Page 113

Tvö skref áfram og eitt afturábak

0

Spurs 1-1 West Bromwich Albion
Ekki tókst okkur að styrkja stöðu okkar í baráttunni um Evrópusætið eins og við vorum að vona. West Brom spilaði vel sértaklega í fyrri hálfleik og komst yfir með merki Gera. Jol setti Mido og Atouba inná eftir hlé og breyttist leikur okkar manna mikið við það.

Emil lék allan leikinn

0

Varaliðsleikur: Tottenham – Arsenal 4-3
Tottenham vann góðan sigur og öruggan á Arsenal í leik þessara liða í gærkvöldi. Við komumst í 4 -1 en gáfum eftir síðustu 15. mínúturnar. Emil okkar Hallfreðsson lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar.

Sjöunda sæti er Evrópusæti

0

Nú er ljóst að sjöunda sæti í deild gefur þátttökurétt í UEFA keppninni á næstu leiktíð. Í því sæti sitjum við einmitt núna. Þetta varð ljóst eftir að Man. Utd. vann Newcastle í undanúrslitum FA bikarsins og tryggði þar með sæti í úrslitunum gegn Arsenal sem vann sinn leik í gær. Þar sem bæði þessi lið eru þegar örugg með sæti í Evrópukeppni þá flyst FA sætið á deildina.

Fyrsta mark Emils

0

Varaliðsleikur: Tottenham – Derby 5-2
Emil lék í gærkvöldi með varaliðinu gegn Derby og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið þegar hann skallaði í netið á síðustu mínútu leiksins. Hann lagði einnig upp tvo mörk. Tottenham vann sannfærandi sigur þar sem Barnard nýkominn úr láni frá Northampton gerði þrennu.

Keane refsað

0

Fréttir hafa borist af því að Robbie Keane hafi verið sektaður um 10.000 pund. Einnig var hann látinn æfa með varaliðinu. Ástæðan fyrir þessari refsingu er að Robbie reiddist mjög að Mido var skipt inn á sem þriðja manni en ekki honum og rauk hann inn í búningsklefa með miklum látum.

Áfall fyrir Pamarot

0

Meiðslin sem Noe Pamarot hlaut í leiknum gegn Birmingham á laugardag eru alvarlegri en fyrst var haldið. Í dag kom í ljós að hann hafi slitið liðbönd í hné og verður þ.a.l. frá keppni í 6-9 mánuði.

Emil kom inn á

0

Emil lék síðutu fimm mínúturnar með A landsliðinu gegn Ítölum í gær. Hann er þar með búinn að stíga eitt skrefið enn á þroskabrautinni. Nú vonum við bara að hann fá tækifæri með aðalliði Tottenham áður en tímabilið er á enda.

Emil í A landsliðið

0

Emil var valinn í A landsliðið sem leikur í kvöld við Ítali æfingarleik. Á laugardaginn lék hann allan leikinn með undir 21 árs landsliðinu. Emil er kallaður inn í hópinn vegna meiðsla svo óvíst er hvort hann fær að spreyta sig. Við vonum það auðvitað og óskum honum til hamingju með þennan áfanga.

Chelsea – Spurs 0-0

0

Varaliðsleikur
Varaliðið gerði jafntefli við varaliðið Chelsea á útivelli í gærkvöldi. Tottenham var manni færri í um 30 mínútur eftir að Delefski var rekinn útaf fyrir að stöðva sóknarmann. Emil var á tréverkinu allan tímann.

Richards hættur

0

Það var tilkynnt áðan að varnarmaðurinn okkar hann Dean Richards hefði lagt skóna á hilluna. Er það vegna þrálátrar sýkingar í eyrum sem hefur blagað hann. Dean kom til okkar frá Southampton þegar Hoddle hafði tekið við stjórninni hjá okkur.

Nýjustu fréttirnar