Page 67

Tottenham áfram í deildarbikarnum

0

Tottenham er komið í undanúrslit Carling Cup eftir sigur á Manchester City á heimavelli þeirra. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og skoruðu þeir Jermain Defoe og Steed Malbranque mörk Tottenham í hörkuspennandi leik.

Fyrsti útisigurinn í deildinni

0

Tottenham vann sinn fyrsta útisigur í deildinni þegar þeir heimsóttu Harry Redknapp og félaga í Portsmouth. Sömuleiðis var þetta fyrsti tapleikur Portsmouth á heimavelli í deildinni á þessari leiktíð en lokatölur leiksins voru 0-1 og var það Berbatov sem skoraði eina mark leiksins.

Bale frá í amk 3 mánuði

0

Tottenham gaf það út í dag að Bale verði líklegast frá keppni næstu 3 mánuði sökum meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Birmingham. Ekki er nákvæmlega vitað hversu alvarleg meiðslin eru en það mun koma í ljós á næstu dögum. Verður hann svæfður og fóturinn skoðaður vandlega og meiðslin metin til fulls. Þegar meiðslin hafa jafnað sig mun hann rólega byrja að æfa en sökum ungs aldurs vill félagið ekki setja hann of fljótt inn í liðið á ný til þess að koma í veg fyrir að meiðslin verði honum framtíðarvandi. Ljóst er þó að við fáum ekki að sjá Bale á vellinum fyrr en á næsta ári en við óskum honum góðs bata.

Þriðji deildarsigur tímabilsins

0

Tottenham vann sinn þriðja deildarsigur á tímabilinu þegar þeir tóku á móti Manchester City á White Hart Lane. Leiknum lauk með 2-1 sigri og voru það þeir Chimbonda og Defoe sem skoruðu mörk Tottenham

Jafnt í Belgíu

0

Tottenham tryggði sér áframhaldandi þátttöku í Evrópukeppninni þegar þeir gerðu jafntefli við Anderlecht í Belgíu í gær. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og var það Berbatov sem skoraði mark Tottenham úr vítaspyrnu. Tottenham er því komið áfram í 32 liða úrslit þrátt fyrir að ein umferð sé eftir, en Tottenham situr hjá í þeirri umferð.

King spilaði 45 mínútur

0

Ledley King spilaði í kvöld sinn fyrsta leik eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir í sumar. Hann meiddist með landsliðinu í vor og hefur ekkert spilað síðan. Hann var í byrjunarliði varaliðs Tottenham sem heimsótti varalið Fulham á Craven Cottage. King lék allan fyrri hálfleikinn en Tottenham tapaði þó leiknum 1-0 með marki á lokamínútum leiksins.

Ledley King í varaliðinu

0

Ledley King er í hópi varaliðsins sem mætir Fulham í kvöld. Það eru án efa gleðitíðindi í eyrum allra Spursara og vonandi styttist í að hann spili með aðalliðinu þar sem hans er sárt saknað. Einnig eru í hópnum Ricardo Rocha og Dorian Dervitte en þeir eru báðir að spila í fyrsta sinn eftir löng meiðsli.

Áfrýjun Keane hafnað

0

Nú rétt í þessu var Enska knattspyrnusambandið að hafna áfrýjun Tottenham út af rauða spjaldinu sem hann fékk gegn Birmingham á sunnudaginn var.

Fyrsti ósigur Ramos

0

Tottenham tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Ramos þegar þeir fengu Birmingham í heimsókn. Leiknum lauk með 3-2 sigri Birmingham en bæði mörk Tottenham skoraði Robbie Keane, annað þeirra úr víti.

Reading í FA bikarnum

0

Í dag var dregið í 3.umferð enska bikarsins. Tottenham fær lið Reading í heimsókn og verður leikurinn háður annað hvort 5. eða 6. janúar.

Nýjustu fréttirnar