Tottenham lék á sunnudaginn var við lið Hull á heimavelli og fór svo að Tottenham hafði sigur 1-0 með marki frá Soldado úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Tottenham gekk erfiðlega að skapa sér færi í leiknum eins og svo oft áður í vetur. 3 stig í hús sem voru ekki þau fallegustu , en engu að síður 3 mikilvæg stig.
Áfram sigurganga í Evrópu
Tottenham vann sinn þriðja leik í röð í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn var. Leikur Tottenham fór fram í Moldavíu , þar sem lið Sheriff var heimsótt. Tottenham var mikið meira með boltann í leiknum og skapaði sér ágætis færi.
Lokatölur voru 0-2 þar sem Vertonghen og Defoe skoruðu mörkin.
Góður útisigur á Aston Villa
Tottenham kom tilbaka eftir landsleikjahlé og komst aftur á beinu brautina með góðum útisigri gegn Aston Villa. Það voru Townsend og Soldado sem skoruðu mörkin í sitt hvorum hálfleiknum. Sigur Tottenham í leiknum var vel verðskuldaður.
Ljótt tap á heimavelli
Síðasti leikur Tottenham fyrir landsleikjahlé var heimaleikur gegn West Ham. Leikurinn var mjög illa spilaður af Tottenham og tapaðist leikurinn 0-3 sem er með hreint ólíkindum.
Jafntefli í Lundúnaslagnum
Tottenham og Chelsea áttust við fyrr í dag á White hart lane, þar sem var heldur betur tekið á því. Andre Villas Boas var að mæta sínum fyrverandi læriföður, José Mourinho í fyrsta skipti síðan leiðir þeirra skildu. Það vita síðan allir að það eru engin sérstök ást á milli Chelsea og Tottenham, þannig að það var vitað að ekkert yrði gefið eftir og sú var raunin.
Tottenham byrjaði leikinn heldur betur og áttu hreinlega fyrri hálfleikinn, það var Gylfi Sigurðsson sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir frábæran undirbúning hjá Eriksen og Soldado, 1-0 eftir 18. mínútur og Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Spurs í deildinni með 3 mörk. Tottenham hefð getað skorað fleiri í fyrri hálfleik, en voru einfaldlega óheppnir. Staðan 1-0 í hálfleik og spilamennska okkar mann algjörlega til fyrirmyndar.
Í seinni hálfleik kom leikmaður að nafni Juan Mata inn á fyrir Chelsea, sem hefur verið í frysti hjá Mourinho, þrátt fyrir að vera með betri leikmönnum deildarinnar. Hann breytti leik þeirra til hins betra og Tottenham lá til baka. Það endaði með því að John Terry skoraði eftir aukaspyrnu frá Mata, á 65. mínútu. Það kom aðeins meira jafnvægi á leikinn eftir þetta, en Chelsea með yfirhöndina ef eitthvað var. Það kom síðan rautt spjald í leikinn á 81. mínútu þegar FernandoTorres fékk sitt seinna gula spjald, eftir að hafa vaðið í Jan Verthongen. Dómarinn hefði þó getað verið búinn að vísa Torres miklu fyrr út af, þegar hann klóraði og ýtt í andlitið á Verthongen. Eftir brottvísunina, pressaði Spurs meira og munaði litlu að bæði Jermain Defoe og Gylfi hefðu skorað. Leiknum lauk þó með jafntefli, sem voru bara nokkuð sanngjörn úrslit.
Byrjunarliðið: Lloris; Walker, Naughton, Dawson, Vertonghen; Paulinho, Dembele, Townsend(Chadli), Eriksen(Holtby), Sigurdsson; Soldado(Defoe)
Bekkurinn:Friedel, Chirches, Lamela, Sandro,
Maður leiksin: Mousa Dembéle. Hann var hreinlega ótrúlegur, vann svaka vel á miðjunni í baráttu leik og gafst aldrei upp. Var stundum of lengi með boltan, en hann bætti það upp með öðru.
Næsti leikur: Anzi á útivelli á fimmtudaginn klukkan 16:00 í Evrópudeildinni
Sigur á Cardiff City FC
Tottenham vann í dag 1-0 sigur á Cardiff í Wales en markið skoraði Paulinho, sitt fyrsta deildarmark fyrir Tottenham, á 93. mínútu leiksins eftir sendingu frá Erik Lamela.
Andre Villas-Boas gerði eina breytingu á byrjunarliðinu frá síðasta deildarleik en Kyle Naughton kom inní vinstri bakvörðinn á kostnað Danny Rose sem meiddist í Evrópuleiknum á fimmtudagskvöldið, þá komu þeir Vlad Chiriches og Harry Kane á bekkinn í stað Younes Kaboul og Jermain Defoe sem eru báðir meiddir.
Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti meðan leikmenn Tottenham virtust vera að koma sér fyrir á vellinum. Á sjöundu mínútu leiksins kom svo eitt af bestu færum heimamanna í leiknum þegar Kyle Naughton, sem átti ekki sinn besta leik í dag, sendi boltann beint fyrir lappirnar á Frazier Campbell sem var einn á móti Hugo Lloris sem gerði vel í að verjast áhlaupi hans, umdeilt atvik því svo virðist sem Lloris handleiki boltann utan teigs og hefði dómari leiksins góðkunningi Spurs Mark Clattenburg flautað hefði hann líklega þurft að vísa Lloris af velli. Eftir þetta hinsvegar varð fyrri hálfleikur eign gestanna sem virtust gera allt rétt nema þegar liðið kom með boltann upp að teig heimamann þá voru alltof oft teknar vitlausar ákvarðanir og ef réttar ákvarðanir voru teknar beið Marshall markmaður Cardiff í rammanum í banastuði og varði frábærlega td frá Eriksen og Soldado. Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, heimamenn sterkari, en á 50. mínútu komst Tottenham nálægt því að skora þegar skot Gylfa Þórs endaði í þverslánni þar sem Marshall hreyfði sig ekki á línunni en varði svo frábærlega frá Soldado sem náði frákastinu, mark lá í loftinu en Marshall varði vel og hélt heimamönnum á floti í leiknum. Það var svo undirlokin að Cardiff komst meira inní leikinn og hefðu getað skorað með örlítillri heppni. Það var svo á 93. mínútu að sigurmarkið kom eftir góðan undirbúning tveggja varamanna, Erik Lamela vann skallabolta sem barst til Lewis Holtby sem lagði hann aftur á Lamela sem lék í átt að endalínunni og átti góða sendingu út í markmannsteiginn þar sem Paulinho líklega besti leikmaður Tottenham í leiknum kom askvaðandi og lagði boltann snyrtilega í markið með hælnum. Staðan orðin 1-0 fyrir gestina og þannig lauk leiknum. Eins og fyrr segir var Paulinho mjög sterkur í leiknum og var sá leikmaður á miðjunni sem kom hvað oftast við boltann eða 72 sinnum, þá var Michael Dawson góður í vörninni og fleygði sér í og fyrir alla bolta sem hann gat.
Cardiff: Marshall; Theopile-Catherine, Caulker, Turner, Taylor; Bellamy (Cowie, 78), Gunnarsson, Medel, Whittingham; Kim; Campbell (Odemwingie, 65). Varamenn: Lewis, Hudson, Mutch, Mason, Maynard.
Spurs: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Naughton; Dembele, Paulinho; Townsend (Kane, 81), Eriksen (Holtby, 89), Sigurdsson (Lamela, 71); Soldado. Varamenn: Friedel, Chiriches, Fryers, Sandro.
Tölfræði
Cardiff City FC Tottenham Hotspur FC
0 Skot á markið 12
4 Skot framhjá 9
2 Skot blokkeruð 8
2 Hornspyrnur 12
64,3% Heppnaðar sendingar% 81,1%
36,2% Með boltann% 63,8%
286 Fjöldi sendinga 512
11 Fjöldi krossa 22
146 Tapaðir boltar 171
Næstu leikir Tottenham eru gegn Aston Villa í deildarbikarnum á þriðjudaginn og svo fáum við Chelsea í heimsókn á laugardaginn í hádegisleiknum kl 11:45
3-0 sigur í evrópudeildinni
Tottenham heldur áfram að hafa það frekar auðvelt í Evrópukeppninni og vann afgerandi 3-0 sigur á Tromsö fyrr í kvöld, á White Hart Lane.
Byrjunarliðið: Lloris; Naughton, Dawson, Kaboul, Rose; Dembele, Sandro; Lamela, Holtby, Sigurdsson; Defoe. Komu inná: Vertonghen, Eriksen, Paulinho,
Ónotaðir varamenn: Friedel, Townsend, Kane, Soldado.
Það var ljóst alveg frá byrjun leiksins að það var töluverður getu munur á þessum liðum. Norðmennirnir hafa verið í töluverðu basli heima fyrir og það hélt bara áfram í London. Jermain Defoe sem hefur öflugur í byrjun móts, eins og vanalega, kom okkar mönnum á bragðið á 22 mínútu eftir frábæra sendingu frá Argentíska galdramanninum Erik Lamela sem var að byrja sinn fyrsta leik. 1-0. Lewis Holtby var síðan næstur í röðinni á 30. mínútu í því að mata Defoe, og það með enn betri sendingu en í fyrra markinu. Staðan í hálfleik var því 2-0 og allt í góðu fyrir utan meiðsli hjá Danny Rose. Það bjuggust svo flestir við markaveislu í seinni hálfleik. Svo var aldeilis ekki og virtust hafa slokknað algjörlega á Tottenham. Christian Eriksen náði þó að bæta leikinn aðeins eftir að hafa komið inn á fyrir meiddan Dembéle. Eriksen skoraði síðan magnað mark í anda Gareth Bale á 86. mínútu, stórkostlegt mark í bláhornið. Það gerðist ekki mikið eftir það nema að Kaboul haltraði útaf í lokin og því 3 meiddir úr leiknum. Leiknum lauk því 3-0, frekar svekkjandi eftir að vera í 2-0 stöðu í hálfleik með jafn frábært lið og við eigum.
Jermain Defoe er nú kominn með 137 mörk fyrir klúbbinn, einu marki frá fimmta markahæsta leikmanni í sögu klúbbsins George Hunt. Hann er einnig orðinn næst markahæstur í evrópukeppnum í sögu klúbbsins, með 20 mörk, tveim á eftir Martin Chivers.
Maður leiksins: Jermain Defoe
Næsti leikur: Cardiff City á Cardiff City Stadium, á sunnudaginn, 22 september, klukkan: 15:00
Tvö mörk hjá Gylfa í öruggum sigri
Norwich hafði ekki tapað gegn Tottenham í síðustu 3 viðureignum sínum á White Hart Lane, áður en liðin mættust fyrr í dag. Spurs sigraði nokkuð örugglega 2-0 og endaði þar með rugl gengi Norwich á okkur heimavelli með góðri spilamennsku í dag.
Byrjunarlið: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Rose; Dembele, Paulinho; Townsend, Eriksen, Sigurdsson; Soldado. Komu inná: Holtby, Sandro, Lamela
Ónotaðir varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton,Defoe.
Tottenham átti 23 skot og var 69% með boltann í leiknum og segir það til um hversu mikla yfirburði Spurs hafði í dag, þeir byrjuðu af krafti og héldu því út nánast allan leikinn. Gylfi hélt uppteknum hætti úr landsleikjum Íslands og var frábær í dag. Eftir góðan undirbúning frá Christian Eriksen og Roberto Soladado, opnaði Gyldi markareikning sinn á 26 mínútu með góðu marki, 1-0. Það voru síðan ekki liðnar nema 4 mínútur af seinni hálfleik, þegar Gylfi var búinn að bæta við öðru marki, en eftir góða fyrirgjöf frá Paulinho og gott hlaup hjá Gylfa, þurfit hann aðeins að pota boltanum yfir línuna. Á þessum tímapunkti voru stuðningsmenn Spurs á Whit Hart Lane, byrjaðir að syngja „Who needs Gareth Bale, we got Sigurdsson“ og „The Sig, The Sig, The Sig is on fire“. Spurs hefði klárlega átt að skora fleiri mörk í þessum leik, en svo fór sem fór og leikurinn endaði 2-0.
Flestir leikmenn liðsins spiluðu nánast óaðfinnanlega í dag, en þar báru af þeir Danny Rose, Christian Eriksen og Gylfi Sigurðsson. Rose er heldur betur að stimpla sig inn og virðist það hafa verið rétt ákvörðun hjá Boas að gefa honum traustið fram yfir meistara Ekotto. Gylfi skoraði tvö mörk og var ógnandi, en augljóslega dálítið tæpur eftir landsleikina. Christian Eriksen var síðan alveg magnaður, sérstaklega í fyrri hálfleik og virðist eftir fyrsta leik, vera 100% sá leikmaður sem okkur vantaði og keyptur á aðeins 11,5m punda, frábær kaup. Hugo Lloris, Kyle Walker og Andros Townsend fá síðan smá skammir hérna í lokin, Hugo fyrir kjánaskap síðustu mínúturnar sem hefðu getað kostað mark og svo bakkabræður á hægri kantinum, sem virðast hreinlega vera takmarkaðir í knattspyrnulegri hugsun. Walker tekur of rangar ákvarðanir oft á tíðum og Townsend er of eigingjarn, en er væntanlega bara svona ákafur í að sanna sig. Þeim er fyrirgefið í bili, en það virðist samt vera þannig að ensku leikmennirnir okkar séu verstir í að lesa leikinn af leikmönnum liðsins og einfaldlega mest takmarkaðir þegar kemur að hugsun og ákvarðanatöku í knattspyrnu.
Maður leiksins: Gylfi Sigurðsson
Næsti leikur: Tromsö á White Hart Lane, á fimmtudaginn 19 september, klukkan 19:05
Gjöf til félagsmanna
Í dag var send út gjöf til félagsmanna í Tottenhamklúbbnum á Íslandi sem greiddu árgjaldið 2012-2013.
Vegna tafa í framleiðslu á gjöfinni seinkaði mikið að senda út gjöfina.
Vonandi á gjöfin eftir að koma félagsmönnum að góðum notum í vetur.
Stjórnin
Leikmannahópurinn 2013-2014
Leikmannahópur Tottenham tók miklum stakkaskiptum í sumar og ber þar helst að nefna að klúbburinn losaði sig við þá David Bentley og William Gallas og seldi leikmenn eins og Gareth Bale, Clint Dempsey, Tom Huddlestone, Steven Caulker, Scott Parker og þá fór einnig nokkrir leikmenn í burt á láni eins og Benoit Assou-Ekotto, Thomas Carroll og Jake Livermore. Hinsvegar keypti Tottenham líka einnig marga leikmenn í sumar eins og Erik Lamela, Christian Eriksen, Vlad Chiriches, Etienne Capoue, Paulinho, Roberto Soldado og Nacer Chadli.
Leikmannahópurinn er því skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markmenn: Heurelho Gomes #1, Brad Friedel #24, Hugo Loris #25
Varnarmenn: Kyle Walker #2, Danny Rose #3, Younes Kaboul #4, Jan Vertonghen #5, Vlad Chiriches #6, Kyle Naughton #16, Michael Dawson #20, Ezekiel Fryers #35
Miðjumenn: Aaron Lennon #7, Paulinho #8, Erik Lamela #11, Lewis Holtby #14, Etienne Capoue #15, Andros Townsend #17, Mousa Dembele #19, Nacer Chadli #21, Gylfi Sigurðsson #22, Christian Eriksen #23, Sandro #30
Sóknarmenn: Roberto Soldado #9, Emmanuel Adebayor #10, Jermain Defoe #18















