik þar sem Giggs fór útaf og inná koma Rooney.   Þegar um 6 mínútur voru búnar af síðari hálfleik byrjaði ballið,   á 51. Mínútu átti Rooney flotta sendingu fyrir frá hægri sem Nani mætti á nærstönginni og setti boltann snyrtilega í netið og staðan því orðin 1-2 og nóg eftir.  Í næstu sókn gerði Defoe mjög vel og átti eitraða sendingu á Bale sem var á hlaupi inn í teig,  Bale átti hörkuskot að marki Man. Utd sem Lindegaard í marki Man. Utd varði mjög vel en boltinn barst út í teig aftur þar sem Dempsey kom og lagði boltann í tómt markið.  Tottenham aftur komnir með tveggja marka forystu.  En Adam var ekki lengi í paradís og mínútu eftir mark Tottenham kom næsta mark þegar Persie átti góða sendingu í gegnum vörn Tottenham á Kagawa sem snéri sér flott í teignum og setti boltann framhjá Friedel sem kom út á móti og í stöngina og inn fór boltinn.  3 mörk á um það bil þremur mínútum og staðan orðin 2-3 og um 40 mínútur eftir af leiknum !

Man. Utd voru oft nálægt því að jafna leikinn það sem eftir lifði leiks,   m.a. átti Rooney skot í stöng úr aukaspyrnu ásamt því að boltinn fór einu sinni í þverslá á marki Tottenham.  Persie brenndi af dauðafæri og svo vildu Man. Utd fá víti en fengu ekkert fyrir sinn snúð.  En vörn Tottenham hélt þetta út og sigur 2-3 varð niðurstaðan.  Frábær sigur í alla staði.

Lið Tottenham í leiknum:
Friedel – Walker – Caulker – Gallas – Vertonghen – Lennon –  Sandro –  Dembele ( Huddlestone 83 ) – Dempsey ( Gylfi 69 )– Bale – Defoe ( Dawson 90 )

Ónotaðir varamenn:
Lloris – Falque – Mason – Townsend

Tölfræði úr leiknum ( af vef BBC  )
Með boltann:
Man Utd    48 %        Tottenham 52 %

Skot / á mark
Man Utd  15 / 8         Tottenham  10 / 6

Hornspyrnur
Man Utd   9       Tottenham 5

Tottenham áfram í bikarnum

0

Tottenham lék við 1. deildarlið Carlisle í deildarbikarnum 3. Umferð á miðvikudaginn var.  Fór svo að Tottenham sigraði í leiknum 0-3 með mörkum frá Vertonghen , Townsend og Gylfa.

Öruggur sigur í leik gegn neðrideildarliði sem á kannski að vera gefið fyrirfram, en reyndin er oft allt önnur enda gerist það ár hvert að neðrideildarlið eru að stríða „stóru“ liðunum í bikarkeppnunum.
Vertonghen skoraði fyrsta markið í leiknum á 37. mínútu þegar hann skallaði aukaspyrnu Gylfa í netið, hans fyrsta mark fyrir Tottenham.  Staðan í hálfleik 0-1.  Eftir um 8. mínútna leik í síðari hálfleik skoraði Townsend mark leiksins án vafa.  Hann fékk boltann við miðlínu og lék boltanum alla leið upp að vítateig Carlisle þar sem hann lét vaða með vinstri og boltinn steinlá neðst í horninu, virkilega glæsilegt mark hjá honum.   Á 89. mínútu skoraði svo Gylfi sitt fyrsta mark fyrir Tottenham þegar hann stangaði fyrirgjöf frá vinstri í markið, vel gert hjá Gylfa að brjóta ísinn en hann var maður leiksins á mörgum netmiðlum.
Hér er hægt að sjá svipmyndir úr leiknum :  http://www.youtube.com/watch?v=RVAPz4agci0

AVB gerði margar breytingar á liðinu í þessum leik,  enda mikilvægur leikur framundan gegn Man Utd um komandi helgi.

Lið Tottenham í leiknum :
Cudicini – Vertonghen ( Walker 65 )– Dawson – Caulker – Smith – Dempsey ( Obika 75 ) – Huddlestone – Gylfi – Falque – Townsend – Mason ( Carroll 70 )
Ónotaðir varamenn :  Gomes  – Lennon – Sandro – Defoe

Tölfræði úr leiknum :
Með boltann :
Carlisle  32%     Tottenham  68%

Skot / á markið
Carlisle 8/4      Tottenham  15/8

Hornspyrnur
Carlisle 10      Tottenham 7

Nýjustu fréttirnar