Page 112

Afmælisferð í haust

0

Stjórnin hefur hafið skipulagningu á ferð á leik Tottenham og Everton þann 15. október nk. Verið er að ganga frá lausum endum þessa dagana en tilhögunin er sú að við förum út fimmtudaginn 13. okrtóber og kæmum heim aftur sunnudaginn 16. október.

Fyrsti æfingaleikurinn

0

Jæja þá er ballið byrjað. Tottenham lék sinn fyrsta æfingarleik í dag og endaði hann með sigri Tottenham 0-3. Mörkin gerðu Kanoute, Mido og Defoe. Aaron Lennon, Wayne Routledge, Teemu Tainio og Tom Huddlestone léku allir sinn fyrsta leik í treyjum Tottenham.

Kynningartilboð vegna enska boltans

0

 Lesendum www.spurs.is stendur til boða frábært tilboð vegna sjónvarpsútsendinga enska boltans í vetur.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.  Smelltu á borðann hér á síðunni  til að skrá þig. HJ

Routledge er kominn í okkar raðir

0

Tottenham og Crystal Palace hafa náð samkomulagi um kaup Tottenham á Wayne Routledge. Verðið verður ekki gefið upp. Wayne er tvítugur kantmaður og spilaði alla leiki Crystal Palace í vetur.
 

Aaron Lennon um borð

0

Tottenham hefur náð samkomulagi um kaup á ungstirninu Aaron Lennon frá Leeds. Aaron er 18 ára kantmaður. Hann lék í 27 leikjum fyrir Leeds á síðasta tímabili þar af 19 í byrjunarliðinu. Aaron er uppalinn hjá Leeds og þykir mikið efni. Hann á þó eftir að standast læknisskoðun og semja um kaup og kjör. HJ

Ekki með í UEFA bikarnum

0

Verið var að draga í "Fair play" drættinum. Við vorum ekki dregnir út. Jol sagði rétt í þessu að það gæfi honum betri tíma til að undirbúa liðið fyrir næsta tímabil en þá er stefnt að því að taka eitt eða tvo skref áfram og tryggja Evrópusæti. HJ

Bölvunin lifir

0

Þær fréttir hafa borist á heimasíðu Tottenham að búið sé að reka Arnesen. Ástæðan mun vera sú að Chelsea bauð honum vinnu og hann lýsti yfir áhuga að fara til þeirra. Málið er bara að það er kolólöglega staðið að þessu hjá Chelsea sem nýbúið er að fá dóm á sig vegna ólöglegra viðræðna við Asley Cole.

Lok tímabilsins

0

Ég vill byrja á að biðjast afsökunar á að lítið hefur verið skrifað hér á síðuna síðan tímabilinu lauk. Ástæðan er að ég hef verið að flytja og því ekki haft tímatil að sinna þessu. Reyndar hefur verið frekar rólegt í kringum Tottenham síðan en þó ekki alveg.

Robinson meiddur

0

Þær fréttir hafa borist að Robinson er meira meiddur en í fyrstu var talið. Mun hann ekki geta leikið þá tvo leiki sem eftir eru af tímabilinu og er það verulegt áfall fyrir okkur. Hann hefur átt mikinn þátt í því hvar við erum í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir.

Arsenal heppið

0

Arsenal – Spurs 1-0
Því miður sýndu leikmenn okkar andstæðingum sínum of mikla virðingu til að eiga raunhæfa möguleika á að vinna þá. Arsenal var betri aðilinn á flestum sviðum og hefði getað unnið stærri sigur en við hefðum líka getað náð jafntefli hefði Keane hitt markið í restina á leiknum þegar hann fékk fína sendingu frá Reid.

Nýjustu fréttirnar