Page 62

Tap í Manchesterborg

0

Tottenham tapað fyrir Manchester City þegar liðið heimsótti þá á City of Manchester Stadium. Leiknum lauk með 2-1 sigri City manna en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.

Evrópudraumurinn úti

0

Draumur Tottenham um sigur í UEFA cup varð að engu þegar liðið heimsótti PSV Eindhoven  í síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum. Leikmenn Tottenham vissu að ekkert annað en sigur myndi duga til að komast áfram þar sem PSV vann á WHL 1-0. Leiknum lauk með sigri Tottenham 1-0 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja leikinn. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara leiksins og stóð PSV að lokum uppi sem sigurvegari. Mark Tottenham í venjulegum leiktíma skoraði Berbatov og hann skoraði einnig í vítaspyrnukeppninni ásamt O´Hara, Huddlestone, Bent og Zokora.

Stórsigur í Lundúnarslag

0

Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar nágrannarnir í West Ham heimsóttu Tottenham. Tottenham sigraði með fjórum mörkum gegn engu marki West Ham manna og það voru þeir Berbatov (2), Gilberto og Bent sem skoruðu mörkin.

Tap á heimavelli gegn PSV

0

Leikmenn Tottenham gerðu sér erfitt fyrir í 16 liða úrslitum UEFA cup með tapi á heimavelli fyrir PSV Eindhoven í fyrri leik liðanna. Einvígið er þó ekki búið þar sem einungis eitt mark skildi liðin að en Tottenham mun þó eiga afar erfitt ferðalag framundan í næstu viku þegar þeir heimsækja PSV í síðari leiknum. Leiknum lauk með sigri gestanna 0-1 og var það Farfán sem skoraði eina mark leiksins.

Dixon yfirgefur félagið

0

Tottenham tilkynnti það í dag að Terry Dixon hefur yfirgefið félagið. Hinn 18 ára Dixon hefur lítið spilað undanfarin ár eftir að hafa orðið fyrir mjög slæmum hné meiðslum. Fyrst hlaut hann þau árið 2006 og var hann frá allt tímabilið 2006-2007. Hann varð svo fyrir því óláni að hljóta sömu meiðsli þegar hann var nýbyrjaður að spila á ný og hefur ekki spilað neitt á þessu tímabili. Ákvörðunin var gerð bæði af hans hálfu og félagsins með hagsmuni hans að leiðarljósi enda ekki víst hvernig bati hans mun verða. Við óskum þessum unga og mjög efnilega pilti velfarnaðar í framtíðinni og vonandi nær hann sér af meiðslum sínum.

Harður skellur niður á jörðina

0

Það var ekki langlíft paradísarlífið í herbúðum Tottenham. Eftir góðan sigur á Chelsea síðustu helgi þar sem liðið hampaði Carling Cup titlinum fékk liðið harðan skell þegar það heimsótti Birmingham. Leiknum lauk með stórsigri Birmingham 4-1 en eina mark Tottenham skoraði Jermaine Jenas á lokamínútum leiksins.

Leikurinn sýndur á Ölveri

0

Leikur Tottenham við Birmingham í dag verður sýndur á Ölveri og er um að gera að mæta þangað og horfa á leikinn í hópi góðra Spursara. Leikurinn hefst kl.15:00

Hutton setur met

0

Hutton setti nýtt met hjá Tottenham sem verður eflaust erfitt að bæta. Hann mun vera sá leikmaður sem fæsta leiki hefur spilað fyrir félagið áður en hann náði að vinna titil. Bikarúrslitaleikurinn var einungis þriðji leikur hans fyrir félagið en hann hefur ekki mátt spila með liðinu í UEFA keppninni þar sem hann hafði áður spilað með Rangers í meistaradeildinni en þeir spila núna í UEFA cup. Við óskum Hutton til hamingju með þennan áfanga.

Tottenham deildarbikarmeistari

0

Tottenham sigraði Chelsea í úrslitum deildarbikarsins á Wembley, 2-1 eftir framlengdan leik. Leiknum lauk með jafntefli 1-1 eftir venjulegan leiktíma þar sem Drogba kom Chelsea yfir en Berbatov jafnaði úr vítaspyrnu. Woodgate skoraði svo sigurmarkið með skalla í framlengingunni og því voru það leikmenn Spurs sem lyftu bikarnum í leikslok eftir langa bið.

Stóra stundin runnin upp!

0

Þá er komið að því kæru Spursarar. Eftir of langa bið er liðið loksins á leið á Wembley. Eftir að hafa lagt Middlesbrough, Blackpool, Manchester City og auðvitað Arsenal svo eftirminnilega er komið að úrslitaleiknum gegn Chelsea. Klúbburinn hvetur alla Spursara til að mæta á Ölver, Glæsibæ og styðja liðið ásamt því að eiga góðan dag saman. Salurinn opnar kl.12:30 og verða tilboð á veitingum gegn framvísun klúbbskírteinis. Klukkan 15:00 gengur liðið svo út á þjóðarleikvang Englendinga, Wembley, en þetta er fyrsti Carling Cup úrslitaleikurinn á nýja Wembley.

Við sendum okkar bestu baráttukveðjur til strákanna. Áfram Tottenham!!!

Nýjustu fréttirnar