Page 63

Tottenham áfram í 16 liða úrslitin

0

Tottenham komst áfram í 16.liða úrslit UEFA Cup eftir að hafa lagt Slavia Prag samanlagt með þremur mörkum gegn tveimur. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham og liðin skildu svo jöfn á White Hart Lane og skoruðu sitthvort markið. Mark Tottenham skoraði Jamie O´Hara strax á 7.mín en liðinu tókst ekki að bæta við og Slavia jafnaði leikinn en komust þó ekki lengra. Tottenham mætir því PSV í næstu umferð.

Tilboð hjá Jóa útherja

0

Jói útherji býður meðlimum Tottenham klúbbsins upp á tilboð á treyju klúbbsins í tilefni úrslitaleiksins á sunnudaginn. Gegn framvísun klúbbskírteinis fá félagsmenn treyjuna á 5000 kr en takmarkað magn er í boði og því gildir að fyrstur kemur, fyrstur fær.

Nauðsynlegt er að framvísa klúbbskírteininu!

Félagsskírteini

0

Nú ættu félagsskírteini klúbbsins að hafa borist meðlimum ásamt blaði klúbbsins. Ef einhver hefur ekki fengið skírteinið sitt en hefur greitt ársgjaldið þá getur sá hinn sami haft samband við Sigrúnu í tölvupósti á ms.keane@hotmail.com.

Gerum okkur glaðan dag!

0

Í tilefni af úrslitaleiknum í Carling Cup sunnudaginn 24.febrúar hvetur Tottenham klúbburinn stuðningsmenn liðsins að mæta á Ölver, Glæsibæ og horfa á leikinn í góðra manna hópi. Salurinn verður opnaður töluvert fyrir leik, eða kl.hálf eitt, svo stuðningsmenn geti spjallað saman og kynnst öðrum stuðningsmönnum. Leikurinn hefst svo klukkan 15:00 en útsending hefst hálftíma fyrr með ýtarlegri upphitun. Tilboð verða á veitingum fyrir klúbbmeðlimi gegn framvísun klúbbskírteinis þar til leik lýkur.

Hálfur sigur unninn

0

Tottenham vann nauman útisigur á Slavia Prag í fyrri viðureign liðanna í 32.liða úrslitum UEFA cup. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham en seinni leikurinn fer fram að viku liðinni. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dimitar Berbatov og Robbie Keane.

Sanngjarn sigur á Pride Park

0

Tottenham vann sinn annan útisigur í stjórnartíð Ramos þegar liðið lagði botnlið Derby á Pride Park. Leikurinn var ekki hinn skemmtilegasti fyrir áhorfendur en leikmenn Tottenham tryggðu sér öll stigin á síðasta hálftímanum í leiknum og unnu leikinn með þremur mörkum gegn engu. Mörkin skoruðu þeir Robbie Keane, Younes Kaboul og Dimitar Berbatov úr víti.

Tímabilið búið hjá Bale

0

Damien Comolli staðfesti það á heimasíðu Tottenham að Gareth Bale muni ekki leika meira með liðinu á þessu tímabili. Bale meiddist í desember í leik gegn Birmingham og fór í framhaldi af því í aðgerð á fæti. Hann losnaði svo við gifsið af fætinum í dag en læknar telja þó að hann nái sér ekki að fullu á þessu keppnistímabili og sökum ungs aldurs vilja yfirmenn Tottenham ekki flýta honum um of inn í aðalliðið á ný.

Við óskum Bale góðs bata og hlökkum til að sjá hann í hvítu skyrtunni á ný í sumar

Jafnt á White Hart Lane

0

Tottenham og Manchester United skildu jöfn þegar meistararnir heimsóttu Tottenham á White Hart Lane. Liðin mættust í annað sinn á einni viku en fyrri leiknum lauk með sigri United í FA bikarnum. Í þetta sinn leit allt út fyrir að Tottenham væri að leggja United að velli en gestirnir jöfnuðu á lokamínútunni í uppbótartíma og nældu í óverðskuldað stig enda Tottenham verið mun betri í leiknum. Berbatov kom Tottenham yfir en jöfnunarmarkið var sjálfsmark frá Dawson þó það sé af sumum fréttamiðlum eignað Tevez.

Tveir lánaðir út leiktíðina

0

Tveir leikmenn Tottenham voru lánaðir í gær í félagaskiptaglugganum. Stalteri fór á láni til Fulham og Gardner var lánaður til Everton. Báðir lánssamningarnir gilda út tímabilið.

Gilberto bætist í hópinn

0

Tottenham staðfesti undir lok félagaskiptagluggans að þeir hafi fest kaup á brasilíska vinstri bakverðinum, Gilberto frá Herthu Berlin. Gilberto da Silva Melo eins og hann heitir fullu nafni er 31 árs brasilískur landsliðsmaður sem hefur spilað síðustu þrjú ár í þýskalandi með Herthu Berlin og lék alls 101 leik fyrir þá. Hann getur spilað bæði stöðu vinstri bakvarðar og vinstri kantmanns og gefur því Ramos fleiri möguleika á vinstri helmingi vallarins en fyrir eru þeir Bale, Ekotto og Lee hjá félaginu en Bale og Ekotto eiga í langtíma meiðslum.

Við bjóðum Gilberto velkominn til Tottenham.

Nýjustu fréttirnar