Page 10

Bale farinn!

0

Þá er það loksins orðið ljóst að Gareth Bale er farinn til Real Madrid.

Bale gerði 6 ára samning við Real og er talið að hann sé að fá um 300.000 pund á viku og kaupverðið sé um 85 milljónir punda.

Bale kom til Tottenham sumarið 2007 og spilaði rúmlega 200 leiki og skoraði 55 mörk við hérna á spurs síðunni þökkum honum fyrir ánægjuna að hafa fengið að horfa hann blómstra í Spursbúning og óskum honum velfarnaðar á nýjum vígstöðum.

Tap í nágrannaslag

0

Tottenham tapaði rétt í þessu sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn nágrönnum sínum í Arsenal 0-1 á Emirates leikvanginum með marki frá Giroud á 24 mínútu.

AVB gerði eingar breytingar á byrjunarliði sínu í leiknum í kvöld frá síðasta deildarleik en liðið var skipað Lloris, Walker, Dawson, Vertonghen, Rose, Chadli, Townsend (Lamela 75), Capoue (Sandro 75), Paulinho, Dembele (Defoe 69) og Soldado.

Leikurinn stóð eiginlega aldrei undir þeim væntingum sem til hans stóðu.  Arsenal átti hættulegri sóknartækfæri en varla hægt að tala um opin færi hjá meðan okkar menn héldu boltanum meira innan liðsins án þess að skapa sér mikið og greinilegt að liðinu sárvantar einhvern sem kallast ætti leikstjórnandi því hvorki Paulinho né Dembele fundu síg í þessum leik.  Soldado var mikið einangraður og fékk nánast úr engu að moða.  Eini leikmaðurinn sóknarlega sem eitthvað bar á í leiknum var Townsend en lítil hætta skapaðist fyrir framan mark Arsenal.  Hinsvegar átti Hugo Lloris stórleik í marki Spurs og átti meiri að segja eina frábæra tæklingu á Walcott sem hvaða varnarmaður hefði verið stoltur af.

Næsti leikur Tottenham verður gegn Norwich laugardaginn 14. september og kemur þetta landsleikjahlé núna á heppilegum tíma fyrir Tottenham en vonandi ná nýju leikmennirnir að spila sig eitthvað saman fyrir þann leik.

Mikið um að vera!!!

0

Það hefur heldur betur verið nóg um að vera hjá Tottenham á leikmanna markaðinum í sumar og í dag bættust 3 nýjir leikmenn í hópinn.

Fyrstan ber að nefna Vlad Chiriches 23 ára rúmenskan varnarmann sem kemur frá Steaua Bucharest, talið er að Tottenham hafi greitt á bilinu 7-9 mílljónir punda fyrir hann.

Næstur var Christian Eriksen 21 ára danskan sóknarsinnaðan miðjumann sem kemur frá Ajax í Hollandi þar sem hann spilaði 161 leik og skoraði 33 mörk og hefur orðið Hollandsmeistari með þeim undanfarin 3 ár 2011-2013.  Talið er að kaupverðið á honum hafi verið á bilinu 12-14 milljónir punda.

Siðast en ekki síst skrifaði hinn bráðefnilegi Erik Lamela undir samning við Tottenham í dag en Lamela varð þar með dýrasti leikmaður Tottenham frá upphafi og kaupverðið er talið nema allt að 30 milljónum punda.  Lamela er argentískur kantmaður sem hefur spilað með Róma á Ítalíu og með þessum kaupum er orðið ljóst að besti leikmaður Tottenham frá síðasta tímabili Gareth Bale er á leiðinni til Real Madrid og verður þar með líklega dýrasti leikmaður heims en hann samdi fyrr í dag um kaup og kjör við spánverjana og eiga þá bara Tottenham og Real Madrid eftir að semja um verðið á leikmanninum.

Sigur í evrópukeppninni

0

Tottenham vann öruggan 3-0 sigur á heimavelli gegn Dinamo Tbilisi í seinnileik liðanna í umspili fyrir evrópudeildina og samtals 8-0 eftir að hafa unnið fyrri leikinn 5-0

Markaskorara í leiknum voru þeir Defoe með tvö og Holtby með sitt fyrsta mark fyrir Spurs.  Liðið var ansi breytt frá leikjunum tveimur í deildinni.  Í markinu stóð hinn aldraði Brad Fridel og í vörninni byrjaði Kaboul sinn fyrsta alvöru leik fyrir Spurs síðan í upphafi síðasta tímabils ásamt þeim Vertonghen, Walker (Fryers 57) og Naughton.  Á miðjunni byrjaði Sandro, Carroll, Gylfi, Townsend (Kane 45), Holtby (Dembele 76) og fremstur var svo Defoe sem með mörkunum sínum er orðinn sjötti markahæðsti leikmaður Spurs frá upphafi og aðeins fjórum mörkum frá metinu hans Martin Chivers sem skoraði 22 evrópumörk á sínum tíma með Spurs.

Leikurinn náði aldrei að verða sú fugeldasýning sem margir hverjir vonuðust eftir enda kannski litlu að keppa eftir að Tottenham vann fyrri leikinn 5-0 á útivelli.

Heimamenn byrjuðu leikinn mun betur og sköpuðu sér góð færi án þess að ná að skora fyrr en á 40. mínútu þegar Sandro vann boltann og kom honum á Holtby sem sendi boltann inn fyrir vörnina á Defoe sem kláraði sitt færi vel og staðan orðin 1-0.  Það var svo í uppbótartíma fyrri hálfleiks að leikmenn Tottenham bættu við sínu seinna marki en það var eftir góðan undirbúning Sandor og Walker að boltinn barst svo til Gylfa sem átti góða sendingu á Defoe sem skoraði laglega með hnitmiðuðu skoti.  Í seinni hálfleik hefðu leikmenn Spurs auðveldlega getað skorað fleiri mörk því bæði áttu Gylfi og Defoe góð tækifæri til þess en það var hinsvegar Holtby sem innsiglaði sigurinn með laglegu skoti í slánna og inn á 69. mínútu og þar við sat og Tottenham komst áfram í evrópudeildina.

Mótherjar Tottenham í Evrópudeildinni í vetur verða svo FC Anzhi frá Rússlandi, FC Sheriff frá Moldavíu og svo Tromso frá Noregi en Spurs á leik við þá einmitt fyrst umferð í Evrópudeildinni 19. september kl 19:05 á White Hart Lane en nánari upplýsingar um leikina í evrópudeildinni er að finna hér

 

 

Góður sigur á Swansea

0

Tottenham sigraði Swansea 1-0 í hörkuleik á White Hart Lane fyrr í dag. Bæði lið eru þekkt fyrir frábæra knattspyrnu og þó mörkin hafi ekki verið mörg var ekki hægt að kvarta yfir gæðum leiksins.

Byrjunarliðið: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Rose; Capoue, Dembele, Paulinho; Townsend, Soldado, Chadli. Komu inn á: Sandro, Sigurdsson, Defoe.

Ónotaðir varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton, Carroll,

Bæði lið í dag reyndu að halda boltanum á jörðinni og ekki var mikið um ljótar tæklingar, Tottenham hafði yfirhöndina í fyrra hálfleik og náðu skapa sér nokkur góð færi, en besta færið kom þegar Paulinho fékk boltann inn í teig og átti skota á markið eftir að honum hafði borist boltinn eftir að varnarmaður Swansea skallaði boltan klaufalega í stöng síns eigin marks, eftir fasta fyrirgjöf frá Walker. Leikmenn Swansea sýndu einnig ágæta tilburði í fyrri hálfleik, en þó aðallega í að halda boltanum, þeir voru síðan fljótir að missa hann þegar þeir hættu sér inn á miðjusvæði Tottenham, þar sem að okkar nýju liðsmenn Capoue og Paulinho voru eins og hakkavélar í dag.

Í síðar hálfleik jókst pressa Spurs mikið og það leiddi á endaum til þess að á 58. mínútu fiskaði Andros Townsend frekar vafasama vítaspyrnu, sem var allt í lagi þar sem að dómarinn hafði sleppt því að dæma augljósa vítaspyrnu rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Á vítapunktinn steig öruggasta vítaskytta deildarinnar, Roberto Soldado sem sendi markmanninn í vitlaust horn og skoraði auðveldlega í hægra hornið. Tveir leikir og tvær vítaspyrnur komnar, eftir að hafa ekki fengið neina vítaspyrnu í fyrra, sem er ekkert annað ótrúlegt. Staðan orðinn 1-0 og 32 mínútur til leiksloka. Eftir þetta gáfu Tottenham mikið eftir og Swansea voru heldur líklegri til að skora, þó þeir hafi ekki náð að búa til nein færi af einhverju viti. Tottenham þéttu sinn leik og beitu skyndisóknum það sem eftir lifði leiks og endaði leikurinn 1-0 fyrir Spurs, sem voru mjög þéttir og öruggir í sínum aðgerðum allan leikinn. Tottenham eru því komnir með 6 stig eftir tvo leiki, en Swansea ekkert stig, þeir þurfa þó ekki að hafa miklar áhyggjur þar sem tveir fyrstu leikir þeir hafa verið á móti tveimur af fjórum sterkustu liðum deildarinnar, og þeir sýndu fínan bolta í dag, þrátt fyrir úrslitin.

Það var varla veikan hlekk að finna á liðinu í dag, en Dembéle var þó langt frá sínu besta. Nýju leikmennirnir héldu áfram að heilla mann í dag og dýrasti leikmaður í sögu Spurs, Roberto Soldado er nú kominn með 4 mörk í 3 leikjum fyrir Spurs. Paulinho var ótrúlegur í dag bæði framm á við og tilbaka og var hreinlega óheppinn að skora ekki í dag. Félagi hans á miðjunni, Capoue var engu síðri og virðumst við vera komnir með einhvers konar blöndu af Huddlestone og Sandro, í þeim leikmanni. Chadli var ekki áberandi í dag, en samt bara nokkuð traustur í sínum aðgerðum. Hugo, Verthongen og Dawson voru frábærir, ungu mennirnir Rose og Walker voru traustir og Townsend hélt áfram að heilla mann, þótt hann þurfi að finna milliveginn í þessu sólói sínu. Varamennirnir áttu síðan fínar innkomur og einstaklega gaman að sjá Sandro spila aftur. Liðið virðist alls ekkert sakna Bale, þeim frábæra leikmanni, því leikur liðsins virkar bara mun jafnari í dag heldur en í fyrra á sama tíma.

Maður leiksins: Paulinho

Næsti leikur: Dinamo Tibilisi á White Hart Lane, á fimmtudaginn, klukkan: 19:05

 

Stórsigur í Georgíu

0

Okkar menn áttu ekki í miklum vandræðum þegar þeir mættu Dinamo Tbilisi í undankeppni Evropudeildarinnar fyrr í kvöld og unnu hreint út sagt magnaðan sigur 5-0, en leikurinn fór fram við fínar aðstæður á Dinamo Arena í Georgíu.

Byrjunarliðið:  Lloris; Naughton, Dawson, Kaboul(C), Rose; Capoue, Paulinho; Townsend, Dembele, Sigurdsson; Soldado – komu inná: Carroll, Chadli,Kane

Ónotaðir varamenn: Friedel, Fryers, Walker, Coulthirst

Það má segja að leikmenn Dinamo hafi svo sannarlega mætt ofjarli sínum í kvöld og voru ekki liðnar nema 12 mínútur af leiknum þegar Andros Townsend brunaði upp völlinn eftir hornspyrnu hjá Dinamo og setti hann smekklega niðri í hægra hornið. Townsend átti síðan stóran hlut í öðru marki Spurs þegar hann hljóp upp hægri kantinn, plataði varnarmann Dinamo svo illilega að hann hrundi niður á afturendan og átti síðan frábæran kross á Paulinho sem skallaði hann auðveldlega í netið á 44 mínútu. Þannig stóðu leikar í hálfleik 2-0 fyrir Spurs og nokkuð ljóst hverjir myndu fara með sigur af hólmi. 

Það var síðan enn og aftur Andros Townsend sem var allt í öllu þegar Tottenham skoraði þriðja markið, en þá óð hann upp hægri kantinn að endalínu og tók síðan rétta ákvörðun, þegar lagði boltan út á réttum tíma á Spænska sjarmatröllið Roberto Soldado, sem setti boltan auðveldlega í netið og staðan orðinn 3-0. Þarna voru liðnar 58 mínútur og Tottenham enþá með stútt fullan tank eftir. í fjörða markinu var það enginn annar en Danny Rose vinstri bakvörður sem fékk boltann fyrir vinstra megin fyrir utan teig og smellti tuðrunni snyrtilega í bláhornið hægra megin, flottasta mark leiksins staðreynd og staðan orðinn 4-0. Endahnútinn batt svo Roberto Soldado þegar hann var réttur maður réttum stað, þegar varamaðurinn Nacér Chadli átti flottan kross með vinstri fæti af vinstri kantinum, beint á Soldado sem lagði boltan auðveldlega í markið.

Það má vel vera að andstæðingurinn í kvöld hafi ekki verið upp á marga fiska, en mikið andskoti voru okkar menn að spila þokkafullan bolta og takmörkuð eigingirni í gangi. Þetta virkar meiri liðsheild heldur en í fyrra, þar að segja spilanlega séð og það boðar bara gott svona snemma á tímabilinu. Það var gaman að sjá hvernig hópurinn var notaður í kvöld og fengu ungir leikmenn og nýjir mikilvægar mínútur með liðinu. Allir leikmenn liðsins áttu góðan leik, en þar bar þó af samspil Townsend og Naughton á hægri kantinum, og á Townsend líklega eftir að veita Lennon mikla samkeppni í vetur, en hann leit ófsakplega vel út í kvöld og framkvæmdi hluti sem við höfum sennilega flestir grátbeðið Lennon um að gera undanfarin ár.

Maður leiksins: Andros Townsend

Næsti leikur: Swansea á White Hart Lane, á sunnudaginn klukkan 15:00


Það verður erfiður leikur og vonandi að menn geta haldið haus, þó það sé allt vaðandi í orðrómum um framtíð leikmanna hjá félaginu, til og frá, þessa stundina.

 

Soldado vs Espanyol

0

Tottenham – Newcastle (hópferð)

0

** UPPFÆRT **   UPPSELT ER Í FERÐINA OG KOMUST FÆRRI AÐ EN VILDU

 

Daginn

 

Nú er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á tímabilinu 2013-2014.

 

Farið verður á stórleik Tottenham – Newcastlesem fram fer á White Hart Lane ,  sunnudaginn 10. Nóvember.

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

 

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Föstudagur 8. Nóvember kl. 07.00  lent úti kl. 10.05                        WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Mánudagur 11. Nóvember kl. 19.40 heimkoma kl. 22.50              WOW Air

GISTING

Travelodge London Stratford í þrjár nætur    ( án morgunmats )

                Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta.

Stílhreint og einfalt hótel í Stratford,  nálægt Ólympíusvæði London.

Veitingastaður / Bar á hótelinu – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

                Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina

          Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus  ( 15 mín lestarferð )

          Ofanjarðarlest beint á Northumberland lestarstöðina ( 15 mín lestarferð )  sem er stutt frá White Hart Lane  ( ca. 10 mín gangur )

Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir –  ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.

http://uk.westfield.com/stratfordcity/

                Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :  http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html

 

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

 

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka )  ásamt skráningu í klúbbinn úti 

 

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

 

 

Verð :        89.900.-    Miðað við 2 í herbergi

 

Einnig er hægt að vera 3 í herbergi ( pull-out bed ) og kostar það 84.900.- á mann.

Verð fyrir einstaklingsherbergi er 105.900.-

·         Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 8.000.- minna fyrir ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.

 

Þess má til gamans geta að gamanferðir eru að bjóða ferð á þennan leik í nóvember ,  og kostar hún 119.900.- og er frá laugardegi til mánudags ( með ferðatösku báðar leiðir =  125.700 )

http://gamanferdir.is/ferdhir/fotboltaferdhir?task=view_event&event_id=507

 

Einungis er hægt að bóka í ferðina í viku – frá deginum í dag.

20 sæti eru í boði í þessa ferð

 

Sæti í hópferðirnar seldust upp á þremur dögum og fimm dögum á síðasta tímabili.   Þannig að það er um að gera að bóka sem fyrst  J

 

Það sem þarf að koma fram við bókun  ( ef bókað er fyrir fleiri en einn,  þurfa þessar upplýsingar að fylgja fyrir alla )

          Nafn

          Kennitala

          Heimilisfang

          GSM númer

          E-mail

          Double bed / Twin bed / 3 í herbergi

 

Staðfestingargjald ,  kr. 25.000.-  á mann þarf að greiða við skráningu í ferðina.   Þetta staðfestingargjald er óendurkræft nema hægt sé að fylla í sætið.

Staðfestingargjald skal greiða inná reikning klúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550 –  og senda skal greiðslukvittun á spurs@spurs.is

Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki nægilega góð –  og munu þá þeir sem greitt hafa staðfestingargjaldið fá endurgreitt.  Þetta myndi þá koma í ljós í næstu viku þegar skráningu í ferðina lýkur.

 

 

Kv

 

Stjórnin

Sumarið er tíminn

0

Nú í byrjun júli er nóg um að vera hjá Tottenham Hotspurs.  Þeir hafa keypt Paulinho box to box miðjumann frá Corinthians fyrir rúmar 17 milljónir punda sem gera hann að dýrasta leikmanni Tottenham frá Upphafi.

Paulinho er fæddur 25. júlí 1988 í Sao Paulo og heitir fullu nafni José Paulo Bezerra Maciel Júnior.  Hann hefur leikið 17 landsleiki fyrir Brasilíu og skorað í þeim 5 mörk, með Corinthians hefur hann aftur á móti spilað 86 leiki síðan 2010 og skorað 20 mörk í þeim leikjum.

Tímabilið hjá Tottenham hefst með æfingarleik gegn Swindon þriðjudaginn 16. júlí, en fyrirhugað er að Tottenham spili 5 æfingarleiki og sá áhugaverðasti hlýtur að vera leikur gegn Monaco 3. ágúst á Stade Louis ll vellinum.  Fyrsti leikur Spurs hinsvegar í ensku úrvalsdeildinni er gegn nýliðum Crystal Palace á Shelhurst Park  17. ágúst en fyrsti heimaleikurinn er gegn Swansea 24. ágúst. en nánar er hægt að sjá leikaröðun Spurs hér

Under Armor verður áfram með búninga á næsta tímabili og voru þeir kynntir í dag og hægt er að panta þá í forsölu í gegnum heimasíðuna www.tottenhamhotspur.com 

Tottenham hefur einnig leyst nokkra leikmenn sína undan samningi í sumar og ber þar helst að nefna David Bentley og Gallas.

Leiðinlegur endir

0

Tímabilinu lokið og Tottenham náði ekki í meistaradeildarsæti eins og stefnt var að í upphafi móts og lengi vel leit þetta mjög vel út.  Liðið var í 3-4 sæti deildarinnar stóran part móts en gaf aðeins eftir á lokasprettinum og endaði í 5. sæti.

Tottenham endaði með 72. stig í deildinni sem er met hjá Tottenham í Úrvalsdeildinni,  en deildin spilaðist þannig að það dugði ekki til í 4ja sætið , en um 70 stig hafa dugað í 4ja sætið að meðaltali síðustu ár.

Gareth Bale fór gjörsamlega á kostum á tímabilinu og var langmarkahæstur leikmanna Tottenham ásamt því að fá mörg verðlaun í lok tímabilsins ,  bestur að mati leikmanna,  bestur að mati blaðamanna , efnilegastur að mati leikmanna o.fl o.fl.
Nú er aðal umfjöllunarefnið hvort að Real Madrid komi fram með mettilboð í Bale ,  en talið er að það þurfi að greiða hæstu upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann til að fá Bale frá Tottenham !.

Nýr leikjalisti fyrir tímabilið 2013-2014 lítur dagsins ljós í byrjun næstu viku  ( 18. júní held ég ) – og í framhaldi af því verður farið að skoða með hópferðir á leiki í vetur.  En planið er líklega að fara í eina ferð í október/nóvember og svo aðra í mars/apríl/maí.

kv

Nýjustu fréttirnar