Page 58

Malbranque til Sunderland

0

Tottenham staðfesti í kvöld að félagið hefði komist að samkomulagi við Sunderland um sölu á Steed Malbranque. Malbranque verður því þriðji leikmaður Spurs sem gengur til liðs við Roy Keane og félaga í Sunderland en fyrr í mánuðinum gengu þeir Tainio og Chimbonda til liðs við Sunderland. Malbranque gekk til liðs við Tottenham í ágúst 2006 og spilaði alls 96 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 12 mörk.

Við sendum bestu þakkir til Malbranque fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

Jenas og Dawson með nýja samninga

0

Tottenham hefur gert nýja samninga við Jermaine Jenas og Michael Dawson. Þetta tilkynnti félagið í dag en með þessum samningum verða þeir samningsbundnir félaginu til ársins 2013. Báðir voru þeir keyptir árið 2005, Dawson í janúar og Jenas í ágúst. Dawson hefur leikið 136 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 3 mörk en Jenas hefur leikið 111 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 21 mark. Við óskum þeim til hamingju með nýju samningana.

Gardner á láni til Hull

0

Tottenham hefur staðfest að hafa komist að samkomulagi við Hull um að fá Garnder á láni. Ekki er gefið upp lengd lánstímans en sögusagnir herma að samningurinn sé fram að áramótum með möguleika á kaupum ef hann helst heill.

Sigur á Norwich

0

Tottenham vann stórsigur á liði Norwich í æfingaleik á Carrow Road í gærkveldi. Leiknum lauk með 5-1 sigri Tottenham og var Darren Bent heldur betur á skotskónum en hann skoraði fjögur marka Tottenham en það fimmta var sjálfsmark.

Norwich – Spurs

0

Þá er komið að fyrsta æfingaleik sumarsins sem verður sjónvarpaður. Leikurinn er á heimavelli Norwich og hefst kl.18:45. Leikurinn er sýndur á sjónvarpsstöðinni Setanta og ættu allir staðir sem ná þeirri stöð að geta sýnt þann leik. Ölver, Players og Glaumbar eru meðal þeirra staða sem sýna munu frá leiknum en þess má þó geta að einhverjar truflanir gætu orðið á útsendingu leiksins. Vonast menn þó til að þetta sleppi allt saman og sendingin haldist í lagi.

Keane til Liverpool

0

Tottenham hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi um sölu á Robbie Keane til Liverpool. Töluvert annar tónn var í tilkynningu félagsins á heimasíðu þess en við aðrar sölur í þessum glugga. Levy sagði við tilkynninguna að hann hefði orðið mjög svekktur með bæði Liverpool og Keane í þessu máli. Liverpool fór á bakvið félagið þegar það reyndi að fá Keane til liðs við sig og vilji Keane til að yfirgefa félagið svona létt olli Levy vonbrigðum. Hélt hann áfram og sagði að hann liti ekki á þetta sem samning milli félaganna um söluna á Keane heldur að þetta væri þvinguð sala, en komust liðin þó að samkomulagi um "bætur" upp á 19 milljónir punda og gætur hækkað um 1,3milljónir punda í framtíðinni.

Liverpool hefur einnig viðurkennt að ummæli framkvæmdastjóra liðsins á heimasíðu félagsins sem fóru eins og eldur um sinu í fjölmiðlum hafi verið óviðeigandi og hafa beðist afsökunar á því framferði. Einnig hafa þeir samþykkt að gefa framlag til þess góðgerðarfélags sem Tottenham styrkir helst.  Á móti hefur Tottenham samþykkt að halda ekki áfram með kvörtun sína til úrvalsdeildarinnar.

Keane gekk til liðs við Tottenham árið 2002 og spilaði 253 leikir fyrir félagið og skoraði í þeim 107 mörk.

Spurs spjallborðið – athugið!

0

Undanfarið hefur borið á því að einhverjir hafa átt í vandræðum með að komast inn á spurs spjallborðið. Ef einhver lendir í slíkum vandræðum þá bendum við viðkomandi að hafa samband við Hörð, umsjónarmann spjallborðsins, á hordur.agustsson@gmail.com. Fyrst má þó prófa að skrá sig upp á nýtt með nýju notendanafni og athuga hvort það virki þá að komast inn á spjallið.

Chimbonda til Sunderland

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hefur komist að samkomulagi við Sunderland um sölu á Pascal Chimbonda. Chimbonda gekk til liðs við Tottenham í ágúst árið 2006 frá Wigan og spilaði alls 98 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 4 mörk. Chimbonda verður annar leikmaðurinn frá Spurs sem Sunderland kaupir þetta sumarið en fyrr í vikunni keyptu þeir Teemu Tainio.

Við óskum Chimbonda góðs gengis hjá nýju félagi og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins á þeim tíma sem hann var hjá félaginu.

Robinson til Blackburn

0

Tottenham tilkynnti fyrir stuttu að félagið hefði komist að samkomulagi við Blackburn um sölu á Paul Robinson. Kaupverðið var ekki gefið upp en það er þó talið vera í kringum 3,5 milljónir punda. Robinson gekk til liðs við Spurs frá Leeds árið 2004 og spilað 175 leiki fyrir félagið og skoraði einnig eitt mark fyrir félagið eins og flestir muna eftir.

Við óskum Robinson góðs gengis hjá nýju félagi og þökkum honum fyrir hans framlag til liðsins.

Aðalfundur – fundargerð

0

Aðalfundur Tottenham klúbbsins var haldinn 18.júlí sl. á Ölveri í Reykjavík. Ýmis málefni voru rædd á fundinum og eru þau í helstu dráttum þessi:

Nýjustu fréttirnar