Page 7

Markalaust jafntefli í Belgrad

0

Tottenham hófu atlögu sína að Evrópudeildinni þetta tímabilið í kvöld með 0-0 jafntefli við Partisan Belgrade á útivelli í Serbíu. Pochettino gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn og sumir leikmenn voru eftir heima í London. Þar sem sigur í Evrópudeildinni gefur sæti í Meistaradeildinni á næsta ári er augljóst að liðin munu leggja meiri áherslu á keppnina en áður, enda til mikils að vinna.

Leikurinn í kvöld einkenndist af lélegum velli og frábærri stemningu sem stuðningsmenn Partisan héldu uppi allan leikinn. Það hefur án efa verið erfitt fyrir leikmenn Spurs að halda einbeitingunni í hávaðanum á vellinum. Federico Fazio og Benjamin Stambouli voru báðir í fyrsta sinn í byrjunarliði Spurs og stóðu þeir sig báðir vel, þá sérstaklega Stambouli sem var afar yfirvegaður á miðjum vellinum. Hann verður fastamaður í liðinu áður en langt er liðið.

Fátt var um færi og má í raun segja að það næsta sem Spurs komust marki var strax á 1. mínútu þegar Harry Kane átti skot í slánna eftir hornspyrnu. Heimamenn í Partisan bitu meira frá sér í seinni hálfleik og áttu fleiri færi en Spurs þegar leið á leikinn. Jafntefli eru ekki slæm úrslit fyrir liðið í þessum leik og það sama mun eiga við útileikinn gegn Besiktas eftir nokkrar vikur.

Lið Spurs: Lloris; Naughton, Fazio, Vertonghen, Davies; Stambouli(Capoue 72), Bentaleb; Townsend(Lamela 59), Paulinho(Soldado 60), Lennon; Kane

Jafntefli gegn Sunderland

0

Á laugardaginn var gerði Tottenham jafntefli við Sunderland á útivelli 2-2 þar sem Chadli og Eriksen skoruðu mörk Tottenham.

Tottenham byrjaði leikinn með látum og staðan orðin 0-1 eftir einungis 2. mínútur.   En Adam var ekki lengi í paradís því Sunderland hafði jafnað leikinn strax á 4. mínútu.
Tottenham var miklu betra liðið í byrjun og herjuðu stíft á lið Sunderland án þess að skora annað mark.   Dembele átti til að mynda þrumuskot fyrir utan teig sem small ofarlega í stönginni á marki Sunderland.

Seinni hálfleikur byrjaði með álíka látum og sá fyrri hjá Tottenham og liðið náði aftur forystunni á 3. mínútu síðari hálfleiks þegar Eriksen ýtti boltanum yfir línuna af stuttu færi.  Verðskulduð forysta Tottenham.   Tottenham hélt áfram að vera sterkara liðið á vellinum og Lamela komst næst því að klára leikinn þegar hann átti flott skot fyrir utan teig sem fór í þverslánna á marki Sunderland.
En Tottenham fékk að gjalda fyrir það að hafa ekki gert útum leikinn þegar Sunderland jafnaði leikinn á 82. mínútu þegar Kane varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Jafntefli 2-2 staðreynd,  sem verður að teljast tvö töpuð stig miðað við yfirburðina og góða spilamennsku heilt yfir.

Með boltann
Sunderland 38%
Tottenham 62%

Skot/Á mark
Sunderland 7/1
Tottenham 16/6

Hornspyrnur
Sunderland 6
Tottenham 5

Félagsmenn erlendis

0

Í kringum síðustu mánaðarmót sendi Tottenhamklúbburinn út blað og gjöf til félagsmanna.

Þeir félagsmenn sem búsettir eru erlendis,  vinsamlegast sendið e-mail á spurs(at)spurs.is með upplýsingum um heimilisfang ykkar svo hægt sé að senda pakkann til ykkar.

 

Með fyrirfram þökk

 

Stjórnin

Slæmt tap gegn Liverpool

0

Tottenham lék á sunnudaginn við Liverpool á heimavelli og beið þar ósigur 0-3.   Liðið var engann veginn að spila góðan leik og sigur L´pool verðskuldaður.
Staðan í hálfleik var 0-1 eftir að Sterling skoraði snemma leiks.   Fljótlega í síðari hálfleik fékk L´pool frekar ódýra vítaspyrnu sem Gerrard skoraði úr og staðan orðin 0-2 og útlitið svart.   Moreno , varnarmaður L´pool kláraði svo leikinn með mjög góðu marki eftir skelfileg mistök Townsend sem var þá nýkominn inná sem varamaður.

Evrópudeildin framundan í vetur

0

Tottenham komst áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn var með öflugum heimasigri,   3-0 gegn AEL Limassol frá Kýpur.   Tottenham sigraði einnig fyrri leikinn 1-2 og því samanlagt 5-1.

Mörk Tottenham á fimmtudaginn skoruðu Kane , Paulinho og Townsend.

Á föstudaginn var svo dregið í riðla og er riðill Tottenham ekkert sérstaklega spennandi ,  en liðin í riðlinum með Tottenham eru: 
C – Riðill
Tottenham Hotspur
Besiktas ( Tyrkland )
Partizan Belgrad  ( Króatía )
Asteras Tripoli ( Grikkland )

Riðlakeppnin hefst fimmtudaginn 18. september.

Redknapp brotlenti á WHL

0

Harry Redknapp kom aftur á WHL í fyrsta skipti síðan hann var látinn taka pokann sinn 2012.   Harry kom með lið QPR á WHL í dag og skemmst frá því að segja að lið Tottenham spilaði mjög vel og vann leikinn frekar létt 4-0 eftir að staðan var 3-0 í hálfleik.
Chadli koma Tottenham á bragðið og Dier kom Tottenham í 2-0 áður en Chadli gerði sitt annað mark og Tottenham var komið í 3-0 fyrir hálfleik.

Aðeins eitt mark leit dagsins ljós í seinni hálfleik þegar Adeybayor skoraði.

Þriðja mark Tottenham í dag var einkar glæsilegt ,  þar sem Tottenham lék boltanum á milli sín 48 sinnum áður en Lamela átti frábæra sendingu á Chadli sem skoraði með skalla af markteig.

Lamela var aftur mjög góður og lagði upp tvö mörk og er því með 4. stoðsendingar í síðustu tveim leikjum !!  vonandi fyrir Tottenham að hann finni formið sitt í vetur,  enda miklir hæfileikar sem búa í honum.

Sigur í Evrópudeild

0

Tottenham fór í heimsókn til Kýpur á fimmtudaginn var og átti þar í höggi við AEL Limassol.   Tottenham vann leikinn 1-2 eftir að Kýpverjarnir komust yfir 1-0.

Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Soldado og Kane,   Lamela átti mjög góðan leik og lagði upp bæði mörkin eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Gott veganesti í seinni leikinn sem verður á WHL á fimmtudaginn kemur.

Sigur í fyrsta leik

0

Tottenham hafði sigur í fyrsta leik tímabilsins 2014-2015 þegar spilað var gegn West Ham á útivelli.  Leikar fóru 0-1.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað,   Naughton fékk rautt spjald í fyrri hálfleik fyrir að handleika knöttinn innan vítateigs og þótti rauða spjaldið mjög harður dómur.   Noble steig á punktinn fyrir West Ham og skaut hann framhjá.

Sigurmark Tottenham kom í uppbótartíma þegar nýr leikmaður Tottenham,  varnarmaðurinn Eric Dier komst einn gegn markverði West Ham og lék á hann og rúllaði boltanum í netið.   Frábær vinnusigur hjá Tottenham.

Gylfi Sig seldur

0

Gylfi Sigurðsson var seldur frá Tottenham til Swansea undir lok júlímánaðar fyrir um 10 milljónir punda.
Tottenhamliðið var á æfingarferðalagi í USA þegar salan var samþykkt og var Gylfi tekinn úr byrjunarliði Tottenham á síðustu stundu þegar liðið var að fara að keppa sinn fyrsta leik í ferðinni.

Þó það sé leiðinlegt að horfa á eftir Gylfa þá á hann eftir að blómstra hjá Swansea þar sem hann fær mikið og stórt hlutverk.   Hjá Tottenham gekk Gylfa nokkuð vel en spilaði marga leiki á kantinum eða í stöðu sem er ekki hans sterkasta staða.

Óskum Gylfa velgegni með „nýju“ liði  –  en hann spilaði sem lánsmaður hjá Swansea, þannig að hann þekkir sig til þar. 

Evrópudeildin umspil

0

Tottenham er að fara að spila umspilsleiki við AEL Limassol frá Kýpur um hvort liðið fer í Evrópudeildina á þessu tímabili.

Lið AEL Limassol fór í undankeppni Meistaradeildarinnar og töpuðu þar í 3. umferð gegn Zenit  ( unnu heimaleikinn 1-0 )

Nokkrar upplýsingar um lið AEL Limassol :

Heimavöllur er Tsirion Stadium sem tekur rúmlega 13.000 manns.
Liðið var stofnað 1930
Hafa unnið deildina á Kýpur 6 sinnum ( síðast 2012 )
Bikarmeistarar 6 sinnum

Nýjustu fréttirnar