Page 33

Gallas genginn til liðs við Tottenham

0

Tottenham tilkynnti í dag að liðið hefði gert eins árs samning við miðvörðinn William Gallas. Gallas lék með Chelsea á árunum 2001-2006 en þá gekk hann til liðs við Arsenal. Hann lék með Arsenal í 4 ár, eða þar til sl. vor þegar samningur hans rann út hjá þeim. Hann kemur því á frjálsri sölu til Tottenham og skrifaði undir árssamning eins og áður kom fram. Gallas verður góð viðbót við hópinn enda með mikla reynslu.

 

Við bjóðum Gallas velkominn til Tottenham.

Góður útisigur

0

Tottenham heimsótti Stoke á Britannia Stadium í fyrsta útileik tímabilsins. Eins og við var að búast var mikil barátta í mönnum og leikurinn nokkuð harður. Eftir nokkrar góðar tilraunir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins náðu leikmenn Tottenham að koma boltanum í net Stoke manna á 19.mínútu með marki frá Bale, en nokkur heppni var yfir því marki því Shawcross skallaði boltann í Bale og þaðan fór hann í netið. Stoke menn voru þó ekki lengi að svara fyrir sig því aðeins 6 mínútum síðar skoraði Fuller eftir að varnarmönnum Tottenham mistókst að koma boltanum frá eftir hornspyrnu Stoke manna. Þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum náði Bale að koma Tottenham aftur yfir með marki sem mun án efa koma til greina sem mark tímabilsins en hann þrumaði boltanum viðstöðulaust í netið eftir góða fyrirgjöf frá Lennon. Í síðari hálfleik reyndu Stoke menn að jafna leikinn og í uppbótartíma héldu þeir að svo hefði gerst þegar boltinn virtist fara inn fyrir marklínuna. Upptökur sýndu að svo var, en dómarinn sá ekki atvikið og markið því ekki dæmt. Tottenham fór því með sigur af hólmi 2-1.

Young Boys 3 – Tottenham 2

0

Tottenham spilaði sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu þegar liðið heimsótti Young Boys Bern frá Sviss í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í Meistardeildinni. Fyrir leikinn var Tottenham talið mun sigurstranglegra en leikmenn Young Boys þögguðu niður í efasemdamönnum strax á fyrsti hálftíma leiksins. Lulic kom Young Boys yfir strax á 4. mínútu leiksins og Bienvenu bætti öðru marki við á 13.mínútu. Á 28.mínútu bættu þeir þriðja markinu við með marki frá Hochstrasser og útlitið svart fyrir leikmenn Tottenham sem virtust ekki ráða vel við gervigras vallarins. En leikmenn Tottenham náðu að svara fyrir sig með marki frá Bassong undir lok fyrri hálfleiks. Leikur Tottenham manna var mun betri í síðari hálfleik og á 83.mínútu náði Pavlyuchenko að koma boltanum í netið og minnka stöðuna í 3-2. Lengra komust leikmenn ekki þrátt fyrir ágætar tilraunir. Young Boys fara því með 3-2 forystu í seinni leikinn.

Meistaradeildin á morgun!

0

Tottenham heimsækir svissneska liðið Young Boys á morgun(þriðjudag) í fyrri leik liðanna í viðureigninni um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn hefst kl. 18:45 og verður sýndur á Ölveri, Glæsibæ. Hvetjum við alla stuðningsmenn til að mæta og horfa á leikinn í góðum hópi Spursara.

Jafnt í fyrsta leik

0

Tottenham tók á móti Manchester City í fyrsta leik tímabilsins, en þessi lið áttu í mikilli baráttu á síðasta tímabili um 4.sæti deildarinnar en þar hafði Tottenham betur. Bæði lið voru staðráðin í að byrja tímabilið vel en í fyrri hálfleik voru það leikmenn Tottenham sem réðu ferðinni. City menn gátu þakkað Hart fyrir að staðan var enn jöfn í hálfleik, en heimamenn voru í stórsókn allan fyrri hálfleikinn og fengu nokkur færi til að skora sem Hart varði, en einnig átti Bale skot í stöngina. City menn komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og var leikurinn mun jafnari. Hvorugu liðinu tókst þó að skora þrátt fyrir góðar tilraunir. Leiknum lauk því með 0-0 jafntefli og deildu því liðin með sér stigunum.

Tippleikurinn að hefjast á spjallborðinu

0

Tippleikurinn verður til staðar á spjallborðinu líkt og fyrri ár en þó með örlítið breyttu sniði. Hvetjum við fólk til að kynna sér breytt fyrirkomulag og taka sömuleiðis þátt í þessum stórskemmtileg leik sem verður á dagskrá í allan vetur.

Markaleikur gegn Fiorentina

0

Tottenham tók á móti Fiorentina laugardaginn 7. ágúst á White Hart Lane í síðasta æfingleiknum á undirbúningstímabilinu en deildin hefst laugardaginn 14. ágúst. Tottenham fór í leikinn með sterkt lið en Harry gerði einnig nokkrar skiptingar í leiknum til að leyfa sem flestum að spila. Fiorentina komst yfir í upphafi leiks með marki frá Gillardino en Tottenham jafnaði um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Pavyluchenko. Ljajic kom Fiorentina aftur yfir 10 mínútum síðar og þannig stóð í háflleik.  Keane jafnaði leikinn fljótlega í byrjun síðari hálfleiks og skoraði einnig sigurmarkið undir lok leiks og fór Tottenham því með sigur af hólmi 3-2.

Young Boys í Meistaradeildinni

0

Dregið var í undankeppni Meistaradeildarinnar föstudaginn 6. ágúst og var Tottenham í pottinum. Tottenham menn drógust gegn svissneska liðinu Young Boys Bern og mæta þeim í fyrri viðureigninni í Sviss þann 17. ágúst og mæta þeim svo á White Hart Lane í síðari leiknum þann 25. ágúst.

Sigur í Portúgal og á Englandi

0

Tottenham spilað 2 leiki sama kvöldið þann 3. ágúst. Aðalliðið hélt til Portúgals og lék við Benfica en varaliðið mætti Ipswich á Englandi en þar léku einnig King og Pavlyuchenko ásamt yngri leikmönnum. Í Portúgal skoraði Gareth Bale eina mark leiksins og Pavlyuchenko skoraði sigurmarkið gegn  Ipswich á Englandi. Báðum leikjunum lauk því með sigri Tottenham 0-1.

Stórtap gegn Villareal

0

Tottenham tók á móti Villareal í vináttuleik á White Hart Lane þann 29. júlí sl. Flestir leikmenn fengu að taka þátt í þessum leik, en Harry skipti algjörlega um lið í hálfleik. Var þetta einnig fyrsti leikurinn hjá þeim leikmönnum sem tóku þátt á Heimsmeistaramótinu í sumar, en þeir hafa nú snúið tilbaka til æfinga eftir smá sumarfrí. Leikmenn Villareal tóku strax völdin og leiddu í hálfleik með 2 mörkum gegn engu og var það Rossi sem skoraði bæði mörkin. Giovani minnkaði muninn fyrir Tottenham í síðari hálfleik en Rossi og Ruben bættu svo við mörkum fyrir Villareal og fóru þeir því með sigur af hólmi 1-4.

Nýjustu fréttirnar