Page 32

Sigur gegn Úlfunum

0

Tottenham fékk Wolves í heimsókn í leik helgarinnar en liðið átti harma að hefna frá síðasta tímabili því Úlfarnir unnu báðar viðureignir liðanna í deildinni. Útlitið var þó ekki gott því Úlfarnir náðu forystu í leiknum á lokamínútum fyrri hálfleiks með marki frá Fletcher. En stuttu eftir markið gerði Harry skiptingu, Kaboul fór af velli vegna meiðsla og Hutton kom inná í hans stað og átti þessi skipting eftir að borga sig. Á 75.mínútu var Hutton felldur innan vítateigs og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi víti. Van der Vaart steig á punktinn og skoraði af öryggi. Síðustu mínútur leiksins voru svo hörkuspennandi en Pavlyuchenko náði að koma Tottenham yfir á 87.mínútu og Hutton gjörtryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Lokatölur því 3-1 Tottenham í vil.

Jafnt í fyrsta Meistaradeildarleiknum

0

Tottenham spilaði sinn fyrsta leik í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þegar liðið heimsótti Werder Bremen á Weserstadion leikvanginn. Tottenham fékk óskabyrjun því eftir aðeins 20 mínútna leik var liðið komið með tveggja marka forystu, fyrsta markið var sjálfsmark hjá Pasanen en það síðara skoraði Peter Crouch. En stuttu fyrir hálfleik náðu Bremen menn að minnka muninn með marki frá Almeida. Bremen menn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og náðu að jafna metin á upphafsmínútunum með marki frá Marin. Fleiri urðu mörkin ekki og leiknum lauk því með 2-2 jafntefli. Leik Inter og Twente sem einnig eru í A riðli með Tottenham og Bremen lauk sömuleiðis 2-2 og eru því öll liðin jöfn með 1 stig og sömu markatölu eftir fyrstu umferð.

WBA 1 – Spurs 1

0

Tottenham heimsótti WBA á heimavöll þeirra, Hawthorns í umferð helgarinnar. Tveir nýir leikmenn Tottenham spiluðu sinn fyrsta leik, en það voru þeir William Gallas og Rafael Van der Vaart, en Stipe Pletikosa tók sæti á bekknum. Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn mun betur og á 27. mínútu skoraði Modric fyrsta mark leiksins. Modric þurfti svo að fara meiddur af velli stuttu síðar. Undir lok fyrri hálfleiks náðu þó WBA menn að jafna leikinn með marki frá Brunt eftir vandræðagang í vörn Tottenham. Bæði lið áttu góðar tilraunir í síðari hálfleik en hvorugu tókst að skora og því deildu liðin með sér stigunum og lokastaðan 1-1.

Defoe á skotskónum en Dawson á hækjum.

0

Landsleikur Englands gegn Búlgaríu á dögunum reyndist áhrifaríkur hvað leikmenn Tottenham varðar. Góðu fréttirnar eru þær að Defoe virðist í fínu formi. Á dögunum benti allt til þess að Defoe væri á leiðinni í aðgerð sem myndi halda honum frá fótboltanum í nokkrar vikur. Fréttir bárust svo á dögunum að aðgerðinni yrði frestað. Svo virðist sem meiðslin trufli Defoe ekkert of mikið því hann skoraði þrennu gegn Búlgaríu um helgina.

 

Slæmu fréttirnar eru hinsvegar þær að Michael Dawson meiddist illa í leiknum bæði á hné og ökla og verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar.  

Van Der Vaart keyptur

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hefði gengi frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Rafael van der Vaart frá Real Madrid. Félagaskiptaglugga leikmanna lokaði kl.17 að íslenskum tíma í gær og stuttu fyrir þann tíma bárust fréttir þess efnis að Tottenham væri að fá van der Vaart á láni frá Real Madrid (síðar kom í ljós að um var að ræða sölu, ekki lánssamning). Það voru því æsispennandi lokamínútur á glugganum því óvíst var hvort tilskyldir pappírar hefðu farið í gegn í tæka tíð. Það kom svo í ljós að efasemdir voru uppi um að samningurinn hefði gengið í gegn og þurfti því að úrskurða um það á fundi forráðamanna Úrvalsdeildarinnar í dag. Grænt ljós fékkst svo á félagaskiptin eftir fundinn og hefur Tottenham því fest kaup á honum fyrir 8 milljónir punda. Van der Vaart hóf feril sinn hjá Ajax en þaðan hélt hann til Hamburg árið 2005. Eftir þrjú ár hjá Hamburg var hann seldur til Real Madrid en gengur nú til liðs við Tottenham.

 

Við bjóðum van der Vaart velkominn til Tottenham

Pletikosa á lánssamningi

0

Króatíski markvörðurinn Stipe Pletikosa hefur gengið til liðs við félagið frá Spartak Moskvu á eins árs lánssamningi. Hinn 31 árs gamli markvörður hóf feril sinn með Hajduk Split en gekk til liðs við Shakhtar Donetsk árið 2003. Eftir 4 ár hjá þeim gekk hann til liðs við Spartak Moskvu árið 2007.

 

Við bjóðum Pletikosa velkominn til Tottenham.

Spurs 0 – Wigan 1

0

Tottenham tók á móti Wigan á laugardaginn í 3.umferð úrvalsdeildarinnar. Eitthvað voru leikmenn Tottenham með hugann við annað en leikinn, mögulega sat sigurinn í meistaradeildinni enn í mönnum eða jafnvel vanmátu leikmenn Tottenham Wigan menn eftir stórsigur liðsins á þeim á síðasta ári. Leikmenn virtust aldrei ná sér á strik í leiknum og áttu þeir í erfiðleikum með að brjóta á bak þétta vörn Wigan manna. Undir lok leiksins færðu Wigan menn sig svo framar á völlinn og uppskáru mark þegar 8 mínútur voru til leiksloka, og var það Rodallega sem skoraði mark þeirra. Leikmenn Tottenham reyndu að jafna leikinn en það tókst ekki og því hirtu Wigan menn öll stigin.

 

Dregið í Carling Cup

0

Dregið var í 3. umferð Carling Cup deildarbikarsins í dag. Tottenham tekur á móti erkifjendum og nágrönnum sínum í Arsenal á White Hart Lane  og fer leikurinn fram þriðjudaginn 21. september.

Dregið í Meistaradeildinni

0

Dregið hefur verið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og var Tottenham í þriðja styrkleikaflokki. Tottenham var dregið í riðil A ásamt ítalska liðinu Inter Milan, þýska liðinu Werder Bremen og hollenska liðinu FC Twente.

Tottenham 4 – Young Boys 0

0

Tottenham tók á móti Young Boys á White Hart Lane í síðari leik liðanna í umspili um sæti í Meistaradeildinni. Young Boys höfðu betur í fyrri viðureigninni, 3-2, sem þýddi að leikmenn Tottenham vissu að þeir yrðu að skora í leiknum. Það tók þá ekki nema um 5 mínútur að skora fyrsta mark leiksins, en það var Crouch sem skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bale. Staðan samanlagt var því orðin jöfn 3-3. Þegar rúmlega hálftími var liðinn af leiknum átti Bale aftur góða fyrirgjöf inn í teiginn en í þetta skipti var það Defoe sem kom boltanum í netið og þar með Tottenham yfir í viðureigninni. Young Boys fengu 2 ágæt færi í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora. Í síðari hálfleik reyndu Young Boys að minnka muninn en leikmenn Tottenham tóku fljótt völdin. Crouch bætti við öðru marki með skalla eftir aðra góða fyrirgjöf frá Bale. Bale var svo aftur í eldlínunni í síðasta markinu en hann var þá felldur innan vítateigs og dómarinn dæmdi víti auk þess sem leikmaður Young Boys fékk rauða spjaldið. Crouch steig á vítapunktinn og átti ekki í vandræðum með að fullkomna þrennu sína og gjörtryggja Tottenham farseðilinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Nýjustu fréttirnar