Page 54

Hreinsað til í brúnni

0

Tottenham tilkynnti nú í kvöld að Damien Comolli, Juande Ramos, Gus Poyet og Marco Alvarez hefði öllum verið sagt upp störfum og frá og með kvöldinu í kvöld. Clive Allen og Alex Inglethorpe munu stjórna liðinu í leiknum gegn Bolton á morgun.

Sömuleiðis var gefin út sú tilkynning að félagið hafi óskað eftir því við Portsmouth að fá að tala við Harry Redknapp varðandi stjórastöðuna og þeir hafi samþykkt þá beiðni en þó með trega.

Við þökkum þeim Comolli, Ramos, Poyet og Alvarez fyrir framlag þeirra til liðsins á þeim tíma sem þeir voru hjá félaginu.

Riðlakeppnin hefst á tapleik

0

Tottenham spilaði sinn fyrsta leik í riðlakeppni UEFA cup þegar liðið mætti ítalska liðinu Udinese á Ítalíu. Leiknum lauk með 2-0 sigri Udinese þar sem di Natale og Pepe skoruðu mörkin. Liðið er því með 0 stig í riðlinu en einungis einn leikur búinn og því nóg af stigum eftir í pottinum.

     Ramos hélt uppteknum hætti og breytti liðinu frá síðasta leik. Gomes stóð í marki og varnarlínan var skipuð þeim Hutton, King, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Zokora, O´Hara og Bale og einn frammi var Bent. Á bekknum sátu Cesar, Gilberto, Dawson, Gunter, Modric, Campbell og Giovani.

     Leikmenn Udinese byrjuðu leikinn af meiri ákveðni en leikmenn Tottenham fóru varfærnislega í leikinn. Fyrsta færi Tottenham í leiknum kom á 15.mínútu þegar Jenas hljóp upp að endamörkum og gaf fyrir á Bent sem var einn og óvaldaður inn í teig en hann skallaði boltann beint í fang markvarðarins. Hann hefði mögulega getað tekið boltann á bringuna og skotið að markinu en ómögulegt er um það að segja hvort það hefði borið betri árangur. O´Hara átti einnig tækifæri þegar hann reyndi skot af löngu færi en boltinn fór þó ekki inn. En á 22.mínútu urðu leikmenn Tottenham fyrir áfalli þegar dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Ekotto gaf boltann til baka á Gomes sem rann til og náði ekki að hreinsa. Quagliarella kom á móti honum og þegar Gomes reyndi að hreinsa boltann frá, braut hann klaufalega á Quagliarella og dómarinn dæmdi víti. Di Natale steig á vítapunktinn og skoraði örugglega framhjá Gomes þrátt fyrir að hann kastaði sér í rétt horn. Staðan því orðin 1-0 fyrir Udinese. Stuttu síðar komst Motta í ákjósanlegt færi en í þetta skiptið varði Gomes vel. Á hinum enda vallarins tók Lennon á hraðasprett upp völlinn en hrasaði áður en hann gat skotið á markið. Undir lok fyrri hálfleiks fengu leikmenn Tottenham sæmilegt færi eftir hornspyrnu frá Bale. Boltinn barst til O´Hara inni í teignum en hann var of seinn að nýta sér stöðu sína án þess að vera með varnarmann á sér og þurfti því að spila boltanum út úr teignum. Staðan í hálfleik var því 1-0 fyrir heimamenn.

     Ramos gerði eina skiptingu strax í hálfleik, Ekotto fór af velli og inná kom Modric og þar með bakkaði O´Hara aftur í vinstri bakvarðarstöðuna. Hann var þó ekki lengi í þeirri stöðu því á 57.mínútu fékk hann sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt og leikmenn Tottenham því orðnir 10.  Bale bakkaði þá í vinstri bakvarðarstöðuna. Enn varð breyting á vörninni því að Woodgate þurfti að fara af velli eftir að hafa orðið fyrir smá hnjaski og inná í hans stað kom Giovani. Zokora bakkaði þá í miðvarðarstöðuna við hlið King. Lennon fór þá á vinstri kantinn og Giovani á þann hægri. Eftir um klukkustundarleik fékk di Natale gott færi til að auka mun Udinese en Gomes náði að koma í veg fyrir það með góðri frammistöðu. Gomes var einnig vel vakandi þegar Quagliarella reyndi að koma boltanum framhjá honum. Þá var komið að Tottenham að sækja og fyrst átti King ágætan skalla eftir hornspyrnu og stuttu síðar fékk Bent upplagt færi til að jafna leikinn. Giovani tók sprett upp hægri kantinn og gaf fyrir markið á Bent. Bent skallaði boltann í átt að markinu en markvörður Udinese rétt náði til boltans og vippaði honum yfir markið. En í stað þess að jafna leikinn fengu leikmenn Udinese góða sókn sem lauk með því að Pepe skaut boltanum framhjá Gomes í markinu. Mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og lokastaðan því 2-0 fyrir Udinese.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, King, Woodgate (Giovani), Ekotto (Modric), Lennon, Jenas, Zokora, O´Hara, Bale, Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Dawson, Campbell, Gunter.

Tap í erfiðum leik

0

Tottenham tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni þegar þeir heimsóttu Stoke á Birtannia Stadium. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna í leik þar sem 2 leikmenn Tottenham fengu reisupassann. Mark Tottenham í leiknum skoraði Darren Bent en mörk Stoku skoruðu Higginbotham og Delap. Úrslitin þýða að Tottenham situr enn á botni deildarinnar með 2 stig.

     Ramos gerði sem fyrr breytingar á liðinu enda vanur því þegar evrópuleikir eru í sömu viku. Gomes stóð á milli stanganna þrátt fyrir að hafa orðið fyrir örlitlum meiðslum á æfingu í vikunni. Gleðifréttir dagsins voru þær að Hutton var kominn í liðið á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Í fyrsta sinn spiluðu þeir Hutton og Bale í bakvarðarstöðunum og á milli þeirra léku þeir Corluka og Woodgate sem miðverðir. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Zokora, Modric og Lennon og framherji dagsins var Darren Bent. Á bekknum sátu þeir Cesar, Ekotto, Dawson, Pavlyuchenko, O´Hara, Huddlestone, Campbell.

     Ekki er annað hægt að segja en að leikurinn hafi verið ansi tíðindamikill og spennandi frá fyrstu mínútunum. Eftir 7 mínútna leik var Soares nálægt þvi að koma Stoke yfir eftir sendingu frá Delap en Gomes varði vel. Delap tók svo stuttu síðar eitt af sínum þekktu innköstum en hann á það til að taka innköst sem ná vel inn að markteignum. En í þetta skiptið braut Kitson á Gomes og því varð ekkert úr þeirri sókn. Á hinum enda vallarins gaf Jenas góða sendingu á Bent en Sonko var vel vakandi og kom í veg fyrir sókn Tottenham. En þegar rúmlega stundarfjórðungur var liðinn af leiknum urðu leikmenn Tottenham fyrir áfalli og leikurinn gjörbreyttist. Soares fékk sendingu fram völlinn og Bale misreiknaði sig örlítið og var Soares við það að sleppa einn í gegn. Bale gerði þá tilraun til að ná boltanum en það mistókst og Soares féll inni í teignum og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu og gaf Bale þar að auki rautt spjald.  Higginbotham steig á vítapunktinn og skaut boltanum í netið framhjá Gomes, sem þó kastaði sér í rétt horn. Staðan því orðin 1-0 fyrir Stoke. En leikmenn Tottenham voru snöggir að svara fyrir sig. Aðeins 6 mínútum síðar tók Hutton á sprett upp völlinn og gaf boltann fyrir markið. Boltinn fór í leikmann Stoke og inn í teiginn þar sem Bent nýtti sér færið og skoraði. Staðan orðin jöfn 1-1. Leikmenn Tottenham elfdust við þetta þrátt fyrir að vera manni færri. Zokora leysti af í vinstri bakverðinum og hinir miðjumennirnir reyndu að styðja við Bent í framherjahlutverkinu. Undir lok fyrri hálfleiks fengu bæði Lennon og Jenas nokkuð góð færi en boltinn fór þó ekki inn. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.

     Seinni hálfleikur byrjaði þó ekki vel fyrir leikmenn Tottenham. Strax eftir 7 mínútna leik voru Stoke komnir yfir á ný. Sidibe gaf fyrir markið frá vinstri kantinum og Delap var tilbúinn á fjarstönginni einn og óvaldaður og potaði boltanum í netið. Staðan því 2-1 fyrir Stoke. Markið sló leikmenn Tottenham dálítið út af laginu og Ramos kaus því að gera sína fyrstu skiptingu. Bentley fór af velli og inná kom Pavlyuchenko. Stuttu síðar fékk Modric gott færi en skot hann fór rétt yfir þverslánna. Eftir um klukkustundar leik þurfti að stöðva leikinn í nokkrar mínútur eftir að Hutton og Sorensen lentu í samstuði ásamt öðrum leikmanni Stoke. Sorensen þurfti svo að fara af velli sökum höfuðmeiðsla og inná kom Steve Simonsen í markið. Ekki var þetta eina sjúkrasaga dagsins. Corluka var ansi óheppinn þennan daginn. Fyrst fékk hann högg í rifbeinin þegar hann lenti í samstuði við Gomes. Stuttu síðar lentu þeir tveir svo aftur í samstuði sem leit öllu alvarlegra út. Leikurinn var stöðvaður í um 7 mínútur á meðan hlúð var að honum og á endanum var hann borinn út af strappaður á börur með súrefnisgrímu og meðvitundarlaus. Hann rankaði svo við sér þegar komið var upp í sjúkrabíl en hann var fluttur á sjúkrahús í myndatökur enda gífurlegt höfuðhögg sem hann fékk. Dawson kom inná fyrir Corluka en leikmenn Tottenham náðu sér aldrei á strik eftir það. Leikmenn Stoke tóku völdin og reyndu að bæta öðru marki við. Bæta þurfti 11 mínútum við venjulegan leiktíma sökum allra meiðslanna. Undir lok leiksins braut Woodgate svo á Soares inni í teig og dómarinn dæmdi aftur vítaspyrnu. Fuller tók spyrnuna en í þetta skiptið var heppnin með leikmönnum Tottenham. Fuller skaut í aðra stöngina og boltinn fór þaðan í hina stöngina og út í teiginn þar sem Delap náði boltanum og þrumaði honum í þverslánna. Til að kóróna slæman dag fékk Dawson svo að líta rauða spjaldið á lokamínútunum eftir glórulausa tæklingu á Fuller. Leiknum lauk með sigri Stoke 2-1 og staða Tottenham í deildinni orðin ansi slæm.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Corluka (Dawson), Woodgate, Bale, Bentley (Pavlyuchenko), Jenas, Zokora, Modric, Lennon, Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Huddlestone, Ekotto, O´Hara.

Alnwick lánaður

0

Ben Alnwick hefur verið lánaður til 1.deildar liðsins Carlisle United í einn mánuð. Mun sú reynsla eflaust reynast honum til góðs enda hefur hann aðallega verið að spila leiki með varaliðinu en einnig hefur hann farið áður á lán til annarra liða.

Hópferðin blásin af

0

Hópferðin sem fyrirhuguð var á Blackburn leikinn í lok Nóvember hefur verið blásin af.
Lítill sem enginn áhugi var fyrir ferðinni sem kemur svo sem ekki mikið á óvart eins og efnahagsástandið er um þessar mundir og staða krónunnar gagnvart breska pundinu.

Enn án sigurs í deildinni

0

Tottenham tapaði fimmta leik sínum á tímabilinu þegar þeir tóku á móti Hull á White Hart Lane og eru enn á botni deildarinnar með 2 stig. Liðið hefur einungis gert jafntefli í tveimur leikjum á tímabilinu og tapað 5 og því er þetta versta byrjun liðsins í 96 ár. Leiknum gegn Hull lauk með 1-0 sigri gestanna og var það Geovanni sem skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu.

Enn á ný hélt Ramos sig við það að gera breytingar á liðinu líkt og í síðustu leikjum. Í marki lék Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Gunter, Corluka, Woodgate og Bale. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora, Modric og Campbell og frammi spilaði Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Dawson, Ekotto, O´Hara, Bentley, Bent og Giovani.

     Leikmenn Tottenham komu ákveðnir til leiks og átti tvö færi í upphafi leiks, frá Bale og Pavlyuchenko, en hvorugum tókst að koma boltanum framhjá Myhill í marki Hull. Geovanni átti skot yfir mark Spurs á hinum enda vallarins stuttu síðar en á 9.mínútu tókst honum að koma boltanum í netið. Hull fékk aukaspyrnu fyrir utan teiginn vinstra megin á vellinum og Geovanni skaut beint að marki og smellhitti boltann í bláhornið hægra megin við Gomes og átti Gomes ekki möguleika að verja boltann. Staðan því orðin 1-0 fyrir gestina. Markið var visst áfall fyrir leikmenn Tottenham enda lítið liðið á leikinn en leikmennirnir neituðu þó að gefast upp. Campbell átti skot í hliðarnetið eftir snögga aukaspyrnu frá Jenas á 15.mínútu og 7 mínútum síðar átti Bale þrumuskot að marki úr aukaspyrnu langt fyrir utan teiginn hægra megin á vellinum en markmaður Hull náði að verja boltann glæsilega í þverslánna og þaðan fór boltinn yfir markið. Fyrrum leikmaður Spurs, Dean Marney, var ekki langt frá því að bæta við marki fyrir Hull en skot hans hafnaði í stönginni. Ramos neyddist til að gera sína fyrstu breytingu á liðinu á 35.mínútu þegar Pavlyuchenko fór meiddur af velli og inná í hans stað kom Bent.  Marlon King átti svo skot að marki fyrir Hull á 39.mínútu en Spurs átti gott færi til að jafna leikinn þegar 2 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Lennon sendi boltann fyrir markið á Woodgate sem skaut að marki en boltinn fór í varnarmann Hull og þaðan í stöngina og því var staðan 1-0 í hálfleik, Hull í vil.

     Leikmenn Spurs héldu áfram að pressa að marki Hull í síðari hálfleik enda nauðsynlegt fyrir liðið að fá stig út úr leiknum þar sem liðið situr sem fastast á botni deildarinnar. Besta færi Tottenham til að jafna í síðari hálfleik fékk Bent þegar Modric gaf stungusendingu inn á hann og hann var mættur einn á móti markverði Hull hægra megin í markteignum en skot hann fór millimetrum framhjá stönginni. Leikmenn Tottenham fengu þó fleiri færi, Campbell átti skalla rétt yfir markið, Bent fékk ágætisfæri en góð varnarvinna Hull manna kom í veg fyrir að boltinn færi inn og Modric var svo í góðu skotfæri á fjærstönginni þegar Campbell sendi fyrirgjöf á fjærstöngina en hann hitti boltann ekki nógu vel og skotið fór yfir markið. Ramos gerði tvær skiptingar í seinni hálfleik, Bentley kom inná í stað Gunter á 55.mín og Giovani í stað Lennon á 74.mín. Síðasta tækifæri leiksins fékk svo Bale úr aukaspyrnu á lokamínútunni en skot hans fór rétt yfir. Leiknum lauk því með 1-0 sigri Hull og situr því Tottenham enn í botnsæti deildarinnar og ekkert virðist ganga upp hjá liðinu.

Lið Spurs: Gomes, Gunter (Bentley), Corluka, Woodgate, Bale, Lennon(Giovani), Jenas, Zokora, Modric, Campbell, Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesera, Dawson, Ekotto, O´Hara.

Tottenham áfram í Uefa Cup

0

Tottenham tryggði sig áfram í riðlakeppni Uefa Cup þegar þeir mættu Wisla Krakow í Póllandi í síðari leik liðanna. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en það dugði Spurs þar sem þeir unnu fyrri leikinn 2-1 á heimavelli og því samtals 3-2. Wisla Krakow sá þó um að skora bæði mörkin í leiknum á Wisly Stadion þar sem Tottenham komst yfir með sjálfsmarki og jöfnuðu svo leikinn sömuleiðis.

     Það kemur víst fáum á óvart að Ramos hélt áfram að breyta liði sínu. Ramos lagði upp með leikkerfið 4-5-1 líkt og í flestum leikjum tímabilsins. Gomes var líkt og í fyrri leikjum á milli stanganna og hefur hann staðið sig ansi vel frá því að hann gekk til liðsins í sumar. Vörnin var skipuð þeim Gunter, Woodgate, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora, Modric og Campbell og einn frammi í hlutverki framherja lék Bent. Á bekknum sátu þeir Cesar, Dawson, Ekotto, Bentley, Huddlestone, O´Hara og Giovani.

     Bæði lið hófu leikinn af varkárni enda lauk fyrri leiknum aðeins með eins marks sigri Tottenham og því hvorugt liðið í þeirri stöðu að þurfa að skora mörg mörk. Af þeim sökum var ekki mikið um marktækifæri á fyrstu 20 mínútum leiksins. Cantaro, leikmaður Wisla, reyndi þó að koma ágætis bolta inn í teiginn en Gomes var vel vakandi í markinu og náði til boltans fyrstur. Brozek átti svo skot að marki sem Gomes varði einnig vel. Bale átti hættulega fyrirgjöf á hinum enda vallarins en boltinn skilaði sér ekki til samherja. Á síðustu mínútum fyrri hálfleiks var Gomes þó bjargvættur Tottenham eftir að Radoslaw komst í dauðafæri en Gomes varði í horn. Stuttu síðar fékk Diaz einnig tækifæri til að koma heimamönnum yfir í leiknum en Gomes stóð fyrir sínu sem fyrr. Staðan í hálfleik var því 0-0 og yrði það útkoman kæmist Tottenham áfram í riðlakeppnina. Wisla menn vissu því að þeir yrðu að læða inn marki í síðari hálfleik.

     En það voru leikmenn Tottenham sem komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik. Campbell átti skot rétt yfir markið, fyrirgjöf frá Bale fór rétt framhjá annarri stöng marksins og Modric fékk einnig ágætis færi en markmaður Wisla var vakandi í markinu og varði vel. En á 58. mínútu leiksins kom fyrsta mark leiksins. Bale sendi lága fyrirgjöf af vinstri kantinum fyrir markið og við fyrstu sýn virtist Campbell ná að stýra boltanum í fjærhornið en við nánari athugun var það leikmaður Wisla sem átti lokasnertinguna og markið því skráð sem sjálfsmark. Staðan því orðin 0-1 fyrir gestina og útlitið ekki orðið gott fyrir pólska liðið þar sem þeir þurftu nú nauðsynlega að skora 2 mörk til að knýja fram framlengingu. Stuttu síðar gerði Zokora sig líklegan til að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið. Hann þaut upp völlinn og skaut að marki en skot hans fór þó vel framhjá markinu og hefði líklega verið betra fyrir hann að gefa boltann þar sem Campbell var mun betur staðsettur fyrir framan markið. Á 68.mínútu gerði Ramos sína fyrstu breytingu á liðinu þegar Campbell fór af velli og inná í hans stað kom O´Hara og var hann með þessu móti að þétta miðjuna varnarlega séð. Bent reyndi ágætis skot að marki en það fór rétt framhjá. Leikmenn Wisla áttu fá svör við leik gestanna þrátt fyrir að þurfa nauðsynlega að skora amk 2 mörk. Leikmenn Tottenham virtust hins vegar líklegir til að bæta við marki og á 75.mínútu munaði litlu að fyrirgjöf Lennon frá hægri kantinum næði á kollinn á Bent. Stuttu síðar kom að næstu skiptingu Ramos þegar Modric fór af velli og Huddlestone inná í hans stað. En síðasta korter leiksins náðu Wisla menn að bæta sinn leik og pressa töluvert á mark Tottenham. Gomes varði glæsilega skalla frá Brozek eftir hornspyrnu en á 83.mínútu náðu leikmenn Wisla að koma boltanum framhjá honum í markinu, eða réttara sagt, yfir hann. Brozek fékk langa sendingu fram völlinn og náði til boltans á undan varnarmönnum Tottenham. Gomes var kominn langt út úr marki sínu, að mörkum vítateigsins og Brozek tók því við boltanum viðstöðulaust og vippaði yfir Gomes. Glæsilega gert og staðan því orðin jöfn, 1-1. Heimamenn héldu pressu sinni allt til lokamínútunnar þar sem þeir þurftu nú einungis eitt mark til að knýja fram framlengingu. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka bætt Ramos í vörnina þegar Dawson kom inná í stað Lennon og liðið náði að halda fengnum hlut með góðum varnarleik og glæsilegri markvörslu Gomes.

     Liðið er því komið áfram í riðlakeppnina en dregið verður í riðlana þann 7.október næstkomandi og hefst drátturinn kl.10 að íslenskum tíma. Tottenham verður í potti eitt sem er efsti styrkleikaflokkurinn, en styrkleiki liða er metinn út frá þátttöku liðanna í evrópukeppnum síðastliðin 5 ár.

Lið Spurs: Gomes, Gunter, Woodgate, King, Bale, Lennon (Dawson), Jenas, Zokora, Modric (Huddlestone), Campbell (O´Hara), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Ekotto, Bentley, Giovani.

Dregið í UEFA cup

0

Í dag var dregið í riðlakeppni UEFA cup og verður Tottenham í riðli D ásamt rússneska liðinu Spartak Moskva, Udinese frá Ítalíu, Dinamo Zagreb frá Króatíu og hollenska liðinu NEC Nijmegen. Leiknir verða 2 leikir heima og tveir úti og fara 3 lið áfram úr riðlinum. Hvert lið situr hjá í einni umferð.

Leikir Spurs eru þessir:

23.október – úti gegn Udinese

6.nóvember – heima gegn Dinamo Zagreb

27.nóvember – úti gegn NEC Nijmegen

Sitjum hjá í 4. umferð

17./18. desember – heima gegn Spartak Moskva

Enn bíða stuðningsmenn sigurs

0

Ekki tókst Tottenham að landa sínum fyrsta sigri í deildinni þegar liðið heimsótti Portsmouth á Fratton Park í 6.umferð úrvalsdeildarinnar. Leiknum lauk með 2-0 sigri Portsmouth manna þar sem Jermain Defoe, fyrrum leikmaður Spurs, skoraði fyrra markið úr víti og Peter Crouch skoraði síðara markið. Liðið situr því enn á botni deildarinnar með 2 stig og útlitið er svo sannarlega ekki gott.

Enn á ný gerði Ramos breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Newcastle í bikarnum og má geta þess að hann hafi haft leikinn gegn Wisla Krakow á fimmtudaginn í huga þegar hann skrifaði niður nöfn á leikskýrsluna. Í markinu stóð þó Gomes sem fyrr en vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Zokora, O´Hara og Gilberto og því var Pavlyuchenko einn frammi. Bekkurinn var skipaður þeim Cesar, Gunter, Huddlestone, Modric, Bent, Lennon og Giovani.

     Jafnræði ríkti með liðum í upphafi leiks. Bentley átti góða sendingu fyrir markið úr aukaspyrnu sem Woodgate skallaði að marki en boltinn fór þó framhjá. Á hinum endanum komst Defoe einn innfyrir eftir sendingu frá Crouch en það var leikmönnum Tottenham til lukku að línuvörðurinn dæmdi réttilega rangstöðu. Hughes átti einnig skot að marki en Gomes varði vel. Corluka átti svo ágætis sprett upp hægri kantinn og ekki munaði miklu að O´Hara næði boltanum eftir fyrirgjöf Corluka en það tókst þó ekki. Leikmenn Portsmouth náðu svo að auka pressuna og á 20.mínútu varði Gomes frábærlega eftir þrumuskot frá Hughes. En ólánið elti Tottenham og á 33.mínútu var dæmd vítaspyrna á Tottenham eftir að Jenas handlék boltann þegar hann reyndi að hreinsa frá fyrirgjöf af hægri kantinum. Defoe steig á vítapunktinn og skoraði framhjá Gomes í markinu, sem var þó ekki langt frá því að verja skotið. En staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Lítið annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og Portsmouth héldu því eins marka forystu í hálfleik.

     Ramos gerði skiptingu í hálfleik þar sem hann tók Gilberto af velli og inná í hans stað kom Lennon og átti skiptingin að auka hraðan í leik liðsins. Leikur liðsin breyttist til muna og átti Johnson í fullu fangi með að verjast gegn hinum leiftrandi fljóta Lennon. Litlu munaði að Pavlyuchenko næði að skora eftir fyrirgjöf frá Lennon en skalli hans fór rétt framhjá. Belhadj átti ágætt skot að marki Spurs sem Gomes náði að verja. Stuttu síðar gerðist mjög svo umdeilt atvik. Lennon sendi boltann fyrir markið en boltinn fór í hönd Diarra, ekki svo ólíkt atvikinu í fyrri hálfleik þegar Portsmouth fékk dæmda vítaspyrnu. En í þetta skiptið sá dómari leiksins, Dean, ekki ástæðu til að dæma víti við lítinn fögnuð gestanna. Eftir tæplega klukkustundar leik gerði Ramos aðra skiptingu, Zokora fór af velli og Giovani kom inná í hans stað. Sá síðarnefndi olli nokkrum usla með leik sínum og vann meðal annars aukaspyrnu á ágætis stað. Bentley tók spyrnuna en örlítið vantaði upp á að Pavlyuchenko næði að pota boltanum inn. Þrátt fyrir að sóknarleikur Spurs hefði batnað til muna þá voru það heimamenn sem bættu við marki á 67.mínútu eftir hraðasókn. Traore skaut hörkuskoti að marki sem Gomes varði, en hann náði ekki að halda boltanum og Crouch náði að skalla honum í netið. Staðan því orðin 2-0 og útlitið allt annað en gott fyrir gestina. Bent var því settur inná til að reyna að koma boltanum í netið og af velli í hans stað fór Pavlyuchenko, skipti sem komu mörgum á óvart. Flestir hefðu talið að betra hefði verið að bæta við sóknarmanni á kostnað varnar- eða miðjumanns en ekki að taka sóknarmann út af fyrir annan sóknarmann. Poyet sagði þó í viðtali eftir leikinn að ekki væri hægt að láta Bent og Pavlyuchenko spila saman þar sem þeir væru of líkir leikmenn og setur það því stórt spurningarmerki við þessi kaup í sumar. Hví var verið að kaupa mann sem getur ekki spilað með hinum sóknarmanninum? En því geta topparnir hjá Spurs einungis svarað. Bent og Lennon áttu ágætis færi en James sá við þeim. Diarra, leikmaður Pompey, var svo rekinn af velli á lokamínútum leiksins eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald eftir brot á Ekotto. En það kom ekki að sök, sigurinn var í höfn fyrir leikmenn Portsmouth og erfiðleikar Spurs halda áfram.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto, Bentley, Jenas, Zokora (Giovani), O´Hara, Gilberto (Lennon), Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Gunter, Huddlestone og Modric.

Dregið í Carling Cup

0

Nú fyrir stuttu var dregið í 4.umferð Carling Cup eða 16 liða úrsltin. Tottenham fær Liverpool í heimsókn á White Hart Lane og verður leikurinn spilaður annaðhvort 11. eða 12. nóvember en það á enn eftir að staðfesta dagsetningu leiksins.

Nýjustu fréttirnar