Page 56

Corluka til Spurs

0

Tottenham tilkynnti núna í morgunsárið á síðasta degi félagsskiptagluggans að félagið hafi komist að samkomulagi við Manchester City um kaup á Vedran Corluka. Corluka er 22 ára króatískur landsliðsmaður og er mjög fjölhæfur. Hann getur spilað sem hægri bakvörður og sem miðvörður en einnig hefur hann af og til spilað stöðu varnartengiliðs með miklum sómar. Hann hóf feril sinn hjá Dinamo Zagreb og gekk svo til liðs við City fyrir ári síðan og spilaði 41 leik fyrir þá. Hann er eins og áður sagði fastamaður í króatíska landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur og hefur spilað alls 24 leiki fyrir landsliðið. Corluka var mjög ánægður með að vera komin til Tottenham, bæði vegna liðsins sem og að hann besti vinur, Modric, er einnig hjá félaginu.

Við bjóðum Corluka velkominn til Spurs.

Fyrsta stig tímabilsins í hús

0

Tottenham vann sér inn sitt fyrsta stig á tímabilinu þegar liðið heimsótti Chelsea á Stamford Bridge. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og má með sanni segja að mörkin hafi ekki verið þau glæsilegustu en þau töldu þó. Belletti kom Chelsea yfir í leiknum en Bent jafnaði leikinn fyrir Tottenham.

Tottenham kaupir framherja

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Spartak Moskvu um kaup á Roman Pavlyuchenko. Kaupverðið var ekki gefið upp en óstaðfestar heimildir segja að kaupverðið hafi verið í kringum 12 milljónir punda. Pavlyuchenko er 26 ára framherji og hefur hann staðið sig vel í heimalandi sínu. Hann var markahæsti leikmaður rússnesnku deildarinnar árin 2006 og 2007 en hann hefur einnig átt fast sæti í rússneska landsliðinu undanfarið og skoraði m.a. tvö mörk gegn Englandi í undankeppni EM.

Við bjóðum Pavlyuchenko velkominn til Spurs!

Titilvörnin hefst á St. James´s Park

0

Dregið var í 3. umferð Carling Cup bikarsins sem Tottenham hampaði á síðasta tímabili. Leikmenn Spurs hefja titilvörn sína á St. James´s Park þar sem þeir heimsækja Newcastle menn. Dagsetning á leiknum hefur ekki verið staðfest en líklegt þykir að leikurinn verði annaðhvort spilaður 23. eða 24. september.

UEFA Cup

0

Dregið hefur verið í fyrstu umferð Uefa cup en leiknir verða tveir leikir, heima og heiman og mun sigurvegari viðureignarinnar fara áfram í riðlakeppnina. Tottenham mætir Wisla Krakow frá Póllandi og mun fyrri leikurinn verða spilaður á White Hart Lane 18.september og seinni leikurinn í Póllandi þann 2.október.

Lee til Dortmund

0

Tottenham staðfesti í dag á heimasíðu sinni að Lee Young Pyo hefur verið seldur til þýska félagsins Dortmund. Lee var keyptur til Tottenham árið 2005 frá PSV Eindhoven og spilaði hann alls 93 leiki fyrir félagið. Hann hefur nú verið seldur til Dortmund enda ekki inni í plönum nýs stjóra.

Við þökkum Lee fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum góðs gengis í framtíðinni.

Annað tapið í röð

0

Tottenham tapað öðrum leik sínum á tímabilinu og fyrsta heimaleiknum þegar liðið fékk Sunderland í heimsókn. Malbranque mætti þar á White Hart Lane í fyrsta skiptið eftir að hafa verið seldur til Sunderland í sumar en Tainio og Chimbonda voru fjarri góðu gamni. Leiknum lauk með 2-1 sigri Sunderland en mark Tottenham skoraði Jermaine Jenas.

Gardner seldur til Hull

0

Tottenham staðfesti í morgun að búið væri að ganga frá sölu á Gardner til Hull. Gardner fór upphaflega á lánssamningi til þeirra nú í sumar en Hull óskaði eftir að breyta því í kaupsamning og er talið að hann hafi farið á 2,5 milljónir punda. Gardner gekk til liðs við Spurs frá Port Vale árið 2000 og spilaði alls 144 leiki fyrir félagið á þeim rúmlega átta árum sem hann var hjá félaginu og skoraði 3 mörk.

Við þökkum Gardner fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum góðs gengis í framtíðinni.

Tímabilið hófst með tapleik

0

Ekki var byrjunin á tímabilinu hjá Tottenham eins og best var á kosið því liðið tapaði fyrsta leiknum gegn Middlesbrough en leikurinn fór fram á Riverside Stadium. Leiknum lauk með 2-1 sigri Boro manna en þeir skoruðu þó öll mörkin í leiknum. Wheater kom Boro yfir og Mido, fyrrum leikmaður Spurs, bætti við forustuna. Það var svo Huth sem varð fyrir því óláni að senda boltann í eigið net og voru lokatölur því 2-1 heimamönnum í vil.

Tímabilið nálgast – tippleikurinn hafinn

0

Nú styttist í að nýtt tímabil hefjist í enska boltanum og verður athyglisvert að fylgjast með okkar mönnum á komandi tímabili enda mikið um breytingar á leikmannahópnum í sumar. Eins og fyrri ár verður tippleikurinn á spjallinu í fullum gangi og er nú þegar kominn inn spáþráður fyrir fyrsta leikinn. Við hvetjum sem flesta til að taka þátt og um að gera að vera með frá upphafi en leikurinn stendur yfir út allt tímabilið.

Nýjustu fréttirnar