Page 57

Bale skrifar undir nýjan samning

0

Gareth Bale hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2012. Bale gekk til liðs við Spurs í maí 2007 frá Southampton og byrjun hans hjá félaginu lofaði góðu. Hann lék þó aðeins 12 leiki fyrir félagið á síðasta tímabili sökum þess að hann lenti í erfiðum meiðslum og félagið vildi ekki taka neina áhættu með hann heldur gefa honum tíma til að jafna sig enda ungur að aldri. Bale er 19 ára gamall en hefur nú þegar leikið 11 landsleiki fyrir Wales.

Nýr varamarkvörður

0

Tottenham hefur komist að samkomulagi við Real Zaragoza um kaup á Cesar Sanchez. Cesar er 36 ára spænskur markvörður og hefur verið hjá Real Zaragoza sl.þrjú ár og leikið yfir 100 leiki fyrir félagið. Þar áður lék hann með Real Madrid en ferilinn hóf hann þó hjá Real Valladolid. Hann á einn landsleik að baki með spænska landsliðinu. Cesar er fenginn til liðsins sem varamarkvörður en félagið keypti Gomes fyrr í sumar.

Við bjóðum Cesar velkominn til Tottenham.

Kaboul til Pompey

0

Tottenham staðfesti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Portsmouth um kaup á varnarmanninum Younes Kaboul. Kaboul gekk til liðs við Spurs fyrir ári síðan frá Auxerre og spilaði alls 29 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 4 mörk. Hann hefur hins vegar lítið fengið að spreyta sig undanfarið undir stjórn Ramos og hefur því verið seldur. Söluverð hans var ekki gefið upp.

Við óskum Kaboul góðs gengis í framtíðinni.

Stórsigur á Roma

0

Tottenham vann stórsigur á ítalska liðinu Roma á White Hart Lane í síðasta æfingaleik liðsins fyrir komandi tímabil. Leiknum lauk með 5-0 sigri heimamanna og voru það þeir Bentley(2), Bent(2) og Lennon sem skoruðu mörkin.

Varnarmaður lánaður

0

Hinn 19 ára gamli Troy Archibald-Henville hefur verið lánaður til Norwich út næsta tímabil. Troy er varnarmaður og hefur verið að gera góða hluti með varaliðinu og var m.a. fyrirliði þess á síðasta tímabili. Hann var tvisvar á bekknum á síðasta tímabili hjá aðalliðinu og fór með liðinu til Spánar fyrr í sumar og stóð sig vel þar í þeim tveimur leikjum sem hann lék þar. Félagið hefur nú samþykkt að lána hann út tímabilið og mun hann öðlast góða reynslu þar og kemur vonandi aftur reynslunni ríkari. Við óskum honum góðs gengis hjá Norwich á komandi tímabili.

Sigur á Dortmund tryggði sigur á mótinu

0

Tottenham sigraði Borussia Dortmund í síðari leiknum á Feyenoordmótinu og með sigrinum tryggði liðið sér sigur á mótinu sjálfu. Leiknum lauk með 3-0 sigri og voru það þeir Bent, Dos Santos og O´Hara sem skoruðu mörkin.

Sigur gegn Celtic

0

Tottenham vann fyrri leik sinn á Feyenoord mótinu í Hollandi þegar þeir mættu liði Celtic. Ramos stillti upp sterku liði og lék liðið góðan bolta og uppskar sigur á skosku meisturunum. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Bent og Bentley sem skoruðu mörkin en þetta var fyrsta mark Bentley fyrir Spurs, en hann gekk til liðs við félagið í vikunni.

Feyenoord mótið

0

Lið Tottenham er nú komið til Hollands þar sem það tekur þátt í æfingamóti ásamt Feyenoord, Celtic og Borussia Dortmund. Tottenham mun leika tvo leiki, við tvö síðarnefndu liðin. Fyrst tekur liðið á móti Celtic í dag og hefst leikurinn kl.16:30 að íslenskum tíma. Liðið mætir svo Borussia Dortmund á sunnudaginn og sá leikur hefst kl.15:45. Báðir leikirnir eru sýndir á sky sjónvarpsstöðinni og að sjálfsögðu munu þeir verða sýndir á Wembley (Ölveri).

Sigur í árlegum leik

0

Tottenham lagði Leyton Orient í árlegum leik þessara liða en þessir æfingaleikir eru hluti samnings milli liðanna þar sem varalið Spurs fær að nota heimavöll Orient fyrir leiki sína. Leiknum lauk með 5-1 sigri Tottenham þar sem Bent skoraði þrennu í annað skipti á 3 dögum. Hin mörkin tvö skoruðu þeir Lennon og Modric. Mark Orient manna skoraði Demetriou.

Tottenham kaupir Bentley

0

Tottenham hefur loksins klófest enska miðjumanninn David Bentley frá Blackburn en félagið tilkynnti í kvöld að samningar hefðu tekist við Blackburn. Hinn 23 ára gamli Bentley gekk til liðs við Blackburn á lánssamningi 2005 en var svo keyptur árið 2006. Hann getur spilað hvar sem er á miðjunni en hefur að mestu spilað sem kantmaður. Hann hefur spilað fyrir öll yngri landslið Englendinga og hefur einnig spilað nokkra leiki fyrir Enska A-landsliðið.

Við bjóðum Bentley velkominn til félagsins!!!

Nýjustu fréttirnar