Page 64

Defoe farinn til Portsmouth

0

Tottenham tók tilboði Portsmouth í Jermaine Defoe á síðasta degi félagaskiptagluggans og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við það síðarnefnda. Defoe kom til Tottenham í janúar 2004 frá West Ham og lék alls 177 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 64 mörk. Hann hefur átt í harðri baráttu við aðra sóknarmenn liðsins um byrjunarliðssæti og oftar en ekki vermt varamannabekkinn og hefur því ákveðið að söðla um og halda á nýjar slóðir. Kaupverð er ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum 9 milljónir punda sem er af mörgum talið í lægri kantinum. Hann átti þó ekki nema 18 mánuði eftir af samningi sínum og félagið sá sig tilneytt til að selja hann nú í stað þess að missa hann frítt eftir 18 mánuði.

Við óskum Defoe alls hins besta í framtíðinni og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins.

Jafnt á Goodison Park

0

Tottenham og Everton skildu jöfn þegar liðin mættust á Goodison Park. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og var ekkert mark skorað í leiknum. Jonathan Woodgate lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir að hafa verið keyptur frá Middlesbrough í vikunni og stóð sig mjög vel og var af mörgum talinn maður leiksins. Gunter spilaði einnig sinn fyrsta leik fyrir liðið í deildinni en hafði áður spilað í FA cup.

Routledge semur við Villa

0

Tottenham og Aston Villa hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á Wayne Routledge. Routledge gekk til liðs við Tottenham frá Crystal Palace árið 2005 en meiddist í upphafi leiktíðar og var frá fram í desember. Þá hafði Lennon nýtt sér tækifærið og staðið sig vel og átti Routledge í erfiðleikum með að vinna sæti í liðinu en spilaði þó nokkra leiki. Hann fór tvisvar á lán, bæði til Portsmouth og Fulham en hefur nú gengið til liðs við Aston Villa.

Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni og þökkum fyrir framlag hans til liðsins

Hutton semur við Spurs

0

Tottenham hefur staðfest kaup á Alan Hutton frá Glasgow Rangers og er hann þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir nú í janúar.  Hutton er skoskur landsliðsmaður og spilar stöðu hægri bakvarðar. Hann er 23 ára og spilaði 122 leiki fyrir Rangers og skoraði í þeim 4 mörk. Kaupverð er ekki gefið upp en er talið vera í kringum 9 milljónir punda.

Við bjóðum Hutton velkominn til Tottenham.

Woodgate skrifar undir

0

Staðfest hefur verið að Tottenham hefur fest kaup á Jonathan Woodgate frá Middlesbrough. Woodgate er 28 ára enskur miðvörður og hefur hann m.a. spilað með Leeds, Newcastle, Real Madrid og Middlesbrough. Hann gengur nú til liðs við Spurs en hann gerði þriggja og hálfs árs samnning við liðið.

Við bjóðum Woodgate velkominn til Tottenham.

Draumurinn um FA bikarinn úti

0

Tottenham féll út í 4.umferð FA bikarsins þegar þeir heimsóttu Manchester United á Old Trafford. Leiknum lauk með 3-1 sigri Man.Utd í skemmtilegum og spennandi leik en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.

Barnard til Southend

0

Tottenham og Southend hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á Lee Barnard, sóknarmanni Spurs. Barnard kom upp í gegnum yngri flokka Spurs og spilaði sinn fyrsta aðalleik fyrir félagið þegar hann kom inná sem varamaður í leik gegn Manchester United á tímabiliu 2005/2006. Hann spilaði þar að auki tvo aðra leiki fyrir aðalliðið en náði ekki að festa sig þar í sessi. Hann hefur nokkrum sinnum farið á láni til neðrideildar félaga en hefur nú gengið til liðs við Southend.

Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins.

Tottenham mætir Chelsea

0

Tottenham mætir liði Chelsea í úrslitum Carling Cup þann 24.febrúrar nk. Eins og flestum er kunnugt lagði Tottenham erkifjendur sína í Arsenal í undanúrslitum í gær og Chelsea sigraði Everton samanlagt 3-1 og mætast því þessi tvö Lundúnarlið eins og áður sagði í úrslitunum.

SPURS Á LEIÐ Á WEMBLEY!!!

0

Stuðningsmenn Spurs um heim allan glöddust verulega í gær þegar liðið náði að tryggja sér sæti í úrslitum Carling Cup á Wembley sem fram fer þann 24.febrúar. Það sem gerði þessa ánægjustund enn betri var það að liðið lagði erkifjendur sína, Arsenal í undanúrslitaleiknum og var það fyrsti sigurinn á þeim í 9 ár. Leiknum lauk með stórsigri Spurs 5-1 og fór því liðið áfram á samanlögðum úrslitum 6-2. Mörk Tottenham skoruðu þeir Jenas, Keane, Lennon og Malbranque en annað mark Tottenham skoraði Bendtner í sitt eigið mark. Adebayor skoraði mark gestanna.

Keane með 100 mörk

0

Robbie Keane skoraði í dag sitt hundraðasta mark fyrir Tottenham Hotspur í öllum keppnum og er þar með þriðji leikmaður Spurs á síðustu 3 áratugum sem nær þeim árangri en hinir tveir eru þeir Hoddle og Sheringham.  Keane gekk til liðs við Spurs árið 2002 og hefur skorað alls 76 mörk fyrir liðið í deildinni, 16 í bikarkeppnum og 8 í Evrópukeppnum.

 

Við óskum Keane til hamingju með þennan áfanga.

Nýjustu fréttirnar