Tottenham og
Tottenham og
Blackburn og Tottenham skiptu með sér stigunum þegar liðin skildu jöfn á Ewood Park. Með jafnteflinu urðu evrópuvonir Blackburn að engu en Tottenham siglir áfram á miðjuróli í deildinni. Lokatölur leiksins voru 1-1, Berbatov kom Tottenham yfir en Pedersen jafnaði fyrir Blackburn.
Félagið tilkynnti það í gær að Ledley King mun ekki spila meira með liðinu á þessu tímabili. Mun hann því hvíla sig og halda áfram endurhæfingu sinni svo að hann geti komið heill heilsu til leiks á næsta tímabili. Var sú ákvörðun tekin í ljósi þess að liðið hefur tryggt sér þátttökurétt í Evrópukeppninni á næsta tímabili og er á öruggu róli í deildinni. Í viðtali sagði King að hann að hnéð væri í ágætislagi núna og það væru ekki neinar bólgur í því. En það þyrfti að taka tillit til heildarmyndarinnar og þetta væri hentugur tími til að halda áfram að ná sem bestum bata, leita ráða hjá sérfræðingum og sjá til þess að hann kæmi tilbaka á næsta tímabili í toppformi.
Við óskum King góðs bata og vonumst til að sjá hann heilan heilsu á næstu leiktíð.
Lið Tottenham þurfti að bíta í það súra epli að tapa fyrir leikmönnum Newcastle á White Hart Lane. Leikurinn hófst vel þegar Bent skoraði fyrsta mark leiksins og annað mark sitt í jafnmörgum leikjum. En við tóku fjögur mörk frá gestunum og lauk leiknum því með 4-1 sigri Newcastle.
Við viljum benda fólki á að þar sem klukkan breyttist í Englandi í nótt þá hefst leikurinn klukkan 14:00 hér á Íslandi en kl 15:00 að breskum tíma.
Þá er komið að síðustu hópferð klúbbsins á þessu tímabili. En farið verður á lokaleik Tottenham á tímabilinu , leik Tottenham og Liverpool. Leikið verður á sunnudeginum 11. maí kl. 15.00 að staðartíma. Síðasti heimaleikur Tottenham er ávallt sérstakur þar sem eftir leik verða krýndir besti leikmaður og efnilegasti leikmaður ársins hjá Tottenham. Ávallt mjög skemmtilegt andrúmsloft á WHL á síðasta leik tímabils.
Tottenham klúbburinn óskar stuðningsmönnum, fjölskyldum þeirra og öllum landsmönnum gleðilegra páska með von um að allir hafa það sem allra best yfir hátíðina.
Tottenham hafði betur gegn Portsmouth þegar síðarnefnda liðið kom í heimsókn á White Hart Lane. Staða liðanna í deildinni er mjög ólík þar sem Portsmouth berst enn um evrópusæti á meðan lítil pressa er á liði Tottenham. Töluvert marga leikmenn vantaði í lið Portsmouth vegna leikbanna og meiðsla en Tottenham var með flesta sína sterkustu menn en nokkrir leikmenn eru þó meiddir. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Darren Bent og Jamie O´Hara sem skoruðu mörkin, en þeir komu báðir inná sem varamenn.
Fabio Capello tilkynnti í dag 30 manna hópinn fyrir vináttulandsleik Englendinga gegn Frökkum. Tveir leikmenn Tottenham eru í hópnum en það eru þeir Jonathan Woodgate og Jermaine Jenas.
Sannkölluð markaveisla var í boði þegar Chelsea mætti í heimsókn á White Hart Lane. Leikurinn var frestaður leikur frá því í febrúar en liðin áttu að leika þennan deildarleik daginn fyrir Carling Cup úrslitaleikinn. Búast mátti við Chelsea mönnum ákveðnum til leiks enda staðráðnir í að hefna fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum ásamt því að vera í bullandi toppbaráttu en leikmenn Tottenham voru ekki á því að láta valta yfir sig og lauk leiknum með 4-4 jafntefli. Mörk Tottenham skoruðu þeir Woodgate, Berbatov, Huddlestone og Keane.