Page 55

Titilvörnin hafin

0

Tottenham heimsótti Newcastle á St.James´ Park í fyrsta leik sínum í Carling Cup á þessari leiktíð og hóf þar með titilvörn sína. Tottenham hafði ekki tölfræðina með sér fyrir leikinn þar sem liðið hafði aldrei unnið Newcastle á St.James´ Park í bikarleik í sögu félagsins. En nú varð breyting á þar sem Tottenham vann leikinn 2-1 með mörkum frá Pavlyuchenko og O´Hara en þetta var fyrsta mark Pavlyuchenko fyrir félagið. Mark Newcastle skoraði Owen.

Enn einu sinni gerði Ramos breytingu á liðinu frá síðasta leik. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna í markinu en vörnin var skipuð þeim Corluka, Woody, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora, O´Hara og Bale og einn frammi spilaði Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gilberto, Modric, Bentley, Bent, Campbell og Giovani.

     Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill. Snemma leiks fengu bæði Pavlyuchenko og Gomes að finna fyrir leikmönnum Newcastle þegar brotið var á þeim en þrátt fyrir smá hnjask héldu þeir áfram leiknum eftir smá aðhlynningu frá læknateymi Tottenham. Eftir tæpar 20 mínútur kom fyrsta færi gestanna þegar Bale tók aukaspyrnu og gaf fyrir markið á Woody en skalli hans fór framhjá markinu. Síðar í hálfleiknum áttu Pavlyuchenko og Woodgate báðir skalla að marki eftir föst leikatriði en ekki vildi boltinn inn. Lennon átti gott skot að marki sem fór rétt framhjá. Hættulegasta færi heimamanna kom á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar Geremi skaut að marki úr aukaspyrnu og Cacapa náði að skalla boltan að marki en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Mjög dapur fyrri hálfleikur og engin mörk skoruð.

     Seinni hálfleikur var þó öllu fjörugri en sá fyrri. Strax á upphafsmínútunum komst Duff nálægt þvi að skora fyrir heimamenn þegar hann kom boltanum framhjá Gomes en Woodgate bjargaði nánast á marklínu. Á 52. mínútu gerði Ramos sína fyrstu skiptingu þegar Bale fór af velli og inná í hans stað kom Giovani. Lennon fór þá á vinstri kantinn og Giovani á þann hægri. Þessi skipting virtist lífga aðeins upp á lið Tottenham og stuttu síðar átti Ekotto þrumuskot vel fyrir utan vítateiginn en Given náði naumlega til boltans. Owen átti færi á hinum enda vallarins en Gomes var vel vakandi í markinu. En eftir 61 mínútu leik kom loksins fyrsta markið. Lennon tók á sprett upp vinstri kantinn, gaf boltann fyrir markið og þar var Pavlyuchenko vel staðsettur og skallaði boltann í netið framhjá Given og var þetta fyrsta mark hans fyrir félagið. Einungis fimm mínútum síðar var forystan aukin þegar O´Hara bætti marki við eftir mistök Newcastle manna. O´Hara hljóp í átt til Taylor, vann af honum boltann og sendi boltann í netið framhjá Given. Á milli markanna gerði Ramos skiptingu þegar Lennon fór af velli og Campbell kom inná í hans stað.  Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka kom svo lokaskiptingin en þá fór markaskorarinn, Pavlyuchenko af leikvelli og inná kom Modric en hann var að koma til baka úr meiðslum á hné. Martins átti svo gott skot að marki sem Gomes varði en Gomes gat lítið gert á lokamínútunum þegar Owen kom boltanum í netið. Leiknum lauk því með 2-1 sigri Tottenham og er liðið því kominn í pottinn fyrir dráttinn í næstu umferð í Carling Cup, en dregið verður í hádeginu á laugardaginn.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon (Campbell), Jenas, Zokora, O´Hara, Bale (Giovani), Pavlyuchenko (Modric). Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Bent og Bentley.

Markalaust á White Hart Lane

0

Tottenham gerði markalaust jafntefli við Wigan á White Hart Lane í fimmta deildarleiknum á tímabilinu og þurfa því leikmenn jafnt sem stuðningsmenn að bíða aðeins lengur eftir fyrsta sigri liðsins á tímabilinu. Liðið situr því enn á botninum með 2 stig eftir fimm umferðir og er þetta versta byrjun liðsins í 34 ár.

     Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Zokora, Corluka, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, O´Hara, Jenas og Bale og frammi voru þeir Bent og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu Sanchez, Gilberto, Gunter, Giovani, Lennon, Campbell og Huddlestone.

     Fyrri hálfleikur var mjög daufur og lítið um hættuleg marktækifæri. Wigan áttu þó aðeins fleiri færi en Tottenham og þurfti Gomes einu sinni að taka á honum stóra sínum og varði stórkostlega rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Eina hættulega færi Tottenham kom á 18.mínútu fyrri hálfleiksins þegar Bent átti langskot að marki en Kirkland varði vel. Staðan í hálfleik var því 0-0 og liðin ekki að skapa sér mörg tækifæri. Það var því alveg ljóst að eitthvað þurfti að breytast í hálfleik.

     Ramos tók þá ákvörðun að setja Campbell inná í upphafi síðari hálfleiks og af velli í hans stað fór Pavlyuchenko. Ekki breyttist leikur liðsins mikið við inná komu hans ólíkt því sem gerðist í leiknum gegn Wisla Krakow. Ramos gerði því aðra breytingu á 64 mínútu þegar Bentley, sem átt hafði afar slakan leik, fór af velli og inná kom Lennon. Þessi skipting kveikti örlítið líf í leikmönnum Tottenham og átti Lennon hættulega fyrirgjöf fyrir markið stuttu eftir að hann kom inná, eftir hraðan sprett upp hægri kantinn en enginn var þar til að pota honum inn í markið. Stuttu síðar var brotið á Lennon inni í vítateig Wigan manna en Tanner, dómari leiksins, lét leikinn halda áfram þrátt fyrir að ekki væru allir á eitt sáttir með dómgæslu hans. Lennon komst svo einna næst því að skora fyrir Tottenham þegar hann skaut vinstri fótar skoti að markinu en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Campbell átti svo góðan möguleika til að skora eftir sendingu frá Bale en hann var einungis nokkrum sentimetrum frá því að ná í boltann. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka gerði Ramos þriðju og síðustu skiptingu sína og fór þá Bale af velli og inná kom Huddlestone. Bent, O´Hara og Huddlestone komust allir í hálffæri en það var ekki nóg til að koma boltanum í net Wigan manna. Á lokamínútum leiksins fékk Gomes svo nóg að gera, fyrst munaði litlu að Kapo næði að skora en skalli hans fór yfir markið og stuttu síðar varði hann vel og kom í veg fyrir að Wigan stæli sigrinum. Engin mörk voru skoruð í þessum tíðindalitla leik og skiptu því liðin með sér stigunum.

Lið Spurs: Gomes,  Zokora, Corluka, Woodgate, Assou-Ekotto, Bentley (Lennon), Jenas, O’Hara, Bale (Huddlestone), Pavlyuchenko (Campbell), Bent . Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Gunter, Giovani

Hópferð

0

Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenham klúbbsins á þessu tímabili.  Farið verður á “sigurleik” Tottenham gegn Blackburn þann 23. nóvember næstkomandi.  Flogið verður út með Iceland Express að morgni laugardagsins 22. nóvember,  gist verður á Holiday Inn , Bloomsbury og flogið svo heim mánudaginn 24. nóvember.  Tilvalið að grípa nokkrar jólagjafir í leiðinni.

Verð kr. 73.900

Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, gisting í 2 nætur á Holiday Inn, Bloomsbury ( m.v. 2 í herbergi ) rúta til og frá flugvelli, miði á völlinn og meðlimagjald í stuðningsmannaklúbb Tottenham á Englandi ( þar sem gjöf fylgir með ), en það er orðin skylda að allir sem fara á völlinn verða að vera í meðlimaklúbbnum í Bretlandi.

Flug út :

Iceland Express AEU153         Brottför 08.00              Koma 10.55

Flug heim :

Iceland Express AEU156         Brottför 19.00              Koma 21.50

Gist er á Holiday Inn, Bloomsbury sem er mjög gott 4* hótel í hjarta borgarinnar.  Tottenham klúbburinn hefur áður gist á þessu hóteli við góðan orðstír. 

Upplýsingar um hótel
http://www.londonhotelsite.com/hotel_london/Holiday_Inn_Bloomsbury.htm


Linkur til að skrá sig og borgar staðfestingar gjald :

http://expressferdir.is/PackageIntro.aspx?Package=283

Fyrsti sigurinn í höfn

0

Tottenham vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu þegar þeir tóku á móti pólska liðinu Wisla Krakow í Uefa cup á White Hart Lane. Var þetta fyrri leikur liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Uefa cup en seinni leikurinn er í Póllandi 2. október. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham og verður leikurinn því erfiður í Póllandi þar sem markamunurinn er sáralítill. Mörk Tottenham í leiknum skoruðu þeir David Bentley og Darren Bent en sá síðarnefndi skoraði einnig annað mark sem var ranglega dæmt af.

     Ramos þurfti að gera breytingar á liðinu frá síðasta deildarleik þar sem Corluka og Pavlyuchenko mega hvorugir taka þá í evrópuleikjunum eftir að hafa spilað fyrir fyrrum lið sín í evrópuleikjum. Á milli stanganna í markinu stóð Gomes sem fyrr. Vörnin var skipuð þeim Gunter, Woodgate, King og Bale og á miðjunni byrjuðu þeir Bentley, Jenas, Zokora og Lennon. Giovani lék sem tengiliður milli miðju og sóknar en Bent lék einn frammi. Á bekknum sátu þeir Sanchez, Huddlestone, Gilberto, Dawson, Ekotto, O´Hara og Campbell.

     Leikmenn Tottenham komu nokkuð ákveðnir til leiks enda orðnir leiðir á árangri síðustu vikna og því hungraðir í sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Bentley hóf leikinn sprækur á hægri kantinum og átti ágætisfyrirgjöf sem Pawelek í markinu náði að grípa. Á 24.mínútu tók hann hornspyrnu og gaf á Woodgate á fjærstönginni sem skallaði að marki en markvörður Wisla náði að verja vel. Sjö mínútum síðar átti hann góða sendingu á Bent sem komst einn á móti markverði Wisla og en Pawelek tímasetti úthlaup sitt vel og náði til boltans. En á 33.mínútu sá Bentley bara sjálfur um að koma Tottenham yfir í leiknum. Lennon hljóp upp vinstri kantinn og inn í teiginn þar sem hann gaf boltann fyrir markið og Bentley var vel staðsettur og skaut boltanum í vinstra hornið. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn og gífurleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane. En það breyttist fljótt því strax í næstu sókn náði pólska liðið að svara fyrir sig. Boguski komst fram hjá Bale á hægri kantinum, gaf á Brozek sem renndi boltanum á Jirsak þar sem hann var einn og óvaldaður og kom boltanum framhjá Gomes í markinu. Lítið markvert gerðist svo það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og var staðan því jöfn 1-1 í hálfleik.

     Leikmenn Spurs byrjuðu seinni hálfleikinn betur en gestirnir og bæði Bentley og Giovani áttu góð færi til að koma Tottenham yfir. Darren Bent skoraði svo fullkomlega löglegt mark sem var ranglega dæmt af. Bale sendi boltann á Jenas á vinstri helmingi vítateigsins. Sendingu hans fyrir markið potaði Bent svo í markið en línuvörðurinn dæmdi rangstöðu á Jenas og og markið því dæmt af. Endursýning á atvikinu sýnir að Jenas var fullkomlega réttstæður þegar sendingin kom frá Bale og dómurinn því rangur. En það var lítið við því að gera og staðan því enn jöfn. Á 57.mínútu ákvað Ramos að gera breytingu á liðinu og gerði tvöfalda skiptingu. Gunter og Lennon fóru af velli og inná komu O´Hara og Campbell, en þetta var fyrsti leikur hans fyrir liðið eftir að hafa komið á láni frá Manchester United. Campbell tók þessu verkefni af mikilli alvöru og var strax hættulegur fyrir framan markið og barðist vel til að vinna boltann. Hann kom svo við sögu á 73.mínútur þegar hann fékk langan bolta sem hann móttók glæsilega, lék á varnarmann pólska liðsins og gaf boltann fyrir markið á Bent sem skallaði boltann í netið. Staðan orðin 2-1 fyrir Tottenham. Stuttu síðar munaði svo litlu að Campbell sjálfur næði að skora eftir fyrirgjöf frá Bale á vinstri kantinum. En varnarmaður Wisla Krakow rétt náði til boltans rétt á undan Campbell. Mörkin urðu ekki fleiri þetta kvöldið og er markamunurinn á liðunum ekki mikill og verður því erfitt verkefni fyrir Spurs að fara til Póllands. En leikmenn verða bara að taka því verkefni eins og öðrum og leggja upp með það markmið að sigra þann leik.

Lið Spurs: Gomes; Gunter (O’Hara), Woodgate, King, Bale, Bentley, Zokora, Jenas, Lennon (Campbell), Giovani (Assou-Ekotto), Bent.   Ónotaðir varamenn: Cesar, Huddlestone, Gilberto, Dawson

Gullmolar

0

Orð sem féllu í hita leiksins

,,Nokkra sentimetra öðruhvoru megin við stöngina og það hefði orðið mark"
Dave Basset

,,Frábær leikmaður, en hefur sínar svörtu hliðar"
Gary Lineker um Ian Wright

,,Dómarinn bókaði alla, ég hélt að hann væri að fylla út lóttómiðann sinn"
Ian Wright

,,Ef sagan endurtekur sig, þá getum við átt von á sömu hlutunum aftur"
Terry Venables

,,Fyrir ykkur sem eru með svart-hvítt sjónvarp er Tottenham liðið í gula búningnum"
John Motson á BBC

,,Hann er einn af þessum fótboltamönnum sem hafa heilann í höfðinu"
Derek Johnstone á BBC Skotland

,,Ég náði aldei að aðlagast Ítalíu, það var eins og að búa erlendis"
Ian Rush

,,Ég veit hvað er handan við hornið, ég veit bara ekki hvar hornið er"
Kevin Keegan

,,Það er fín lína milli hetjuskapar og sjálfsmorðs"
Terry Venables

,,Að sjálfsögðu erum við allir í skemmtanabransanum"
Oddie Ardiles

,,Okay, við töpuðum, en það var margt gott við okkar leik – bæði jákvætt og neikvætt"
Glenn Hoddle

,,Ég kom til Nantes fyrir tveimur árum og borgin lítur ennþá eins út, nema að hún er allt öðruvísi"
Keegan

,,Ég myndi ekki segja að Ginola væri besti vinstri kantmaðurinn í deildinni, en það eru engir betri"
Ron Atkinson

,,Ég myndi vilja spila með ítölsku liði eins og Barcelona"
Mark Draper

,,Ég hef aldrei viljað fara, ég verð hér vonandi til æviloka, og vonandi eftir það líka"
Alan Shearer

Nokkrir gullmolar á ensku

,,I hate Arsenal – with a passion"
Teddy Sheringham

,,The first ninety minutes of a football match are the most important"
Bobby Robson

,,There’s a little triangle – five left-footed players"
Ron Atkinson

,,Don’t try to break the bloody net, pass the ball into it"
Bill Nicholson

,,Yes. I was drunk. I get drunk quickly. I hadn’t had a drink in 9 days
Paul Gascoigne

,,Mark Hughes at his very best loves to feel people right behind him"
Kevin Keegan

,,Brazil – they’re so good it’s like they are running around the pitch playing with themselves."
John Motson

 

Staðan

0

Þessi síða er í vinnslu

Tölfræði

0

Tölfræði leikmanna 2008-2009

Markverðir

Leikir

Mörk

Gult

Rautt

1. Heurelho Gomes

31

0

1

0

21. Cesar Sanchez

1

0

0

0

27. Ben Alnwick

0

0

0

0

Varnarmenn
2. Alan Hutton

7

0

1

0

3. Gareth Bale

21

0

3

1

11. Gilberto

2

0

0

0

16. Chris Gunter

8

0

0

0

20. Michael Dawson

16

1

2

1

22. Vedran Corluka

21

0

2

0

26. Ledley King

15

1

2

0

32. Benoit Assou-Ekotto

19

0

3

2

33. Ricardo Rocha

0

 0

 0

 0

39.  Jonathan Woodgate

 25

 0

 3

 0

Miðjumenn
4.

Didier Zokora

28

0

2

0

5. David Bentley

26

2

3

0

6. Tom Huddlestone

24

2

3

0

7. Aaron Lennon

31

1

3

0

8.

Jermaine Jenas

22

2

5

0

14. Luka Modric

23

3

2

0

15. Hossam Ghaly

0

0

0

0

19. Adel Taarabt

0

0

0

0

23. Kevin-Prince Boateng

2

0

0

0

24. Jamie O´Hara

26

5

5

1

Sóknarmenn
9. Roman Pavlyuchenko

20

10

1

0

10. Darren Bent

27

12

1

0

17.

Giovani dos Santos

9

0

0

0

18. Fraizer Campbell

23

3

2

0

25. Jermain Defoe

0

0

0

0

 – Jonathan Obika

1

0

0

0

Leikir og úrslit

0

Júlí 2011      
Úti Lau 16. júlí Kaizer Chiefs Æfingaleikur

1-0

Úti Þri 19. júlí Orlando Pirates Æfingaleikur 1-1
Úti Lau 23. júlí Kaizer Chiefs Æfingaleikur 0-3
Úti Lau 30. júlí Brighton and Hove Albion Æfingaleikur 2-3

Ágúst 2011        
Heima Lau 6. ágúst Atletico Bilbao Æfingaleikur 2-1
Heima

Lau 13. ágúst

Everton Úrvalsdeildin

FRESTAÐ

Úti Fim 18. ágúst Hearts Evrópudeildin 0-5
Úti

Mán 22. ágúst

Manchester United Úrvalsdeildin

3-0 

Heima Fim 25. ágúst Hearts Evrópudeildin 0-0
Heima

Sun 28. ágúst

Manchester City Úrvalsdeildin

1-5


September 2011      
Úti

Lau 10. september

Wolves Úrvalsdeildin

0-2 

Úti Fim 15. september PAOK Evrópudeildin 0-0
Heima

Sun 18. september

Liverpool Úrvalsdeildin

4-0   

Úti Þri 20. september Stoke Carling Cup 0-0(7-6)

Úti

Lau 24. september Wigan Úrvalsdeildin 1-2
Heima Fim 29. september Shamrock Rovers Evrópudeildin 3-1

Október 2011      
Heima Sun 2. október Arsenal Úrvalsdeildin

2-1 

Úti Sun 16. október Newcastle Úrvalsdeildin

2-2

Heima Fim 20. október Rubin Kazan Evrópudeildin 1-0
Úti Sun 23. október Blackburn Úrvalsdeildin

1-2

Heima Sun 30. október Queens Park Rangers Úrvalsdeildin

3-1 


Nóvember 2011      
Úti Fim 3. nóvember Rubin Kazan Evrópudeildin 1-0
Úti Sun 6. nóvember Fulham Úrvalsdeildin 1-3
Heima Mán 21. nóvember Aston Villa Úrvalsdeildin 2-0
Úti Lau 26. nóvember West Bromwich Albion Úrvalsdeildin 1-3
Heima Mið 30. nóvember PAOK Evrópudeildin 1-2

Desember 2011      
Heima Lau 3. desember Bolton Úrvalsdeildin 3-0
Úti Lau 10. desember Stoke Úrvalsdeildin 2-1
Úti Fim 15. desember Shamrock Rovers Evrópudeildin 0-4
Heima Lau 17. desember Sunderland Úrvalsdeildin

1-0

Heima Fim 22. desember Chelsea Úrvalsdeildin

1-1

Úti Þri 27. desember Norwich Úrvalsdeildin

0-2 

Úti Lau 31. desember Swansea Úrvalsdeildin

1-1


Janúar 2012      
Heima Þri 3. janúar West Bromwich Albion Úrvalsdeildin

1-0

Heima Lau 7. janúar Cheltenham FA CUP 3-0
Heima Mið 11. janúar Everton Úrvalsdeildin 2-0
Heima Lau 14. janúar Wolves Úrvalsdeildin

1-1

Úti Sun 22. janúar Manchester City Úrvalsdeildin 3-2
Úti Fös 27. janúar Watford FA CUP 0-1
Heima Þri 31. janúar Wigan Úrvalsdeildin 3-1

Febrúar 2012

Úti

Mán 6. febrúar Liverpool Úrvalsdeildin 0-0
Heima Lau 11. febrúar Newcastle Úrvalsdeildin

5-0    

Úti Sun 19. febrúar Stevenage  FA CUP  0-0
Úti Sun 26. febrúar Arsenal Úrvalsdeildin

5-2


Mars 2012

Heima

Sun 4. mars

Manchester United

Úrvalsdeildin

1-3

Heima Mið 7. mars Stevenage FA CUP 3-1
Úti Lau 10. mars Everton Úrvalsdeildin 1-0
Heima Lau 17.mars Bolton FA CUP FRESTAÐ
Heima Mið 21. mars Stoke Úrvalsdeildin 1-1
Úti Lau 24. mars Chelsea Úrvalsdeildin 0-0
Heima Þri 27. mars Bolton  FA CUP 3-1
Heima Sun 1. apríl Swansea Úrvalsdeildin

3-1


Apríl 2012      
Úti Lau 7. apríl Sunderland Úrvalsdeildin

0-0 

Heima Mán 9. apríl Norwich City Úrvalsdeildin 1-2
Úti Sun 15. apríl Bolton Úrvalsdeildin FRESTAÐ
Wembley Sun 15. apríl Chelsea FA CUP kl: 17:00
Úti Lau 21. apríl Queens Park Rangers Úrvalsdeildin

kl: 16:30  

Heima Sun 29. apríl Blackburn Úrvalsdeildin

kl: 15:00 


Maí 2012        
Úti Mið 2. maí Bolton Úrvalsdeildin kl: 14:00 
Úti Lau 5. maí Aston Villa Úrvalsdeildin

kl: 14:00 

Heima Sun 13. maí Fulham Úrvalsdeildin

kl: 14:00 

Enn eitt tapið

0

Tottenham tapaði fyrir Aston Villa á White Hart Lane á mánudagskvöldið og var þetta þriðji tapleikurinn af fjórum leikjum sem leiknir hafa verið á tímabilinu. Liðið situr því sem stendur í botnsæti deildarinnar með einungis 1 stig. Leiknum lauk með 2-1 sigri Aston Villa þar sem Villa komst í 2-0 með mörkum frá Reo-Coker og Young en Bent skoraði eina mark Tottenham.

Sagan endalausa loksins á enda

0

Tottenham tilkynnti á miðnætti í gær að félagið hefði selt Berbatov til Manchester United áður en glugginn lokaði. Kaupverðið var gefið upp og mun vera 30.75 milljónir punda auk þess sem Tottenham fær framherjan unga Fraizer Campbell á láni út leiktíðina.

Nýjustu fréttirnar