Page 17

Defoe framlengir

0

Jermain Defoe sóknarmaður Tottenham hefur framlengt samning sinn við liðið til ársins 2015, Defoe sem er 29 ára gamall spilaði sinn 300.leik fyrir Tottenham á móti W.B.A um síðustu helgi og hefur skorað 119 mark sem gerir hann að 10.markahæðsta leikmanni allra tíma hjá Tottenham.

Deildarbikarinn

0

Nú rétt í þessu var dregið í 3. umferð deildarbikarsins sem heitir að þessu sinni Capital One Cup. Tottenham dróst á móti Carlisle United sem spilar í League 1.  Nákvæm dagsetning fyrir leikinn er enn ekki ákveðin en spilað verður í vikunni eftir 24. september.  Annars lítur drátturinn svona út Man.Utd-Newcastle, MK Dons-Sunderland, WBA-Liverpool, Crawley- Swansea, QPR- Reading, Norwich-Doncaster, Bradford-Burton, Preston-Middlesbrough, Arsenal-Coventry, Southampton-Sheff.Wed, Chelsea-Wolves, Swindon-Burnley, West Ham-Wigan og Leeds-Everton

Skráningar leikur Tottenham klúbbsins

0

Greiðsluseðlar verða sendir út á næstu dögum til félagsmanna í Tottenhamklúbbnum á Íslandi.   Allir sem greiða klúbbgjaldið fyrir 15. október eiga kost á að vinna nýju Tottenhamtreyjuna í boði Jóa Útherja , Ármúla 36.  Dregið verður eftir 15. október úr nöfnum þeirra sem hafa greitt árgjaldið og fær vinningshafinn nýju Tottenhamtreyjuna í verðlaun,  í boði Jóa Útherja.

Þeir sem nýskrá sig og greiða klúbbgjaldið fyrir 15. október verða einnig með í pottinum.
Hægt er að skrá sig í klúbbinn hér.

Þeir sem hafa áhuga á að vera á póstlista Tottenhamklúbbsins, og eru það ekki nú þegar  – geta sent e-mail á spurs@spurs.is með ósk um að vera settur á póstlistann.

Dembele kominn

0

Mousa Dembele hefur skrifað undir 5 ára samning við Tottenham eftir að Fulham samþykkti tilboð uppá tæpar 15 milljónir punda.

Dembele sem hefur spilað á Craven Cottage með Fulham síðan í ágúst 2010 eftir að hafa komið þangað frá AZ Alkmaar í Hollandi.  Dembele sem er 25 ára skoraði sjö sinnum í 74 leikjum fyrir Fulham og er hugsaður sem eftirmaður Luka Modric sem skrifaði nýlega undir samning við Real Madrid.  Dembele var upphaflega hugsaður sem sóknarmaður en eftir að hafa færst aftar á völlinn og spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður blómstraði leikur hans hjá Fulham.  Hjá Tottenham hittir Dembele samherja sinn úr Belgíska landsliðinu Jan Vertongen sem kom til Tottenham fyrr í sumar frá Ajax.

Dembele sagði í viðtali við heimasíðu Tottenham að hann væri ánægður að hafa samið við Tottenham „Þú getur séð að á undanförnum árum hefur Tottenham verið að spila vel og allir vita að liðið er gott og klúbburinn stór og þess vegna vildi ég koma hingað.  Klúbburinn vill gera stóra hluti og ég vil vera partur af því.  Ég hef þekkt Jan (Vertongen) frá því að ég var 10 ára þegar við spiluðum saman hann sagði mér frá mörgum góðum hlutum um klúbbinn og að fólkið hérna væri mjög vinsamlegt það er mér mjög mikilvægt, að finnast gott að vera hérna, sem ég á örugglega eftir að gera“ sagði Dembele að lokum

Tottenham vs Chelsea (miðar)

0

*** UPPSELT ***

Tottenhamklúbburinn á Íslandi fékk í dag 10 miða úthlutaða á stórleik Tottenham – Chelsea sem fram fer á WHL laugardaginn 20. október kl. 12.45 að staðartíma.  Áhugasamir geta pantað miða með að senda mail á spurs@spurs.is eða nota formið til að panta miða hér á síðunni : https://spurs.is/klubburinn/osk-um-midha

Sætin eru í Austur stúkunni ,  block C

Miðaverð er 71 pund + membershipgjald í klúbbnum úti  =  um 120 pund pr. miði ( eitthvað smá admin fee sem er rukkað úti )

Pantanir á miða þurfa að hafa borist eigi síðar en 16.00 föstudaginn 31. ágúst.

*** UPPSELT ***

 

Modric til Real Madrid ( staðfest )

0

Þá er loksins kominn endir á þetta Modric rugl sem er búið að vera í gangi í næstum allt sumar.  Luka Modric var í dag seldur til Real Madrid á Spáni.  Kaupverðið er talið vera rúmlega 30M punda.  Óskum við Modric góðs gengis hjá nýju liði.  Vonandi mun Levy nýta þennan pening sem fékkst á sölunni á Modric til að styrkja liðið frekar fyrir tímabilið.  En Levy og AVB verða að hafa hraðar hendur,   því félagsskiptaglugginn lokar á föstudaginn á miðnætti ( 23.00 að íslenskum tíma )

Jafntefli heima gegn WBA

0

Tottenham lék á laugardaginn sinn fyrsta heimaleik í Ensku Úrvalsdeildinni tímabilið 2012-13.  Andstæðingarnir voru lið WBA sem m.a. sigruðu Liverpool 3-0 í fyrstu umferðinni.  Leikurinn á laugardaginn endaði með jafntefli 1-1 þar sem Ekotto skoraði fyrir Tottenham seint í síðari hálfleik,  en þegar lítið var eftir tókst WBA að jafna metin.   Tottenham voru miklu betri í ca. 85 mínútur í leiknum , en lokamínúturnar voru eign WBA og jöfnuðu þeir leikinn þar verðskuldað.  Tottenham er því með 1 stig eftir tvo leiki sem getur ekki talist mjög gott.  En þó stigi meira en eftir 2 leiki í fyrra,  og þá náði Tottenham fjórða sætinu í deldinni.  þannig að það er nóg af stigum eftir í pottinum.

Adebayor kominn til Tottenham

0

Tottenham festi í dag kaup á Adebayor frá Manchester City fyrir um 5 M punda + 4 M punda fara til leikmannsins sem signing fee   =  um 9 M punda.  Adebayor var á láni hjá Tottenham allt síðasta tímabil og stóð sig mjög vel, en hann skoraði 18 mörk á síðasta tímabili ( 17 í deildinni ) og var markahæstur í liði Tottenham.  Einnig átti hann einhverjar 11 stoðsendingar á síðustu leiktíð.   Gaman að sjá að það er loksins komin uppfærsla á síðuna http://hasdaniellevyboughtastrikeryet.co.uk/  …  en þar er búið að vera eitt stórt NO í allt sumar.

UPPSELT Í HÓPFERÐINA

0

Uppselt er í hópferðina sem Tottenhamklúbburinn skipulagði á leik Tottenham – Wigan í byrjun Nóvember.

Tap í fyrsta leik

0

Tottenham beið lægri hlut í fyrsta leiknum sínum í Ensku Úrvalsdeildinni tímabilið 2012-2013 á laugardaginn var.   Leikið var gegn Newastle á útivelli og fóru leikar 2-1 fyrir heimamenn.  Mark Tottenham skoraði Defoe.  Tottenham voru heilt yfir betra liðið í leiknum og áttu m.a. skot í stöng og skalla í slá áður en Newcastle skoraði fyrsta markið.  Defoe jafnaði svo leikinn, en í næstu sókn fékk lið Newcastle vítaspyrnu sem þeir skoruðu úr og um leið sigurmarkið.

Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – Gallas – Kaboul – Ekotto – Lennon – Livermore – Sandro ( Kane 85´ ) – Bale – Gylfi ( VdV 68´ ) – Defoe.
Ónotaðir varamenn :  Cudicini – Vertonghen – Naughton – Jenas – Townsend

Nýjustu fréttirnar