Page 60

Spurs semur við Bostock

0

Tottenham hefur gert samning við John Bostock, 16 ára gamlan enskan miðjumann. Bostock var á mála hjá Crystal Palace en hefur nú gert samning við Tottenham. Hann er gríðarlega efnilegur og er yngsti leikmaðurinn sem spilað hefur fyrir Crystal Palace. Hann hefur einnig leikið með U16 og U17 ára landsliðum Englands. Sökum ungs aldurs var hann ekki á atvinnumannasamningi hjá Palace og því frjálst að ræða við önnur lið án þess að samráð væri haft við lið hans. Palace hafa þó lýst því yfir að hann sé enn leikmaður þeirra en líklegt þykir að málið fari fyrir dómstól sem ákveður upphæð sem Tottenham þarf að greiða, svokallaðar uppeldisbætur. Við bjóðum Bostock velkominn til Spurs en líklegt þykir að hann muni fyrst um sinn einungis spila með varaliðinu.

Fréttir af leikmannahópnum

0

Þar sem tímabilinu er lokið hafa orðið nokkrar breytingar á leikmannahópnum hvað varðar lánssamninga en einnig hafa samningar verið endurnýjaðir við yngri leikmenn.

Fyrst ber að nefna að Cerny hefur lokið lánssamningi sínu hjá liðinu en hann var á lánssamning frá Slavia Prag sl. þrjú ár. Hann var lengstum varamarkvörður liðsins en á þessari leiktíð fékk hann að spila töluvert meira og byrjaði t.a.m. 20 leiki á tímabilinu á milli stanganna. Tottenham kaus þó að gera ekki lengri samning við hann og hefur hann nú samið við QPR og mun spila með þeim amk næstu 2 árin. Við þökkum Cerny kærlega fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum velfarnaðar hjá nýju liði.

Ferðasaga

0

Föstudaginn 9.maí hélt 30 manna hópur Íslendinga af stað frá Keflavíkurflugvelli til Lundúnaborgar og var tilgangur ferðarinnar að bera lið okkar augum í síðasta leik tímabilsins á sunnudeginum gegn liði Liverpool manna.

O´Hara með nýjan samning

0

Jamie O´Hara hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið sem gildir til vorsins 2011. Hinn 21 árs gamli O´Hara fékk stóra tækifærið á þessu tímabili eftir að hafa komið til baka frá láni hjá neðri deildar liðum en hann hefur nú þegar spilað 25 leiki fyrir aðallið Spurs og skorað í þeim 2 mörk. Einnig hefur hann með frammistöðu sinni verið kallaður í U-21 árs landslið Englendinga.

Tímabilinu lauk með tapi

0

Tottenham tapaði síðasta leiknum í deildinni á tímabilinu þegar Liverpool kom í heimsókn á White Hart Lane. Dagurinn var sólríkur og leikmenn klæddust nýjum búningi sem notaður verður á næsta tímabili en ekki var sá búningur til lukku þennan daginn. Óhætt er að segja að leikurinn hafi ekki verið merkilegur að fylgjast með og voru lokatölur leiksins 2-0 fyrir gestina og það voru þeir Voronin og Torres sem skoruðu mörk Liverpool en bæði komu þau í seinni hálfleik.

Búningar næsta tímabils

0

Þriðjudagskvöldið 6.maí frumsýndi Tottenham búningana sem liðið mun leika í á næsta tímabili. Aðalbúningurinn verður sem fyrr sá hvíti en bláu stuttbuxurnar munu þó koma í stað þeirra hvítu á ný. Varabúningurinn verður ljósblár, bæði bolur og stuttbuxur og sá þriðji svartur og gylltur. Aðalbúningurinn fer í sölu á miðnætti annað kvöld og byrjað verður að taka við pöntunum fyrir vara- og þriðja búninginn.

Loksins sigur!

0

Eftir fjögur jafntefli í röð kom loks að sigri Tottenham. Liðið heimsótti Reading og fór með sigur af hólmi 1-0 en þetta var einungis þriðji útisigur liðsins í deildinni á öllu tímabilinu. Mark Tottenham skoraði Robbie Keane. Með þessum sigri tryggði liðið sér 11.sætið í deildinni en á þó möguleika á að komast yfir West Ham og ná 10.sætinu í síðustu umferðinni nk.sunnudag.

Endalaus jafntefli

0

Tottenham gerði fjórða jafnteflið í röð þegar Bolton kom í heimsókn á White Hart Lane. Enn á ný voru tvö mörk skoruð, eitt af hvoru liðinu og lauk því leiknum 1-1.  Bolton komst yfir í leiknum en Steed Malbranque jafnaði leikinn fyrir Tottenham. Til gamans má geta að nýjasti leikmaður Spurs, Luka Modric, horfði á leikinn úr stúkunni með Levy og Comolli.

Fyrstu kaup sumarins

0

Staðfest hefur verið á heimasíðu Tottenham að félagið hafi náð samkomulagi við Dinamo Zagreb um kaup á Luka Modric. Kaupverðið er ekki gefið upp en það er talið vera á bilinu 15-20 milljónir punda, og gæti hann því verið dýrasti leikmaður félagsins. Einnig hefur verið náð samkomulagi við leikmanninn sjálfan en hann á þó eftir að fara í læknisskoðun og sækja um atvinnuleyfi en gangi það allt saman eftir, skrifar hann undir samning við félagið og verður því fyrsti leikmaðurinn sem keyptur er í sumar. 

Modric, sem kemur frá Króatíu, er 22 ára og spilar stöðu miðjumanns. Hann getur bæði spilað á miðri miðjunni sem og vinstri kantinum. Hann hefur spilað 87 leiki fyrir Zagreb á þeim þremur árum sem hann hefur verið hjá þeim og skorað í þeim 25 mörk. Hann er einnig landsliðsmaður og hefur leikið 24 A-landsleiki þrátt fyrir ungan aldur. Í þeim hefur hann skorað 3 mörk.

Við vonum að allt gangi sem skyldi við læknisskoðun og atvinnuleyfið og bjóðum hann velkominn til Tottenham.

Þriðja jafntefli í röð

0

Tottenham gerði enn eitt jafnteflið þegar þeir heimsóttu Wigan á JJB Stadium. Berbatov kom Tottenham yfir í leiknum en Heskey jafnaði leikinn og lokastaðan því 1-1. Er þetta þriðja 1-1 jafnteflið hjá Tottenham í röð og frammistaða leikmanna ekki eins og best verður á kosið.

Nýjustu fréttirnar