Page 66

Tap á Villa Park

0

Tottenham byrjaði nýja árið illa þegar þeir heimsóttu Aston Villa á Villa Park. Leiknum lauk með sigri Villa, 2-1 en Jermain Defoe skoraði mark Tottenham. Tottenham lenti undir en Defoe jafnaði 11 mínútum fyrir leikslok. Það dugði hins vegar ekki því Villa skoraði sigurmarkið á 85.mínútu og hirti öll stigin.

Áramótakveðja

0

Tottenham klúbburinn óskar stuðningsmönnum Spurs sem og landsmönnum öllum gleðilegs árs með þökkum fyrir góðar stundir á liðnu ári. Megi nýtt ár færa ykkur gleði og góðar stundir.

Gleðilegt nýtt ár!!!

Keane markahæstur árið 2007

0

Robbie Keane varð markahæstur í ensku úrvalsdeildinni á almanaksárinu 2007 með 19 mörk skoruð. Næstur á eftir honum var Ronaldo hjá Manhcester United með 18 mörk en báðir misnotuðu þeir vítaspyrnu í lokaleik ársins. Þriðji var svo McCarthy með 15 mörk og þar á eftir koma Tevez, Yakubu og Anelka allir með 14 mörk. Við óskum Robbie til hamingju með þennan árangur þó svo að þetta gefi honum ekki gullskóinn. Það verður svo að koma í ljós í lok tímabils hvort Spurs eigi toppmarkaskorara í deildinni á núverandi tímabili.

Flugeldasýning á White Hart Lane

0

Það má segja að leikmenn spurs hafi kvatt leikárið með flugeldasýningu á White Hart Lane í dag og leikmenn Reading lögðu svo sannarlega sitt af mörkum til að gera hana enn betri. Alls litu 10 mörk dagsins ljós en leiknum lauk með sigri Tottenham 6-4. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dimitar Berbatov (4), Steed Malbranque og Jermain Defoe.

Kóngurinn snýr aftur í sigurleik

0

Það var sannkölluð jólamarkaveisla á White Hart Lane þegar leikmenn Fulham mættu í heimsókn. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar liðið gekk inn á völlin þar sem fremstur í flokki var Ledley King en þetta var hans fyrsti leikur á tímabilinu eftir ansi löng og erfið meiðsli. Leiknum lauk svo með sigri Tottenham 5-1 en mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane (2), Tom Huddlestone (2) og Jermain Defoe.

Tottenham kaupir leikmann

0

Tottenham hefur tilkynnt að samningar hafa tekist við Cardiff City um kaup á Chris Gunter, leikmanni þeirra. Samningurinn tekur gildi 1.janúar þegar félagaskiptaglugginn opnast en kaupverð hefur ekki verið gefið upp. Það er þó talið vera í kringum 4 milljónir punda, hluti af því er greiddur strax út en restin eftir árangri. Gunter, sem aðeins er 18 ára, spilar stöðu bakvarðar og getur spilað báðum megin en kýs þó frekar að spila hægra megin.

Gleðilega hátíð

0

Tottenham klúbburinn óskar stuðningsmönnum sem og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.

Tap í N-Lundúna slagnum

0

Tottenham tapaði sínum fyrsta útileik undir stjórn Ramos þegar þeir heimsóttu Arsenal á Emirates leikvanginn. Leikir milli þessara liða eru ávallt spennandi enda lítill kærleikur þar á milli. Leiknum lauk með 2-1 sigri Arsenal en mark Tottenham skoraði Berbatov og var það glæsilegt mark.

Tottenham mætir Slavia Prag í UEFA cup

0

Dregið var nú rétt í þessu í 32 liða og 16 liða úrslit UEFA cup. Þar sem Tottenham endaði í öðru sæti í riðlinum drógust þeir gegn liði sem endaði í þriðja sæti í Meistaradeildinni. Tottenham mætir Slavia Prag í 32 liða úrslitum og verður fyrri leikurinn leikinn á heimavelli Slavia Prag og sá seinni á White Hart Lane. Sigri Tottenham Slavia Prag þá mæta þeir sigurliðinu í viðureign PSV Eindhoven og Helsingborg.

Tottenham mæta Arsenal í undanúrslitum

0

Dregið var í undanúrslit Deildabikarsins í Englandi eftir að síðasta leik fjórðungsúrslitanna lauk á miðvikudagskvöld. Tottenham munu mæta Arsenal á meðan í hinum leiknum munu Chelsea og Everton mætast. Leikirnir munu fara fram heima og að heiman dagana 8/9 janúar og 22/23 janúar.

Nýjustu fréttirnar