Benoit Assou-Ekotto gekkst undir aðgerð í gær vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir fyrr á tímabilinu og mun ekki spila meira með á þessari leiktíð. Ekotto hefur einungis spilað tvo leiki fyrir Tottenham á þessu tímabili, einn í deild og einn í UEFA cup en í upphafi tímabils var hann enn að jafna sig eftir meiðsli sem hann hlaut á síðasta tímabili og hélt honum frá leik í nokkra mánuði. Við vonum bara að allt gangi vel og óskum honum góðs bata.
Sigur í UEFA Cup
Tottenham lagði danska liðið Álaborg í þriðja og næstsíðasta leik liðsins í G-riðli í UEFA Cup á White Hart Lane. Danska liðið náði tveggja marka forystu en með gífurlegri baráttu og vinnusemi náðu leikmenn Tottenham að svara fyrir sig og hirða öll þrjú stigin. Leiknum lauk með 3-2 sigri Tottenham og skoruðu þeir Berbatov, Malbranque og Bent mörkin og er liðið því enn ósigrað undir stjórn Ramos.
Miðapantanir
Varðandi pantanir á miða á leiki viljum við benda á linkinn hér til hægri en þar má sjá lokafrest á pantanir á leiki fram á næsta ár. Pantanir á miðum skal senda á netfangið midar@spurs.is en það er allt útskýrt á síðunni undir linknum miðakaup.
Markaveisla á White Hart Lane
Tottenham lagði lið Wigan á White Hart Lane í bráðskemmtilegum leik sem bauð upp á góða spilamennsku og markaveislu. Leiknum lauk með 4-0 sigri Tottenham og voru það þeir Jermaine Jenas (2), Aaron Lennon og Darren Bent sem skoruðu mörkin. Var þetta þriðji sigur Tottenham í fjórum leikjum undir stjórn Ramos og þriðji leikurinn sem liðið heldur hreinu. Liðið er því enn taplaust undir stjórn Ramos og vonandi er það komið til að vera.
Sigur í Ísrael
Tottenham lagði lið Hapoel Tel Aviv að velli í Ísrael með tveimur mörkum gegn engu og var þetta annar sigur liðisins undir stjórn Ramos og fyrsti sigur liðsins í riðlakeppni UEFA cup á þessu ári. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov.
Tveir leikmenn í enska landsliðshópinn
Tveir leikmenn Tottenham, Paul Robinson og Jermain Defoe, hafa verið kallaðir í enska landsliðshópinn sem mætir Austurríki í vináttulandsleik og Króatíu í undankeppni EM á næstunni.
Tel Aviv – Spurs
Fyrsti Evrópuleikur Juande Ramos verður í dag kl 16:00 að íslenskum tíma. Það má segja að þetta sé fyrsti leikurinn undir stjórn Ramos sem verður að vinnast.
Jafntefli gegn Boro
Ekki náði Ramos sínum fyrsta sigri í deildinni með liðið þegar þeir heimsóttu Middlesbrough um helgina. Darren Bent kom Tottenham yfir en fyrrum spursarinn Luke Young jafnaði metin og lauk því leiknum með jafntefli.
Tottenham mætir Man.City
Nú fyrir stuttu var dregið í 8 liða úrslit í Carling Cup. Tottenham mætir Man.City á útivelli en aðrir leikir í umferðinni eru West Ham gegn Everton, Chelsea gegn Liverpool og Blackburn gegn Arsenal.
Sigur í fyrsta leik!
Tottenham lagði Blackpool í 16 liða úrslitum Carling Cup 2-0 á White Hart Lane. Þetta var fysti leikur liðsins undir stjórn Ramos. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Pascal Chimbonda í sitthvorum hálfleiknum.





