Page 38

Naughton lánaður, Archibald-Henville seldur

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Middlesbrough um lánssamning á Kyle Naughton. Naughton kom til liðsins sl. sumar en hefur ekki fengið að spila mikið enda mikil barátta um stöður í liðinu. Hann hefur þó spilað 3 leiki fyrir félagið en hefur nú verið lánaður til Middlesbrough út tímabilið til þess að öðlast meiri leikreynslu.

 

Félagið tilkynnti einnig að það hefði komist að samkomulagi við Exeter um kaup á Troy Archibald-Henville. Hann fór upphaflega á lánssamningi til þeirra í janúar 2009 og stóð sig vel þar. Í júlí 2009 gekk hann aftur til liðs við þá á lánssamningi en nú hafa félögin komist að samkomulagi um kaup á leikmanninum. Við óskukm Archibald-Henville alls hins besta í framtíðinni.

Birmingham 1 – Spurs 1

0

Tottenham heimsótti Birmingham á St. Andrews leikvanginn í leik helgarinnar. Eiður Smári, sem gekk frá lánssamningi við liðið í sl. viku, var ekki í leikmannahópi liðsins í þetta skiptið enda einungis búinn að mæta á eina æfingu hjá liðinu. Birmingham menn hafa komið nokkuð á óvart á þessu tímabili með góðri frammistöðu og eru eins og er rétt á eftir þeim hópi liða sem berjast hvað harðast um 4. sætið. Tottenham sat enn í 4.sætinu fyrir umferðina en baráttan er hörð og því ekkert rúm fyrir mistök. Lengi vel stefndi í Tottenham sigur í þessum leik, en á fyrstu mínútu uppbótartíma náðu Birmingham að jafna leikinn og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli. Mark Tottenham skoraði Jermain Defoe.

Kaboul snýr aftur til Spurs

0

Tottenham Hotspur hefur nú staðfest endurkomu Younes Kaboul til Tottenham. Kaboul kom fyrst til Tottenham 5 júlí árið 2007 frá Auxerre í Frakklandi. Hann spilaði 29 leiki með liðinu og skoraði í þeim 4 mörk. Í ágúst 2008 var Kaboul seldur til Portsmouth þar sem hann spilaði 50 leiki og skoraði 5 mörk. Kaboul er þar með 4 leikmaðurinn sem Redknapp kaupir frá Portsmouth á einu ári. Fyrir hafa þeir Defoe, Crouch og Kranjcar komið til Tottenham frá Portsmouth frá því í janúar í fyrra.

 

Við bjóðum Kaboul að sjálfsögðu velkominn aftur til Tottenham.

Eiður Smári kominn til Tottenham

0

Það er okkur hjá Tottenhamklúbbnum á Íslandi sannur heiður að fá að tilkynna að Eiður Smári, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Mónakó hefur skrifað undir lánssamning við Tottenham út þessa leiktíð. Harry Redknapp stjóri Tottenham tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag. Eiður sem hefur ekki verið í náðinni hjá Mónakó virtist fyrir nokkrum dögum vera á leið til West Ham. Í dag föstudag var hinsvegar gengið frá lánsamningi hans við Tottenham. Eiður er þar með þriðji Íslendingurinn til að spila fyrir lið Tottenham. Fyrir hafa þeir Guðni Bergsson og Emil Hallfreðsson spilað með undir merkjum Tottenham. Segja má að Eiður sé að láta æskudrauminn rætast þar sem hann var stuðningsmaður Spurs á æskuárunum.  Ljóst er á viðtölum við Harry Redknapp að Eiður er í miklum metum hjá honum og telur Harry Eið gefa liðinu aukna möguleika á að spila mismunandi leikkerfi.

Við hjá Tottenhamklúbbnum á Íslandi bjóðum Eið Smára hjartanlega velkominn til Tottenham og óskum honum góðs gengis með liðinu í vetur.

O’Hara snýr aftur til Portsmouth

0

Jamie O’Hara hefur nú snúið aftur á lánssamningi til Portsmouth út þessa leiktíð. O’Hara sem spilað hefur með Portsmouth í vetur þurfti að snúa aftur til Tottenham þann 15 janúar þar sem fjárhagsvandræði Portsmouth komu í veg fyrir að þeir gætu framlengt samninginn við hann. Portsmouth hefur nú fengið grænt ljós á að fá leikmenn á lánssamningi og var það fyrsta verk þeirra að fá O’Hara aftur til sín. Við óskum O’Hara góðs gengis á næstu mánuðum.

Spurs 2 – Fulham 0

0

Tottenham tók á móti Fulham á White Hart Lane í vikunni. Fulham menn hafa ekki náð að fylgja eftir góðum árangri á síðustu leiktíð þegar þeir náðu að tryggja sér þátttöku í Evrópudeildinni, eins og keppnin kallast nú. Liðið hefur verið að berjast um miðja deild á sama tíma og Tottenham á í hörku baráttu um 4. sæti deildarinnar og mátti alls ekki við því að tapa stigum í þessari viðureign. Leiknum lauk með sanngjörnum sigri Tottenham, 2-0 og voru það þeir Peter Crouch og David Bentley sem skoruðu mörkin, sá síðarnefndi beint úr aukaspyrnu.

Dregið í FA bikarnum

0

Dregið hefur verið í 5.umferð FA bikarsins og mun Tottenham mæta Bolton á Reebok Stadium ef þeir ná að leggja Leeds að velli í endurspili þeirra þann 3. febrúar nk.

Jafnt í bikarslag á White Hart Lane

0

Tottenham tók á móti Leeds á White Hart Lane í 4.umferð ensku bikarkeppninnar. Tottenham hafði lagt lið Peterborough af velli í síðustu umferð á meðan Leeds hélt í erfiða ferð á Old Trafford en náðu óvæntum sigri þar. Bæði lið voru staðráðin í að fara með sigur af hólmi og lengi vel stefndi í Tottenham sigur en á síðustu mínútunni fengu leikmenn Leeds vítaspyrnu og jöfnuðu metin 2-2. Liðin þurfa því að mætast aftur og fer sá leikur fram á Elland Road, miðvikudaginn 3.febrúar.

Tap gegn Liverpool

0

Tottenham heimsótti Liverpool á Anfield þann 20. janúar en leikurinn átti að fara fram 10 dögum áður, en var frestað vegna slæmrar veðráttu. Bæði liðin voru ákveðin í að ná öllum þremur stigunum enda að berjast á svipuðum stað í deildinni og mikilvægt að hafa stig af helstu keppinautunum. Lykilmenn voru fjarverandi í báðum liðum vegna meiðsla. Liverpool hafði svo sigur að lokum 2-0 þar sem Dirk Kuyt skoraði bæði mörk Liverpool manna.

Spurs 0 – Hull 0

0

Tottenham tók á móti Hull í fyrsta deildarleiknum á nýju ári, en sem kunnugt er var leik liðsins um síðustu helgi frestað sökum veðurs. Leik Hull var sömuleiðis frestað svo að bæði liðin höfðu fengið 2 vikna frí frá leikjum. Hull þurfti nauðsynlega á stigum að halda enda í hörkubaráttu í botnsætum deildarinnar en sömuleiðis var nauðsynlegt fyrir leikmenn Tottenham að hala inn stig í baráttunni um meistaradeildarsætin. Þrátt fyrir næg marktækifæri í leiknum, aðallega hjá heimamönnum, náði hvorugt liðið að skora og lauk því leiknum með 0-0 jafntefli. Skiptu liðin því með sér stigunum úr þessari viðureign.

Nýjustu fréttirnar