Page 18

Newcastle – Tottenham

0

Fyrsti leikur Tottenham á timabilinu 2012-2013 er gegn liði Newcastle á útivelli.  
Leikurinn fer fram kl. 16.30 , laugardaginn 18. ágúst 2012. 

 

Newcastle kom nokkuð á óvart í fyrra og voru í baráttu um meistaradeildarsæti lengi fram eftir tímabili ……
Liðið þótti spila nokkuð skemmtilegan fótbolta og hafði Alan Pardew knattspyrnustjóri þeirra keypt marga
skemmtilega og athyglisverða leikmenn til liðsins …. eftir síðasta tímabil voru margir leikmenn
Newcastle eftirsóttir en enginn fór frá þeim í sumar sem Alan Pardew var ekki til að missa.

Hópferð Tottenham klúbbsins

0

Tottenhamklúbburinn á Íslandi auglýsir hópferð á leik með Tottenham og færi á að sjá Gylfa Þór Sigurðsson í action á White Hart Lane : 

TOTTENHAM – WIGAN
White Hart Lane -laugardaginn 3. Nóvember kl. 15.00.

ATH.  UPPSELT ER Í FERÐINA –  VIÐBRÖGÐIN VORU FRÁBÆR OG SELDIST UPP Í FERÐINA Á ÞREMUR DÖGUM.  MIÐAÐ VIÐ ÞENNAN ÁHUGA , VERÐUR ÞAÐ SKOÐAÐ AÐ BJÓÐA UPP Á FERÐ FYRR EN SÍÐAR.

Þannig er mál með vexti að ég undirritaður hef verið í sambandi við flestar ferðaskrifstofur á Íslandi með hópferð á Tottenhamleik í huga.  Þau verð sem ég var að fá voru vægast sagt í hærri kantinum.  Þá erum við að tala um 2-3 nætur og allur pakkinn á ca. 105.000 – 125.000. -!!!sem mér fannst bara vera allt of mikið.  Þá fékk ég þá hugmynd að setja bara saman hópferð sjálfur og líta verðin miklu betur út.

Hópferðin sem fyrirhuguð er, er á þessa leið.

FLUG
Iceland Express flug út , föstudaginn 2. nóv kl. 17.50
Iceland Express flug heim , mánudaginn 5. nóv kl. 22.25

GISTING
3 nætur á Premier Inn, Stratford
http://www.premierinn.com/en/hotel/LONSTR/london-stratford
( hægt að kaupa morgunmat á staðnum – Full English hlaðborð fyrir ca. £ 9 pr. dag )
Glæsilegt hótel rétt við Ólympíusvæðið, á sanngjörnu verði.
Örstutt að ganga á Stratford lestarstöðina ( lestar + Underground )
15 mín með Central line inn á Oxford Circus
15 mín með lest til Nortumberland stöðina ( sem er rétt hjá WHL )
Westfield verslunarmiðstöðin er bókstaflega undir hótelinu , ein stærsta
.
verslunarmiðstöð í Evrópu.  Yfir 300 verslanir , kvikmyndahús og spilavíti.

FLUGRÚTA
Rúta til og frá flugvelli á Englandi.  Mjög þægilegur kostur.

MIÐI Á VÖLLINN
Miði á völlinn úti ásamt skráningu í aðdáendaklúbbinn í Bretlandi sem er skylda til að fá miða.

FARARSTJÓRN
Íslensk fararstjórn, en einn stjórnarmaður Tottenhamklúbbsins á Íslandi fer með sem fararstjóri.

 

Verð AÐEINS :  86.900.-  á mann miðað við tvo í herbergi.


25.000 kr. aukagjald fyrir að vera í einstaklingsherbergi.
2.500 kr. aukagjald fyrir þá sem EKKI eru skráðir í Tottenhamklúbbinn á Íslandi

Ef einhver sem fer í ferðina er þegar skráður í klúbbinn úti – borgar sá hinn sami 8.000.- minna í ferðina.

Þar sem klúbburinn er sjálfur að standa undir þessari ferð, þarf að hafa hraðar hendur við að bóka.  Ég er búinn að láta taka frá flugsæti, sem ég get aðeins látið halda fyrir mig í viku.  Staðfestingargjald kr. 25.000.- þarf að greiða við bókun.  Eftirstöðvar myndu greiðast í kringum mán.mótin september / október.

Ef áhugi er fyrir að lengja ferðina er möguleiki á því …það þarf þá bara að senda mail á mig spurs@spurs.is og ég get þá farið í að finna út hvað það myndi kosta auka.

Það sem þarf að koma fram við bókun :
Nafn :
Heimilisfang :
Kennitala :
E-mail :
GSM númer :
Nafn herbergisfélaga :
Twin / Double rúm :

Þegar búið er að bóka , þarf að greiða kr.25.000.- inn á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi.
0537-26-3110 Íslandsbanki, Mjódd og kt. 630103-3550
og senda greiðslukvittun á
spurs@spurs.is


Það skal tekið fram að takmarkað magn sæta er í hópferðina, og gildir þá reglan fyrstur kemur fyrstur fær ef bókanir verða fleiri en við ráðum við.


ATH.EF EKKI FÆST NÆG ÞÁTTTAKA GEFUR TOTTENHAMKLÚBBURINN SÉR RÉTT TIL AÐ AFLÝSA FERÐINNI OG ENDURGREIÐA ÞÁ ÞEIM SEM HAFA GREITT STAÐFESTINGARGJALDIÐ.

2 dagar í þetta …..

0

3 dagar til stefnu

0

Nú eru aðeins þrír dagar í að enski boltinn byrji að rúlla á nýjan leik. Tottenhamaðdáendur sem og aðrir aðdáendur enska boltans eru búnir að bíða í allt sumar. Tottenham hafa styrkt sig lítillega í sumar og keypt tvo leikmenn, þá Jan Vertonghen og Gylfa nokkurn Sigurðsson.

Vertonghen er fyrrum fyrirliði Ajax í Hollandi og spilar sem miðvörður en getur líka spilað sem bakvörður sem hann einmitt gerir oftast með Belgíska landsliðinu. Gylfi kom til liðsins í byrjun júlí þegar flestir fótboltaáhugamenn voru vissir að hann myndi elta Brendan Rodgers til Liverpool. Gylfi valdi vel og fór til Tottenham, og sagði sjálfur að það hefði verið meira spennandi kostur.
Gylfi hefur staðið sig með ágætum á undirbúningstímabilinu og skorað tvö mörk og lagt upp önnur tvö í 5 leikjum. Hann skoraði einmitt frábært sigurmark gegn NY Red Bulls í æfingarferð Tottenham til Bandaríkjanna – og vonandi verður meira um slíkt í vetur.

Hópferð Tottenhamklúbbsins

0

Góðan daginn   ,     Tottenham aðdáendur fjær og nær   J

Tottenhamklúbburinn á Íslandi auglýsir hópferð á leik með Tottenham og færi á að sjá Gylfa Þór Sigurðsson í action á White Hart Lane  :
TOTTENHAM – WIGAN 

White Hart Lane –  laugardaginn 3. Nóvember kl. 15.00.

 

2 dagar ……

0

Tveir dagar í þetta ……

Ný heimasíða í loftið

0

Ný heimasíða með nýju útliti fer í loftið innan skamms.   Síðan verður með nýju útliti og er vinna við síðuna á síðustu metrunum.

Síðan fer í loftið ekki alveg fullkláruð og verður ýmsu bætt við síðuna þegar á líður.

.

Vonandi eiga stuðningsmenn Tottenham eftir að vera ánægðir með nýju síðuna.

.

stjórnin

Gylfi Sigurðsson í Spurs !

0

Tottenham gekk svo í dag frá kaupum á Gylfa Sigurðssyni landsliðsmanni Íslands frá Þýska liðinu Hoffeinheim.   Gylfi var á láni hjá Swansea seinni hluta síðasta tímabils og stóð sig einstaklega vel og skoraði 7 mörk í 19 leikjum … ásamt því að hafa ná því fyrstur Íslendinga að hafa verið kjörinn leikmaður mánaðarins í Ensku Úrvalsdeildinni.

Kaupverðið er talið vera um 8 M punda og greina netmiðlar frá því að vikulaun hans séu í kringum 50k á viku ( þannig að Gylfi ætti að hafa fyrir salti á grautinn :o)   ).

Óskum við Tottenham til hamingju með þessi kaup og eins óskum við Gylfa góðs gengis á nýjum vettvangi og vonum til að hann eigi eftir að blómstra í hvítu treyjunni á Norður London. 

Fréttir af klúbbnum …..

0

Spjallborðið á www.spurs.is er komið í lag.  Opið er núna fyrir nýskráningar ( var lokað fyrir það einhverra hluta vegna )  og eins er búið að laga ýmislegt annað sem var hætt að virka.
Tippleikurinn sem var alltaf í gangi hér áður fyrr fer aftur af stað í vetur og er búið að setja upp þráð fyrir tippleikinn.

 

Ný og uppfærð heimasíða fer síðan í loftið vonandi fyrir mót …. en vinna við síðuna er í fullum gangi.

 

Koma Gylfa Sigurðssonar til Tottenham hefur greinilega ýtt við Tottenhamaðdáendum þar sem nýskráningar í klúbbinn hafa verið nokkuð margar í sumar , og vona ég að Tottenhamklúbburinn komist í 400 meðlimi á þessu tímabili.

 

kv

Birgir

 

Nýjustu fréttirnar