Page 59

Tainio til Sunderland

0

Tottenham tilkynnti í gærkveldi að félagið hefði komist að samkomulagi við Sunderland um sölu á finnska miðjumanninum, Teemu Tainio. Tainio, sem studdi Tottenham frá bernsku, gekk til liðs við Spurs frá Auxerre árið 2005 og má segja að það hafi verið draumur sem varð að veruleika að fá að spila fyrir liðið sem hann studdi frá unga aldri og enn betra að vinna titil með félaginu, þe. Carling Cup í fyrra. Tainio lék 83 leiki fyrir Tottenham og skoraði 3 mörk. Hann var mjög fjölhæfur leikmaður sem gat leikið í mörgum stöðum en var mjög óheppin með meiðsli á tíma sínum hjá félaginu.

Við óskum Tainio góðs gengis hjá nýju félagi og þökkum honum kærlega fyrir hans framlag til liðsins á þeim þremur árum sem hann var hjá félaginu.

Levy sendir kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar

0

Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sendi í gærkveldi frá sér yfirlýsingu þar sem hann tilkynnti að félagið hafi sent inn formlega kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar á framkomu og hegðun Manchester United og Liverpool í garð leikmanna Tottenham, þeirra Keane og Berbatov. Telur hann að liðin hafi með ólöglegum hætti haft samband við leikmennina og þar með brotið reglur K3 og K8. Meðfylgjandi er yfirlýsingin frá Daniel Levy:

Gunter talar…

0

Þegar Welska liðið mætti því Íslenska í vináttulandsleik á vordögum fengum við Chris Gunter til að setjast niður með okkur og svara nokkrum spurningum um komu hans til Spurs sem og liðið sjálft. Við birtum hér smá hluta úr viðtalinu en það mun svo birtast í heild sinni í blaði klúbbsins á næsta tímabili.

Nýr aðalmarkvörður

0

Leit Tottenham að nýjum aðalmarkverði liðsins virðist vera lokið en félagið hefur náð samkomulagi við PSV um kaup á Heurelho Gomes en kaupverðið er ekki gefið upp. Gomes er 27 ára brasilískur landsliðsmaður en hann hefur spilað með PSV sl.6 ár og sett ýmis aðdáunarverð met fyrir félagið og átt mikinn þátt í 4 meistaratitlum PSV á þessum tíma. Eftir er að semja við leikmann og gangast undir læknisskoðun og einnig þarf hann að fá atvinnuleyfi til að spila á Englandi. Talið er að það verði aðeins formsatriði og vonandi líður ekki á löngu þar til við sjáum hann í treyju númer 1.

Ungur markvörður keyptur

0

Tottenham hefur fest kaup á ungum ítölskum markverði, Mirko Ranieri, frá Perugia á Ítalíu. Ranieri er 16 ára gamall og mun ganga til liðs við unglinga og varalið Tottenham. Ranieri hefur spilað fyrir U-16 ára landslið Ítala og þykir mjög efnilegur og góður leikmaður. Við bjóðum Ranieri velkominn til Spurs og vonumst til að sjá eitthvað til hans í framtíðinni.

Huddlestone með nýjan samning

0

Tom Huddlestone hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir í fimm ár og er hann því samningsbundinn félaginu til ársins 2013. Huddlestone lék 43 leiki fyrir félagið á síðasta tímabili og skoraði í þeim 4 mörk. Hann hefur einnig spilað talsvert með U-21 árs liði Englendinga. Við óskum Huddlestone til hamingju með nýja samninginn.

Aðalfundur Tottenham klúbbsins

0

Aðalfundur Tottenham klúbbsins verður haldinn þann 18.júlí á Ölveri í Reykjavík og hefst fundurinn kl.20:00. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Skýrsla stjórnar

2. Ársreikningar

3. Kosning stjórnar

4. Önnur mál

Léttar veitingar verða í boði.

Leikjaplan næsta tímabils

0

Leikjaplan komandi tímabils var gert opinbert í morgun en tímabilið hefst þann 16.ágúst. Leikmenn Tottenham hefja tímabilið með heimsókn á Riverside stadium þar sem þeir mæta heimamönnum í Middlesbrough.

Fyrsti leikur liðsins gegn Lundúnarliði verður strax þann 30.ágúst en það er einnig gegn einu af svokölluðu topp 4 liðunum. Heimsækir liðið þá Chelsea á Stamford bridge. Norður-Lundúnarslagirnir tveir eru þann 28.október á Emirates Stadium og 7.febrúar á White Hart Lane. Lokaleikur tímabilsins er útileikur gegn Liverpool.

Dos Santos staðfestur

0

Nú er opinberlega búið að fullganga frá samningi milli Tottenham og Barcelona á kaupum þess fyrrnefnda á Giovani Dos Santos. Liðin höfðu komist að samkomulagi um kaupverð og önnur smáatriði en eftir var að semja við leikmanninn og framkvæma læknisskoðun. Nú er því hins vegar lokið og Dos Santos því leikmaður Tottenham frá og með 1.júlí þegar leikmannaglugginn opnar formlega. Kaupverðið er talið vera í kringum 5 milljónir punda en getur hækkað upp í hátt í 9 milljónir eftir frammistöðu og leikjafjölda. Einnig hefur verið gefið upp að innifalið í samningnum er klásúla sem tryggir Barcelona 20% hluta af söluverðinu ef Dos Santos er seldur innan tveggja ára og 10% eftir það.

Dos Santos til Spurs

0

Tottenham tilkynnti fyrir stuttu að félagið hefði komist að samkomulagi við Barcelona um kaup á Giovani Dos Santos og muni hann skrifa undir að lokinni læknisskoðun ef samningar nást við leikmanninn sjálfan. Dos Santos hefur sjálfur gefið það út að hann muni spila fyrir Spurs á næstu leiktíð og Barcelona staðfesti á heimasíðu sinni í morgun að kaupverðið væri um 5 milljónir punda en gæti hækkað upp í 9 milljónir punda eftir árangri. Dos Santos er einungis 19 ára en mjög efnilegur miðjumaður. Hann er frá Mexíkó en hefur einnig spænskt ríkisfang og þarf því ekki atvinnuleyfi í Englandi.

Við bjóðum Giovani Dos Santos velkominn til Tottenham!

Nýjustu fréttirnar