Tottenham sigraði Sunderland á White Hart Lane í hörkuleik sem bauð upp á spennu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Leiknum lauk með 2-0 sigri Spurs og voru það þeir Lennon og Keane sem skoruðu mörk Tottenham en markið hjá Keane var 100. mark hans fyrir félagið í öllum keppnum.
Miðar á Man Utd í FA CUP
Hægt er að sækja um miða á FA CUP leikinn gegn Man Utd þangað til 16.00 á morgun.( það þarf að senda mail út fyrir kl. 17.00 )
Ekki er samt gulltryggt að við fáum miða, en ef einhverjir vilja fara á þann leik, þá vinsamlegast sendið e-mail á midar@spurs.is , og takið fram hve marga miða þið viljið og svo aldur og nöfn þeirra sem myndu fara. Skilyrði til að fá miða er að vera búinn að borga klúbbgjaldið fyrir 2007-2008.
Sigur í FA CUP
Tottenham sigraði í gær lið Reading 0-1 á útivelli í endurteknum leik í 3. umferð FA CUP. Eina mark leiksins skoraði Robbie Keane á 15. mínútu.
Tap á Brúnni
Tottenham fór heim án stiga úr viðureign liðsins við Chelsea á Stamford Bridge. Chelsea vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu og voru það þeir Bellettio og Wright-Phillips sem sáu um markaskorun í leiknum.
Ghaly lánaður til Derby
Staðfest var í dag að Hossam Ghaly hefur verið lánaður til Derby út tímabilið en hann hefur verið úti í kuldanum frá því á síðasta tímabili. Eins og flestir vita sýndi hann gremju sína yfir því að vera tekinn út af í leik á siðasta tímabili með því að kasta Tottenham skyrtunni í jörðina fyrir framan Martin Jol og varð það til þess að hann hefur ekki fengið að spila síðan. Hann hefur að mestu verið að æfa með liði í Egyptalandi undanfarið en hefur nú verið lánaður til Derby.
Phil Ifil seldur
Phil Ifil hefur verið seldur til Colchester United. Phil Ifil kom upp úr unglingastarfi Tottenham og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið aðeins 17 ára gamall og má segja að fyrsti leikurinn hafi verið ansi stór enda voru mótherjarnir þá Liverpool. Hann spilaði 5 leiki fyrir aðalliðið en var að mestu leikmaður varaliðsins og var fyrirliði þess í mörgum leikjum. Hann var einnig sendur á láni í neðri deildar lið nokkrum sinnum, nú síðast hjá Southampton.
Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni!
Berbatov verðlaunaður
Dimitar Berbatov hefur verið valinn fótboltamaður ársins 2007 í Búlgaríu. Annar í valinu var Martin Petrov, leikmaður Manchester City og þriðji var Georgi Petkov hjá Levski Sofia. Við óskum Berbatov til hamingju með þessi verðlaun!
Jafnt í „hálfleik“ í Carling Cup
Segja má að staðan sé jöfn í hálfleik í undanúrslitum Carling Cup eftir leik Arsenal og Tottenham. Fyrri leikurinn var á Emirates og lauk með 1-1 jafntefli en síðari leikurinn fer fram á White Hart Lane eftir hálfan mánuð. Jenas kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik en Walcott jafnaði 11 mínútum fyrir leikslok og skildu liðin því jöfn og má búast við hörku leik í síðari viðureign liðanna.
Dregið í 4.umferð FA Cup
Nú fyrir stuttu var dregið í 4.umferð enska bikarsins. Þar sem Tottenham og Reading skildu jöfn á laugardaginn leika þau á ný 15.janúar og mun sigurliðið úr þeirri viðureign mæta liði Manchester United á Old Trafford 26. eða 27.janúar. Drátturinn í heild sinni lítur svona út:
Jafnt í FA bikarnum
Tottenham og Reading skildu jöfn í viðureign sinni í 3.umferð FA Cup og þurfa því að mætast á ný þann 15.janúar á heimavelli Reading. Leiknum lauk 2-2 en bæði mörk Tottenham skoraði Dimitar Berbatov, annað úr vítaspyrnu, og er því kominn með samtals 13 mörk í öllum keppnum á tímabilinu.





