Page 8

Hópferð (uppselt)

0

Góðan daginn

 

Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2014-2015.

Uppselt hefur verið í síðustu ferðir klúbbsins og færri komist að en vilja,  enda mjög gott verð á þessum hópferðum.

Fyrirhuguð hópferð verður í október og farið verður á leik Tottenham – Southampton

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

 

Tottenham – Southampton
White Hart Lane  ,   laugardaginn 4. október.    ( ** mjög miklar líkur á því að leikur  verði fluttur á sunnudag** )

 

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Föstudagur 3. okt kl. 06.45  lent úti kl. 10.50                      WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Mánudagur 6. oktl  kl. 20.40 heimkoma kl. 22.50                WOW Air

GISTING

Travelodge London Stratford í þrjár nætur    ( án morgunmats )

Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta fyrirfram.

Stílhreint og einfalt hótel í Stratford,  nálægt Ólympíusvæðinu í London.

Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn  – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina

Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus  ( 15 mín lestarferð )

Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir – ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.

http://uk.westfield.com/stratfordcity/

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið : 
http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html

 

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

 

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka )  ásamt skráningu í klúbbinn úti 

 

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

 

 

Verð :        91.900.-    Miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2014-2015.  
( þar sem greiðsluseðlar fyrir árgjaldinu 2014-2015 hafa ekki verið sendir út ,  mun klúbburinn senda greiðsluseðla / kröfu í heimabanka fyrir þá sem skrá sig í ferðina –  viðkomandi þurfa þá að hafa greitt árgjaldið áður en til þess kemur að gera upp afgang af ferð sem verður í kringum mánaðarmótin ágúst / september.  Ef ekki verður búið að greiða árgjaldið um mán.mótin ágúst/september,  mun 2.500.- bætast ofan á eftirstöðvar  )

Verð fyrir einstaklingsherbergi er 107.900.-

Möguleiki er á þriggja manna herbergi á meðan slík eru til en verðið fyrir þriggja manna herbergi er kr. 87.900.-á mann.

 

·         Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

o   Nafn

o   Kennitala

o   Heimilisfang

o   GSM númer

o   E-mail

o   Family Room ( 3 rúm ) / Double room / Twin room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

·      Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo í kringum mán.mótin ágúst/september. 
( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550  
og senda skal greiðslukvittun á
 spurs@spurs.is

·        Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 8.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts  við skráningu.

·        Tottenhamklúbburinn mun bjóða uppá það að greiða staðfestingargjald og eftirstöðvar með kreditkorti.   Kostnaður vegna þess er 2 %  (  500 kr fyrir staðfestingargjaldið og ef eftirstöðvar eru 66.900 ( miðað þá við 91.900.- )  , þá er kostnaður þar 1.340.- )    Senda þarf þá kortanúmer með bókun.

 

·        Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.  Senda þarf mér númer/kóðann á gjafabréfum áður en greiðsla eftirstöðva verður kláruð.
Stéttarfélög sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW:

         VR

         Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga

         Kennarasamband Íslands

·        Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 25.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það.

 

Kv

Stjórnin

 

 

 

Ef þú ert EKKI á póstlista Tottenhamklúbbsins,   þá geturðu sent e-mail á spurs@spurs.is til að skrá þig á póstlistann

Aðalfundur 2014

0

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins 2014 verður haldinn á Ölver Glæsibæ ,  fimmtudaginn 29. maí kl. 20.00

Dagskrá fundarins : 

1. Skýrsla stjórnar 
2. Reikningar síðasta árs 
3. Kosning stjórnar 
4. Önnur mál 

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is eða í síma formanns 698-3791. Nýjir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins og heimasíðunnar eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk. 

Léttar veitingar verða í boði. 

kv 
Stjórnin

Adebayor og Newcastle

0

Seinasta miðvikudag áttu okkar menn leik við Newcastle á St. James’s Park. Tottenham hefur átt í töluverðum vandræðum þar undanfarin ár, en það reyndist ekki vera raunin í seinustu viku. Reyndar verður að viðurkennast að það vantaði mikið í Newcastle liðið með fjarveru Tiote og Remy, en auk þess höfðu þeir nýverið selt sinn allra besta leikmann Cabaye. Newcastle hafði tapað tveim síðustu leikjum 3-0 á undan leiknum gegn Tottenham.

Flestir stuðningsmenn Spurs voru frekar hissa þegar þeir sáu liðsuppstillingu Tim Sherwood fyrir leik. En ýmsar efasemdar raddir hafa verið í kringum hann, þrátt fyrir frábæran árangur hans síðan að hann tók við. Þrálæti hans við það nota frekar hinn 19 ára Bentelab og geyma landsliðsmenn hefur einnig pirrað margan Spursaran, aftur, þrátt fyrir það að hann sé einnig búinn að standa sig frábærlega.

Byrjunarliðið var eftirfarandi: Lloris, Walker, Naughton, Verthongen, Kaboul, Capoue, Paulinho, Bentelab, Dembéle, Lennon, Adebayor. 

Kaboul var því kominn í liðið eftir langa fjarveru vegna meiðsla, en það er óhætt að segja að Tottenham stuðningsmenn hafa saknað þess að hafa hann heilan síðustu tvö tímabil. Dawson fór því á bekkinn, líklega við fögnuð einhverra, en þrátt fyrir að vera magnaður leiðtogi og með 100% Spurs-hjarta, þá virðist hann ekki alveg ráða við verkefnið sem stendur, en hann hefur þó ófáum sinnum snúið tilbaka og sýnt frábæran leik, þannig það er algjör óþarfi að gefa upp trúna á honum strax.

Verthongen var áfram í vörninni eftir að hafa snúið til baka í síðustu leikjum og það er gríðarlegur munur að sjá vörnina með honum, þá sérstaklega varðandi það hvað boltinn ferðast mun hraðar úr vörn í sókn. 

Bentelab hélt sæti sínu áfram en var færður í hlutverk sem hann var vanur að spila með U-21 árs liðinu, þar að segja fyrir framan djúpa miðjumanninum, en hann hefur verið að sinna miklum varnarskyldum í þeim leikjum sem hann hafði spilað með aðalliðinu fyrir þennan leik.

Capoue kom inn í byrjunarliðið og í stöðu djúps miðjumanns, en þar er hann vanur að spila. Dembéle, Paulinho, Lennon og Bentelab voru því í frekar frjálsri rullu sóknarlega.

Leikurinn:

Það er óhætt að segja að Tottenham hafi stjórnað leiknum frá upphafi til enda. Newcastle voru mjög takmarkaðir og beitu aðallega löngum boltum, sem Kaboul og Verthongen virtust ekki eiga í miklum vandræðum með.

Það var hinn umtalaði Bentaleb sem átti allan heiðurinn á fyrsta marki Spurs í leiknum, þegar hann hljóp upp vinstri kantinn og hristi af sér hinn sterka Sissoko, hann átti síðan góðan bolta inn í teig sem hinn magnaði Adebayor sem potaði knettinum í markið 1-0 19. mínútu. Þannig var staðan í hálfleik og leikur Spurs virkaði mjög þéttur og öruggur.

Seinni hálfleikur var svo sannkölluð veisla fyrir Tottenham, þar sem að allt opnaðist í vörn Newcastle þegar þeir reyndu að jafna leikinn. Paulinho skoraði annað mark Spurs á 52. mínútu, en þá fylgdi hann eftir frákasti frá skoti Adebayor. Adebayor hélt áfram að vera hættulegur og setti þriðja markið á afar sérstakan en glæsilegan hátt. Hann  sparkaði boltanum þannig að hann skaust í jörðina og yfir alla sem fyrir voru og í markið. Það var síðan Nacer Chadli sem lauk veislunni með stórglæsilegu marki, hann fékk þá boltan eftir hælspyrnu frá Bentaleb rétt fyrir utan vinstra vítateigshornið og smellti óverjandi skoti í samskeytin fjær. Hreinlega óskandi að hann sýni meira af þessari spyrnutækni í framtíðinni, en Sherwood myndist á það í viðtali eftir leik, að hann væri vanur að gera þetta á æfingum.

Adebayor

Hvað er hægt að segja um þennan furðufugl, flestir virtust vera á þeirri skoðun að hann væri bara hættur að reyna, fyrst hann var komin á samning hjá klúbbnum. En það hafði verið umræðan um þennan leikmann að hann spilaði bara vel þegar hann væri að reyna vinna sér inn samning eða eitthvað slíkt. Hann var allavega skelfilegur í fyrra, en það geta verið fleiri ástæður heldur en nýr samningur fyrir því. Eins og t.d. að kerfi AVB hafi einfaldlega ekki hentað honum og að AVB væri ekki að ná að hvetja hann nóg. En Adebayor var einmitt frábær undir Harry Redknapp, sem er talinn ná vel til leikmanna. Kannski þoldi Adebayor ekki agan sem AVB var að reyna ná fram hjá Spurs, en hann sendi Ekotto meðal annars burt vegna þess, og einnig vegna þess að hann var talinn hafa slæm áhrif á Adebayor. En hvað um það, hægt að standa endalaust í svoleiðis pælingum. Núna er Adebayor að spila fyrir Tim Sherwood sem er talinn hafa svipaðan stíl og Harry Redknapp að vissu leyti. Það virðist virka heldur betur, því eftir að Adebayor snéri úr útlegðinni sem hann var í hjá AVB, hefur hann verið stórkostlegur og skorað 9 mörk. Útlegðin sem hann var í hjá AVB var þó þeim báðum að kenna og Adebayor hefur viðurkennt það. Það er samt óskandi að Tim haldi áfram að nudda sjálfstraustið hjá honum og að hann haldi þar af leiðandi áfram að spila svona eins og brjálæðingur. Aðeins þá eigum við möguleika á að ná þessu blessaða 4. Sæti

Bentelab

Drengurinn var einfaldlega stórkostlegur í leiknum, hann er ótrúlega efnilegur og ekki ólíklegt að við munum vera að ergja okkur enn og aftur út í Daniel Levy, eftir nokkur ár. Rosalega sterkt að fá svona strák í gegnum unglingstarfið, en hann var maður leiksins ásamt Hugo Lloris sem varði stórkostlega í leiknum.

Mikilvægur sigur í kveðjuleik Defoe á WHL

0

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Walker, Rose, Verthongen, Dawson, Lennon, Paulinho, Dembele, Bentalab, Eriksen, Adebayor. 

Byrjunarlið Everton: Howard, Baines, Jaglielka, Distin, Coleman, Mirallas, Naismith, McCarthy, Garry, Osman, Pienaar.

Ljóst var að það yrði hart barist þegar Everton mætti á White Hart Lane á sunnudaginn, en þessi lið eru í harðri baráttu um evrópusætin ásamt Liverpool og United. Fyrir þennan leik var Tottenham í 6. Sæti en Everton í einu sæti fyrir ofan, en þó aðeins einu stigi meira. Liðin gátu því haft sætaskipti sem varð raunin, þar sem að Spurs sigraði 1-0 eftir frábæra sendingu frá Kyle Walker á Adebayor, sem kláraði stórkostlega og skoraði þar með sitt 6 mark. Tógó maðurinn hefur verið í frábæru formi síðan að Sherwood tók hann aftur inn í liðið, en sóknarmaðurinn hafði verið í hálfgerðri útlegð hjá AVB.

Spurs liðið spilaði kannski ekki stórkostlegan bolta í þessum leik, en þetta var hörku lið sem þeir voru að mæta og það verður bara að teljast vel gert að sigra Everton 1-0, þar sem þeir hafa verið frábærir í vetur og sérstaklega sóknarlega. Þetta var þar með 10 leikurinn í úrvalsdeildinni í vetur þar sem Tottenham heldur hreinu, ótrúlegt að hugsa til þess miðað við varnarleikinn sem liðið hefur sýnt oft á tíðum í vetur, svo dæmi sé tekið þá hafa lið eins og Chelsea og Arsenal haldið hreinu 11 sinnum, en þau eru talinn hafa bestu vörnina í deildinni.

 

Leikurinn gegn Everton var því miður seinasti leikur Jermain Defoe á White Hart Lane, að minnsta kosti í úrvalsdeildinni, en hann er á leiðinni frá Tottenham í annað skiptið og nú til Toronto í MLS deildina. Það er óhætt að segja að Jermain Defoe hafi haft mikil áhrif á okkur Spursara í gegnum tíðina og það mun koma nánari umfjöllun um hans feril hjá Tottenham, hér þegar hann fer endanlega.

Hópferð – skráning

0

Daginn

 

Þá er komið að seinni hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2013-2014.

Í síðustu þrjár ferðir hefur selst upp á nokkrum dögum og færri komist að en vilja,  enda mjög gott verð á þessum hópferðum.

ATH.  aðeins 25 sæti í boði.

Fyrirhuguð hópferð verður í apríl og farið verður á leik Tottenham – Fulham.

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

 

Tottenham – Fulham

White Hart Lane  ,   laugardaginn 19. Apríl.    ( ** leikur gæti verið fluttur á sunnudag ** )

 

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Föstudagur 18. Apríl kl. 07.00  lent úti kl. 11.05                     WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Mánudagur 21. Apríl  kl. 20.40 heimkoma kl. 22.50              WOW Air

GISTING

Travelodge London Stratford í þrjár nætur    ( án morgunmats )

                Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta fyrirfram.

Stílhreint og einfalt hótel í Stratford,  nálægt Ólympíusvæðinu í London.

Veitingastaður / Bar á hótelinu – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

            – Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina

   Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus  ( 15 mín lestarferð )

–  Ofanjarðarlest beint á Northumberland lestarstöðina ( 15 mín lestarferð )  sem er stutt frá White Hart Lane  ( ca. 10 mín gangur )

– Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir -ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.

http://uk.westfield.com/stratfordcity/

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :  http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html

 

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

 

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka )  ásamt skráningu í klúbbinn úti 

 

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

 

 

Verð :        89.990.-    Miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2013-2014.   Þeir sem ekki hafa greitt árgjaldið 2013-2014 greiða aukalega 2.300.-

Verð fyrir einstaklingsherbergi er 105.900.-

 

·    Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

Senda skal e-mail á netfang Tottenhamklúbbsins með skráningu :   spurs@spurs.is

S

o   Nafn

o   Kennitala

o   Heimilisfang

o   GSM númer

o   E-mail

o   Double room / Twin room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

·         Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo í kringum mán.mótin mars/apríl.

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550 –  og senda skal greiðslukvittun á  spurs@spurs.is

·         Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 5.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.

·         Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.

Stéttarfélög sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW

           VR

           Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga

           Kennarasamband Íslands

·         Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 25.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það.

 

Kv

Stjórnin

 

 

Töpuð stig á KC Stadium

0

Hull City (4-4-2): Harper – Rosenior, Davies, McShane, Figueroa – Elmohamady, Huddlestone, Meyler, Brady – Jelavic, Long 
Varamenn: Jakupovic, Bruce, Koren, Boyd, Quinn, Fryatt, Sagbo 

Tottenham (4-4-2): Lloris – Walker, Dawson, Vertonghen, Rose – Lennon, Bentaleb, Paulinho, Eriksen – Adebayor, Soldado 
Varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton, Capoue, Chadli, Sigurðsson, Kane

Þetta voru liðin sem mættust á KC Stadium í dag, Dembéle datt út úr hóp eftir að fengið högg gegn City og líklegast verið að refsa Chiriches fyrir kojufyllerí sem hann fór á seinustu helgi í Rúmeníu. Verthongen og Paulinho snéru til baka eftir löng meiðsli, mjög jákvætt að fá þá tilbaka, en spurning hvort það hefði ekki verið hægt að nota þá gegn City fyrr í vikunni og þannig mögulega komið í veg fyrir niðurlæginguna sem þar átti sér stað.

Uppstillingin í dag var frekar sókndjörf hja báðum liðum, með einhvers konar 4-4-2 kerfum. Hinn ungi Bentalab hélt áfram sæti sínu á miðjunni og Sherwood augljóslega frekar að einbeita sér að því að halda boltanum frekar en að hafa menn sem geta náð honum, þar sem að virðist ekki vera hrifinn af því að stilla upp varnarsinnuðum miðjumönnum.

Hull byrjaði leikinn töluvert betur í dag og voru Spurs eins og þeir væru ennþá í fýlu eftir rassskellinguna frá City. Shane Long kom Hull yfir, eftir frekar slappa varnar tilburði frá okkar mönnum og er ég a.m.k farinn að setja stórt spurningarmerki við fyrirliða okkar Michael Dawson, en lítið sem ekkert skipulag virðist vera á vörninni. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði frekar rólega og Hull með yfirhöndina ef eitthvað var, Spurs virtist þó taka yfir leikinn þegar seinni hálfleikur var hálfnaður sem endaði á því að Paulinho jafnaði metinn, en hann hafði verið ósýnilegur fyrir það. Spurs tók smá sprett eftir markið, en koðnuðu svo fljótlega aftur niður. Leikurinn endaði 1-1 og gífurlega döpur frammistaða frá okkar mönnum staðreynd.

Það virðist vanta leiðtoga á völlinn og spurning hvort það sé ekki lausn í því að taka Dawson út úr byrjunarliðinu a.m.k og leyfa einhverjum öðrum leikmönnum að uppgötva leiðtogahæfileik sína eins og t.d. Verthongen sem var fyrirliði hja Ajax áður fyrr. Svo er þessi þrjóska í Tim Sherwood að spila bara sóknarleik að koma smá niður á okkur í sumum leikjum, stundum þarf múrbrjót eins og Capoue til að geta unnið boltan reglulega. Að mínu mati er hann alveg jafn fastur fyrir og þrjóskur eins og AVB var í sínu varnarsinnaða miðjumoðs hápressukerfi. Tim er búinn að falla á prófinu í seinustu tveim leikjum, með þrjósku varðandi kerfið og lélegum skiptingum, mér fannst ótrúlegt hvernig Soladado fékk að hanga inná í allan dag, það hefði mögulega verið lausn að taka hann út af og yfirmanna þá miðjunni. Tottenham virðist vera að missa af 4.sætinu eins og staðan er í dag, en það er þó nóg eftir og vonandi nær Sherwood að þróa leik liðsins til hins betra og finna fleiri lausnir en liðið hefur verið að gera, en þeir virkuðu mjög hugmyndasnauðir í dag.

Góðar stundir og áfram Spurs, Garðar

Dómaraskandall í niðurlægingu á WHL

0

Jæja ég er byrjaður aftur að skrifa hérna, eftir mikla tæknilega örðugleika í rúma 2 mánuði. Það hefur gengið ansi mikið á þeim tíma og minn maður AVB meðal annars verið rekinn, en Sherwood hefur nú staðið sig vel, þannig þýðir ekkert að grenja yfir því. Það var svo vel við hæfi miðað við þetta undarlega tímabil, að byrja að skrifa aftur eftir þennan leik.

Okkar menn voru vægast sagt teknir í kennslustund þegar þeir mættu Manchester City fyrr í kvöld á White hart lane. Fyrri leikur liðana á Ettihad Stadium hafði endað 6-0 og bjuggust líklega flestir við því að Spurs myndi að minnsta kosti spila fyrir stoltið í kvöld. Svo reyndist ekki vera, ef þið hafið ekki áhuga á að lesa almennt tuð og væl, mæli ég með því að þið sleppið að lesa það sem eftir kemur.

 

Byrjunarlið Tottenham : Lloris, Walker, Chiriches, Dawson, Rose, Lennon, Bentaleb, Dembele, Gylfi Sigurðsson, Eriksen, Adebayor 

Byrjunarlið Manchester City : Hart, Zabaleta, Kompany, Demichelis, Clichy, Navas, Fernandinho, Yaya Toure, Silva, Aguero, Dzeko

Ég segi alveg satt, þegar ég greini frá því að ég varð afar stressaður fyrir því að sjá hinn 19 ára Bentaleb í byrjunarliðinu. City er líklega með bestu miðjuna í deildinni í þeim Fernandinho og Touré og því hreinlega skandall að gera piltinum það að spila á móti þeim. Það að Aguero myndi spila á móti Dawson hjálpaði heldur ekki. Það sem hneykslaði mig samt mest var það að enginn af þeim leikmönnum sem var búist við úr meiðslum, voru í hóp. Verthongen, Sandro, Paulinho og Townsend, allir þessir leikmenn hafa verið að æfa síðustu 2 vikur og meira segja spilað æfingaleik gegn West Ham sem sigraðist 3-0. Ef þeir spila næsta leik á móti Hull sem er á 1. febrúar verð ég vægast sagt vonsvikin með Tim Sherwood, þar sem það þýðir þá að þeir hafa alveg verið tilbúnir í þennan leik og við þar með kannski sloppið við þessa niðurlægingu. Bara Verthongen hefði munað öllu þar sem að Dawson er bara ekki hæfur sínu starfi að mínu mati gegn leikmönnum eins og Aguero og Suarez, eins og við höfum væntanlega flestir séð í vetur.

Leikurinn byrjaði með algjörum yfirburðum City og komust þeir snemma í 1-0 með marki Aguero. Tottenham sá varla boltan fyrstu 25 mínúturnar en tókst svo að stríða City aðeins restina af hálfleiknum og náðu meira að segja að koma boltanum í netið, en markið því miður dæmt rangstæða. Seinni hálfleikurinn byrjaði skefilega þar sem línuvörðurinn ákvað að eyðileggja leikinn og dæma vítaspyrnu, aðaldómarinn hafði ætlað að sleppa því að dæma brot en línuvörðurinn sannfærði hann um að dæma brot og þar með víti og rautt á Rose fyrir flotta tæklingu. Þetta er sami línuvörður og dæmdi Tiote markið af gegn City þar seinustu helgi, frekar gruggugt verð ég að segja. Eftir þetta völtuðu City bara yfir Spurs og unnu að lokum 5-1 sigur, þar sem Capoue skoraði eina mark Spurs, en hann leit ágætlega út.

Það verður hins vegar að setja spurningarmerki við Sherwood í þessum leik, bæði varðandi uppstillingu og skiptingar. Þegar þú lendir manni færri gegn City eins og þeir eru að spila, þá áttu bara að pakka í vörn og reyna að tefja til að verða ekki fyrir niðurlægingu. En jæja svona fór og 4 niðurlæging Spurs á þessu tímabili, annað 5-1 tapið á White hart lane en seinasti stjóri sem tapaði 5-1 á heimavelli eftir að hafa verið ósigraður í 5 leiki í röð var rekinn. Spurning hvað gerist núna,  vonandi verður dómaratríóið þeir einu sem verða reknir eftir þennan leik. Það er þó ekki þeim að kenna að Tottenham hefur nú tapað saman lagt 11-1 gegn City, en það er einfaldlega ekki boðlegt fyrir neitt lið gegn neinu liði. Þetta er hreinlega vandræðalegt fyrir klúbb eins og Spurs og réttast væri að leikmennirnir borguðu stuðningsmönnunum miðana sína tilbaka þegar liðið tapar svona stórt

En það er óskandi að það séu bjartari tímar framundan og vonandi koma Verthongen, Sandro og félagar fljótlega úr meiðslum.

 

 

Tottenham varningur

0

Hér er að finna fullt af vörum merktum Tottenhamklúbbnum á Íslandi.
Frábærar gjafir fyrir harða Tottenhamaðdáendur.
Hægt er að greiða með millifærslu og sækja vörur á höfuðborgarsvæðinu.
Tottenhamklúbburinn sendir einnig í póstkröfu hvert á land sem er.
Panta skal vörur með að senda tölvupóst á spurs@spurs.is og taka fram hvað skal kaupa og magn.
Það sem þarf að koma fram við pöntun :

  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • GSM númer

Vara nr. 1

Húfa

Mjög góð húfa fyrir veturinn.   

Verð : 1.990.-

Vara nr. 2

Lyklakippa

Einföld og góð lyklakippa – leður

Verð : 990.-

Vara nr. 3

Músamotta

Mjög flott og sterk músamotta

Verð : 1.490.-

Vara nr. 4

Barmmerki

Einstaklega flott barmmerki   

Verð : 1.490.-

Vara nr. 5

Veski

Virkilega smekklegt veski

Verð : 2.490.-

 

Vara nr. 6

Kúlupenni

Gylltur og veglegur kúlupenni

Verð : 990.-

 

Vara nr. 7

Trefill

Hlýr og góður trefill   

Verð : 2.990.-

Vara nr. 8

Fáni / Veifa

Flottur fáni.  38cm x 24,5 cm

Verð : 1.990.-

 

 

Jólakveðja

0

Jólakveðja frá Tottenhamklúbbnum á Íslandi

 

Vonandi bjartir tímar framundan með nýjan mann í brúnni   🙂

Magnaður bikarsigur á Hull

0

Tottenham lék við Hull á nýjan leik á miðvikudaginn var í deildarbikarnum ,   16-liða úrslit.   Leikið var á heimavelli Tottenham ,  White Hart Lane.
Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og þurfti því að grípa til framlengingar.   Í framlengingu komst Hull yfir en Kane jafnaði svo fyrir Tottenham áður en yfir lauk og þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni.     Tottenham sigraði að lokum 8-7 eftir vítakeppni.

Þetta var fyrsti sigur Tottenham í síðustu 7 vítaspyrnukeppnum sem liðið hefur lent í  ,  sem spannar að ég held einhver 17 ár !!!

Gylfi Sigurðsson hafði komið Tottenham yfir í fyrri hálfleik með hreint út sagt mögnuðu marki sem hægt er að sjá hér.

http://www.dailymotion.com/video/x16n00r_tottenham-le-bijou-de-gylfi-sigurdsson_sport?search_algo=2

Gylfi skoraði svo einnig í vítakeppninni.    Friedel sem lék í markinu varði tvær spyrnur frá Hull.

Nýjustu fréttirnar