Page 16

Erfiður sigur á QPR

0

Tottenham lék í gær við QPR á heimavelli og sigruðu leikinn 2-1.  Mörk Tottenham skoruðu Defoe og hitt var sjálfsmark hjá QPR.  Sigurinn var langt í frá sannfærandi,  en liðið var á hælunum allan fyrri hálfleik og fengu vart færi í hálfleiknum.  QPR leiddi í leikhléi 0-1 með marki Bobby Zamora.  Brad Friedel kom aftur í markið og stóð í ströngu á milli stanganna og sá til þess að forysta QPR var bara eitt mark í hálfleik.

AVB gerði breytingu á liðinu í hálfleik sem átti eftir að snúa leiknum algjörlega.  Hann tók Gylfa útaf og setti Caulker inn í vörnina,   Vertonghen fór í vinstri bak og Bale fór á kantinn,  en Bale spilaði sem bakvörður í fyrri hálfleik.

Tottenham tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik og náðu loks að jafna leikinn á 60. Mínútu þegar Caulker skallaði hornspyrnu í átt að markinu og boltinn fór í bakið á Faurlin leikmanni QPR og af honum netið.  Aðeins um mínútu síðar komst Tottenham í 2-1 þegar Defoe skoraði af harðfylgi.  Tottenham vann þá boltann á miðjum sínum vallarhelming,  boltinn barst á Vertonghen sem brunaði upp völlinn og Tottenham skyndilega komnir í mjög vænlegt upphlaup 3 á móti tveimur,  Verthongen lagði boltann til vinstri á Bale þegar upp að vítateig var komið og Bale lét vaða,  en Cesar markvörður QPR varði mjög vel og boltinn fór í slánna og út,  og þar mætti Defoe í frákastið og kláraði vel.

Tottenham voru líklegri til að bæta við þriðja markinu það sem eftir leið leiks,  en Cesar í marki QPR átti fínan síðari hálfleik og hélt sínum mönnum inní leiknum allt til enda.

Lokatölur 2-1 í annars mjög sveiflukendum leik þar sem QPR átti fyrri hálfleikinn og Tottenham þann síðari.  En þrjú stig í hús er það sem mestu máli skiptir og hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð í deildinni.

Lið Tottenham í leiknum í gær.
Friedel – Walker – Gallas – Vertonghen – Bale – Lennon ( Townsend 90 ) –  Sandro – Dembele –  Gylfi ( Caulker 46 )-  Dempsey ( Huddlestone 88 ) – Defoe
Ónotaðir varamenn :  Lloris  –  Dawson – Falque – Mason

Tölfræði úr leiknum :
Með boltann
Tottenham   52 %      QPR    48%

Skot / á ramman :
Tottenham 18 / 14      QPR   9 / 6

Hornspyrnur
Tottenham 10     QPR    9

Evrópudeildin rúllar af stað

0

Í kvöld byrjaði Tottenham ferð sína í Evrópudeldinni með að taka á móti Lazio frá Ítalíu.  AVB gerði 3 breytingar á liði sínu sem vann sinn fyrsta sigur gegn Reading á sunnudaginn, Hugo Lloris kom í markið í stað Friedel, Caulker í vörnina í stað Gallas og Dempsey kom í holuna fyrir aftan sóknarmanninn í stað Gylfa, en annars var liðið skipað Lloris, Walker, Vertongen, Caulker, Naughton, Sandro, Dembele, Lennon, Bale, Dempsey og Defoe.  Það sem kom hinsvegar hvað mest á óvart var val AVB á fyrirliða kvöldsins en Aaron Lennon leiddi liðið úr göngunum á WHL í fyrsta skiptið á ferlinum.

Að leiknum er það helst að nefna að það var alveg ljóst frá fyrstu mínútu að mótherjar Tottenham komu frá Ítalíu og ætlaðu ekki að tapa því stigi sem þeir byrjuðu með í upphafi leiks.  Gestirnir féllu mjög aftarlega á völlinn þegar þeir voru að verjast og voru nánast alltaf tilbúnir með hjálparvörn,  okkar menn héldu boltanum mun meira án þess að skapa sér nokkur marktækifæri að ráði.  Lennon slapp reyndar inn fyrir vörn Lazio og stað þess að reyna skot sendi hann fyrir á Bale en sú sending mistókst.  Lazio reyndi að sækja hratt þegar þeir náðu boltanum en voru ekki að skapa sér nein marktækifæri heldur,  Hugo Lloris átti því mjög svo náðugan dag í markinu en var samt mjög öruggur í leiksínum þegar reyndi á hann.  Tottenham tókst reyndar að koma boltanum í netið einu sinni í fyrrihálfleik þegar Clint Dempsey kastaði sér fram og skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Gareth Bale en Dempsey var dæmdur rangstæður, mjög svo vafasamur dómur.  Hættulegast færi Lazio ef færi skyldi kalla var eftir misheppnaðan skalla Vertongen að boltinn barst til leikmanns Lazio sem tók hann á lofti og hamraði honum í fallegan boga yfir Lloris í markinu en sem betur fer fyrir heimamenn endaði boltann í þverslánni.

Seinnihálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði Tottenham mun meira með boltann án þess að skapa sér nein veruleg marktækifæri og Lazio menn lágu afturlega á vellinum og úr varð nokkurskonar miðjumoð þar sem leikmenn Tottenham héldu boltanum vel aftarlega á vellinum en þegar komið var inná sóknarhelming Lazio virtist liðið vanta úrslitasendingar og hugmyndaflæði til að sprengja upp vörn Lazio sem eins og fyrr segir lá mjög aftarlega og vel skipulagt varnarlega séð. Það sem bar helst til tíðinda í seinnihálfleik var mark sem Caulker skoraði en af einhverjum undarlegum aðstæðum dæmdi dómari leiksins markið ólöglegt á endursýningum var ekki hægt að sjá að Caulker hefði nokkuð brotið af sér.  AVB skipti Gylfa inná fyrir Dempsey, Townsend inn fyrir Lennon og Mason inn fyrir Dembele. Fyrsta leik Tottenham í Evrópudeildinni lauk semsagt með jafntefli 0-0 og greinilegt í leikslok að þetta stig gerði gestina mun ánægðri en heimamenn.

Fyrsti sigurinn!

0

Tottenham var í heimsókn hjá Reading í dag þar sem bæði liðin voru að leita eftir sínum fyrsta sigri á tímabilinu í deildinni, Tottenham með 2 stig meðan Reading var bara með 1 stig.  Byrjunarlið Tottenham í dag var skipað Fridel í markinu, Walker, Gallas, Vertongen og Naughton sem kom inná í stað Ekotto voru í vörninn, miðjan var Sandro, Dembele, Gylfi, Lennon og Bale ásamt Defoe einum á toppnum.  Bekkurinn var heldur ekkert slor, Lloris, Caulker, Dempsey, Townsend, Huddlestone, Dawson og Adebayor.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu leiksins að gestirnir komu mun ákveðnari til leiks og ekki leið að löngu þegar þeir voru búnir að koma sér í gott færi þegar Gylfi átti góðan skalla að marki Reading eftir aukaspyrnu frá Gareth Bale en McCarthy varði vel en boltinn barst til Vertongen sem átti gott skot en McCarthy var vel á verði aftur og varði í horn.  Á 17 mínútu kom svo fyrsta mark leiksins þegar Gylfi átti snilldar sendingu í svæði milli hafsents og barkvarðar þar sem Lennon var mættur og renndi boltanum út í teiginn á Defoe sem átti hnitmiðað skot í fjær hornið framhjá McCarthy og Tottenham komnir yfir.  Yfirburðir gestana héldu áfram og á 30 mínútu náði Defoe boltanum af markmanni Reading en fyrsta snerting var fullþung en hann hinsvegar náði boltanum og sendi út á Gylfa sem var í mjög góðu færi en var óheppinn að láta varnarmenn Reading verja boltann á línu frá sér.

Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði Tottenham réð ríkjum á öllum vellinum en vantaði yfirleitt að vanda loksendingun eða nota betri kost, Gylfi reyndi td hælsendingu á Lennon þegar Defoe var í góðu færi svo var Defoe í færi og átti skot framhjá þegar sending á Gylfa hefði líklega fært Tottenham mark.  Það var svo loksins á 70 mínútu að Tottenham tókst loksins að skora aftur þar var að verki Gareth Bale með hálf misheppnað skot með hægri eftir mjög góðan undirbúning frá Kyle Walker.  Í kjölfar marksins tók Andreas Villa Boas Gylfa útaf og setti Tom Huddlestone inná skipting sem væntanlegt hefur ekki farið vel í marga stuðningsmenn Tottenham sem hafa séð 1-0 forrystu í undanförnum leikjum hverfa eftir að slík skipting hefur verið gerð.  Á 75 mínútu kláraði svo Defoe leikinn þegar hann vann boltann við miðlínu óð upp allan völlin og inní teig átti svo hnitmiðað skot með vinstri framhjá McCarthy sem kom engum vörnum við.  Eftir þetta mark var ekki spurning hvoru megin sigurinn myndi enda.  Á 78 mínútu kom svo Dempsey inná fyrir Bale og svo kom Townsend inná fyrir Lennon á 87 mínútu, það var svo á 90 mínútu þegar heimamenn náðu sárabætu marki en þar var að verki Robson-Kanu eftir laglega fyrirgjöfu frá Le Fondre á fjærstöngini svekkjandi fyrir „skrímslið frá Ohio“ sem hafði haft mjög svo náðugan dag í búrinu.

Það er kannski ekki mikið að marka þennan leik þar sem mótstaðan var ekki mikil en hinsvegar sagði gáfaður maður eitt sinn að enginn spilar betur en andstæðingur leyfir.  Dembele spilaði einstaklega vel og stjórnaði spili Tottenham gjörsamlega og gaman að sjá að Tottenham sótti hratt upp í þessum leik eitthvað sem hefur ekki sést fyrr á þessu tímabili, einnig var Defoe sprækur en hefði oft mátt senda boltann frekar en að skjóta.  Naughton átti líka góða innkomu í liðið.

Landsleikja update

0

Ekkert er spilað í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna landsleikja, hinsvegar eru fjölmargir leikmanna Tottenham að spila með sínum landsliðum.  Steven Caulker spilaði allan leikinn gegn Aserbadjan á fimmtudaginn með 21-árs landsliði Englands og skoraði gott mark í þeim þar sem Englendingar unnu 2-0, Danny Rose spilað einnig allan leikinn.  Jermain Defoe splaði 68 mínutur með Englendingum á föstudagskvöldið og skoraði mark í 5-0 sigri hinsvegar sat Kyle Walker sem fastast á varamannabekknum allan tímann.  Jan Vertongen heldur áfram að skora með landsliði sínu Belgíu en hann skoraði einnig í síðasta leik, þeir léiku núna við Walesverja og unnu 2-0, þá lék Mousa Dembele í 64 mínútur fyrir Belga meðan Gareth Bale spilaði allan tímann fyrir Wales.  Þá spilaði Gylfi Sigurðsson allan leikinn á móti Norðmönnum og lagði hann upp síðara markið í 2-0 sigri og að lokum þá spilaði Hugo Lloris allan leikinn fyrir Frakkland á móti Finnum en sá leikur endaði 1-0 fyrir Frakklandi.

Leikmannahópurinn

0

í dag þurfti að skila inn til enska knattspyrnusambandsins 25 manna lista yfir þá leikmenn sem eru löglegir til að spila með liðunum til 1.jan 2013.

Eftirtaldir leikmenn eru í leikmannahópi Tottenham: Emmanuel Adebayor, Benoit Assou-Ekotto, Gareth Bale, David Bentley, Sandro Cordeiro, Carlo Cudicini, Michael Dawson, Jermain Defoe, Mousa Dembele, Clint Dempsey, Yago Falque, Brad Friedel, William Gallas, Heurelho Gomes, Tom Huddlestone, Jermaine Jenas, Younes Kaboul, Aaron Lennon, Jake Livermore, Hugo Lloris, Kyle Naughton, Scott Parker, Gylfi Sigurdsson, Jan Vertonghen og Kyle Walker, þess ber að geta að ekki þarf sérstaklega að nefna leikmenn undir 21 árs aldri á þennan lista, leikmenn sem eru undir 21 árs aldri hjá Tottenham og gætu spilað í vetur eruTom Carroll, Steven Caulker, Adam Smith og Andros Townsend.

Tottenham – Norwich

0

Enn þurfum við að bíða eftir fyrsta sigrinum á tímiblinu þrátt fyrir að hafa komist yfir í báðum heimaleikjunum höfum við fengið á okkur mark í lok leiks.

Leikurinn í gær var nánast endurtekið efni frá síðasta heimaleik.  Byrjunarliðið var Friedel-Walker-Gallas-Vertongen-Ekotto-Livermore-Sandro-Gylfi-Bale-Lennon-Defoe og bekkurinn Cudicini-Caulker-Naughton-Huddlestone-Dembele-Townsend-Adebayor. Tottenham byrjaði leikinn á því að halda boltanum meira án þess að skapa sér neina verulega hættu þar sem leikmennirnir virtust hugmyndasnauðir þegar kom að sóknarleik ólíkt gestunum sem voru fljótir upp völlinn þegar þeir unnu boltann og sköpuðu sér hættuleg færi eftir föst leikatriði, enda leið ekki að löngu áður en gestirnir höfðu sett boltann í tréverkið en þar var að verki Russel Martin sem skallaði góða aukaspyrnu frá Snodgrass og áður en hálfleikurinn endaði þurfti gamli maðurinn í búrinu hjá okkur að sýna hvað hann getur þegar hann varði stórkostlega skalla frá Snodgrass og verður greinilega erfitt val fyrir AVB að velja markmann í næsta leik.  Sóknarleikur Tottenham virtist tilviiljanakenndur og óskipulagður greinilegt að liðið saknar Luka Modric mjög mikið.  Helstu færi Tottenham í fyrri hálfleik voru skot frá Bale og Gylfa ásamt nokkrum fyrirgjöfum sem rötuðu ekki á þá sóknarmenn sem voru komnir í boxið og svo fær Sandro bjartsýnisverðlaunin fyrir að hafa reynt skot á 35-40 metra færi.

Strax í hálfleik gerðii AVB skiptingu Dembele kom inná í sínum fyrsta leik fyrir Sandro sem átti hræðilegan leik í fyrri hálfleik.  Við það breyttist leikur Tottenham til muna og sóknarleikurinn rúllaði mun betur en þrátt fyrir þetta náðu Tottenham ekki að skapa sér nein veruleg marktækifæri en þeim tókst að halda aftur á gestunum sem virtust eiga í erfiðleikum að halda boltanum innan síns lið.  Á 56. mínútu gerðu heimamenn aðra skiptingu þegar Adebayor kom inná fyrir Gylfa sem hefur átt betri leik en þetta. Það var svo á 68. mínutu að okkar mönnum tókst loks að brjóta múrinn eftir gott einstaklingsframtak hjá Dembele og kláraði hann sóknina með föstu og hnitmiðuðu skoti neðst í hornið óverjandi fyrir Ruddy í markinu. Eftir þetta jafnaðist leikurinn töluvert og okkar menn færðu sig aftar á völlinn það var svo á 81. mínútu að við sáum aftur varnarsinnaða skiptingu hjá AVB sem greinilega ætlaði að halda 1-0 forystunni en Huddlestone kom inná fyrir Defoe sem reyndar var ekki búinn að sýna neitt í leiknum. Það var svo eftir stífa sókn gestann að þeir jöfnuðu eftir klafs í teignum þar sem boltinn barst til Snodgrass sem brást ekki bogalistinn og jafnaði leikinn á 85. mínútu.  Það var svo á 89. mínútu sem Mark „Headline“ Halsey kórónaði leik sinn með að reka Tom Huddlestone útaf fyrir 50-50 tæklingu við Howson, Halsey flautaði ekki strax en eftir að Howson lá eftir og Huddlestone rauk upp á eftir boltanum að flautað var og beint rautt staðreyndin vægast sagt mjög strangur dómur. Stigið var ennþá ekki öruggugt og þurfti Friedel að sýna smá takta í blá lokin til að tryggja stigið klárlega maður leiksins hjá Tottenham.

Eftir þennan leik er Tottenham með 2 stig eftir 3 leiki en til gamans má geta að eftir leikina við þessi lið á síðasta tímabili var liðið líka með 2 stig, en greinilegt að liðið þarfnast einhverskonar leikstjórnanda á miðjuna og það er ekki hægt að hafa Sandro og Livermore saman á miðjunni þegar liðið þarf að sækja.  Dembele sýndi það í þessum leik að hann hefur margt til að geta leyst þessa leikstjórnanda stöðu.

Leikmannaglugginn upprifjun

0

Þá er leikmannaglugganum á Englandi lokið þetta sumarið og greinilegt að nýji stjórinn okkar er heldur betur að setja andlit sitt á leikmannahópinn.

Þetta byrjaði allt í júlí byrjun þegar Gylfi „okkar“ Sigurðsson gekk til liðs við klúbbinn frá Hoffenheim eftir að hafa verið á láni hjá Swansea seinnihluta síðasta tímabils, þar rétt á eftir fylgdi Belgíski landsliðsmaðurinn Jan Vertongen. Emmanuel Adebayor gekk svo loks til liðs við okkur eftir miklar samningsviðræður.

Það var síðan ekki fyrr en í lok ágúst að aftur fór eitthvað að gerast og Mousa Dembele og Clint Dempsey komu frá Fulham ásamt því að gengið var loksins frá kaupunum á Hugo Lloris en þau kaup höfðu reyndar legið lengi í loftinu.

Einnig yfirgáfu eftirtaldir leikmenn liðsins: Sebastien Bassong, Vedran Corluka, Niko Kranjcar, Luka Modric, Ryan Nelsen, Steven Pienaar, Louis Saha, David Button, Giovani dos Santos og Rafael van der Vaart.

Nóg að gera, nú er það Dempsey

0

Nóg virðist að vera að gera hjá Levy og félögum í kvöld því nú er búið að staðfesta kaup á Clint Dempsey frá Fulham. Dempsey skrifaði undir 3 ára samning eftir að Fulham hafði samþykkt tilboð uppá 6 milljónir punda frá Tottenham. Dempsey sem er 29 ára spilaði yfir 200 leiki fyrir Fulham og skoraði í þeim 60 mörk á þeim fimm og hálfu ári sem hann spilaði á Craven Cottage.  Auka samningsatriði gæti leynst í samningnum sem felur í sér að Tom Huddlestone og Harry Kane gætu farið að láni til Fulham.

Hugo Lloris staðfestur

0

Rétt í þessu var Hugo Lloris tilkynntur sem leikmaður Tottenham. Hugo Lloris sem er 25 ára gamall kemur frá Lyon og er aðalmarkmaður og fyrirliði Franska landsliðsins. Kaupverðið er talið vera í kringum 8 milljónir punda en gæti hækkað upp í 12 milljónir punda ásamt því að Lyon fær 20% af kaupverðinu verði hann seldur frá Tottenham. Lloris gerði 4 ára samning við Tottenham.

Evrópudeildin

0

í dag var dregið í riðla í Evrópudeildinni og dróst Tottenham í riðil J ásamt Lazio frá Ítalíu, Panathinaikos frá Grikklandi og Maribor frá Slóveníu.  Fyrstu leikur Tottenham í Evrópudeildinni verður á White Hart Lane 20.september þegar Lazio kemur í heimsókn, annars er leikjaröðunin þessi:

Spurs v Lazio, White Hart Lane – Fimmtudaginn 20. september

Panathinaikos v Spurs, Olympic Stadium – Fimmtudaginn 4. október

Maribor v Spurs, Stadion Ljudski vrt – Fimmtudaginn 25. október

Spurs v Maribor, White Hart Lane – Fimmtudaginn 8. nóvember

Lazio v Spurs, Stadio Olympio – Fimmtudaginn 22.nóvember

Spurs v Panathinaikos, White Hart Lane – Fimmtudaginn 6.desember

Nýjustu fréttirnar