Page 6

Öflugur sigur á Aston Villa

0

Tottenham lék í gær sunnudag við Aston Villa og var spilað á heimavelli Aston Villa í Birmingham.
Fyrir leikinn hafði Aston Villa tapað 5 leikjum í röð og hafði ekki skorað mark í þessum 5 leikjum.

Aston Villa voru sterkari aðilinn framan af og átti Benteke til að mynda hörkuskot sem fór í samskeytin á marki Tottenham.    Stuttu síðar komst Aston Villa í 1-0 eftir frekar slakan varnarleik Tottenham.   Adebayor fékk gullið tækifæri til að jafna metin fyrir hálfleik þegar hann komst einn í gegn en lét Guzan í marki Aston Villa verja frá sér.

Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik þó Tottenham hafi verið meira með boltann.

Á 65. mínútu dró svo til tíðinda þegar Benteke var rekinn af velli með rautt spjald fyrir að setja hendina í andlitið á Mason þegar þeir voru eitthvað að rífast.  Strangur dómur en líklega réttur.   Eftir þetta fór Tottenham að sækja meira og settu pressu á lið Aston Villa.  

Á 84. mínútu tók varamaðurinn Lamela hornspyrnu frá hægri sem fór yfir allan pakkann og á fjærstöng mætti Chadli sem setti boltann í markið viðstöðulaust.  Staðan 1-1 og lítið eftir.   Það var svo á 90. mínútu sem Tottenham fékk aukaspyrnu fyrir utan teig Aston Villa,  Kane og Lamela voru að rífast um hvort ætti að taka spyrnuna og fór svo að Kane hafði betur og hélt á boltanum.   Aukaspyrna Kane fór svo í varnarvegg Aston Villa breytti um stefni og endaði í netinu … 1-2 og fögnuður Tottenhammanna mjög mikill.

Með sigrinum komst Tottenham uppí 8. sæti deildarinnar.

Sigur gegn Brighton

0

Tottenham spilaði á miðvikudaginn í 16-liða úrslitum Carling Cup við lið Brighton sem spilar í Championship deildinni.

Leikurinn sem slíkur var ekki uppá marga fiska og fór svo að Tottenham fór með sigur af hólmi 2-0 eftir að staðan í hálfleik var 0-0.

Lamela og Kane skoruðu mörk Tottenham.

 

Tottenham mætir síðan Newcastle á heimavelli í 8-liða úrslitum keppninnar.

Truflað mark Lamela gegn Astreas

0

Spurs lögðu Grikkina í Astreas Tripolis í kvöld 5-1 en ekki munu menn muna eftir leiknum vegna úrslitana, né heldur þrennunnar sem Harry Kane skoraði. Erik Lamela stal heldur betur senunni þegar hann skoraði stórkostlegt mark í fyrri hálfleik, með svokölluðu „rabona“ sparki. Upphaflega hélt undirritaður að Lamela hefði spyrnt boltanum með hægri fæti en endursýningar sýndu annað!

Lamela skoraði annað mark í síðari hálfleik til að koma Spurs í 3-0 áður en Harry Kane, sem hafið skorað fyrsta mark leiksins með frábæru skoti af 25m færi, bætti við tveimur mörkum til að koma Spurs í 5-0. Andstæðingarnir voru ekki beint góðir í kvöld, en þó áttu þeir fína spretti og ógnuðu marki Hugo Lloris oftar en einu sinni. Lloris stóð vaktina frábærlega eins og ávallt, þar til skömmu fyrir leikslok þegar hann misreiknaði úthlaup og uppskar rautt spjald. Þrennumaðurin, Harry Kane, tók hanskana en honum tókst því miður ekki að verja lélega aukaspyrnu Tripolis manna og lak boltinn í netið.

Úrslitin 5-1 og margt jákvætt við leik Spurs þó að varnarleikurinn hafi verið vafasamur á köflum. Newcastle bíða á sunnudaginn og verður gaman að sjá hvernig Spurs bakka upp þennan leik, en eins og flestir vita hefur liðið átt erfitt uppdráttar eftir Europa League leiki á þessu ári.

Spurs: Lloris(rautt), Dier, Fazio, Vertonghen, Davies, Townsend(Lennon 83), Capoue, Dembele, Lamela(Eriksen 76), Adebayor(Chadli 76), Kane.

Landsleikjahlé: Stöðumat

0

Nú þegar annað landsleikjahlé leiktímabilsins er gengið í garð, er ekki úr vegi að renna stuttlega yfir tímabilið til þessa og velta vöngum yfir framhaldinu. Ég myndi telja frekar erfitt að meta árangur Spurs hingað til á þessu leiktímabili. Liðið hefur sýnt þrautsegju á köflum en inn á milli hafa komið afar slæmir leikir, sem fylla fáa stuðningsmenn von um betri tíð. Mauricio Pochettino hefur staðið sig vel það sem af er við erfiðar aðstæður, þar sem helst ber að nefna skort á framherjum í formi og skapandi miðjumönnum til að búa til færi.

Spurs eru þessa stundina í 6. sæti deildarinnar með 11 stig, jafnmörg stig og liðið sem er í 4. sæti. Það er á pappír fínn árangur. Raunveruleikinn er hins vegar sá að liðið hefur ekki leikið jafn vel og flestir hefðu líklega gert sér væntingar um þegar Pochettino tók við. Það er aftur á móti eðlileg skýring á þessu. Liðið þarf tíma að innleiða leikstíl Argentínumannsins og við getum ekki búist við að hlutirnir skáni á einni nóttu. Frammistaða liðsins á móti Liverpool og WBA sýnir svo ekki verður um villst að breytingarnar munu taka tíma. Þess fyrir utan hefur liðið ekki beinlínis sýnt sínar bestu hliðar, nema þá gegn QPR og nú síðast gegn Besiktas og Southampton. Síðustu tveir leikir gefa í skyn að hlutirnir séu á uppleið.

Nú verðum við að vona að hópurinn sleppi við meiðsli og leikbönn að mestu leyti, því ekki má vanmeta að dýptin á leikmannahópnum er ekki jafn sterk og á síðustu leiktímabilum. Pochettino mun ná að setja sinn stimpil á liðið fái hann tíma frá félaginu og þolinmæði frá stuðningsmönnunum. Raunsæar væntingar á þessu tímabili eru án efa að ná Evrópusæti í deildinni og fara langt og/eða sigra í bikarkeppni. Það verður spennandi að sjá þróunina á liðinu í vetur undir stjórn þjálfara sem er með langtímamarkmið Tottenham Hotspur að leiðarljósi.

#COYS

Sterkur sigur á fyrrum félögum Pochettino

0

Tottenham sigraði Southampton 1-0 í hörku leik.

Þrátt fyrir að aðeins eitt mark hafi litið dagsins ljós á White hart lane í gær, þá var leikurinn mjög skemmtilegur, enda leggja bæði lið áherslu á góða knattspyrnu. Markið kom rétt fyrir hálfleik en þar var að verki Christian Eriksen, með hnitmaðað skot fyrir utan teig, eftir flottan undirbúning hjá Adebayor og Chadli. Chadli var síðar í leiknum mjög óheppinn að skora ekki, er hann átti skot í stöng. Ánægjulegt að hann sé að njóta sín undir stjórn Pochettino, en Chadli er nú komin með 4 mörk í 6 leikjum í deild. 

Southampton sótti talsvert í síðari hálfleik, en varnartríóið Kaboul, Verthongen og Hugo stóðu vaktina vel, líkt og í Arsenal leiknum. Verthongen og Kaboul virðast ná vel saman undanfarið, sem eru virkilega góð tíðindi fyrir okkur Spursara.

Tottenham er nú komið með 11 stig í deildinni.

Tottenham-maður leiksins: Etienne Capoue, maðurinn var virkilega sterkur á miðjunni og virðist vera í svakalegu formi. Sala á leikmönnum eins og Huddlestone og Sandro, er skiljanlegri þegar maður fylgist með leik Capoue sem virðist vera blanda af kostum þessara tveggja leikmanna, þar að segja sendinga Huddlestone og vinnusemi Sandro.

1-1 jafntefli við Besiktas

0

Enn eitt jafnteflið var niðurstaðan á White Hart Lane í kvöld, er Tottenham tók á móti Besiktas. Spurs komst yfir í fyrri hálfleik eftir frábært mark hjá Harry Kane sem átti hnittmiðað skot með vinstri í fjær hornið fyrir utan teiginn. Þannig var staðan þegar liðin gengu til búningsherbegja, en mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Besiktas kannski betri ef eitthvað var.

Í seinni hálfleik byrjuðu Besiktas menn af miklum krafti, en þeir uppskáru ekki mark fyrr en í lok leiks, eftir heldur klaufaleg mistök hjá Chiriches, sem var alls ekki sterkur í kvöld. Hann fékk þá boltan óvart í hendina innan vítateigs og dómarinn gat ekki annað en flautað víti, sem Demba Ba skoraði örugglega úr. 

Allt í allt voru Besiktas líklega sterkari í leiknum, en Tottenham sýndi þó ágæta spretti inn á  milli. Það verður hins vegar að minnast á stórkostlega frammistöðu Hugo Lloris, sem er einfaldlega okkar lang besti leikmaður í dag og hefur verið síðustu tvö ár. Ef ekki hefði verið fyrir Hugo í kvöld, hefði þetta líklega endað mun verr.

Erfitt er þó að vera mjög grimmur við liðið og Pochettino, þar sem 10 breytingar voru gerðar frá Arsenal leiknum. Þetta hefur verið venjan í Evrópu og bikar leikjum, og því virkar þetta oft frekar eins og 11 einstaklingsframtök heldur en liðsheild í þessum keppnum.

Tottenham er því með 2 stig í Evrópudeildinni eftir 2 leiki.

Tottenham-maður leiksins: Hugo Lloris

Jafntefli á Emirates

0

Á laugardaginn var North London Derby leikur á Emirates,  heimavelli Arsenal þegar Tottenham kom í heimsókn.

Leikar fóru 1-1 þar sem Tottenham komst yfir með marki Chadli.

Varnarleikur Tottenham var mjög góður í þessum leik og eins átti Lloris nokkar góðar markvörslur.
Mjög gott stig á erfiðum útivelli gegn erkifjendunum.

Sigur í deildarbikarnum

0

Tottenham lék gegn Nottingham Forest í deildarbikarnum í síðustu viku og var um leik í 32-liða úrslitum að ræða.

Fór svo að Tottenham hafði sigur 3-1 eftir að hafa lent undir 0-1 í síðari hálfleik.

Ryan Mason, ungur miðjumaður í liði Tottenham kom inná sem varamaður í stöðunni 0-1 og jafnaði hann leikinn með þrumskoti fyrir utan teig.   Soldado kom svo Tottenham í 2-1 og það var svo Kane sem gulltryggði 3-1 sigur með marki á lokamínútunni.

Leikur liðsins var alls ekki góður og lítið að gerarst þangað til Mason skoraði þetta mark og jafnaði leikinn 1-1.   Eftir markið tók Tottenham öll völd á vellinum og fyrst þá byrjaði liðið að spila af fullum krafti.

Tottenham mun svo leika við lið Brighton á heimavelli í 16-liða úrslitum keppninnar.

Tap heima gegn WBA

0

Á sunnudaginn var lék Tottenham heimaleik við WBA og tapaði Tottenham leiknum 0-1.

Tottenhamliðið var alls ekki sannfærandi í þessum leik og skapaði sér nánast engin færi þrátt fyrir að vera með boltann meginhlutann af leiknum.

Tottenham- skólinn í vetrarfríinu

0

Tottenhamskólinn kemur til landsins í þriðja sinn eftir velheppnaðar heimsóknir 2011 og 2012.

Hingað til lands koma fjórir þjálfarar úr knattspyrnuakademíu Tottenham Hotspur.
Boðið verður uppá markmannsþjálfun á námskeiðinu undir handleiðslu markvarðarþjálfara frá knattspyrnuakademíu Tottenham Hotspur

Einn heppinn þátttakandi fær 2 miða á valinn leik á White Hart Lane ásamt flugi fyrir einn að launum.

Dregið úr hópi þeirra sem skrá sig fyrir 1.október.

Skráðu þig sem allra fyrst og eigðu möguleika á að komast á leik.

Allar nánar upplýsingar í síma 852-2060 eða í netfang tottenhamskolinn@gmail.com

Íslenskir knattspyrnukrakkar á aldrinum 8-14 ára eiga tækifæri á að hljóta leiðsögn frá mjög hæfum þjálfurum Tottenham Hotspur.
Upplýsingar um námskeið:
Staðsetning : Fífan,  knattspyrnuhús Kópavogi
Dagsetning : 16.-18. október
                      6. flokkur drengja og stúlkna frá 9.00-12.00
                      5. og 4. flokkur drengja og stúlkna frá 13.00-16.00
Verð : 16.000.-   ( systkinaafsláttur veittur )
Þátttakendur fá gjöf í lok námskeiðs
Minnum þátttakendur á að koma með vatnsbrúsa á námskeiðið.

Allar upplýsingar um námskeiðið má einnig finna hér


ATH.  Takmarkaður fjöldi þátttakenda á hvoru námskeiði.

Nýjustu fréttirnar