Page 25

Spjallborðið komið í gang aftur

0

Nú er nýtt spjallborð komið í gang aftur hér vinstra megin á síðunni eða á spurs.is/spjalla. Sömu notendanöfn ganga að þessu spjalli og því gamla svo að ekki er þörf á því að byrja á að nýskrá sig. Allir gömlu póstarnir eru sömuleiðis á þessu spjalli. Spjallborðið hefur ávallt verið öflugt hjá okkur og vonandi verður engin breyting á því.

Spjallborðið niðri

0

Vegna tæknilegra vandræða liggur spjallborðið tímbundið niðri. Verið er að vinna að því að koma spjallborðinu aftur upp á næstu dögum. Við biðjumst velvirðingar á þessu og munum gera okkar besta til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig.

Knattspyrnuskóli Tottenham og Breiðabliks

0

Breiðablik og Tottenham munu standa fyrir knattspyrnuskóla hér á Íslandi í sumar og eru nokkur sæti laus á þessi námskeið. Námskeiðin eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 11-16 ára (1995-2000). Allar nánari upplýsingar um skólann og hvernig skráning fer fram má finna hér

Brad Friedel semur við Spurs

0

Tottenham hefur tilkynnt að Brad Friedel, markvörðurinn reyndi, hefur gengið til liðs við félagið. Friedel er mjög reynslumikill og hefur áður spilað með Liverpool, Galatasaray, Blackburn og nú síðast Aston Villa. Hann gengur nú til liðs við félagið og lýsti Harry því yfir að hann væri mjög ánægður með markvarðarhóp sinn núna, því nóg væri af leikjum á næsta ári. Það verður því hörku samkeppni milli Gomes, Cudicini og Friedel um markvarðarstöðuna í leikjunum og er það bara af hinu góða.

Við bjóðum Friedel velkominn til Spurs.

Aðalfundur Tottenham klúbbsins

0

Minnum á aðalfundinn í kvöld!!! 

 

Aðalfundur Tottenham klúbbsins á Íslandi verður haldinn fimmtudagskvöldið 26.maí næstkomandi á Ölveri í Glæsibæ. Fundurinn hefst kl. 20 og er dagskrá fundarins eftirfarandi:

 

1. Skýrsla stjórnar

2. Reikningar síðasta árs

3. Kosning stjórnar

4. Önnur mál

 

Tveir núverandi stjórnarmeðlimir munu láta af embætti í lok tímabilsins og eru þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn klúbbsins vinsamlegast beðnir um að hafa samband við stjórnina á spurs(hja)spurs.is eða við formanninn í síma: 693-3345.

 

Léttar veitingar verða í boði.

Cudicini framlengir

0

Cudicini hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár. Núverandi samningur hans var að renna út núna í vor en hann hefur ákveðið að skrifa undir eins árs framlenginu og gildir samningur hans því til vorsins 2012.

Tímabilið endað á sigri

0

Tottenham tók á móti Birmingham á White Hart Lane í síðasta leik tímabilsins. Tottenham átti í baráttu við Liverpool um 5.sæti deildarinnar og Birmingham var eitt af fimm liðum sem fyrir leik gat fallið um deild. Tottenham komst yfir í leiknum með marki frá Pavlyuchenko á 49.mínútu og var þá útlitið orðið svart fyrir Birmingham á meðan staðan var góð fyrir Tottenham, en á sama tíma var Liverpool að tapa sínum leik. Craig Gardner náði að jafna leikinn fyrir Birmingham þegar aðeins 10 mínútur voru til leiksloka og virtist allt stefna í að þeir myndu halda sér í deildinni. En á lokamínútunum náði Pavlyuchenko að bæta við öðru marki sínu og Tottenham og innsigla þar með 2-1 sigur Tottenham. Með þessum sigri endaði Tottenham í 5.sæti með 62 stig, en Birmingham þurfti að bíta í það súra epli að falla niður um deild.

Góður útisigur á Anfield

0

Tottenham vann sinn fyrsta deildarsigur á Liverpool á Anfield leikvanginum síðan árið 1993 þegar liðin mættust í næst síðustu umferð tímabilsins. Liðið berjast um 5. sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni á næsta ári og þurfti Tottenham á sigri að halda til að halda í vonina um Evrópusæti. Ledley King gladdi áhangendur Spurs með nærveru sinni í liðinu, en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðan í október sl. Leikmenn Tottenham spiluðu mun betur í leiknum og reyndi lítið á Cudicini í marki Tottenham. Tottenham komst yfir með marki frá Van der Vaart á 9. mínútur og Modric bætti svo við öðru marki á 55.mínútu með marki úr vítaspyrnu. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham en aðeins eitt stig skilur liðin að og því verður spennandi að sjá hvað gerist í síðustu umferðinni.

Man.City 1 – Tottenham 0

0

Manchester City gulltryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næsta ári þegar Tottenham heimsótti liðið í leik sem upphaflega var frestað vegna þátttöku City í FA bikarnum. Liðin mættust á svipuðum tíma í fyrra en þá var það Tottenham sem tryggði sér Meistaradeildarsætið með 1-0 sigri með marki frá Peter Crouch. Í þetta skiptið var það City sem hirti öll þrjú stigin en það var þó einnig Peter Crouch sem skoraði sigurmarkið í þessum leik því hann varð fyrir því óláni að skora í eigið net eftir 30 mínútna leik. Manchester City tekur því þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð þar sem liðið er nú 7 stigum fyrir ofan Tottenham og einungis 2 leikir eftir. Tottenham á þó í hörkubaráttu við Liverpool um fimmta sæti deildarinnar, en það gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni.

Spurs 1 – Blackpool 1

0

Vonir Tottenham um að enda í 4.sæti deildarinnar og komast í umspil um sæti í Meistaradeildinni dvínuðu talsvert um helgina þegar þeir tóku á móti Blackpool á White Hart Lane. Með sigri hefði liðið komist aðeins 4 stigum á eftir Manchester City og enn verið í baráttunni um 4.sætið. En Blackpool menn þurftu einnig á stigum að halda í fallbaráttunni og komust yfir í leiknum á 78.mínútu með marki úr vítaspyrnu frá Charlie Adam. Gomes varði vítaspyrnu frá Adam eftir að Dawson handlék boltann inni í teig, en fór svo sjálfur í klaufalega tæklingu sekúndubrotum síðar og dómarinn dæmdi aðra vítaspyrnu sem Adam skoraði úr. Staðan því 1-0 fyrir gestina. Defoe jafnaði leikinn á 88.mínútu og reyndu leikmenn Tottenham allt til að bæta við öðru marki, en viðbótartíminn var talsverður vegna tíma sem fór í aðhlynningu á Bale vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum. Það tókst þó ekki og lokatölur 1-1.

Nýjustu fréttirnar