Page 53

Sigur í Carling Cup

0

Tottenham sigraði Liverpool í 16 liða úrslitum Carling Cup á White Hart Lane. Leiknum lauk með 4-2 sigri Tottenham þar sem Campbell og Bent skoruðu 2 mörk hvor en Plessis og Hyypia skoruðu mörk Liverpool. Tottenham er því komið áfram í 8 liða úrslit bikarsins og eigar þar titil að verja.

Harry gerði hvorki meira né minna en 7 breytingar á liðinu frá leiknum gegn Manchester City á sunnudaginn sl. Liðið var skipað þeim Gomes í marki og Hutton, Dawson, Corluka og Bale í vörninni. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Huddlestone, Zokora og O´Hara og frammi þeir Campbell og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gunter, Rocha, Boateng, Bentley, Modric og Bent. Harry lagði upp með leikskipulagið 4-4-2 í þessum leik.

     Leikmenn Tottenham komu til leiks hungraðir í enn einn sigurinn og byrjuðu leikinn mun betur. Á fyrstu fimm mínútunum munaði litlu að Pavlyuchenko næði að skalla fyrirgjöf frá Lennon og sömuleiðis að Campbell næði til boltans eftir sendingu frá Huddlestone en það tókst ekki. Á 19.mínútu átti Lennon skot að mari sem Agger náði að koma í veg fyrir og úr hornspyrnunni munaði litlu að Pavlyuchenko næði að skalla boltann framhjá Cavalieri. Leikmenn Tottenham voru mun betri aðilinn og fengu leikmenn Liverpool fá tækifæri í fyrri hálfleiknum. Það var svo á 38.mínútu að Tottenham náði loksins að koma boltanum í net Liverpool manna eftir hverja sóknina á fætur annarri. Bale hljóp upp vinstri kantinn og gaf svo á Campbell sem náði að gefa boltann fyrir markið frá endalínu vallarins og þar var Pavlyuchenko rétt staðsettur og skaut boltanum í gegnum klofið á Cavalieri í markinu. Stuttu síðar átti Campbell aðra góða sendingu, í þetta skiptið á O´Hara en Cavalieri varði vel. En á 42.mínútu bættu leikmenn Tottenham við marki. O´Hara gaf háan bolta inn í teiginn og Cavalieri hljóp út í átt að boltanum en misreiknaði sig eitthvað, Campbell náði boltanum og skoraði í autt markið. Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið eftir að hann kom á lánssamningi frá Manchester United og fagnaði hann gífurlega. Staðan því orðin 2-0. En leikmenn Spurs voru ekki hættir og á lokamínútum fyrri hálfleiks skallaði Campbell boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Lennon og staðan því 3-0 í hálfleik.

     Leikmenn Liverpool voru nú ekki á því að gefast upp án baráttu og minnkuðu muninn eftir aðeins um fimm mínútna leik í seinni hálfleik. Liverpool fékk hornspyrnu sem Babel tók og gaf fyrir markið þar sem Plessis skallaði hann í markið framhjá Gomes. En leikmenn Tottenham voru nú ekki á því að hleypa Liverpool mönnum inn í leikinn og á 52.mínútu skoraði Pavlyuchenko fjórða mark liðsins og annað mark sitt í leiknum. O´Hara gaf sendingu á Zokora sem hljóp upp allan völlinn vinstra megin og skaut að marki en boltinn fór í markvörð Liverpool og þaðan út í teiginn þar sem Pavlyuchenko var réttur maður á réttum stað og kom boltanum í netið. Liverpool menn náðu svo að bæta við öðru marki sem einnig kom eftir hornspyrnu en Gomes átti misheppnað úthlaup og Hyypia náði að skalla boltann í netið. Þegar um 20 mínútur voru til leiksloka gerðist alvarlegt atvik sem tafði leikinn í um tíu mínútur. Gomes átti úthlaup í teignum þegar Degen var kominn í gott færi. Gomes náði boltanum en í leiðinni fékk hann spark í hausinn frá Degen og virtist rotast við það. Hann var borinn af velli við lófaklapp frá stuðningsmönnum beggja liða og fyrstu fréttir herma að hann sé í lagi og muni jafna sig að fullu. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka fékk Pavlyuchenko gott færi til að fullkomna þrennuna en Cavalieri kom í veg fyrir það. Bent og Boateng komu svo inná þegar örfáar mínútur voru til loka leiks en lokatölur leiksins voru 4-2 fyrir Tottenham og liðið því komið áfram í 8 liða úrslitin. Með sigrinum varð Harry svo sá þjálfari sem besta byrjun hefur átt hjá félaginu í 110 ár en þar á undan var það Frank nokkur Brettell.

Lið Spurs: Gomes (Cesar), Hutton, Dawson, Corluka, Bale, Lennon, Zokora, Huddlestone, O´Hara, Campbell(Bent), Pavlyuchenko (Boateng). Ónotaðir varamenn: Gunter, Rocha, Bentley, Modric.

Fyrsti útisigurinn á tímabilinu

0

Tottenham vann sinn fyrsta útisigur á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Manchester City. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham, þar sem Bent skoraði bæði mörk Tottenham en Robinho skoraði mark City manna. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, Fernandes og Dunne hjá City og Ekotto hjá Tottenham. Með sigrinum lyfti liðið sér af botni deildarinnar.

Harry gerði breytingu á liðinu frá leiknum gegn Dinamo Zagreb í vikunni, enda þétt leikjaprógrammið um þessar mundir. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna en vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Huddlestone, Modric og Zokora og var Bent því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Dawson, Hutton, O´Hara, Pavlyuchenko, Campbell og Lennon.

     Leikmenn Tottenham mættu til leiks fullir sjálfstraust eftir gott gengi í síðustu leikjum. Fyrsta færi leiksins fékk Woodgate, þótt ótrúlegt megi virðast, en skot hans fór framhjá markinu. Modric fékk svo upplagt færi eftir 9 mínútna leik en skot hans fór naumlega framhjá markinu hægra megin. En það var svo gegn gangi leiksins að City menn komust yfir í leiknum. Eftir 15 mínútur fékk Vassell boltann hægra megin í vítateignum og skaut að marki en Gomes varði boltann. Hann náði hins vegar ekki að halda boltanum og barst boltinn fyrir fæturna á Robinho sem skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Ireland átti svo annað færi stuttu síðar sem Gomes varði vel. En á 26. mínútu fékk Fernandes, leikmaður City, sitt annað gula spjald í leiknum fyrir ljóta tæklingu á Bentley, og fékk þar af leiðandi reisupassann og því leikmenn City orðnir 10 á vellinum. Modric átti svo glæsilegt skot að marki sem Hart þurfti að hafa sig allan við til að verja. En þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum jafnaði Bent leikinn fyrir Tottenham. Modric sendi langan bolta fram völlinn og Dunne virtist ætla að taka við boltanum en missti hann frá sér og Bent, sem beið fyrir aftan hann, varð fyrri til boltans, hljóp að markinu og skoraði framhjá Hart. Staðan því orðin jöfn 1-1. Leikmenn Tottenham voru svo mun sterkari aðilinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en þó voru ekki fleiri mörk skoruð í þeim hálfleik.

     Bæði lið komu til leiks í síðari hálfleik staðráðin í að skora og því spilaður góður sóknarbolti. Modric var stórhættulegur fyrir framan mark City manna, með eitraðar sendingar og hnitmiðuð skot, en inn vildi boltinn þó ekki. City menn vörðust vel og áttu svo nokkur hraðaupphlaup að marki Tottenham en Gomes var vel vakandi í markinu. En á 64.mínútu sendi Huddlestone langa sendingu fram völlinn á Jenas sem staðsettur var á mörkum vítateigsins fyrir framan mitt markið. Hann náði þó ekki að koma sér í skotstöðu þar sem varnarmenn City voru komnir að honum en hann gaf góða sendingu til hægri á Bent sem kom hlaupandi og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Hart og var þetta 11. mark hans á tímabilinu. Staðan því orðin 2-1 fyrir Tottenham. Stuttu síðar gerði Huddlestone svo tilraun að marki með einu af sínum föstu langskotum en í þetta skipti varði Hart. Á 71.mínútu gerði Harry sína einu skiptingu í leiknum, Modric fór af velli og Lennon kom inná í hans stað. Leikmenn City komust svo aðeins inn í leikinn og gerðu tilraun til að jafna. Robinho fékk 2 góð færi en Gomes var vel vakandi í markinu og varði vel. Á 83.mínútu fækkaði enn í liði City þegar Dunne fékk beint rautt spjald eftir að hafa brotið á Bent sem var kominn einn inn fyrir vörn City. Leikmenn Tottenham náðu þó ekki að nýta sér liðsmuninn og gera algjörlega út um leikinn. Leikmenn City reyndu áfram að skora jöfnunarmarkið og þegar rúm mínúta var til leiksloka fékk Ekotto sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. En hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og því fóru leikmenn Tottenham tilbaka til London með öll þrjú stigin.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Bentley, Jenas, Huddlestone, Modric (Lennon), Zokora, Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Dawson, Hutton, O´Hara, Pavlyuchenko, Campbell.

Þjálfarateymið komið á hreint

0

Harry Redknapp hefur lokið við að setja saman teymi af góðum þjálfurum sér til aðstoðar. Kevin Bond kom fljótlega eftir ráðning Harry og nú hefur Joe Jordan, sem vann með honum hjá Portsmouth, gengið til liðs við þjálfarateymið. Clive Allen sem hefur séð um varaliðið mun einnig taka þátt í þjálfun aðalliðsins. Þar að auki koma fyrrum Spursararnir Tim Sherwood og Les Ferdinand að þjálfun liðsins að einhverju leyti þar sem þeir munu miðla reynslu sinni og kunnáttu. Við bjóðum þá alla velkomna til liðsins og vonandi verður framtíðin björt undir þeirra stjórn.

Markaregn á White Hart Lane

0

Tottenham lagði Dinamo Zagreb á White Hart Lane í öðrum leik liðsins í riðlakeppni UEFA Cup. Leiknum lauk með stórsigri Tottenham 4-0 í leik þar sem Króatísku meistararnir áttu aldrei möguleika. Mörk Tottenham skoruðu Bent (þrenna) og Huddlestone en þetta var fyrsta þrenna Bent fyrir Tottenham. Liðið er því komið með 3 stig í riðlinum þegar tveimur af fjórum leikjum er lokið.

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Liverpool. Liðið var skipað þeim Gomes í markinu og Hutton, Dawson, Woodgate og Bale í vörninni. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora, Modric og Lennon og Bent því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gilberto, Ekotto, Campbell, Gunter, Dervite og Bostock en þeir tveir síðast nefndu hafa staðið sig vel með varaliðinu og fengu því sæti á bekknum hjá aðalliðinu.

     Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til leiks, fullir sjálfstraust eftir gott gengi í liðinni viku og hungraðir í stig í evrópukeppninni. Þeir sóttu stíft að marki Zagreb og áttu t.a.m. Huddlestone skot í hliðarnetið á 8.mínútu og Modric skot að markinu á 22.mínútu sem fór því miður í Dawson og framhjá. Leikmenn Dinamo fengu þó aukaspyrnu rétt fyrir utan teig en skot þeirra fór rétt framhjá markinu. En eftir hálftímaleik kom fyrsta markið. Modric hljóp upp að endamörkum vinstra megin við markið og gaf fyrir markið. Boltinn barst að Huddlestone sem rétt missti af honum en fyrir aftan hann var Bent sem náði til boltans og skaut boltanum í netið framhjá markverði Zagreb. Einungis þremur mínútum síðar skoraði hann á ný, annað mark liðsins. Huddlestone fékk boltann rétt fyrir utan teiginn og það leit út fyrir að hann ætlaði að þruma boltanum að marki. En í stað sendi hann boltann í gegnum vörnina frábærlega, beint á Bent sem renndi boltanum undir markvörð Dinamo. Staðan orðin 2-0 og Tottenham mun betri í leiknum. Leikmenn Dinamo fengu þó ágætis færi rétt undir lok fyrri hálfleiks en Gomes varði vel skot Balabans. Staðan í hálfleik var því 2-0 fyrir heimamenn.

     Leikmenn Tottenham ætluðu sér svo sannarlega ekki að sætta sig við þessi 2 mörk og komu tilbaka út á völlinn ákveðnir í að bæta við. Eftir tæpar 60 mínútur átti Bentley skot að marki sem Kelava í marki Zagreb varði vel í innkast. Úr innkastinu barst boltinn til Modric sem skaut föstu skoti að marki en færið var of þröngt enda nálægt endamörkum vallarins. En Kelava varði í horn og sú hornspyrna átti eftir að kosta þá. Bentley tók hornspyrnuna og gaf út á völlinn þar sem Huddlestone beið vel fyrir utan teiginn. Huddlestone tók vel á móti boltanum og skaut þrumuskoti að marki sem hafnaði neðst í netinu hægra megin. Glæsilegt mark frá Huddlestone og staðan orðin 3-0. Á 67.mínútu skoraði Bent svo mark eftir sendingu frá Huddlestone en markið var réttilega dæmt af sökum rangstöðu. Þremur mínútum síðar var hins vegar ekkert út á mark Bent að setja þegar hann fullkomnaði þrennu sína eftir enn eina góða sendingu frá Huddlestone. Þegar korter var til leiksloka gerði Harry sína fyrstu skiptingu þegar Modric fór af velli og fékk lof frá stuðningsmönnum og inná í hans stað kom Campbell. Fjórum mínútum síðar var svo komið að sögulegri stund hjá Tottenham þegar Redknapp gerði næstu breytingu á liðinu. Bentley fór af velli og inná í hans stað kom hinn efnilegi John Bostock og varð hann þar með yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir aðalliðið, aðeins 16 ára og 295 daga gamall. Og hann nýtti sér svo sannarlega sinn fyrsta leik til að sýna hvað í honum býr og átti gott skot að marki sem fór rétt framhjá hægri stönginni. Þriðja skiptingin kom svo þegar 5 mínútur voru til leiksloka þegar Gunter kom inná í stað Woodgate. Fleiri mörk voru ekki skoruð og lauk leiknum því með 4-0 sigri Tottenham þar sem Bent og Huddlestone fóru á kostum ásamt góðri spilamennsku allra í liðinu.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Woodgate(Gunter), Bale, Bentley(Bostock), Zokora, Huddlestone, Lennon, Modric(Campbell), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Ekotto, Dervite.

Sigur gegn toppliði Liverpool

0

Tottenham lagði topplið Liverpool í æsispennandi leik þegar Liverpool kom í heimsókn á White Hart Lane. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna með mörkum frá Pavlyuchenko og sjálfsmarki Carragher en Dirk Kuyt skoraði mark Liverpool. Með sigrinum lyfti Tottenham sér af botni deildarinnar, að minnsta kost í einhvern tíma.

Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá jafnteflisleiknum gegn Arsenal fyrir leikinn gegn Liverpool. King, O´Hara, Bent og Zokora komu inn í stað Hutton, Bale, Jenas og Pavlyuchenko. Liðið var því þannig skipað að Gomes var í marki og vörnin skipuð þeim Corluka, King, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora, O´Hara og Modric og var Bent því einn frammi. Á bekknum sátu Cesar, Bale, Campbell, Gunter, Hutton, Lennon og Pavlyuchenko.

     Leikurinn var fjörugur strax frá fyrstu mínútu og ekki leið langur tími þar til fyrsta mark leiksins kom. Á þriðju mínútu leiksins fengu Liverpool menn innkast á vallarhelmingi Tottenham og barst boltinn til Robbie Keane. Hann náði að leika á vörn Tottenham en missti boltann frá sér. Dirk Kuyt var réttur maður á réttum stað, náði boltanum og hamraði hann í netið frá hægri helmingi markteigsins. Staðan því orðin 0-1 fyrir toppliði deildarinnar og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir leikmenn Tottenham. Stuttu síðar munaði litlu að Bent skoraði sjálfsmark eftir að hann reyndi að hreinsa eftir hornspyrnu, boltinn fór í öfuga átt en Gomes náði að verja skotið. Fyrri hluta fyrri hálfleiks voru leikmenn Liverpool mun aðgangsharðari en náðu þó ekki að skapa sér mikið af færum. Leikmenn Tottenham neituðu að gefast upp enda sýndi það sig í leiknum gegn Arsenal að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar til leiksloka. Tottenham menn sóttu í sig veðrið og komust aðeins betur inn í leikinn. Gott samspil milli Modric, Bentley og Corluka varð til þess að fín fyrirgjöf kom inn í teiginn en enginn náði til boltans. Modric átti svo skot að marki þegar stutt var til loka fyrri hálfleiks en Reina varði í marki Liverpool. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og staðan því 0-1 í hálfleik.

     Redknapp vissi að breytinga var þörf í hálfleik ef liðið ætlaði að ná einhverjum stigum út úr þessum leik. Hann kaus því að breyta um leikskipulag og fara úr 4-5-1 í 4-4-2 og því var þörf á skiptingum. Hutton og Pavlyuchenko komu inná fyrir Ekotto og O´Hara. Corluka fór þá í vinstri bakvörðinn og Hutton í þann hægri og Pavlyuchenko smellti sér í framlínuna með Bent. Pavlyuchenko var ekki lengi að koma sér í færi og átti gott skot að marki en boltinn fór þó framhjá. En þá tóku leikmenn Liverpool völdin í um 15 mínútur og sóttu stíft að marki Tottenham. Á 50.mínútu gaf Kuyt fyrirgjöf inn í teiginn sem Gerrard náði og skaut að marki, boltinn fór í King á leið sinni á rammann og Gomes náði að ýta við boltanum með fingurgómunum sem varð til þess að boltinn fór í stöngina og leikmenn Spurs hreinsuðu frá. Þremur mínútum síðar áttu þeir svo skot í þverslánna eftir misskilning milli Gomes og King. Gomes gaf boltann á King en mjög svo lausa sendingu og Keane komst inn í sendinguna, gaf á Gerrard sem reyndi að vippa yfir Gomes en boltinn hafnaði ofan á þverslánni. Kuyt átti svo skot að marki sem fór framhjá og sömuleiðis fór skot Gerrard úr aukaspyrnu sem Alonso náði að skalla framhjá markinu. Gerrard og Riera áttu líka skot að marki en inn fór boltinn ekki. Það var svo á 69.mínútu að Tottenham jafnaði leikinn algjörlega gegn gangi leiksins. Bentley tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn og þar stökk manna hæst Jamie Carragher og skallaði boltann í eigið net og staðan því orðin jöfn. Var þetta þriðja sjálfsmark hans á ferlinum gegn Tottenham. Staðan því orðin jöfn 1-1 og setti þetta leikmenn Liverpool aðeins út af laginu. Redknapp nýtti síðustu skiptinguna þegar korter var til leiksloka og fór Modric af velli og Lennon inná í hans stað. Pavlyuchenko fékk upplagt færi þegar 9 mínútur voru til leiksloka en skot hans fór yfir markið. En leikmenn Tottenham sýndu enn á ný að leikur er aldrei búinn fyrr en dómarinn flautar líkt og í liðinni viku. Bentley tók á sprett upp að vinstri helmingi vítateigs Liverpool manna og skaut þrumuskoti að markinu. Reina rétt náði að verja boltann en Bent náði frákastinu við endalínuna, gaf fyrir markið á Pavlyuchenko sem staðsettur var hægra megin í markteignum og hann kom boltanum snyrtilega framhjá Reina í markinu. Staðan orðin 2-1 fyrir heimamenn og stuðningsmenn fögnuðu gríðarlega. Aðstoðardómarinn gaf til kynna að 4 mínútum væri bætt við leikinn en raunin varð að 5 og hálfri mínútu var bætt við en Liverpool menn komu boltanum þó ekki framhjá Gomes og hirtu leikmenn Tottenham því öll stigin í þessum leik milli botnliðsins og toppliðsins. Sigurinn varð til þess að liðið lyfti sér af botni deildarinnar en verði önnur úrslit liðinu óhagstæð þá gæti liðið endað þar á ný eftir umferðina. Hins vegar saxaði liðið á forskot hinna liðanna og því allt orðið opið í neðri hluta deildarinnar.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King , Ekotto (Hutton), Bentley, Zokora, Huddlestone, O´Hara (Pavlyuchenko), Modric (Lennon), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Campbell, Gunter.

Nýr völlur

0

Tottenham gaf það út í morgun að félagið hyggst byggja nýjan leikvang sem mun taka 60 þús manns í sæti en sá leikvangur verður staðsettur á sama stað og White Hart Lane, þ.e. á svæðinu norðan við völlinn. Frekari upplýsingar um völlinn er að vænta í næsta mánuði.

Ótrúleg endurkoma

0

Tottenham og Arsenal deildu með sér stigunum í grannaslagnum í gærkveldi. Leiknum lauk með 4-4 jafntefli í ótrúlegum leik þar sem Tottenham jafnaði leikinn eftir að vera 2 mörkum undir þegar 2 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Mörk Tottenham skoruðu þeir Bentley, Bent, Jenas og Lennon en mark Bentley hlítur að teljast með mörkum umferðarinnar.

Leikurinn var fyrsti leikurinn þar sem Harry stillti sjálfur upp liðinu en Clive Allen sá um það í leiknum gegn Bolton. Tvær breytingar voru gerðar á liðinu frá síðasta leik, Woodgate kom inn fyrir King og Bale inn fyrir O´Hara. Liðið var því svo skipað. Gomes var í markinu og varnarlínan skipuð þeim Hutton, Corluka, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir Bentley, Jenas, Modric, Huddlestone og Bale og frammi var Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gunter, Zokora, O´Hara, Bent, Campbell og Lennon.

     Leikurinn var fjörugur og spennandi frá fyrstu mínútu enda mikill rígur á milli liðanna og andrúmsloftið á vellinum magnað. Á upphafsmínútunum sendi Huddlestone boltann út á vinstri kantinn á Bale sem kom sér í skotfæri en skot hans fór í hliðarnetið. Á hinum enda vallarins fékk Walcott boltann frá Adebayor og skaut að marki en boltinn fór sömuleiðis framhjá hjá honum. En á 13.mínútu leiksins kom fyrsta markið og voru það leikmenn Tottenham sem komu boltanum í netið framhjá Almunia. Boltinn var rétt innan vallarhelmings Arsenal manna og Jenas tók boltann á bringuna og lagði fyrir Bentley sem tók við boltanum og þrumaði háum bolta í átt að marki Arsenal en Almunia var kominn dálítið út úr marki sínum. Boltinn flaug yfir völlinn og small í netinu, en Almunia rétt náði að koma við hann en tókst þó ekki að verjast skotinu. Staðan því orðin 0-1 fyrir Tottenham og gífurlegur fögnuður braust út hjá stuðningsmönnum Tottenham. Hins vegar þaggaði þetta niður í stuðningsmönnum Arsenal en Bentley hafði verið púaður mikið af þeim enda uppalinn hjá Arsenal. Stuttu síðar átti van Persie möguleika á að jafna leikinn en Gomes varði skot hans og einnig var hætta við mark Tottenham eftir misheppnað úthlaup hjá Gomes en Gallas hitti ekki í markið. Eftir jafnan leik framan af náðu leikmenn Arsenal að komast betur inn í leikinn og á 37. mínútu jöfnuðu þeir leikinn. Van Persie tók hornspyrnu og Silvestre var fyrstur til boltans og skallaði boltann í fjær hornið. Staðan orðin jöfn 1-1 og var sú sama þegar flautað var til hálfleiks enda ekki fleiri mörk skoruð.

     Leikmenn Arsenal komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og enn á ný voru það föstu leikatriðin sem leikmenn Tottenham voru í vandræðum með. Van Persie tók aukaspyrnu og gaf inn í teiginn þar sem Gallas skallaði boltann í netið framhjá Gomes. Staðan því orðin 2-1 heimamönnum í vil. Leikmenn Arsenal héldu áfram að pressa og átti Gomes góða markvörslu eftir skot frá Denilson. Redknapp ákvað svo að gera breytingu á liðinu og gera þar með tilraun til að komast á ný inn í leikinn. Bale fór af velli og inná í hans stað kom Lennon. Adebayor og Bentley áttu tilraunir á mark á sitthvorum endanum sem markverðir liðanna vörðu með prýði. En á 64. mínútu bættu leikmenn Arsenal við þriðja markinu og þyngdist því róður gestanna. Nasri reyndi að vippa yfir Gomes eftir mistök í vörn Tottenham. Boltinn fór yfir Gomes en Hutton fylgdi á eftir og möguleikinn var fyrir hendi að hann næði að sparka honum í burtu. En þá kom Adebayor á spretti og náði til boltans á undan Hutton og kom þeim báðum inn í netið. Staðan því orðin 3-1 fyrir Arsenal. Redknapp gerði strax aðra breytingu á liðinu, Pavlyuchenko fór af velli og Bent inná í hans stað. Og það tók Bent ekki nema mínútu að skora mark eftir að hann var kominn inná.  Huddlestone átti þrumuskot að marki sem Almunia varði en hann náði ekki að halda boltanum og Bent var fyrstur til boltans og skoraði örugglega. Nú voru rúmlega 20 mínútur eftir af leiknum og aðeins eitt mark skildi liðin að og því eygðu leikmenn Spurs von um að jafna leikinn. En útlitið varð svartara stuttu síðar þegar Hutton gerði óþarfa varnarmistök og leikmenn Arsenal nýttu sér það. Hutton var með boltann en gaf hann aftur en þar var enginn samherji, aðeins Adebayor sem þakkaði pent fyrir sig með því að gefa fyrir markið á van Persie og hann skaut framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 4-2 og allt stefndi í stórsigur Arsenal manna enda þeir líklegri til að bæta við heldur en Spurs að minnka muninn. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var Hutton tekinn af velli enda ekki hans besti dagur í Spurstreyjunni og Gunter kom inná í hans stað. Leikmenn Tottenham neituðu þó að gefast upp og þegar 1 mínúta var eftir af venjulegum leiktíma nýtti Jenas sér mistök í vörn Arsenal og skoraði framhjá Almunia. Clichy missti boltann á hættulegum stað og Jenas var á réttum stað, hirti boltann, hljóp upp að vítateignum og þrumaði boltanum efsti í fjærhornið vinstra megin. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma sökum skiptinga og annarra tafa. Fáum hefði þó órað fyrir jafn spennandi lokamínútum því á 94. mínútu tók Modric smá áhættu og þrumaði að marki af löngu færi. Boltinn small í stönginni en Lennon var réttur maður á réttum stað, náði frákastinu og skoraði örugglega framhjá Almunia. Staðan orðin jöfn 4-4 í æsispennandi leik og leikmenn Tottenham fögnuðu gríðarlega enda ekki á hverjum degi sem liðið á slíka endurkomu. Ekki urðu mörkin fleiri og lokastaðan því 4-4 og liðin fengu því sitthvort stigið úr þessum æsispennandi grannaslag.

Lið Spurs: Gomes, Hutton (Gunter), Corluka, Woodgate, Ekotto, Bentley, Jenas, Modric, Huddlestone, Bale (Lennon), Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Zokora, O´Hara og Campbell.

Fyrsti deildarsigurinn í höfn

0

Tottenham vann sinn fyrsta sigur í deildinni þegar þeir mættu Bolton á White Hart Lane en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Ramos og þjálfarateymi hans var vikið úr starfi. Redknapp stýrði liðinu í leiknum ásamt Clive Allen og var stórmunur á liðinu frá fyrri leikjum og lauk leiknum með 2-0 sigri heimamanna. Mörk Tottenham skoruðu Pavlyuchenko og Bent úr víti en þetta var fyrsta deildarmark Pavlyuchenko fyrir félagið.

Smá breyting var gerð á liðinu frá síðasta leik. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna og vörnin var skipuð þeim Hutton, Corluka, King og Ekotto en til gamans má geta að þetta var 200. deildarleikur Ledley King fyrir félagið. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Huddlestone, Modric og O´Hara og Pavlyuchenko spilaði einn frammi. Á bekknum sátu Cesar, Zokora, Gunter, Giovanni, Campbell, Lennon og Bent.

 

Talsverður munur var á liðinu frá fyrri leikjum og var líkt og menn hefðu fengið aukið sjálfstraust og baráttuvilja. Mögulega hafa menn viljað sanna fyrir sjálfum sér, stuðningsmönnum og nýjum stjóra að meira er spunnið í liðið en stigataflan segir til um. Eftir tæplega 10 mínútna leik átti Pavlyuchenko skot að marki eftir hornspyrnu frá Bentley en markvörður Bolton varði vel. Hann gat hins vegar lítið gert á 17.mínútu þegar Bentley gaf frábæra sendingu fram völlinn á Pavlyuchenko sem smell hitti boltann og skallaði hann framhjá Jaaskelainen í markinu. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane enda í fyrsta skipti á tímabilinu sem liðið kemst yfir í leik og mörkin hafa verið af skornum skammti undanfarið. Staðan var því orðin 1-0 en leikmenn Bolton voru alls ekki á því að gefast upp. Þeir pressuðu að markinu en klaufaskapur í leikmönnum Tottenham var ekki að hjálpa til. Á 28. mínútu fékk Davies upplagt færi til að skora eftir mistök í vörn Tottenham en skot hans fór rétt framhjá. Stuttu síðar fékk Taylor gott færi en hann skaut einnig framhjá og þremur mínútum eftir það hreinsaði King af línu eftir skot frá Elmander. Leikmenn Tottenham reyndu þó að bæta við og virtust mun skárri í sóknarleik sínum en það sem af er tímabilinu. Huddlestone átti 2 góð færi undir lok fyrri hálfleiks, það fyrra var skot yfir eftir að Jaaskalainen náði ekki að halda boltanum eftir skot frá Bentley en það síðara var þrumuskot utan úr teig sem fór rétt framhjá stönginni. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik og leikmenn Tottenham fóru því í fyrsta skiptið á þessari leiktíð til búningsklefa í hálfleik með forystu.

 

Í seinni hálfleik komu leikmenn Bolton tilbaka staðráðnir í því að jafna leikinn. Róðurinn varð þó erfiðari fyrir þá á 56.mínútu þegar Gavin McCann fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum og var því sendur í sturtu. Leikmenn Tottenham nýttu sér það að Bolton menn voru dálítið slegnir út af laginu eftir brotvísunina. Modric komst í gott færi eftir frábæra samvinnu við Huddlestone en skot hans fór beint á Jaaskalainen. O´Hara fékk einnig ágætis færi en skot hans fór hátt yfir markið. Bolton menn fóru svo að sækja aðeins stífar og á 62.mínútu fékk Nolan boltann á hættulegum stað eftir misheppnaða tilraun til að hreinsa frá Gomes en skot hans fór yfir. Og stuttu síðar gerðist slíkt hið sama þegar ekki tókst að hreinsa frá og Muamba reyndi að vippa boltanum yfir Gomes í markinu en boltinn fór ofan á þaknetið. Harry ákvað að gera breytingu á liðinu og Pavlyuchenko fór af velli enda varð hann fyrir smá hnjaski í leiknum. Í stað hans kom Bent inná en einnig fór O´Hara af velli og Lennon inná í hans stað. Litlu munaði að Bent næði að skora í einni af sínum fyrstu snertingum eftir góða sendingu frá Modric en Jaaskalainen varði vel. Lennon átti einnig færi en hitti ekki boltann nógu vel. En Bent átti svo sannarlega eftir að setja sitt mark á leikinn. Jaaskalainen varði skot frá Modric en boltinn rann til hliðar í teignum og Bent var vel vakandi og hljóp á eftir boltanum. Það gerði Jaaskalainen líka og þegar hann reyndi að ná boltanum felldi hann Bent í teignum áður en hann komst til boltans og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu og gaf Jaaskalainen gult spjald fyrir mótmæli. Bent var staðráðinn í að taka spyrnuna sjálfur og skoraði örugglega framhjá Jaaskalainen og var þetta fimmta mark hans á tímabilinu. Og með markinu innsiglaði hann fyrsta sigur Tottenham í deildinni og kærkominn var hann.

 

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Corluka, King, Ekotto, Bentley, Jenas, Huddlestone, O´Hara(Lennon), Modric, Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Zokora, Gunter, Giovani, Campbell.

Ráðning Redknapp staðfest af félaginu

0

Tottenham staðfesti nú í morgun að Harry Redknapp hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins í stað Juande Ramos sem sagt var upp störfum í gærkveldi. Í yfirlýsingu frá Daniel Levy, stjórnarformanni Tottenham, á heimasíðu félagsins var það einnig tilkynnt að ekki verði ráðið í stöðu Damien Comolli sem einnig var látinn taka poka sinn í gær. Því verður fallið frá því stjórnarkerfi sem verið hefur við lýði hjá félaginu þar sem svokallaður yfirmaður knattspyrnumála hefur séð um leikmannakaupin.

Harry Redknapp tekur við liðinu

0

Harry Redknapp hefur staðfest það í viðtali við Sky news fréttastöðina að hann muni taka við liðinu. Hann mun verða á leiknum á morgun en tekur þó ekki við liðinu fyrr en á mánudaginn. Þetta hefur þó ekki verið staðfest á heimasíðu Tottenham en skv. manninum sjálfum verður hann næsti stjóri liðsins

Nýjustu fréttirnar