Tottenhamklúbburinn á Íslandi óskar stuðningsmönnum liðsins og fjölskyldum þeirra, sem og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.
Tottenham á sigurbraut á nýjan leik
Tottenham fékk lið Sunderland í heimsókn á White Hart Lane á sunnudaginn siðasta. Fór svo að Tottenham bar sigur úr býtum 1-0 án þess að spila sérstaklega vel. Bale og Defoe voru meiddur og spiluðu ekki og þá meiddist Aaron Lennon í leiknum og gæti verið eitthvað frá. Eina mark Tottenham í leiknum skoraði Pavlouchenko eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Tottenham hefur lokið leik í Evrópudeildinni
Tottenham lék á fimmtudaginn var síðasta leik sinn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og var leikið á útivelli gegn Írska liðinu Shamrock Rovers. Tottenham vann leikinn 0-4 , en þrátt fyrir það komst liðið ekki áfram í 32 – liða úrslit keppninnar. Tottenham þurfti að vinna Shamrock á fimmtudaginn og treysta á að PAOK myndi sigra Rússneska liðið Rubin Kazan ásamt því að vinna um 5 marka mun sem Rubin Kazan átti á Tottenham.
Knattspyrnuskóli Tottenham
Breiðablik og Tottenham Hotspur FC hafa gert með sér samkomulag um rekstur knattspyrnuskóla fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 – 16 ára (3. – 5. flokkur) fædd 1996-2001 annað árið í röð.
Breiðablik er fyrsta félagið í Evrópu sem kynnir knattspyrnuskóla Tottenham Hotspur til leiks. Yngri flokka starf þeirra er talið vera eitt það besta á Bretlandseyjum í dag og hefur tekið stórstígum framförum undanfarin 10 ár. Vert er að taka fram að þeir þjálfarar sem koma til landsins í sumar eru starfandi yngri flokka þjálfarar hjá Tottenham Hotspur og til þeirra eru gerðar mikla kröfur varðandi menntun innan knattspyrnufræðanna. Einnig munu okkar hæfu þjálfarar starfa á námskeiðunum.
Fjögur námskeið verða haldin. Ákveðið hefur verið að takmarka fjöldann á hvoru námskeiði við 80 iðkendur þar sem þjálfarar Tottenham Hotspur vilja vinna með smærri hópa til að sinna einstaklingum eins og best verður á kosið.
Mikil ánægja var með skólann í fyrra og því ákveðið að halda samstarfinu áfram.
Brotlending á Brittania Stadium
Það kom þá að því að sigurleikjahrinu Tottenham lyki. Fyrsti tapleikur liðsins í deildinni staðreynd síðan í annari umferð. Liðið heimsótti Stoke City á Brittania Stadium á sunnudaginn var og enduðu leikar með sigri heimaliðsins 2-1. Mark Tottenham í leiknum skoraði Adebayor úr vítaspyrnu sem Modric fiskaði. Ekki hægt að segja að úrslitin á sunnudaginn hafi verið sanngjörn, en dómari leiksins var í aðalhlutverki í síðari hálfleik.
6. sigurleikur Tottenham í röð
Tottenham vann sinn sjötta sigurleik í röð í Ensku Úrvalsdeildinni á laugardaginn var þegar Bolton kom í heimsókn á WHL. Lokatölur 3-0 þar sem Bolton missti Gary Cahill útaf með rautt spjald eftir einungis 18 mínútur. Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Bale , Lennon og Defoe. Með þessum sigri fór lið Tottenham í annað sætið í deildinni í nokkrar klukkustundir …
Frækinn útisigur á WBA
Tottenham hélt sigurgöngu sinni áfram á laugardaginn þegar liðið heimsótti lið WBA heim á The Hawthorns. Lokatölur 1-3 Tottenham í vil sem lentu 1-0 undir í leiknum. Mörk Tottenham skoruðu Adebayor 2 og Defoe. Tottenham komst upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri og liðið á rosalegri siglingu í deildinni.
Adebayor sá um Aston Villa
Tottenham lék við Aston Villa á White Hart Lane síðastliðið mánudagskvöld og enduðu leikar með sigri Tottenham , 2-0 þar sem Adebayor skoraði bæði mörk Tottenham í leiknum. Um öruggan sigur var að ræða og hefðu leikmenn Tottenham átt að skora fleiri í leiknum.
Frábær útisigur á Fulham
Síðasti leikur Tottenham í deildinni fór fram sunnudaginn 6. nóvember og var leikið gegn Fulham á Craven Cottage. Lokatölur voru 1-3 Tottenham í vil þar sem Fulham voru betri aðilinn í leiknum en lið Tottenham fór með stigin þrjú heim engu að síður. Bale , Lennon og Defoe skoruðu mörk Tottenham í leiknum.
Tap í Evrópudeildinni
Lið Tottenham fór á Road Trip í síðustu viku og heimsótti lið Rubin Kazan í Rússlandi. Það þarf ekki að eiga mörg orð um þennan leik sem tapaðist 1-0. Tottenham voru miklu lakari í þessum leik og átti Cudicini í marki Tottenham stórleik og kom í veg fyrir stærra tap.





